Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1986, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1986, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1986. 9 Útlönd Forseti íslands í sjónvaipsviðtali: Bjórbannið leifar frá bannárunum Haukur Lárus Haukssan, DV, Kaupmhöfa; Danska sjónvarpsstöðin, Kanal 2, er sendir í Kaupmannahöfh, var með viðtal við Vigdísi Finnbogadótt- ur forseta í síðustu viku. V ar viðtalið mjög nýlegt og vakti nokkra hrifh- ingu. Segir greinarhöfundur í Berl- ingske Tidende að hann hafi slappað af eftir leiðtogafundinn í Reykjavík við að horfa á viðtal þetta. Segir hann meðal annars að Vigdís forseti hafi setið í fínu stofunni sinni og opinberað skoðanir sínar um fortíð og framtíð manneskjunnar á klókan og skýran hátt og það á skínandi dönsku. Fannst honum leiðtogar stórveldanna ekki aðeins hafa snúið baki hvor við öðrum heldur einnig sjálfri menningunni þegar þeir yfir- gáfu gestgjafann og eyju hennar. Annars var rætt um margt og mik- ið í viðtalinu og er hér stiklað á stóru. Um félagsleg vandamál, áfengi og bjór sagði Vigdís eitthvað á þá leið að það væru svipuð félags- leg vandamál hér og á öðrum Norðurlöndum, eins og til dæmis vöntun á dagvistunarplássum. Að- spurð um drykkju Islendinga sagði hún að við drykkjum ekki meira en aðrir, heldur sjaldnar og þá kannski mikið í einu. Sagði hún þjóðfélagið hreinlega ekki geta starfað ef íslend- ingar væru mjög drykkfelldir. Um bjórinn sagði Vigdís að það væri tvískinnungur að banna hann. Bjór- bannið væri leifar frá bannárunum þegar allt var siðan leyft nema bjór. Óttaðist hún fyrstu fimm árin með bjór og þá sérstaklega vegna æsk- unnar. Það þyrfti að ríða á vaðið og venjast bjómum og aðlögunin tæki nokkum tíma. Hreinskilin og opinská svör Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, i viðtali í danska sjónvarpinu vöktu hrifningu Kaupmannahafnarbúa. Sagði Vigdís að aðgerðir eins og hústaka í Kaupmannahöfn gætu ekki gerst í Reykjavík, alla vega ekki á sama hátt. Sagði hún venju vera að ungt fólk keypti sér íbúð en það hefði verið erfitt vegna lána- stefnu síðustu ára en sé nú að breytast til hins betra. Lagði Vigdís áherslu á að íslend- ingar leituðu nýrra leiða við ýmsar framkvæmdir í þjóðfélagslegum efn- um án þess að það kæmi niður á sérkennum okkar. Aðspurð sagði hún ísland vera. undir minnstum . bandarískum áhrifum allra Norður- landa og sagði þau áhrif koma annars staðar frá en frá Keflavík. Sjiyrjanda fannst vanta eitthvað séríslenskt við ýmislegt tengt ferða- mönnum, eins og til dæmis hótelin. Sagði Vigdís að við yrðum að fylgja timanum og útvega öll nauðsynleg þægindi til þess að geta stundað ferðamannaþjónustu. Við þurfum samt að vera öðruvísi án þess þó að vera frumstæð. Þó yrði að huga mjög að náttúrunni og hvemig hún færi út úr kynnum sínum við ferða- mannastrauminn. Aðspurð um kvennaflokk og kenn- ara sagði Vigdís kvennaflokkinn hafa komið fram þar sem konur stóðu höllum fæti í þjóðfélaginu. Sagði hún það vera goðsögn úr Is- lendingasögunum að íslenska konan hefði alltaf verið svo sterk. Hafi þær fengið verr launuð störf en karlmenn en leiðin út úr þeirri stöðu væri fræðsla og menntun. Sagði Vigdís mikilvægt að kennar- ar fengju almennileg laun. Létum við böm okkar í hendur þeirra hvem dag en borguðum þeim kannski ekki í samræmi við ábyrgðina. Væri af sem áður var þegar litið var upp til kennara sem mikilvægrar starfs- stéttar sem launuð var að verðleik- um. Loks sagði Vigdís að íslendingar meðhöndluðu minnihlutahópa með virðingu en auðvitað væm hér for- dómar eins og annars staðar. Vildi spyrjandi í því sambandi nefha að meðferð þjóða á minnihlutahópum væri æði oft einkennandi fyrir við- komandi þjóðfélag. Þykir undirrit- aður viss um að opinská og hreinskilin svör Vigdísar forseta hafi umfram annað vakið hrifningu Kaupmannahafharbúa i síðustu viku. „Samviska Austurríkis“ fallin í valinn Snorri Valssan, DV, Vín; Nú nýverið lést hér í Vínarborg leikarinn góðkunni og umdeildi Helm- ut Qualtinger, aðeins 58 ára að aldri. Hafði hann átt við langvarandi veik- indi að striða enda ávallt lifað hátt og lítið hugað að heilsunni. Eftir að hafa verið viðloðandi leik- hús um nokkurt skeið og m.a.' skrifað hneykslisverk eitt mikið stofhaði hann ásamt Carl Merz, Gerhard Bronner og Michael Kehlmann hinn víðfræga Vínar-kvartett. Stungu þeir á ýmsum kýlum sam- félagsins með grínið að vopni. Þekktastur var þó Qualtinger fyrir persónu sína, Herr Karl. í eins manns sýningum sínum á 7. áratugnum minnti Herr Karl Austurríkismenn rækilega á nasistafortíð þeirra sem allir virtust hafa gleymt og var ýmist elskaður eða hataður fyrir. Siðasta hlutverk Qualtingers fyrir dauða sinn var hlutverk kjallara- meistarans í kvikmyndinni Nafn Rósarinnar eftir sögu Umbertos Ecos. Þar lék hann m.a. á móti Sean Conn- ery og F. Murray Abraham (Amad- eus). En nú er þessi sjálflærði leikari og „samviska Austurríkis" allur og situr nú skýjum ofar og hlær að tilverunni eftir sem áður. Kjálki sóprönunnar úr liði en hún sló samt í gegn Eva Marton sópransöngkona við Metropolitan óperuna í New York iét sig hafa það í gærkvöldi að syngja til enda aríuhlutverk sitt sem Tosca í samnefndri óperu, Jjrátt fyrir alvarlegt liðhlaup í kjálka eftir slæman árekstur við einn meðleikara. „Hún er sönn baráttukona, hún söng frábærlega," sagði Jóhanna Fiedler, talsmaður Metropolitan óperunnar, eftir sýninguna í gær- kvöldi er kjálkameiðsl sópran- söngkonunnar höfðu verið könnuð til hlítar. Kjálki Evu Marton fór úr liði í öðrum þætti óperunnar, skömmu fyrir Vissi dárte aríuna, er Tosca syngur liggjandi á svið- inu. 55 Sovétmenn reknir úr landi Bandaríkjastjóm tilkynnti í gær að hún hefði ákveðið að vísa fimm- tíu og fimm sovéskum stjómarer- indrekum úr landi, í kjölfar tuttugu og fimm sovéskra starfe- bræðra þeirra er vísað var úr landi í byrjun Jjessa mánaðar. Akvörðun Bandaríkjastjómar kemur skömmu eftir tilkynningu Sovétmanna um að fimm banda- rískum stjómarerindrekum hafi verið vísað úr landi í Sovétríkjun- um fyrir meinta njósnastarfsemi. f tilkynningu Bandaríkjastjóm- ar sagði að brottvísun Sovét- mannanna væri liður í þeirri stefiiu stjónarinnar að fækka sové- skum stjómarerindrekum i Bandaríkjunum til muna, eða til jafhs við fjölda bandarískra stjóm- arerindreka f Sovétríkjunum. Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins í Washington lét þó hafo eftir sér í gær að bandarísk yfirvöld útilokuðu ekki tengsl Sovétmann- anna við njósnastarfsemi Sovét- manna í Bandarikjunum. í tilkynninguutanríkisráðuneyt- isins segir að Sovétmennimir skuli hafa komið sér úr landi fyrir fyrsta nóvember næstkomandi. Ákvörðun Bandaríkjastjómar kom mjög óvænt, en almennt var ekki búist við að bandarísk yfir- völd gripu til svona harðra gagnaðgerða þrátt fyrir að brott- vísun Sovétmanna á fimm banda- rískum stjómarerindrekum frá Moskvu í byrjun vikunnar. Tals- maður sovésku Tass íréttastofunn- ar sagði í morgun að ákvörðun Bandaríkjamanna væri enn eitt dæmið um óbilgimi Bandaríkja- manna sem nú hefðu tekið enn eitt skrefið í átt að síversnandi samskiptum risaveldanna. Glæsilegir þýskir kjólar Laugalæk - Sími 33755 Helmut Oualtinger og Sean Connery að lokinni töku myndarinnar Nafni Rósar- innar. ILALEIGA FLUGLEIDA Tilboð óskast Tilboð óskast í vélvana VW Microbus diesel-bíl (12 sæta), árg. 1982 og VW Golf, árg. 1985, skemmdan eftir veltu. Bílarnir eru til sýnis á Bílaleigu Flugleiða við Flug- vallarveg. Æ _ s. (91)690200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.