Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Page 28
40
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
Andlát
Böðvar Bjarnason byggingameist-
ari lést 23. október sl. Hann fæddist
á Gerði í Innri-Akraneshreppi 1. okt-
óber 1904, sonur hjónanna Sigríðar
Jónsdóttur og Bjama Jónssonar.
Bövar hlaut meistararéttindi í húsa-
smíði árið 1930 og starfaði hann
lengst af sjálfstætt. Eftirlifandi eig-
inkona hans er Ragnhildur Dagbjört
Jónsdóttir. Þeim hjónum varð sex
barna auðið. Útför Böðvars verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Bjargey Steingrímsdóttir frá Ekru
lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja
miðvikudaginn 29. október.
Borghildur Magnússon, fyrrver-
andi yfirhjúkmnarkona, lést í
Kaupmannahöfn 26. okt. Bálför hef-
ur farið fram.
Ólafía Sigríður Ólafsdóttir, Gunn-
arsbraut 38, andaðist 15. október á
öldrunardeild Landspitalans, Hátúni
lOb. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Soffia Jóna Davíðsdóttir, Bjarma-
landi 5, lést í Borgarspítalanum
aðfaranótt 30. október.
Sigurveig Oddsdóttir, Ásgarði 155,1
lést í Borgarspítalanum aðfaranótt
30. október. Jarðarförin verður aug-
lýst síðar.
Guðmundur J. Kristjánsson
óperusöngvari lést í New York 26.
október. Bálför hefur farið fram.
Margrét Eiríksdóttir frá Sjávar-
hólum í Grindavík, sem andaðist á
Hrafnistu í Hafnarfirði 27. þ.m.,
verður jarðsungin frá Grindavíkur-
kirkju laugardaginn 1. nóvember nk.
kl. 14.
Petrína Guðlaug Sæmundsdóttir,
Ásvallagötu 17, Reykjavik, verður
jarðsungin frá Stykkishólmskirkju
laugardaginn 1. nóvember kl. 11.
Tilkynriingar
Flóamarkaður
Félags makalausra
verður haldinn í Mjölnisholti 14 laugar-
daginn 1. nóvember kl. 13-17.
Flutningur á flugfarþegum.
Limousineþjónusta Pálmarssonbræðra og
bifreiðastjóra á Aðalstöðinni í Keflavík,
hafa tekið upp samstarf á flutningi flugfar-
þega miili Keflavíkurflugvallar og
Reykjavíkur. Fargjaldið fyrir hvem far-
þega er kr. 550 hvora leið en farþegar eru
sóttir heim er þeir fljúga utan og þeim
farþegum sem til landsins koma er ekið
tii þess staðar er þeir óska á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Bílar þeir sem notaðir eru
til þessa aksturs eru 5-9 farþega auk ágæt-
is farangursrýmis. Pantanir þurfa að
berast ekki síðar en kl. 21 að kvöldi fyrir
flug næsta dags. Síminn í Reykjavík er
(91) -78490 og 985 20 172 en í KeOavík
(92) -1515. Einnig hafa þessir aðilar 5-9
farþega bifreiðir til lengri og skemmri
ferða.
Konur í list kvenna
Þann 27. janúar 1987 verða 80 ár liðin frá
stofnun Kvenréttindafélags íslands. 1 til-
efni afmælisins hyggst félagið efna til
sýningar á verkum kvenna - Konur í list
kvenna, í samkomusal kvennaheimilisins
að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, Reykja-
vík, vikurnar í kringum afmælið. KRFl
óskar eftir því við listakonur að þær taki
þátt í sýningunni og sendi inn myndlistar-
verk. Oskað er eftir nýjum áður ósýndum
verkum, teikningum, málverkum, textíl
og grafík. Sýningamefnd skipuð af KRFÍ
mun síðan velja úr þeim verkum sem ber-
ast. Þær konur, sem áhuga hafa á að taka
þátt í sýningunni, skili inn verkum sínum
á Hallveigarstaði mánudaginn 12. janúar
nk. milli kl. 17 og 19 ásamt upplýsingum
um verkin og sjálfar sig. Nánari upplýs-
ingar er hægt að fá hjá Hrafnhildi Schram,
s. 21984, Láru V. Júlíusdóttur, s. 34302 og
s. 83044 og skrifstofu KRFÍ, Hallveigar-
stöðum, s. 18156,
Frá Félagi einstæðra foreldra
Okkur vantar duglega sjálfboðaliða til
hjálpar við undirbúning jólamarkaðs fé-
lagsins. Við getum unnið í hópum í
Skeljahelli nokkur kvölcí eða um helgar
og haft krakkana með. Látið vita af ykkur
á skrifstofunni í síma 11822. Þeir sem frek-
ar vilja búa til eitthvað heima skili því á
skrifstofuna.
Kvenfélag Laugarnessóknar
heldur fund í safnaðarheimilinu mánudag-
inn 3. nóvember kl. 20. Safnaðarfélag
Ássóknar kemur í heimsókn. Fjölmennum
og tökum með okkur gesti.
í gærkvöldi
Eric Steinsson lögreglumaður
Mættu hafa óruglað
einu sinni í viku
Kvenfélag Laugarnessóknar
heldur fund í safnaðarheimilinu mánudag-
inn 3. nóvember kl. 20. Safnaðarfélag
Ásprestakalls kemur í heimsókn. Fjöl-
mennum og tökum með okkur gesti.
Stofnfundur félags kerfisfræð-
inga og forritara.
Undanfama mánuði hefur tíu manna hóp-
ur áhugafólks unnið að því að undirbúa
stofnun félags kerfisfræðinga og forritara
á íslandi. Gert er ráð fyrir að helstu verk-
efni slíks félags verða á sviði fræðslumála
og endurmenntunar þar sem fagleg þróun
í faginu er ákaflega ör og því gífurlega
áríðandi að fólk í þessum störfum haldi
vöku sinni í þeim efnum. Þetta félag gæti
auk þess beitt sér fyrir ýmiss konar könn-
unum og upplýsingamiðlun bæði á sviði
kjaramála og faglegra mála. Það má held-
ur ekki gleyma félagslegu hliðinni, að fólk
fái tækifæri til að kynnast - en margir
vinna tiltölulega einangraðir á litlum
vinnustöðum. 1 þeirri trú að þeir sem starfi
við kerfisfræði og forritun hafi brennandi
áhuga á þessum málefnum hefur verið
undirbúinn stofnfundur Kerfisfræðinga-
og forritarafélags íslands. Stofnfundurinn
verður haldinn þann 1. nóvember nk. á
Hótel Esju og hefst kl. 14.
Dregið í Juvena snyrtivöru-
getrauninni
Nú hefur verið dregið hjá borgarfógeta í
Juvena snyrtivörugetrauninni, „From
Switzerland with love“, sem Juvena í
Sviss, Snyrtivörur hf. og útsölustaðir Ju-
vena snyrtivara á íslandi stóðu fyrir í júlí
og ágúst sl. Fyrstu verðlaun, vikuferð til
Juvena í Sviss, hlaut Frú Barbro Þórðar-
son og kom getraunaseðillinn frá Nafn-
lausu búðinni, Strandgötu 34, Hafnarfirði.
Önnur og þriðju verðlaun, vöruúttekt í
Juvena að upphæð kr. 5.000 og 2.000, hlutu
þær Auður Kristjánsdóttir og Guðrún J.
Michelsen og komu báðir getrauna-
seðlamir frá Versl. Libíu, Laugavegi 35,
Reykjavík.
Gamlar Ijósmyndir á sýningu
í Gerðubergi
I tilefni af 30 ára afmæli Landmælinga
íslands á þessu ári stendur stofnunin fyrir
sýningu á gömlum ljósmyndum sem dan-
skir landmælingamenn tóku hér á landi á
árunum 1900-1910. Danska landmælinga-
stofnunin, Geodætisk Institut, færði
íslendingum myndirnar að gjöf á síðasta
ári ásamt fjölda frumteikninga af kortum
sem nú eru varðveittar hjá Landmæling-
um Islands. Sýningin er haldin í Gerðu-
bergi í Breiðholti dagana 1.-9. nóvember
og verður opin virka daga kl. 14-21 og
14-17 um helgar. I tengslum við sýninguna
verður laugardaginn 1. nóvember kl. 14
kynning á vegum Landmælinga íslands
og Landfræðifélagsins á fyrmefndum ljós-
myndum og gömlum kortum af Reykjavík.
Aðgangur er ókeypis.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur fund þriðjudaginn 4. nóvember kl.
20.30 á lofti kirkjunnar. Gestur fundarins
verður Margrét Magnúsdóttir og mun hún
segja frá lífi fólks í Kenýa. Félagið minnir
á sinn árlega basar laugardaginn 8. nóv-
ember kl. 14 í Tónabæ. Tekið á móti gjöfum
á basarinn föstudaginn 7. nóvember milli
kl. 17 og 19 í kirkjunni.
Ég verð nú að segja að tnér finnst
sjónvarpið bara svona í meðallagi
gott. Á síðastliðinn laugardag ætlaði
ég til dæmis að eiga notalega kvöld-
stund yfir því en þá var ákaflega lítið
varið í það. Kristján Jóhannsson var
góður að vísu en síðan var íslensk
mynd sem ég var búinn að sjá áður.
Dagskráin hefði alveg mátt vera
betri á fyrsta vetrardag. Mér finnst
fyrirmyndarfaðir með því skemmti-
legra sem ég sé í sjónvarpinu. Það
sem mér finnst helst vanta í sjón-
varpið eru umræðuþættir um lífsins
gagn og nauðsynjar. Slíkir þættir
eru alveg hættir að sjást á skjánum.
Af Stöð 2 hef ég lítið séð. Mér
finnst að þeir mættu hafa óruglað
einu sinni í viku. Svona til að leyfa
fólki að sjá hvað er í boði. Það er
góð söluaðferð að leyfa viðskiptavin-
Eric Steinsson iögreglumaður.
unum að smakka á vörunni áður en
þeir kaupa hana. Af því sem ég hef
séð á Stöð 2, hefur mér fimdist létt
yfir dagskránni þar. Sjónvarpið
mætti alveg taka það sér til íyrir-
myndar og gera meira af því að
skjóta inn léttu efni til dæmis Bleika
pardusinum fyrir fréttir.
I útvarpi hlusta ég á fréttir og
fréttatengda þætti, umræðuþætti og
slíkt. Bylgjuna hlusta ég töluvert á
og finnst hún ljómandi góð. Mér
finnst hún fín eins og hún er og
vona að hún haldist þannig.
Hvað varðar þessa fjölmiðla alla
vil ég segja að það er alltaf hægt að
bæta sig og eftir að samkeppnin í
útvarps- og sjónvarpsmálum hófst
er komið gott tækifæri fyrir allar
þessar stöðvar, að bæta sig.
„Að lifa lífinu án áfengis
ÁA-deildimar á Reykjavíkursvæðinu efna
til opins kynningarfundar í Háskólabíói
sunnudaginn 2. nóvember kl. 14. Til þessa
fundar er öllum boðið sem áhuga hafa á
að kynna sér starfsemi AA samtakanna.
Óhætt er að fullyrða að aldrei hefur verið
eins mikil þörf á því og einmitt nú að
koma boðskap AA-samtakanna til skila.
AA-samtökin eru alþjóðlegur félagsskapur
karla og kvenna sem ástunda gagnkvæma
hjálp til að lifa lífinu án áfengis og miðla
öðrum, sem ennþá eiga við drykkjuvanda-
mál að stríða, fúslega af reynslu sinni.
Aðferðir AA-manna byggjast á „reynslu-
sporunum tólf' sem vísa veginn til bata
frá alkóhólisma. AA ber aðeins bata ein-
staklinganna, sem leita til samtakanna,
fyrir bijósti, og að þeir fái lifað lífinu án
áfengis. Hreyfingin stundar ekki rann-
sóknir á sviði alkóhólisma né heldur lyfja-
og geðlækningar. Hún skipar sér hvergi í
flokk þótt AA félagar megi gera svo að
vild sem einstaklingar. A fundinum á
sunnudag verða flutt erindi. AA-samtökin
eru fastlega þeirrar skoðunar að margir
eigi brýnt erindi við samtökin: fólk, sem
verður að koma úr felum og takast á við
áfengissýkina á hreinskilinn og opinskáan
hátt. Fundurinn á sunnudag er framlag
AA-samtakanna til frekari upplýsinga-
miðlunar um baráttuna gegn áfengisvand-
anum og er skorað á alla þá, sem erindi
eiga við samtökin eða þau erindi við, að
koma á fundinn. Slíkt skaðar engan en
getur mörgum hjálpað.
80 ára afmæli á í dag, föstudaginn
31. október, Sigurlaug Davíðs-
dóttir, Miklubraut 80, Reykjavík
Fréttatilkynning frá skrifstofu
forseta íslands
Nýskipaður sendiherra Rúmeníu, frú
Comelía Filipas, nýskipaður sendiherra
Portúgal, hr. José Luis de Oliveira Nunes
og nýskipaður sendiherrá írak og hr. Pet-
er Yousuf Jejonie, hafa afhent forseta
Islands trúnaðarbréf sín að viðstöddum
utanríkisráðherra, hr. Matthíasi Á. Mat-
hiesen. Sendiherra Rúmeníu hefur aðsetur
í Kaupmannahöfn, sendiherra Portúgal í
Osló og sendiherra Irak í Helsinki.
Jólakort Styrktarfélags van-
gefinna
Komin eru á markaðinn jólakort félags-
ins. Að þessu sinni eru þau með myndum
af verkum listakonunnar Sólveigar Eggerz
Pétursdóttur og Úlfs Ragnarssonar lækn-
is. Kortin verða til sölu á skrifstofu
félagsins, Háteigsvegi 6, í versluninni
Kúnst, Laugavegi 40, og á heimilum fé-
lagsins. Öllum ágóða af sölu jólakortanna
verður varið til styrktar málefnum vangef-
inna en um þessar mundir er verið að ljúka
framkvæmdum við byggingar félagsins í
Víðihlíð. Að gefnu tilefni skal það tekið
fram að kortin eru greinilega merkt félag-
inu.
Tapað - Fundið
Lyklakippa fannst
Lyklakippa merkt Almennum tryggingum
með einum bláum lykli fannst. Upplýsing-
ar í síma 75060.
Giftingarhringur fannst
á Dalvík í fyrrasumar. Innan í hringnum
stendur: Þín Sigrún. Upplýsingar gefur
Peta í síma 53192.
Lyklarfundust
Þrír lyklar á smákippu fundust fyrir utan
Bolluna í Hafnarfirði. Upplýsingar í síma
50553.
Seðlaveski tapaðist
Vínrautt seðlaveski tapaðist á kjúklinga-
staðnum Suðurveri á mánudaginn sl.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma 21587.
Afmæli
íslandsmót í Aerobic
Dagana 31. okt., 7. og 14. nóvember verður
haldið íslandsmeistaramót í aerobic í
skemmtistaðnum Evrópu, en það eru Evr-
ópa og World class heilsustúdíóið sem að
keppninni standa. Keppt verður bæði í
einstaklings- og hópkeppni, aldurstak-
mörk eru engin og allir sem eitthvað
kunna í aerobic geta tekið þátt. Vegleg
verðlaun eru í boði, stór og mikill bikar í
hópkeppninni og ferðavinningur til
Stokkhólms ásamt hóteli í viku í einstakl-
ingskeppmnni. Keppnin byggist á tækni,
uppbyggingu og útfærslu, ásamt stíl og
léttleika. hver einstaklingur fær 5-6 mín.
til umráða en hver hópur 8-10 mín. Aðeins
fagfólk mun sjá um dómgæsluna. Hver
æfingastöð hefur heimild til að auglýsa á
keppendum sínum og á merktum borða.
Fólk er þegar byijað að skrá sig til keppri-
innar og búist er við mikilli þátttöku.
Bætt verður við keppnisdögum ef þörf
krefur.