Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1986, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1986.
Uflönd
Þyfiðhefði
nægt til að
jafha einbýiis-
■ -* i m •• jat
hus við jorðu
Ibukur L. Hauksson, DV, Kaupmhcán:
Þrír ungir menn játuðu fyrir
rétti fyrir helgi að hafa stolið
nokkur hundruð kílóum af
sprengiefai og öðru tilheyrandi fró
vopnageymslu danska hersins í
Farum við Kaupmannahöfri um
síðustu mánaðamóL
Er sprengieftiið nú í öruggri
gæslu hersins og verður sprengt
við fyrsta tækifæri þar sem það er
upphaflega af lager Iögreglunnar
yfir þýfi. Ætluðu þrímenningamir
að sprengja peningaskápa með
dínamítinu í auðgunarskyni og
fékk orðómur um meint ofbeldis-
verk hermdarverkamanna þar með
skjótan dauðdaga.
Komst lögreglan á sporið er hún
fann dínamíthylki eitt í mann-
lausri bifreið fyrir skömmu. Við
handtöku manns er tengdist bif-
reiðinni játaði hann að kannast
við díriamítþjófrma og vísaði yfir-
völdum á þýfið og sjálfa þjófana.
Var þýfið falið í leiguherbergi í
einbýlishúsi í Kaupmannahöfn og
heíði nægt til að jafoa húsið alger-
lega við jörðu og meira til. Danski
herinn hefur nú í hyggju að auka
öry’ggisráðstafanir við vopna-
geymslur sínar en um helmingur
þeirra liggur utan við afgirt svæði
hersins.
Heilabólga
skæð í
Vestur-Bengal
Yfir fjörutíu manns hafa látist á
örfáum dögum í Vestur-Bengal á
lndlandi af völdum illkynja heila-
bólgu, að því er segir í frétt
indversku fféttastofunnar í morg-
un.
Að minnsta kosti tvö hundruð
manns í nokkrum þorpum í Burd-
wan héraði í Vestur-Bengal hafa
sýnt einkenni heilabólgusmits en
sjúkdómurinn er talinn berast á
milli manna með moskítóflugum.
Sjúkdómseinkennin eru þau helst
að hluti heilans bólgnar út og
hindrar blóðstreymi um höfuðið.
Sandinistar
með banana-
kiöfur
Yfirvöld í Nicaragua lögðu í
morgun ffarn kröfur á hendur
stærsta bananaframleiðslufyrir-
tæki í Mið-Ameríku, Standard
Fruit, fyrir rétti í San Fransisco.
Krefjast yfirvöld í Nicaragua 35
milijón dollara í skaðabætur frá
fyrirtækinu fyrir að standa ekki
við gefha samninga um banana-
kaup frá landinu.
PiBmnA amdhiMfc, ir|I> jf*|L JfTL 1
pnnsmn passar
móður sína
HaukurLárusHaukssan,DV,Kaiqjmha&i;
Friðrik, krónprins Dana,
mætti í fyrsta skipti til herbúða
hins konunglega lífvarðar á
fimmtudag í síðustu viku. Hafði
hann tekið lífvörðinn fram yfir
aðra herþjónustu og mun hann
gegna skyldu sinni þar nasstu tvö
árin. Þar á eftir bíður frekari
menntun og stöðuhækkun innan
danska hersins.
Hljóðar dagskráin nú ekki leng-
ur upp á nýtísku Volvo og fleiri
hundruð fermetra piparsveinaíbúð
heldur standið rétt og jafnið bihð
og það strax!
Bróðir hans, Jóakim, fór til Ástr-
alíu þar sem hann mun kynnast
landbúnaði næsta árið en hann
mun taka við rekstri síns eigin
herragarðs með öllu tilheyrandi
áður en langt um líður.
Hasenfus kveðst sekur
Enrique Sotelo Borgen, verjandi
Bandaríkjamannsins Eugene Has-
enfús, er tekinn var til fanga af
hermönnum Nicaragua eftir að
flutningavél hans var skotin niður
yfir norðurhluta Nicaragua fyrir
skömmu, gagnrýndi í gær harðlega
saksóknara stjómarinnar og kvaðst
ekki hafa fengið nægan tíma til und-
irbúnings málsvamar með skjól-
stæðingi sínum áður en dómur fellur
í máli hans. Búist er við að hann
verði kveðinn upp fyrir vikulok af
svokölluðum alþýðudómstóli er yfir-
völd hafa sérstaklega skipað til að
rétta yfir Bandarfkjamanninum.
„Ég er sekur,“ sagði Hasenfus á
fúndi með bandarískum sjónvarps-
mönnum í Managua í gær, er
sjónvarpað var beint um öll Banda-
ríkin, og kvað öll ákæmatriði
sandinistastjómarinnar á hendur sér
vera rétt.
Hasenfus fullyrðir að bandaríska
leyniþjónustan CIA hafi skipulagt
birgðaflug sitt með vopn til contra-
skæmliða í Nicaragua og séð um
að greiða fyrir verkið. Talsmenn
leyniþjónustunnar neita alfarið að
CIA eigi nokkum hlut að máli.
Ef Hasenfus verður dæmdur sekur
má hann eiga von á allt að þrjátíu
ára fangelsisdómi.
Bandarikjamaðurinn Eugene Hasenfus, fangi stjórnarhermanna i Nicaragua, skömmu eftir að flutmngaflug-
vél hans var skotin niður með vopnasendingu til contra-skaeruliða. Búist er við að dómur verði kveðinn upp
yfir Hasenfus fyrir helgi.
Slagsmál á
friðanáðstefhu
Haukur Lárus Hauksson, DV, Kaupmhöfru
Alþjóðleg friðarráðstefna, er hald-
in var í Kaupmannahöfn í lok síðustu
viku, endaði í hörkuslagsmálum á
suniiudag. Á ráðstefnunni vom sam-
ankomnir 2.500 fulltrúar frá 136
löndum og 100 alþjóðlegum samtök-
um.
Töluverður styr stóð um ráðstefnu
þessa áður en hún hófst og á meðan
á henni stóð. Héldu margir því fram
að henni væri stjórnað frá Moskvu
í gegnum Heimsfriðarráðið sem hef-
ur aðsetur í Helsingfors. Það var til
þess að félag Sameinuðu þjóðanna í
Danmörku, jafnaðarmannaflokkur-
inn og græningjar höfnuðu þátttöku
í ráðstefnunni.
Slagsmálin hófust er ungmenna-
fulltrúi frá Nicaragua var í ræðustól.
Ruddust þá um þrjátíu mótmælendur
að sviðinu með slagorðum eins og
„Sovét burt úr Afganistan!" og
„KGB, farið heim!“ Kom til harðra
átaka þar sem fólk, blómaskreyting-
ar og borð ultu hvað um annað. Stóð
slagurinn um það bil í fimmtán mín-
útur. Höfðu mótmælendur komist
inn á fölsuðum eða stolnum aðgangs-
kortum. Meðal þeirra voru ungir
íhaldsmenn ásamt Afgönum í útlegð
er vekja vildu athygli á málstað sín-
um.
Ráðstefnan hófst heldur ekki frið-
samlega en þá höfðu Úkraínumenn
í útlegð á lofti borða með áletrun-
inni: „Þetta er KGB-ráðstefna“ og
urðu einhverjar ryskingar þegar
þeim var hent út.
Fundinum lauk með ályktunum er
fordæmdu stjörnustríðsáætlun Reag-
ans og var ákveðið að hefja bréfaher-
ferð gegn Reagan, bandaríska
þinginu og almenningi þar í landi. í
tengslum við fundinn var íjöldi mót-
mælaaðgerða og höfðu nokkur
fómarlömb stríðsins í Afganistan
komið til Kaupmannahafnar í því
sambandi.
Schluter
gagnrýninn á
Reykjavíkurfund
Poul Schlúter, foisætisráðherra
Danmerkur, er nú í fimm daga opin-
berri heimsókn í Sovétríkjunum.
Heimsóknin hófet í gær og hefur
hennar verið beðið með eftirvænt-
ingu hér í Danmörku og víðar en
Schlúter er fyrsti véstræni leiðtog-
inn er heimsækir Sovétríkin eftir
Reykjavíkurfundiim.
I ræðu sinni í gær lýsti hann yfir
vonbrigðum sínum vegna lélegs ár-
angurs leiðtoganna í Reykjavík og
gagnrýndi þá fyrir að geta ekki einu
sinni samið um tímasetningu nýs
fúndar. Hvatti hann til frekari við-
ræðna.
Á tveggja tíma fundi sínum með
Gorbatsjov kom Schlúter meðal
annars rnn á sundraðar dansk-so-
véskar íjölskyldur og óskaði eftir
sameiningu þeirra og/eða auknu
svigrúmi til heimsókna.
Haukur Lárus Ifeukssan, DV, Kaiqaniha&i;
Poul ScMiiter, forsætisráðherra
Danmerkur, lýsti yfir óánægju sinni
með árangur Reykjavikurfundarins
en Schlúter er nú í opinberri heim-
sókn i Sovétríkjunum.
Danmörk:
Húsnæðislausum
gefið langt nef
næðislausu fólki langt nef með því
að sitja sem fastast í íbúðinni.
Ráðherrann neyðist til að leigja
sér íbúð á höfúðborgarsvæðinu þar
sem heimili hennar er á Fjóni á stór-
um herragarði. En almenningi og
blöðum þykir hún heldur djörf að
troða sér fram fyrir fólk í húsnæðis-
biðröðinni og búa um sig í íbúð er
gæti kostað margfalt meira án þess
að það kæmi verulega niður á
pyngju hennar. Þykir annað óhæft
en að hún flytji sem snarast úr íbúð-
inni.
Haukur Lárus Hauksson, DV, Kaupmhö&v
Landbúnaðarráðherra Dana,
Britta Schall Holberg, frá vinstri
flokknum virðist vera einkar ólagin
við að halda ímynd þeirri er hæfa
þykir manneskju í hennar stöðu.
Vakti hún óskipta athygli auk
gremju þingmanna í vor þegar hún
misnotaði embættismenn ráðuneytis
síns með því að láta þá semja fyrir
sig spumingar og svör um land-
búnaðarmál er þingmenn úr flokki
hennar áttu einnig að njóta góðs af
við þingstörfin.
Nú eru það húsnæðismál frúarinn-
ar sem hafa verið í brennidepli
fjölmiðlanna. Hefúr ráðherrann flutt
úr dýrri leiguíbúð í miðbæ Kaup-
mannahafnar í litla leiguíbúð rétt
utan við borgina er nýlátin móðir
hermar bjó í. Borgar hún um tvö
þúsund danskar krónur í leigu á
mánuði og er þá hiti og rafinagn
innifalið. Það er þykir hneykslunar-
vert í þessu sambandi er að íbúðin
er byggð og leigð á félagslegum for-
sendum í sveitarfélagi þar sem
húsnæðisekla er töluverð hjá efna-
minna fólki.
Ráðherrann og formaður bygging-
arfélags þess er sér um leigu íbúðar-
innar segir hana vera í fullum
lagalegum rétti þar sem hún hafi
verið skráð fyrir íbúðinni ásamt
móður sinni. Því hafa húsnæðisyfir-
völd nú hafriað með tilvísun í
húsnæðislög. Hefur húsnæðfemála-
ráðherra Dana verið beðinn um að
athuga málið. Þykir landbúnaðar-
ráðherrann ekki standa vel að vígi
siðferðilega og hreinlega gefa hús-