Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1986, Side 18
18
3AGUR 24. NÓVEMBER 1986.
Rakarastofan Klapparstíg
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Sími 12725
Opið á laugardögum. j
rimapantanir
13010 |
----—-----------1
IBUÐ OSKAST
Lítil íbúð óskast á leigu frá 1. jan. nk. fyrir danskan
sjúkraþjálfara sem starfar á Landspítalanum og 11 ára
son hennar. Æskileg staðsetning er í nágrenni við
Austurbæjarskólann. Upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri Ríkisspítalanna í síma 29000 - 220.
Reykjavík, 24. nóvember 1986.
LAUSAR SIÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Fólk með uppeldismenntun, þó ekki skilyrði, óskast
til starfa á skóladagheimili Breiðagerðisskóla.
Bæði heils- og hálfsdagsvinna kemur til greina.
Einnig vantar fólk til starfa í forföllum.
Upplýsingar í síma 84558 frá 8-17 alla virka daga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
ÍA.1ESj'el
RIKIS SPIT ALAR
LAUSAR STÖÐUR
Hjúkrunarfræðingar og röntgentæknar óskast. Vegna
þreytinga á húsnæði og skipulagi á þjónustu við sjúkl-
inga krabbameinsdeildar Landspítalans (göngudeild
- geisladeild) vantar okkur áhugasama hjúkrunar-
fræðinga og röntgentækna til að taka þátt í þessari
uppbyggingu. Hlutastarf kemur til greina, unnið er á
dagvöktum. Komið og takið þátt í stefnumarkandi
ákvörðunum.
Allar upplýsingar hjá deildarstjórum viðkomandi
deilda og hjúkrunarframkvæmdastjóra lyflækninga-
deilda í síma 29000.
Fóstra eða starfsmaður óskast sem fyrst á dagheimili
Ríkisspítala, Sólbakka við Vatnsmýrarveg.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í
síma 22725.
Skrifstofumaður óskast á göngudeild krabbameins-
lækninga, 21-B, dagvinna, 1 heil staða, 2 hálfarstöður
koma til greina.
Nánari upplýsingar hjá deildarstjóra og hjúkrunarfram-
kvæmdastjóra í síma 29000 - 436 eða 484.
Deildarþroskaþjálfi óskast til næturvakta á Kópavogs-
hæli. Upplýsingar veitir yfirþroskaþjálfi eða fram-
kvæmdastjóri í síma 41500.
Starfsfólk óskast til vinnu á vistdeildum fullorðinna
og þarna á Kópavogshæli. Starfið er fólgið í meðferð
og umönnun þroskaheftra vistmanna. Unnið er á tví-
skiptum vöktum, morgunvakt frá kl. 08 til 16 eða
kvöldvakt frá kl. 15.30 til 23.30.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir framkvæmda-
stjóri eða yfirþroskaþjálfi Kópavogshælis í síma
41500.
Reykjavík, 24. nóvember 1986.
Framboð og eftir-
spum - á fóstmm
Það er einmitt á þessum tíma árs
sem Reykjavík tekur á sig yfirbragð
Modfogborgar í sögu Charles Dick-
ens þar sem Oliver Twist fæddist.
Og það er á morgnana sem þessi
Modfogbragur er mest áberandi þeg-
ar hundruð ef ekki þúsundir lítilla
Olivera Twista eru reknir fram úr
hlýju rúminu á köldum vetrar-
morgnum og þeim ekið á dagvistun-
arheimilið í hinum ýmsu farartækj-
um.
Nöturleg staðreynd í velferðar-
þjóðfélaginu. En þetta er eitt af þeim
fyrirbærum sem flokka má undir
„tilbúnar þarfir". - Já, það er bein-
línis „barist“ um að geta gert bömin
að „Oliverum" sem allra fyrst. Því
hvað er sælla en að fá að vinna sem
allra mest og lengst og koma krökk-
unum á hæli?
Vísitöluijölskyldan verður að lifa
og Modfogborg og ríkið sjálft reka
samtals 78 dagvistunarheimili fyrir
um 4300 böm sem njóta ómældrar
aðhlynningar undir handleiðslu 78
eintaka af frú Mann og sérmenntuð-
um fóstrum þeirra.
Neyðarþjónusta eða náðar-
brauð?
Það er staðreynd að íslenskt þjóð-
félag hefur breytzt á tiltölulega
skömmum tíma úr rólegu sveita- eða
bæjarsamfélagi í fádæma farand-
þjóðfélag sem samanstendur meira
og minna af eins konar faghreyfing-
um eða verkalýðsfélögum sem boða
það fagnaðarerindi að þegnamir eigi
að geta treyst sem mest, helst að
fúllu, á samfélagslega hjálp við sí-
breytilegar aðstæður.
Þannig hefur það þótt sjálfeagt að
ríkið taki við bömum stuttu eftir að
þau koma úr móðurkviði og auk
þess að veita foreldrum ívilnanir í
formi skattaafeláttar taki það þau í
„fóstur" til þess að móðirin geti unn-
ið sem mest og best, tvöfalt á við
eiginmanninn ef hann er fyrir hendi.
Þessu hafa margar konur tekið
fegins hendi og þræla nú allt hvað
af tekur frá morgni til kvölds, fyrst
í vinnunni sinni og síðan á heimilinu
þar til þær detta niður, ekki dauðar,
en allt að því, af þreytu, þegar þær
hafa lokið skyldustörfum, en þó ekki
fyrr, lof sé guði.
„Ja, það verða bara bæði hjónin
að vinna, það er staðreynd,“ segja
þær svo í útvarpsviðtalinu eða fyrir
framan sjónvarpsmyndavélina og
hrósa eiginmanninum fyrir að raða
í uppþvottavélina eða fyrir að fara
nú alltaf með „Oliver litla“ fyrir þær
á dagheimilið.
Sannleikurinn er sá að eiginmaður
hinnar útivinnandi konu er í sjö-
unda himni yfir að hafa eignast
lífeförunaut sem er það úthaldsgóður
að þola álagið.
Vinsælasta vinnudýr heimilis-
ins?
En hvemig ættu konur að geta
unnið svona mikið ef ekki væru til
dagvistunarheimili? Og þess vegna
hleypur Modfogborg undir bagga og
breytir neyðarþjónustu, sem dagvist-
unarheimili eiga að vera, í nokkurs
konar náðarbrauð sem gripið er feg-
ins hendi og bömin vistuð á framfæri
hins opinbera.
Fóstruflótti til góðs
Og nú hafa fóstrur gert heyrin-
kunnugt að þær undirbúi langa
kjarabaráttu og hafa sagt upp störf-
um frá og með 1. febrúar á næsta ári.
Ef ekki næst fram umtalsverð
hækkun á launum munu margar
þeirra ekki snúa til starfa á ný og
leita að betur launuðum störfúm.
Sumar þeirra segjast ætla að fara í
einhverja íhlaupavinnu á meðan á
kjarabaráttu stendur.
Ekki er að efa að þær fóstrur, sem
hér starfa, eru vel menntaðar tií síns
brúks, líkt og gerist um aðra iðnað-
armenn þjóðféíagsins sem ekki fást
til að sinna viðviki nema undir þá
KjaUarinn
Geir R. Andersen
veginn standa að rekstri dagvistun-
arheimila á eigin spýtur, eins og þær
krefjast af hinu opinbera, þá em
aðrir möguleikar fyrir hendi.
Einn er sá að þær bjóði þjónustu
sína inni á heimilunum sjálfum. Þar
er venjulega mun betri aðstaða en á
hinum þröngu og illa búnu (að því
er þær sjálfar upplýsa) dagheimilum.
Og mun betur fer um bömin á eigin
heimilum á meðan móðirin vinnur
úti.
Þetta gæti gerst þannig að fóstra
tæki að sér að annast um böm frá
tveimur til þremur heimilum og þá
til skiptist t.d. einn mánuð í senn á
hverju.
auglýsingastjóri
sé greiddur ferðakostnaður á staðinn
áður en þeir byrja á verkinu.
Vonandi taka fóstrur sig saman
og koma ekki til starfa á ný í þvi
formi sem nú er þvi það er þjóð-
hagslegur hagnaður að leggja niður
sem flest dagvistunarhæli og halda
þeim fáu sem eftir verða sem neyðar-
þjónustuathvarfi fyrir þær mæður
Þannig þyrftu mæður ekki að fara
með böm sín langar leiðir í gæslu,
kannski gæti það verið í sömu götu,
allavega ekki mörgum götum fjær.
Varla væri mæðrum það á móti
skapi að geyma böm sín á einka-
heimili ef þeim þykir dagheimili
þröngur kostur.
Eða myndu mæður telja það óynd-
isúrræði að ljá heimili sitt til afnota
einn mánuð í senn til umönnunar
nokkurra bama í nágrenninu í um-
„Vonandi taka fóstrur sig saman og koma ekki til starfa á ný í því formi
sem nú er því það er þjóðhagslegur hagnaður að leggja niður sem flest
dagvistunarhæli og halda þeim fáu sem eftir verða sem neyðarþjónustuat-
hvarfi fyrir þær mæður sem sannanlega þurfa að koma bömum sínum í
fóstur...“
sem sannanlega þurfa að koma böm-
um sínum í fóstur, allan daginn eða
hluta úr degi sakir veikinda á heim-
ili eða svipaðra aðstæðna.
Hvað varðar möguleika fóstranna
sjálfra til þess að nýta menntun sína
er sjálfgefið að þær stofni sjálfar
dagvistunarheimili og greiði sér þá
þau laun sem þeim líkar. Vel mennt-
aðar fóstrur hljóta að hafa lært svo
til verka að þær kunni að hagræða
starfeeminni svo báðir aðilar hafi
hagnað af.
Heimili betra en hæli
Ef fóstrur vilja hins vegar engan
sjá færustu fóstm sem nú hefði mun
betri tíma til að sinna starfinu en
hún hefúr á dagheimilinu?
Launalega myndi viðkomandi
fóstra hafa mun betri afkomu með
slíku fyrirkomulagi en þær hafa í
dag ef marka má uppgefhar launa-
tölur frá þeim sjálfum.
Þar með myndu fóstrur hafa hasl-
að sér völl í einkarekstrinum.
Þjóðhagslega yrði af þessu hinn
mesti spamaður, jafnframt því sem
framboð og eftirspum réði nú á því
umfangsmikla verksviði sem bama-
gæsla er orðin.
Geir R. Andersen.
„Sannleikurinn er sá að eiginmaður hinn-
ar útivinnandi konu er í sjöunda himni
yfir að hafa eignast lífsförunaut sem er það
úthaldsgóður að þola álagið.“