Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1987.
Fréttir
Burðarþolsskýrslan:
Tvö stórhýsi standast
ekki kröfur um burðarþol
„Þessi mál enda fyrir dómstólum,
það er ekkert sem breytir því héðan
af.“ Þannig mælti einn þeirra verk-
fræðinga sem komið hefur við sögu í
umræðunni sem siglt hefur í kjölfar
burðarþolsskýrslunnar.
„Málið hefur fleiri en einn anga.
vöntun á gögnum hjá byggingafulltrú-
anum í Revkjavík er alvarlegt,
embættið hefur brugðist.“ Svo mælti
verkfræðingur sem deilt hefur á bvgg-
ingafulltrúann í Revkjavík.
Tvö stórhýsi
DV hefur fengið staðfest hjá fleiri en
einum aðila að tvö þeirra húsa sem
gerð var úttekt á og burðarþol reynd-
ist ófullnægjandi eru nýbvggingar við
Suðurlandsbraut, hús númer 22 og 24.
Landsbankinn á húsið númer 24. Stað-
ið hefur til að Húsnæðismálastofnun
ríkisins kevpti rúmar tvær hæðir í
húsinu. Umrædd hús eru verstu dæm-
in í burðarþolsskýrslunni margum-
ræddu að því levti hvé stór þau eru
og því erfitt að lagfæra þau.
DV hafði samband við Karl Berg-
mann Guðmundsson hjá skipulags-
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
1 Innlán óverðtryggö
Sparisjóðsbækur 10-12 Ib.Lb
óbund. Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1115 Sb
6 mán. uppsögn 12 20 Ib
12 mán. uppsögn 14 25,5 Sp.vél.
18mán. uppsögn 22 24.5 Bb
Ávísanareikningar 4-10 Ab
Hlaupareikningar 4 7 Sp
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5-2 Ab.Bb.
6 mán. uppsogn Innlán meðsérkjörum 2,5-4 Lb.Sb. Úb.Vb Ab.Úb
10-22
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5.5-6,5 Ib
Sterlingspund 7,5-10 Vb
Vestur þýsk mörk 2.5-3.5 Ab.Vb
Danskar krónur 9-9.5 Ab.Sb,
ÚTLÁNSVEXTIR (%) Sp.Úb lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv) 20,5-24 Lb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) 24-26 eða kge
Almenn skuldabréf(2) 21.5 25 Úb
Viöskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(vfirdr.) Útlán verðtryggð 21 24,5 Bb.Sb
Skuldabréf
Að 2.5árum 6,5-7,5 Lb
Til lenqri tíma 6.75-7,5 Sp.Úb
Útlántilframleiðslu
isl. krónur 18.5-24 Ab
SDR 7.75-8 Bb.Lb,
Úb
Bandarikjadalir 8-9 Sb
Sterlingspund 10.25 II,5 Lb
Vestur-þýsk mörk 5,25-5,75 Bb.Lb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-6,75
Dráttarvextir 30
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala maí 1662 stig
Byggingavísitala 305stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 3% 1. apríl
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 110 kr.
Eimskip 246 kr.
Flugleiðir 170kr
Hampiðjan 114 kr.
Iðnaðarbankinn 124 kr.
Verslunarbankinn . 114 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa
þó viðskiptavixla gegn 21 % ársvöxtum. (2)
Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil-
alána er 2% bæði á verðtryggð og óverð-
tryggð lán, nema í Alþýðubanka og
Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl-
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um per:-'; imarkaðinn
birtast i DV á fimmtudögum.
deild Landsbankans og sagði hann það
rétt vera að húsið hefði verið kannað
hvað burðarþol áheyrir. Teikningar
af þessu húsi voru ekki til hjá bvgg-
ingafulltrúa en Karl sagði að þær
hefðu fundist og væri búið að koma
þeim til réttra aðila. Karl sagði enn-
fremur að strax og honum varð ljóst
að húsið hefði ekki nægt burðarþol
hefði hann fengið tvo verkfræðinga til
að reikna burðarþol þess og ætti hann
von á niðurstöðum frá þeim eftir helg-
ina.
Engin ákvörðun um framhaldið
Suðurlandsbraut 22 er fimm hæða
verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Það
var Byggingafélagið Ós sem byggði
húsið. E.S. teiknistofan teiknaði það
en burðarþolsteikningar gerði Her-
mann Isebam byggingatæknifræðing-
ur. DV hafði samband við Hermann
og sagðist hann ekkert kannast við
að húsið hefði verið burðarþolsprófað.
Enn frekar sagðist Hermann vera
hissa á niðurstöðum nefndarinnar þar
sem hann hefði fengið Júlíus Sólnes
verkfræðing til að reikna styrk húss-
ins með tilliti til jarðskjálftaþols þess.
Nú hafa nokkur fyrirtæki hafið
starfsemi í húsinu. Má þar neftia Lín-
una, Xenon-umboðið og Lýsingu h/f.
Meðal eigenda er Hjúkmnarfélag Is-
lands. DV hafði samband við einn
eigendanna og sagðist hann ekki vera
búinn að taka ákvörðun um hvað
hann ætlaði að gera í ljósi þessara
staðreynda sem nú lægju fyrir varð-
andi ófúllnægjandi burðarþol hússins.
-sme
Suðuriandsbraut 22:
Stöðugleika hússins áfátt
í skýrslunni segir um húsið að
Suðurlandsbraut 22:
„Lýsing: Fimm hæða verslunar- og
skrifstofúhúsnæði með einnar tíl
tveggja hæða bakhúsi. Húsið er 1560
fermetrar að grunnfleti og um 11700
rúmmetrar.
Teikningum er vemlega áfátt og
mikilvæg atriði vantar á teikning-
amar.
Athugun á stöðugleika hússins
gegn jarðskjálftaálagi í N-S stefiiu
sýnir að gaflskífúi' framhússins em
ekki færar um að flytja tii jarðar þá
krafta, sem á þær koma.
Ef dæma á eftir burðarvirkjateikn-
ingum em undirstöður vanreiknað-
ar og sumar á mörkum að þola
lóðrétt álag eingöngu.
Vettvangsskoðun sýndi að stórt
op hafði verið sagað i A-V stefnu á
jarðhæð en það týrir mjög getu
veggjarins og undirstaða hans til
þess að taka upp lárétta krafta.
Niðurstaða: Teikningum er vem-
iega áfátt.
Stöðugleika hússins gagnvart lá-
réttum kröftum er áfátt.“ -sme
Suðurlandsbraut 22
DV-mynd S
Suðuriandsbraut 24:
Alag á súlur á 1. hæð of mikið
I skýrslunni segir um Suðurlands-
braut 22:
„Lýsing: Sex hæða skrifstofu- og
verslunarhúsnæði með fjögurra
hæða bakhúsi tengt með stigahúsi
sem er sambyggt framhúsinu. Húsið
er 820 fermetrar að gmnnfleti og um
14400 rúmmetrar.
Undirstöðuteikningar vantar af
framhúsinu.
Einungis var gerð nálgun á burð-
arþoli í N-S stefhu á framhúsi. Ekki
liggja fyrir teikningar af undirstöð-
um framhúss og því gert ráð fyrir
sams konar undirstöðum og í bak-
húsi. Að auki var gert ráð fyrir að
húsið væri „symmetrískt" þ.e. áhrif-
um vegna stigahúss sleppt. Niður-
staðan varð sú að álag á jörð fór
langt yfir mörk sem tilgreind em í
teikningum og álag á súlur á 1. hæð
varð of hátt.
Niðurstaða: Teikningar vantar af
undirstöðum framhúss.
Nálgunarreikningar á stöðugleika
framhúss í N-S stefnu sýna að líklegt
er að álag á súlur á 1. hæð verði of
mikið.
Ekki var unnt að fá rétt mat á
ástandi hússins vegna þess að teikn-
ingar vantar."
-sme
Suðurlandsbraut 24
DV-mynd S