Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Side 32
44
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
Sviðsljós
Eigendur fyrirtæksins, Stefania og Davíð Sch. Thorsteinsson, ásamt hin-
um japönsku hönnuðum Saburo Susuki, Hachikawa og Nakamura.
Hjónin Valgerður Bára Guðmundsdóttir og Jón Oddsson, Sigurður Hall-
dórsson, Guðrún Ásgeirsdóttir og Davið Sch. Thorsteinsson.
Dró leiðtogafundurínn
Jerry Lee Lewis til íslands?
Menn voru broshýrir mjög - Jóhannes Nordal, Guðmundur Kr. Kristins-
son og Sigrid Kristinsson.
Nýju
húsnæði
fagnað
Heilmikið hóf var haldið hjá ná-
grönnum DV héma í Þverholtinu
um síðustu helgi. Þetta var hjá fyrir-
tækinu Sól hf. sem tók við þetta
tækifæri í notkun nýtt húsnæði.
Gestir vom á þriðja hundrað og voru
íbúar húsa í næsta nágrenni sérstak-
lega boðnir velkomnir og þakkað
fyrir þolinmæðina sem þeir hafa sýnt
gagnvart byggingarframkvæmdum
og sprengingum þeim samfara.
Meðfylgjandi DV-myndir BG sýna
brosandi og ánægða starfsmenn og
velunnara Sólar hf. ásamt ekki
minna kátum nágrönnum en þeir
síðamefhdu sjá nú fram á betri tið
og hávaðaminni í nánustu framtíð.
„Hann er stórkostlegur. Hann kem-
ur næst á eftir Elvis gamla,“ sagði
Björgvin Halldórsson um hinn heim-
fræga og umdeilda rokkara Jeny Lee
Lewis sem er á leið hingað til lands
og heldur fema hljómleika í Broadway
6., 7., 8. og 9. nóvember.
„Ég veit ekki hvorUvið eigum að
þakka leiðtogafundinum það að Lewis
lætur svo lítið að koma en staðreynd-
in er sú að samningar við hann gengu
upp um sama leyti og tilkynnt var að
Reagan og Gorbatsjov ætluðu að hitt-
ast í Reykjavík," sagði Björgvin.
Jeny Lee Lewis var nýkominn úr
hljómleikaferð með Fats Domino er
hann ákvað að þiggja boð um að leika
á íslandi. Hefúr Fats líklega sagt hon-
um sitthvað um viðtökumar er hann
sjálfur hlaut hér á landi er hann lék
fyrir fullu húsi í heila viku eins og
menn enn muna.
Jerry Lee Lewis er rétt rúmlega
fimmtugur og hefur lifað stormasömu
lífi. Fyrir skemmstu hneykslaði hann
hálfa heimsbyggðina er hann gekk að
eiga 13 ára frænku sína en samkvæmt
áreiðanlegum heimildum kemur hún
ekki með honum í íslandsferðina.
Jerry er vanur að fara ómjúkum
höndum um flygla er hann leikur á
og nota jafnvel fætuma þegar mikið
liggur við. Björgvin Halldórsson segir
hins vegar að húsráðendur í Broadway
séu óhræddir við að lána Lewis flygil
hússins. Verra sé ef til vill með stól
fyrir kappann til að sitja á því hann
er vanur að sparka honum aftur fyrir
sig að hljómleikum loknum. Em mat-
argestir í Broadway hér með varaðir
við og hvattir til að mæta með hjálm
á höfði fái þeir sæti að baki kappan-
um. Þá hefur Jerry Lee Lewis krafist
þess að hafa litla kókflösku á flyglin-
um, það er vörumerki hans, og hljóð-
nemann vill hann hafa í klofinu.
Það kostar tæpar 4000 krónur að
hlýða á meistarann í Broadway en þá
er þríréttaður matseðill með í reikn-
ingnum.
Jerry Lee Lewis heimfar litla kók og hljóðnema milli fotanna.
Ólyginn
sagði...
Jason Connery
gerði föður sinn alveg óðan á
dögunum með því að leika í eld-
heitri ástarsenu - kviknakinn!
Sá gamli núllnúllsjö varð hopp-
andi vondur yfír tiltækinu og
gefur fáa punkta fyrir fyrstu skref
afkvæmisins í fótspor föðurins.
Jason deplaði ekki auga - sagð-
ist hafa það á hreinu að hann
langaði ekki til þess að daga
uppi sem einhver djeimsbond
og því væri nektaratriði ekki
verra en hvað annað í leiklistar-
bransanum. En Sean lætur ekki
huggast og segist vona heitt og
innilega að sonurinn snúi við
blaðinu og fjölgi fötum í næstu
hlutverkum.
Sophie af
Habsburg
hefur nú farið að dæmi Karólínu
af Mónakó og hent glaumgos-
anum Philippe Junot út í
kuldann. Síðustu fjögur árin var
samband Junots og Sophie
prinsessu á allra vörum en að
lokum fékk hún nóg af skemmt-
anafikn fírsins. Hann dvelur nú
löngum stundum á næturklúbb-
um Parísarborgar, umsetinn
fögrum konum sem elska það
slæma orð er af honum fer. Eng-
in þeirra hefur þó áhuga á
langtímasambandi og sjálfur
sagði þessi tæplega fimmtugi
diskógæi við vini sína- fyrir
skömmu að hann vissi ekki al-
veg hvað hann langaði að taka
sér fyrir hendur í framfíðinni. Ef
allt þrýtur getur hann þó alltént
sýnt sig í næsta sirkusi eða skrif-
að endurminningarnar. Síðar-
nefnda hugmyndin vakti litla
hrifningu í herbúóum fyrrver-
andi ástmeyja og í Mónakó
gnísta menn tönnum í þögulli
bræði.
wí
r
Stephen Barry,
fyrrum herbergisþjónn Kalla rík-
isarfa í Bretlandi, er látinn í
Bandaríkjunum. Banameinið
var eyðni og hefur sú staðreynd
valdið gífurlegu írafári hjá aðlin-
um. Spurningin er hvort rann-
saka þarf alla kóngafjölskylduna
á einu bretti vegna hættu á að
nærvera Stephens i hinum kon-
unglegu svefnherbergjum hafi
orðið heilsu hefðardúllanna
skeinuhætt. Ekki bætir það úr
skák að þjónninn nýtti síðustu
kraftana í að skrifa bók um lífið
innan hallarveggjanna og finnst
mönnum súrt í broti að ekki
skuli takast að stöðva slíka upp-
lýsingastarfsemi með öllu.
„Einn fyrir mömmu...!í£
Sem alheimur veit er Zsa Zsa Gabor gengin í hjónaband í áttunda sinn
og heitir sá lukkulegi Frederic von Anhait. Starfsheiti á karli er ekki finnan-
legt en hann er oftast titlaöur prins meö hinum ýmsu fyrirvörum. Prins eöa
ekki prins - Gabor er nú harðákveðin í því aö halda eiginmanninn til lang-
frama. Hún leikur hlutverk hinnar fullkomnu eiginkonu og því til sönnunar
sá stjarnan um aö koma brúðartertunni ofan i elskuna sinu og notaöi til
þess víðurkennda aferð. Það skal tekið fram til að fyrirbyggja allan mis-
skilning að prins Frederick von Anhalt er ekki handalaus.