Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Page 1
DAGBLAÐIÐ - VÍSIR
250. TBL. -76. og 12. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
Gunnar BJórgvinsson
kaupir tug DC-9 þotna
- sjá bls. 7
srgvin Pálsson með eftirmynd af myndinni sem Bandaríkjaforseti fékk að gjöf.
DV-mynd GVA
Mynd Björgvins í Hvíta húsið
Líklegt er að Björgvin Pálsson
ljósmyndari sé einn fárra íslendinga
ef ekki sá eini sem á listaverk í
Hvíta húsinu, bústað forseta Banda-
ríkjanna, en forsetanum var gefin
mynd eftir Björgvin þegar hann var
staddur hér á landi á leiðtogafundin-
um hér á dögunum.
„SendiráðBandaríkjanna á íslandi
færði forsetanum og fylgdarliði hans
hér gjafir á meðan á fundinum stóð
og handa Reagan var valin mynd
eftir mig,“ sagði Björgvin. „Þessi
mynd á að vera táknræn fyrir Is-
land, en hún sýnir lítinn fugl sem
sem flögrar yfir girðingu,“ sagði
hann.
Björgvin nefndi það að þetta væri
einstæður atburður fyrir sig, að for-
seta Bandaríkjanna skyldi vera færð
mynd eftir sig. Þá nefndi hann að
sú aðferð sem hann notar við gerð
mynda sinna væri óvenjuleg, svo
óvenjuleg að nýlega hefði verið full-
yrt i erlendu ljósmyndablaði að
ómögulegt væri að gera myndir með
þessari aðferð. -ój
Fangar mótmæla
aðbúnaði í
Hegningarhúsinu
- sjá bls. 5
Hvað er fiskmarkaður?
- sjá bls. 6
Lögreglumenn
eiga að vera
einkenndir við störf
- sjá bls. 11
DV kannar verð
á peysum og gami
- sjá bls. 13
Rústuðu verbúðina og
slösuðu fimm manns
- sjá bls. 2
Örverur losa
skrápinn af skötunni
- sjá bls. 2