Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1986, Side 7
MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1986.
7
Fréttir
Húsnæðisstofnun hundsaði samþykkt ríkisstjómarinnar.
Húsnæðislánin allt að
400 milljónum of há
Samkvæmt grófri áætlun Stefáns
Ingólfssonar, deildarstjóra hjá Fast-
eignamati ríkisins, getur höfuðstóll
fullverðtryggðra lána eldri en frá í
september 1983 verið 250-400 milljón-
um króna of hár. Húsnæðisstofnun
virðist hafa hundsað þá samþykkt rík-
isstjómarinnar að hækka lánin aðeins
um 5,1% í þessum tiltekna mánuði og
hafa hækkað þau um 8,3% sem var
hækkun lánskjaravísitölunnar.
Sömu fyrirmæli vom gefin Lánasjóði
íslenskra námsmanna sem fór eftir
þeim. 1 reynd er ætlað að einungis einn
greiðandi húsnæðislána hafi notið
ákvörðunar ríkisstjómarinnar, vegna
þess að hann greiddi af láni sínu í
september 1983. Jóhann Einvarðsson,
aðstoðarmaður félagsmálaráðherra,
sagði af og frá að nokkrum hefði dott-
ið það í hug í alvöru að ríkisstjómin
ætlaðist til þess að samþykkt hennar
gilti aðeins um greiðslur inntar af
hendi í þessum eina mánuði.
Seðlabankinn gaf út á sínum tíma
álit á því hvemig best yrði staðið að
framkvæmd þessarar ákvörðunar.
Hann benti á þá leið að lækka grunn-
vísitölu hvers láns um þessi 3,2 stig.
Það var sem sé ekki gert. Þar með em
eftirstöðvar fullverðtryggðra hús-
næðislána eldri en frá í september 1983
skráð með of háan höfuðstól. Afborg-
anir hafa því einnig verið hærri en þær
áttu að vera, þótt munurinn sé ekki
stór upphæð í hverri afborgun.
HERB
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Atvinnu-
tilboðum
rígnir yfir
Guðmund
„Ég er að hugsa minn gang, velta
ýmsum möguleikum fyrir mér,“ sagði
Guðmundur Einarsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkj-
unnar, í gær.
Samkvæmt heimildum DV hefur at-
vinnutilboðum rignt yfir Guðmund
eftir að hann lét af störfum hjá Hjálp-
arstofnuninni, mest frá einkafyrir-
tækjum sem vilja nýta sér starfskrafta
hans.
Óvíst er um framtíðaráætlanir ann-
arra starfsmanna Hjálparstofnunar-
innar nema hvað Gunnlaugur
Stefánsson hefur sótt um pestakall í
Heydölum í Breiðdal: „Ég er eini um-
sækjandinn og ég vona að kosið verði
fyrir jól. Ég kem þá til með að þjóna
Stöðvarfirði og Breiðdalsvík," sagði
Gunnlaugur.
-EIR
Eldur í
Hlíðagrilli
Eldur kom upp í veitingastaðnum
Hlíðagrilli við Stigahlíð í gærmorgun.
Kviknað hafði í kjúklingagrillskáp og
var mikill hiti og reykur inni þegar
slökkviliðið mætti á staðinn.
Greiðlega gekk að ráða niðurlögum
eldsins. Einhveijar skemmdir urðu á
húsnæði og innanstokksmunum, eink-
um af völdum hita og reyks. Eldsupp-
tök eru ókunn.
-VAJ
22 TOMMU STERIO SJÓNVARP m/ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU
STAÐGREIÐSLUVERÐ AÐEINS KR. 44.950,-
FRAMTÍEAKDEKI
á ftábæruwrði
ALLT ÞETTA GETUR ÞÚ TENGT VIÐ SJÓNVARPIÐ
MÓTTAKARI
SJÓNVARPSBÚDIN HF.
HÖFÐATÚNI 2 sími 622555