Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1987. Fréttir •• •• Tuttugu tonna steinnökkvi á Bolungarvik. Eigandinn hyggst flytja fleyið til Reykjavíkur og Ijúka smíðinni þar. DV-mynd GVA Bolungatvík: Skúta úr steini Þegar ekið er um Bolungarvík vek- ur athygli skúta sem stendur í fjöru- kantinum. Við nánari eftirgrennslan sést að skútan er byggð á afar sér- stakan máta. Hún er byggð úr stein- steypu. Tryggvi Thorsteinsson er eigandi skútunnar. Trvggvi er búsettur í Revkjavík og hann var spurður hvem- ig stæði á því að Revkvíkingur ætti skúti í smíðum á Bolungarvík. Sagðist Tr\'ggvi hafa áður átt handfærabáta og eftir að hafa starfað í Danmörku í tvö ár hefði hann fengið sér hand- færabát og farið til Bolungarvíkur á meðan hann hefði verið að átta sig eftir að hann kom heim til íslands á ný. Trvggvi sagðist hafa kynnst þessari bvggingaraðferð þegar hann var í Afr- íku. þar hefði hann séð greinar um þessa byggingaraðferð i blöðum frá FAO. Tryggvi sagðist einnig hafa frétt að á Kúbu hefði heill fiskiskipafloti verið byggður á þennan máta. í fyrstu höfðu sjómenn á Kúbu enga trú á bátum byggðum úr steinsteypu en eft- ir að í ljós kom að þetta voru einu bátamir sem þoldu kóralrifin hefði skoðun þeirra breyst. I Víetnam voru varðbátar steyptir á þennan máta, það vom einu bátamir sem þoldu skothríð- ina. Þegar Tryggvi var síðar í Danmörku kynntist hann áhugamannaklúbbi um steinsteypta báta, þá vom 600 slíkir bátar í smíðum á Norðurlöndum. Það var hönnuður frá Nýja-Sjálandi sem hannaði skútuna fyrir Tryggva. Tryggvi segist þurfa að koma skrokkn- um suður til Reykjavíkur til að geta haldið smíðinni áfrarn. Skrokkurinn hefur kostað lítið að sögn Tryggva, kannski 600 þúsund krónur, en mikil vinna hefur farið í gerð hans, sennilega um sex mánuðir. Það kostar hins vegar öllu meira að ljúka smíðinni. Tryggvi giskaði á að það gæti kostað allt að fjómm milljón- um króna. Enda sagðist Tryggvi eiga von á að skútan yrði ekki tilbúin til notkunar fyrr en eftir fimm ár. Skúta Tryggva er 20 tonn að stærð. -sme Nýtt dýpkunarskip í flotann Nýtt dýpkunarskip í eigu Siglfirð- inga og Reykvíkinga kom til Raufarhafnar í morgun. Skipið er gröfuskip, 180 tonn. En gröfuskip hefur vantað hérlendis frá því að Grettir sökk í Faxaflóa fyrir nokkr- um árum. Skipið verður við dýpkun- arframkvæmdir á Raufarhöfn næstu 20 daga. En þaðan heldur það til Þórshafhar og að verki loknu þar til Siglufjarðar. Skipið er norskt og heitir Jutul 3. Það er Dýpkunarfélgaið hf. sem er með skipið á leigu í þrjá mánuði til reynslu. Fáist næg verkefni verður það keypt að þremur mánuðum liðn- um. -GK Okuleikni BFO - DV: Ók brautina villulaust - í annað sinn sem það er leikið Ekki viðraði vel til keppni í Hafn- arfirði þegar forráðamenn ökuleikni Bindindisfélags ökumanna og DV mættu á staðinn mánudagskvöldið 20. júlí sl. Það hefti þó ekki Hafnfirð- inga því góð mæting var í ökuleikn- ina og hjólreiðakeppnina. Villulaus akstur Mjög góður árangur náðist í karla- riðli í ökuleikninni. Einn keppend- anna, reyndar sá er mætti á stærsta bílnum, stórum Benz sendiferðabíl, ók alveg villulaust allar þrautir. Þetta er í annað sinn í sumar sem ökumanni tekst að vera með 100% akstur í þrautaplaninu. Þetta var Jóhann Harðarson. Honum tókst að aka hægaþrautina á 68 sekúndum en hægaþrautin er metra langur planki og er þrautin sú að aka hann eins hægt og unnt er án þess að stöðva bílinn. Jóhann vann keppn- ina og fékk aðeins 121 refsistig. Hann er því með 8. besta árangur yfir landið af tæplega 500 keppend- um. Það var einnig ökumaður á sendibíl sem lenti í 3. sæti. Sá heitir Þórir Garðarsson og ók hann Mazda sendibíl sínum af miklu öryggi og fékk 185 refeistig. Þórir var í öðru sæti þar til kom að síðasta keppand- anum. Sá náði að slá Þóri við og hreppa silfrið. Það var Guðmundur Gunnarsson er bætti árangur Þóris um 15 sekúndur á Hondu Accord. Fámennur kvennariðill Kvennariðillinn hefur verið frekar fámennur í sumar og voru aðeins 2 konur í keppninni í Hafnarfirði. Sú er betur ók heitir Hafdís Brands- dóttir, á Honda Civic. Þó voru aðeins 14 sekúndur sem skildu Haf- dísi og Jónínu Ólafsdóttur að sem varð að láta sér nægja silfrið. Mikið hefur verið rætt um að breyta þátttökureglum á þann veg að ekki sé sérstakur karla- eða kvennariðill nema þátttakendur séu í það minnsta 4 í hvorum riðli. Það myndi þýða að meðal annars í Hafn- arfirði hefði kvennariðillinn fallið niður og sama má segja á fleiri stöð- um um landið. Því verður kvenfólkið að standa sig betur í mætingu ef Hann Jóhann Harðarson ók brautina af 100% öryggi og er annar keppand- inn i sumar sem það tekst. Hann er hér á stóra sendibílnum í brautinni og er ekki annað að sjá en að vandvirknin sé í fyrirrúmi. kvennariðillinn á ekki alveg að falla niður. Góður tími í hjólreiðakeppn- inni Sigurvegarinn í eldri flokki hjól- reiðakeppninnar náði mjög góðum tíma í brautinni eða 45,20 sekúndum og er það aðeins 2 sekúndum lakara en landsmetið. Þetta var Hafsteinn Þór Hafsteinsson sem stóð sig svo frábærlega. Hann var með samtals 65 refsistig. Tómas Ágústsson varð annar með 75 refeistig. { yngri riðli sigraði Kjartan Þórisson með 82 refeistig. Annar varð Guðjón Rúnar Sveinsson með 95 refsistig. Verð- launin í hjólreiðakeppninni gaf reiðhjólaverslunin Fálkinn hf. en í ökuleikninni var það Sparisjóður Hafnarfjarðar sem verðlaunin gaf. Casio umboðið gaf þeim keppanda, sem bestan tíma hafði í brautinni, vandað Casio úr og sá er hreppti það var Guðmundur Fylkisson. Hann hafnaði í 4. sæti. EG Snælax í Grundarfirði: Markið er 500 tonn af laxi eftir þrjú ár í haust verður slátrað í fyrsta sinn og þá 100 tonnum „Stöðin hefur verið í uppbyggingu síðan 1984 og í haust verður fyrsta alvöruslátrunin hjá okkur og er gert ráð fyrir að slátra 100 tonnum af laxi. Næsta ár reiknum við með 350 tonnum og 1989 ætlum við að vera komnir í 500 lestir en það teljum við vera hám- arkið miðað við stærð stöðvarinnar," sagði Svanur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri laxeldisstöðvarinnar Snælax í Grundarfirði, í samtali við tíðindamann DV. Svanur sagði að slátruninni í haust yrði dreift yfir mánuðina október til janúar en ætlunin væri í framtíðinni að dreifa henni yfir allt árið. Snælax er að láta smíða bát í Noregi sem er sérhannaður til þess að sækja fisk í eldiskvíamar og er hann væntanlegur til landsins í haust. „Það er dýrt að stofha svona laxeld- isstöð því að fyrstu 3 til 4 árin er ekkert nema kostnaður, tekjumar koma ekki fyrr en í haust þegar slátr- un hefst. Mesti kostnaðurinn er fóðrið en við fáum allt fóður úr frystihúsi okkar og með því að framleiða það sjálfir verður það um helmingi ódýrara en ef við keyptum þurrfóður," sagði Svanur. Framleiðslukostnaður á hvert kíló af laxi taldi Svanur vera á bilinu 120 til 140 krónur en eins og málin standa um þessar mundir er skilaverðið á milli 260 og 300 krónur, en auðvitað getur það verið mjög breytilegt. Hann sagðist vera mjög bjartsýnn á framtíð kvíaeldis á laxi hér á landi ef ekki yrði lagður steinn i götu þess en á því hefði örlað. -S.dór .■■SsmeBM iinr, \ , Gamla kempan, Guðmundur Runólfsson, með son sinn og tengdason sér við hlið. Þetta eru aðalmenn laxeldisstöðvarinnar Snælax í Grundarfirði. Svanur Guðmundsson er lengsttil vinstri en Eiður Björnsson stendur á milli feðganna. DV-myndir JAK Það lifnar yfir eldiskvíunum þegar fiskinum er gefið. Þá kraumar yfirborð sjáv- arins eins og sjá má.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.