Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1987. 11 Utlönd Ber ekki saman um mannfall Talsmenn stjómarinnar sögðu i gær að herinn hefði náð mikilvægum stöðvum af skæmliðum, í heimabæ leiðtoga stærsta skæmliðahópsins, tigranna. Öryggismálaráðherra Sri Lanka, Lalith Athulathmudali, hafnaði í gær fullyrðingum forsætisráðherra Indlands, Rajiv Gandhi, sem segir ríkisstjóm Sri Lanka vera að myrða þúsundir þegna sinna með köldu blóði. Ráðherrann sagðist bjóða hveijum þeim sem fullyrti slíkt að koma og sjá með eigin augum það sem fram fer. Fréttamönnum hefur verið mein- aður aðgangur að Jaífnaskaganum og geta því ekki gert upp á milli fullyrðinga aðila í málinu. Öryggismálaráðherrann sagði að um níutíu skæmliðar og tuttugu og sex hermenn úr sveitum stjórnarinn- ar, hefðu fallið í átökunum. Um þrjú þúsund hermenn taka þátt í sókn- inni. Indverjar hafa reynt að koma á sáttum milli stjómar Sri Lanka og skæmliða tamíla, en átökin milli þessara aðila hafa kostað um sex þúsund mannslíf á undanfömum Fulltrúum skæmliða tamíla á Sri Lanka og talsmönnum stjómarhers landsins ber ekki saman um íjölda fallinna í sókn stjómarhersins gegn tamílum á Jaffnaskaga. Segja tam- ílar þúsundir manna hafa fallið, aðallega almenna borgara, en tals- menn stjómarinnar segja fjórtán almenna borgara hafa fallið, flesta af völdum skæmliða sjálfra. Sókn hermanna stjómarinnar á Sri Lanka gegn skæmliðum tamíla á Jafíhaskaga á norðurenda eyjar- innar hefur'gengið mun hægar en áætlað var í upphafi. Aðgerðimar hafa nú staðið á fjórða sólarhring og talið er að stjómarherinn þurfi enn um sjötíu og tvær klukkustund- ir til að ná meginmarkmiðum sóknarinnar. Sókn stjórnarhermanna á Jaffnaskaga gengur hægt en embættismenn segja sigur vísan á nokkrum dögum. fjórum árum. Fréttaskýrendur segja áhrif Indverja á Sri Lanka fari dvín- að sóknin á Jafíhaskaga sýni að andi. Stjórnarhermenn reyna að ná Jaffnaskaganum undan yfirráðum skæru- liða tamíla sem hafa ráðið þar lögum og lofum undanfarið. SÞ skulda Dönum hálfan milljarð d.kr. Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmaimahöfti; Að sögn Hans Engel, varnarmála- ráðherra Dana, skulda Sameinuðu þjóðimar Dönum fjögur hundrað og níutíu milljónir danskra króna fyrir vera dansks herliðs á Kýpur síðastlið- in átta ár. Þrátt fyrir það kveður ráðherrann engar áætlanir uppi um brottflutning danska herliðsins frá eyjunni. Svíar munu þó að öllum líkindum kalla þrjú hundrað sjötíu og fimm manna herlið sitt heim um áramót. Ekki hef'ur verið gefin út opinber yfir- lýsing þar að lútandi en Svíar hafa nefiit tvö skilyrði fyrir vera sinni á Kýpur. Annárs vegar að skriður komist á samninga gríska og tyrkneska hluta Kýpur og hins vegar að greiðslufyrir- komulagið batni til muna. Ekki er útlit fyrir að neinu þessara atriða verði fullnægt og því nær vist að Svíamir hverfa frá eyjunni. Hans Engel lagði áherslu á að þrjú hundrað og fimmtiu manna herlið Dana yrði áfram á Kýpur en ef greiðsl- ur ættu sér ekki stað yrði að funda um skynsamlega lausn þessa vanda- máls hjá Sameinuðu þjóðunum. Á fundi vamarmálaráðherra Norður- landa í Helsingfors fyrir helgina óskaði Engel eftir tillögum til minnk- unar kostnaðar við herliðin á Kýpur af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Á fund- inum kom fram að Sameinuðu þjóðim- ar skulda alls sjö hundrað milljónir danskra króna fyrir vera erlends her- liðs á eyjunum. Handtökur vegna skógareldanna Fjórir menn hafa verið handteknir fyrir að orsaka skógareldana miklu í Kína sem þar hafa geisað undanfamar vikur. Tveir mannanna era sakaðir um að hafa kveikt í sígarettum í skráþurrum skógunum og tveir era sakaðir um að hafa haft skógarhöggsvélar í gangi þar en það var óleyfilegt. Eiga mennimir yfir höfði sér ákæra fyrir að hafa valdið dauða tvö hundrað manns sem fórust í eldunum. Það var fyrst í gær sem tókst að stöðva útbreiðslu eldanna. Sumir þeirra, er börðust við eldana, höfðu aðeins hríslur að vopni eða votar flík- ur. Rúmlega fimmtíu þúsund manns misstu heimili sín í eldunum og milljón hektarar lands eyðilögðust. Einnig hcfur tekist að ráða niðurlög- um skógareldanna miklu í Sovétríkj- unum við landamæri Kína að því er kínverskir embættismenn tilkynna. Opiðí öllum deildum til kl. 20 í kvöld Allt í helgarmatinn. /A A A A a a * ; •— 'it n'u au Munið okkar Jll hagstæöu greiðsluskilmala. Jón Loftsson hf. Opið laugardag kl. 9-16. Hringbraut 121 Sími 10600 jLHÍDdjm-iíij NÚ ER TÆKIFÆRIÐ/TTTtSAT a að fa ser skap a goðu verð. /SELKO SKÁPAR Við seljum takmarkað magn skápa á stórlækkuðu verði Allt að 40% afsláttur á sumum gerðum SELKO SIGURÐUR ELÍASSON HE Auöbrekku 1-3 Kópavogi, s:41380

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.