Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987.
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987.
Helena Albertsdóttir í helgarviðtalinu
Eg er sann-
gjörn baráttu-
manneskj a
„Ég er baráttumanneskja en ég er
sanngjöm baráttumanneskja," segir
Helena Albertsdóttir sem komin er
heim írá Bandaríkjunum til að stjóma
kosningabaráttu Borgaraflokksins.
Það hefur lengi farið orð af Helenu
sem skipuleggjanda í kosningabaráttu
og er þess skemmst að minnast að
Albert Guðmundsson þakkaði henni
öðm fremur sigurinn í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík á síðasta
hausti.
Þá hefur væntanlega engan órað
fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn ætti eft-
ir að klofaa og nýr stjómmálaflokkur
að líta dagsins ljós. Svo hefur þó farið
og hulduherinn fi-ægi stendur nú einn
í kosningabaráttu fyrir alþingiskosn-
ingar.
Er og verður hulduher
En atvikin hafa hagað því svo að
Helena er tekin við herstjóm í huldu-
hemum. „Ég hef oft svarað því til að
hulduherinn er og verður hulduher,"
segir Helena þegar gengið er á hana
með herstjómarlistina sem heldur
hulduhemum saman.
Árangur þessarar sérstæðu kosn-
ingamaskínu rekur hún hins vegar til
að hún „hafi alltaf haft gott fólk með
mér, fólk sem hefur unnið vel og kann
að vinna“ en skipulagið er leyndarmál.
Margir hafa velt því fyrir sér hvort
heimkoma Helenu hafi ráðið úrslitum
um að Albert klauf sig frá Sjálfstæðis-
flokknum og stofhaði sinn eigin flokk.
Fyrst eftir að hann sagði af sér emb-
ætti iðnaðarráðherra sagði hann í
sjónvarpsviðtali að hann hefði ekki
hikað við sérframboð væri hann tiu
árum yngri. Margir skildu þessi orð
svo að Albert hygði ekki á sérfram-
boð. Sérframboðið er engu að síður
staðreynd.
Helena skýrir sinn þátt í málinu með
því að vísa til þess „sem á undan er
gengið" og segir að Albert hafi ekki
átt annarra kosta völ. „Albert vantaði
ekki aukakraft frá mér til að rísa upp
gegn flokknum. Hins vegar verðum
við öll að sætta okkur við að eldast
og þegar aldurinn færist yfir fara menn
öðmvísi í hlutina en þegar þeir em
yngri.
Albert er særður maður. Það dregur
kjark úr öllum mönnum að verða fyr-
ir slíku. Hann er trygglyndur maður
að eðlisfari og hefúr margoft sýnt það
á sínum ferli innan Sjálfstæðisflokks-
ins eins og alþjóð veit. Atburðir
síðustu daga hljóta hins vegar að slá
menn niður.“
Reiði í garð Þorsteins
Yfirlýsingar Þorsteins Pálssonar eft-
ir afsögn Alberts hafa líka vakið reiði
meðal stuðningsmanna Alberts. Eink-
um er þá vísað til þeirra orða að
Albert geti ekki orðið ráðherra fyrir
Sjálfstæðisflokkinn eftir það sem á
undan er gengið. Helena leggur
áherslu á að það sé margt fleira i orð-
um Þorsteins sem hafi verið særandi.
Hún nefhir þau orð Þorsteins að hann
vilji ekki höggva í sama knérunn
tvisvar á sama degi. „Hvað er maður-
inn að segja?“ spyr Helena. „Er hann
að segja að fallöxin falli seinna?"
En hvaða kom það var sem fyllti
mælinn vill Helena ekki segja til um.
„Það var fjölmargt sem þama verkaði
saman,“ segir hún. „Þúsundir stuðn-
ingsmanna Alberts um allt land gátu
bara ekki látið bjóða sér þetta öllu
lengur. Það er verið að ráðast að kjós-
endum flokksins en ekki bara Albert
einum.
Það skipti líka miklu hvemig að
málinu var staðið af hálfu formanns
flokksins. Það er svo margt sem þama
verkaði saman.“
Helena kannast aftur á móti ekki
„Albertvantaði
ekkiaukakraftfrá
mér til að rísa upp
gegn flokknum.“
við að stuðningsmenn Alberts hafi ýtt
honum lengra en hann hafði ef til vill
hug á sjálfur. Hún spyr á móti: „Hvað
áttu við?“ Annað svar fæst ekki.
Kapphlaup við tímann
Á kosningaskrifstofunni í Skeifunni
er skipulagsstarfið í fullum gangi enda
framboðslistar ekki frágengnir þegar
þetta viðtal var tekið. Síminn hringir
og Helena þarf að skera úr þessu og
gefa ráð um annað. Stuðningsmenn-
imir, eða kannski öllu heldur huldu-
hersmennimir, koma inn og fara út.
Það veltur á klukkustundum hvort
listar komast fram. Og síðan em fleiri
en einn og fleiri en tveir blaðamenn
sem langar í svör við spumingum.
„Við erum í kappi við tímann og
blaðamennina," segir Helena.
„Þegar ég lagði af stað frá heimili
mínu gmnaði mig aldrei að lætin yrðu
svo mikil sem raun ber vitni og í þess-
um dúr,“ segir Helena. „Þegar ég frétti
fyrst af þessu máli var það hálfgert
áfall fyrir mig. Mér var sagt af því sem
í vændum var um leið og Þorsteinn
hélt blaðamannafundinn. Ég sá þá
strax að það var eitthvað undarlegt á
seyði og fór strax í að hringja út og
leggja drögin að fundinum í Þórs-
kaffi.“
Fjölskyldan í góðum höndum
Helena skipulagði fundinn að vestan
og velti þá þegar þeim möguleika fyrir
sér að hún yrði að koma til landsins.
„Ég á stóra fjölskyldu og þarf líka að
sinna henni þannig að þetta togaðist
í fyrstu á í mér,“ segir Helena. „Þess
vegna kom ég ekki fyrr til landsins.
Það em ung, íslensk hjón sem gáfú
sig fram við mig og buðust til að ann-
ast heimilið á meðan ég væri heima í
kosningabaráttunni. Þau vom slegin
við þessi tíðindi eins og svo margir
aðrir íslendingar. Vegna greiðvikni
þessara hjóna á ég nú heimangengt
um tíma.“
Það einkennir mjög átökin í Sjálf-
stæðisflokknum þessa síðustu daga að
skilin milli Albertsmanna og annarra
flokksmanna komu þegar í stað greini-
lega í ljós. Fundurinn í Þórskaffi
staðfesti þennan klofning þegar dag-
inn eftir að Þorsteinn Pálsson hafði
lýst afstöðu sinni á blaðamannafund-
inum margumtalaða.
Þetta hefur þó fáum komið á óvart
í ljósi deilnanna í flokknum á síðustu
árum og Helena er ekki í vafa um að
hér hafa gömlu ágreiningsmálin tekið
sig upp. „Þetta er ekkert nýtt,“ segir
hún. „Forysta flokksins hefúr margoft
á undanfómum árum gengið yfir Al-
bert og traðkað á honum og ekki verið
tekið mark á þótt hann rétti fram
sáttahönd þannig að þetta er ekkert
nýtt.“
Sjálfstæðisflokkurinn er að
ganga sértil húðar
Helena er engu að síður ósátt við
að kalla atburði síðustu daga deilu-
mál. Hún vill fremur spyija: „Hvað er
að gerast innan Sjálfstæðisflokksins?"
Og hún hefúr svarið á reiðum höndum.
„Eg hef oft sagt það áður og meina
það að Sjálfstæðisflokkurinn er að
ganga sér til húðar sem flokkur.
Flokkurinn framfylgir ekki stefiiu
sinni. Mönnum, sem hafa völd innan
flokksins, og einnig þeim sem ekki
hafa völd, er ekki sinnt.
Nú er ég búin að vera meiripart ævi
minnar í flokknum og það sem sló
„Þúsundir Al-
bertsmanna um
allt land gátu
bara ekki látið
bjóða sérþetta
öllu lengur.“
mig, þegar ég kom heim til að vinna
að prófkjörinu síðasta haust, var að
starfið í húsinu, sem á að vera miðstöð
flokksins, var steindautt. Það var próf-
kjör í Sjálfstæðisflokknum en það var
ekkert líf í Valhöll.
Eitt af vandamálum flokksins er
miðstýringin. Flokkurinn hefur einnig
farið í gegnum margar kreppur og var
höfuðlaus lengi. Það vantar öll tengsl
við fólkið í flokknum. Ég held að
flokksforystan hafi ekki hugmynd um
hvað fólkið í landinu vill.“
Fylgismenn Borgaraflokksins hafa
þráfaldlega lýst þvi yfir að þeir séu
fyrst og fremst sjálfstæðismenn og
verði aldrei annað. Stefna þeirra sé
sjálfstæðisstefhan. Þannig hefur það
verið ljóst frá upphafi að ekki er
ágreiningur milli Sjálfstæðisflokks og
Borgaraflokks um hugmyndir. En
hvemig líst Helenu á að stunda kosn-
ingabaráttu með stefnuskrá annars
flokks?
Ekki stefnuskrá annars flokks
„Við erum ekki með stefnuskrá ann-
ars flokks," segir Helena. „Þegar
Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður á
sínum tíma var frelsi einstaklingsins
grundvöllurinn að stefiiu flokksins.
Þetta er hugsjón sem er ákaflega rík
„Það eru ung, ís-
lensk hjón sem
gáfúsigframvið
migogbuðusttil
aðannastheimil-
iðmeðanégværi
heima í kosninga-
baráttunni“
í okkur íslendingum. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefúr engan einkarétt á þessari
stefiiu og allra síst ef honum hefur
ekki tekist að fylgja henni."
Helena hefur engar áhyggjur af því
að Borgaraflokknum gangi illa að
greina sig frá Sjálfstæðisflokknum
þótt grundvallarhugmyndir þeirra séu
þær sömu. Hún svarar spumingunni
einfaldlega með orðunum: „Það held
ég ekki.“
Hún neitar því að Borgaraflokkur-
inn ætli í kosningabaráttunni að
leggja höfuðáherslu á ágreininginn
við Sjálfstæðisflokkinn. „Við erum
ekkert að eyða kröftunum í að halda
þessum ágreiningi á lofti og höfúm
ekki gert það fram til þessa. Við eigum
í kosningabaráttu og leggjum okkur
ekki niður við það sem okkur þykir
miður fara hjá öðrum. Þess í stað ein-
beitum við okkur að þeim markmiðum
sem við stefnum að. Við vinnum heið-
arlega."
Stefnuskráin ósamin
- En hvað er það þá sem greinir
Borgaraflokkinn frá Sjálfstæðis-
flokknum?
„Við setjumst niður um helgina og
ræðum málið. Frambjóðendumir
verða að vera með í mótun stefiiunnar
í smáatriðum."
Þótt enn sé langt til kosninga og
ógemingur að spá um hvað verður
uppi á teningnum að þeim loknum þá
velta menn samt fyrir sér hugsanleg-
um sættum í Sjálfetæðisflokknum.
Þegar Helena er spurð hvað þurfi að
koma til svo Albertsmenn gangi á ný
til liðs við sinn gamla flokk svarar hún
því til að sig gildi einu hvað gerist í
Sjálfstæðisflokknum á meðan hún sé
í Borgaraflokknum.
Og þótt Sjálfetæðisflokkurinn bæti
ráð sitt er Helenu sama. „Þetta er
enginn skrípaleikur," segir hún.
„Fólk, sem er búið að vera áratugum
saman í flokknum, er að ganga úr
honum í hrönnum eða hefur ákveðið
að vinna með Borgaraflokknum.
Svona ákvörðun er ekki tekin sárs-
aukalaust og hún er ekki heldur gerð
í gríni. Við höfum alla tíð viljað sætt-
ir en ekki fengið þær. Ég ætla ekki
að láta frá mér fara hugleiðingar um
hvað þurfi að koma til svo aftur grói
um heilt.“
- Þarf að skipta um formann í Sjálf-
stæðisflokknum?
„Ég vil ekkert ræða um hvort sjálf-
stæðismenn þurfa að fá nýjan for-
mann. Ég hef engan áhuga á að gera
honum eða öðrum illt.“
Barátta einstaklinga
Meðan ágreiningur Sjálfstæðis-
flokks og Borgaraflokks er svo óljós
sem raun ber vitni er ekki annað að
sjá en að þessi pótitík sé hætt að snú-
ast um annað en einstaklinga. Helena
er á öðru máli og segir að „stór hluti
pólitíkusa hér heima misskilji alger-
lega sitt hlutverk. Pólitík er vinna.
Hún á að vera þjónusta við fólkið í
landinu. Stjómmálamenn eiga ekki
að hefja sjálfa sig á stall.
Ég held að margir íslenskir stjóm-
málamenn líti fremur á þingmennsku
sem stöðutákn en vinnu. Okkar
„Viðeigumí
kosningabaráttu
og leggjum okkur
ekkiniðurviðþað
semmiðurferhjá
öðrum.“
flokksmenn gera sér grein fyrir því að
við erum þjónar fólksins og viljum
vera það. Við viljum sjá betra mannlíf
hér.“ ,
Helena ber engan ugg í brjósti vegna
þess að meðbyrinn, sem Borgaraflokk-
urinn hefur þessa stundina, hverfi
þegar komið er út í sjálfa kosningabar-
áttuna. Enn sem komið er er samúðin
Alberts megin hvað sem verður. „Þetta
er ekkert grínframboð," segir Helena
með þunga í röddinni. „Það er fjöldi
fólks um allt land sem leggur sig allt
fram við að skipuleggja þessa baráttu.
Ég veit að því fólki er alvara."
-GK
Helena Albertsdóttir. - Þetta er ekkert grínframboð. DV-mynd gva