Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1986, Qupperneq 36
36
MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1986.
Fréttir
Ólympíuskákmótið í Dubai:
Áfall í 8. umferð
- gegn Englendingum. Sögulegt jafntefli við Rússa
Það má með sanni segja að sigur-
víman hafi á skammri stund breyst í
sorg hjá íslensku sveitinni í Dubai í
gær. Eftir glæsilegan árangur gegn
Sovétmönnum í 7. umferð guldu okkar
'menn aíhroð gegn ensku sveitinni í
þeirri næstu. Sveiflan var stór: Jafntef-
lið við Sovét er að líkindum besti
árangur í einni viðureign sem ísland
hefur náð fyrr og síðar - í fyrsta skip-
tið sem við náum jöfiiu og vinnum
skák á ólympíumóti gegn margföldum
heimsmeisturum stórveldisins í austri.
Tapið fyrir Englendingum er það
stærsta sem hent hefur íslenska sveit
í manna minnum; líklega þarf að fara
aftur til 1954 til að finna viðureign þar
sem allar skákir töpuðust.
En lítum nú á þessar viðburðaríku
umferðir helgarinnar hverja fyrir sig.
6. umferð: Öruggt gegn Argent-
•'inu
Helgi-Campora 'A- 'A
Jóhann Panno 1-0
Jón L.-Garcia-Palermo 'A- 'A
Margeir-Ricardi 1-0
Ísland-Argentína 3-1
Island var með hvítt á 1. og 3. borði
en þar komust þeir Helgi og Jón L.
lítt áleiðis. Andstasðingur Helga beitti
drottningarbragði, jafhaði taflið af
öryggi og kæfði allar vinningsþreif-
ingar í fæðingu. Jafnteflið var stað-
reynd eftir 21 leik. Skák Jóns L. var
enn styttri; Jón beitti uppáhaldsaf-
brigði sínu gegn caro-kann vöm
Argentínumannsins en sá hafði greini-
lega undirbúið sig vel og náði fram
einfaldri jafnteflisstöðu eftir aðeins 18
leiki. Staðan hélst lengi óbreytt, 1-1,
og leit satt að segja ekki allt of vel
út um tíma, að sögn dr. Kristjáns
Guðmundssonar liðsstjóra. „Það virt-
ist stefna í jafntefli hjá Jóhanni og við
héldum um tíma að Margeir væri að
tapa. Þá fór hann í sókn, hálfgerða
örvæntingarsókn, og tefldi hana af
geysilegri hörku. Ricardi lenti í vand-
ræðum og féll á tíma í 32. leik en þá
var hann kominn með tapaða stöðu,“
sagði Kristján þegar DV hafði sam-
band við hann að umferðinni lokinni.
Jóhann náði smám saman nokkm
frumkvæði og Panno notaði mikinn
tíma en fann enga fullnægjandi áætl-
un. Hann lék af sér skiptamun í 29.
leik og gafst upp skömmu síðar- þriðji
sigur Jóhanns með svörtu í röð:
Skák
Áskell Örn Kárason
Hvítt: Panno (Argentínu)
Svart: Jóhann Hjartarson
Drottningarindversk vörn
1. RÖ Rffi 2. c4 e6 3. g3 b6 4. Bg2
Bb7 5. d4 Be7 6. Rc3 Re4 7. Bd2 f5
8. 0-0 0-0
Þetta afbrigði drottningarindverskr-
ar vamar hefur löngum þótt í bit-
lausara lagi en um leið áhættulítið
fyrir hvítan. Aðrar og skarpari leiðir
hafa verið meira í tísku á seinni árum.
Jóhann virðist nú ná að jafha taflið
án mikilla erfiðleika.
9. Hcl Bfli 10. d5 Ra6 11. a3 exd5
12. cxd5 c5 13. dxc6 frhjhl. dxc6 14.
Dc2 c5 15. Hfdl De7 16. Bel Rc7
Hvítum gengur erfiðlega að finna
haldgóða áætlun en Jóhann treystir
stöðu sína. Hann hefur nú þegar
nokkra yfirburði í rúmi og peðameiri-
hlutinn á drottningarvæng gæti komið
að góðum notum síðar. Hvítur hlýtrn-
að reyna „minnihlutaárás" á drottn-
ingarvæng með b2-b4 en tekst ekki
að koma henni í framkvæmd í tæka
tið. Á meðan eykst þiýstingur svörtu
mannanna á e- og f-línunum.
17. Rxe4 Bxe4 18. Db3+ Kh8 19.
Bc3 Bxc3 20. Dxc3 Hae8 21. Hd2 f4!
Lykilleikur í sókn svarts. F-línan
opnast og spjótin beinast gegn Akki-
lesarhæl hvíts á f2.
22. Dc4 Bc6 23. b4
Nú kemur þessi leikur of seint.
23. - Bb5 24. Dc2 Ra6 25. bxc5
Rxc5 26. Db2 Ba6 27. Hcdl
Leitar eftir mótspili en nú kemst
svarti biskupinn í góða stöðu.
27. - Bc4! 28. Db4 b5 29. Hb2? '
Afleikur í erfiðri stöðu. Erfitt er að
benda á góðan leik, 29. Rd4 kemur
fyrir lítið eftir 29. fxg3 hxg3 30. - Dffi!
og hvítur á erfitt með að veija f2, t.d.
31. e3 Rd3! með vinningsstöðu.
29. - Ra4 30. Rd4
Forði hvítur hróknum fellur peðið á
e2 eftir drottningarkaup og Ra4-c3
30. - Rxb2 31. Dxb2 Dffi 32. Bf3
fxg3 33. hxg3
33. - Hxe2!
Glæsilegur endahnykkur. Panno
lagði hér niður vopn.
Með þessum sigri tókst íslensku
sveitinni að komast upp að hlið sov-
ésku risanna í 1. sæti og er þetta i
fyrsta sinni í sögunni sem slíkt gerist
á ólympíuskákmóti.
7. umferð: „Viðureign aldarinn-
Kasparov-Helgi 1-0
Karpov-Jóhann 'A - A
Vaganjan-Jón L. 'A-'A
Téskovskí-Margeir 0-1
Sovétríkin-ísland 2-2
Óhætt er að segja að þessarar viður-
eignar hafi lengi verið beðið með
eftirvæntingu. Fyrir tveimur árum var
íslenska sveitin nálægt því að leggja
heimsmeistarana að velli en missti sig-
urinn út úr höndunum þegar hæst bar
og tapaði 1,5-2,5. Margt hefur verið
rætt um þau úrslit og viðureignin
thqmsqn • ZEROWATT • D^aGc§[]Q®mMöd] • Frigor • Westinghouse • Banknedit • t
___________