Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Page 7
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1987. 7 Veiðin hefur verið góð í Svartá i Húnavatnssýslu og eru komnir 225 laxar á land. Veiðimenn, sem voru að koma úr ánni, fengu 18 laxa og veiddu' menn í því holli stærsta laxinn til þessa. Það var Magnús Haraldsson sem fékk fiskinn á maðk og vó hann 24 pund. Fiskurinn var leginn. DV-mynd Halldór Laxá í Aðaldal fengsælust 24 punda lax í Svartá „Við fengum 18 laxa hollið og það eru komnir 226 laxar úr ánni, við sáum ekki mikið af laxi, slangur hér og þar,“ sagði Halldór Ingvason sem var að koma úr Svartá í Húnavatnssýslu í vikunni. „Pétur Haraldsson veiddi 24 punda lax og fiskurinn tók maðk- inn, laxinn var leginn eins og þeir flestir sem við fengum. Þórarinn Tyrf- ingsson veiddi nokkra laxa og hann var að fá fiskinn til að taka flugur númer 14 og 16, agnarsmáar. Það þarf stækkunargler til að sjá þessar flugm- númer 16.“ „Það eru komnir um 1300 laxar í Þverá og Kjarrá, mikið er af fiski víða í hyljum ánna en hann tekur illa þeg- ar er svona bjart dag eftir dag,“ sagði tíðindamaður okkar við árnar. Þverá hefúr nú í nokkum tíma ógnað Laxá í Aðaldal, en það síðasta sem við höf- um frétt af Laxá er að hún sé komin í 1640 laxa og þar með búin að stinga Þverá af. Næstu veiðiár koma nokkuð fyrir neðan Laxá í Aðaldal og Þverá, eins og Blanda, Langá á Mýrum og Vatnsdalsá, svo einhverjar séu taldar. -G. Bender. Viötálið „Með stjómmálin að áhugamáli" - segir Kari Th. Birgisson upplfulltrúi fjármálaráöuneytisins „Starfið felst í því að sjá til þess að almenningur og stjómkerfið viti hvað er að gerast innan fjámiálaráðuneytis- ins því eins og menn vita em miklar breytingar fyrirhugaðar á rikisbú- skapnum, til að mynda á skattakerf- inu. Þessari þróun verður að vera hægt að fylgjast vel með frá ölliun hliðum,“ segir Karl Th. Birgisson sem ráðinn hefur verið upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins. Er þetta ný staða og hefur Karl störf þann 17. þessa mánaðar. Karl er 23 ára gamall Reykvíkingur en rekur ættir sínar austur í Breiðd- al. Hann er kvæntur bandarískri konu, Susan Moore, sem starfar á dagheimili, og eiga þau einn son. Eftir að hafa lokið stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1983 hóf Karl nám í heimspeki og stjómmálafræði í De Pau\v-University í Indiana í Bandaríkjunum. Þaðan lauk hann BA-prófi á síðasta ári. Með- fram náminu starfaði hann jafnframt um tíma sem aðstoðarmaður eins öld- ungadeildarþingmanns, Donald Ri- egle. Að undanfómu hcfúr hann unnið við ritstörf hjá Fijálsu framtaki. „Ég hef starfað mikið í kringum stjórnmálin á síðustu árum,“ segir Karl, „var framkvæmdastjóri þing- flokks Bandalags jafnaðarmanna og síðar Alþýðuflokksins en ég var kosn- ingastjóri Alþýðuflokksins á Austurl- andi í kosningunum í vor. Það má segja að stjórnmálin séu mitt helsta áhugamál, ég hef haft þennan stjórn- málaáhuga síðan ég var unglingur og Karl Th. Birgisson, 23 ára og nýráðinn upplýsingafulltrúi hjá fjármálaráðu- neytinu. hann hefur aukist með ámnum. Sam- an við þetta blandast síðan áhugi á sögu og bókalestri almennt. Mér finnst einnig skemmtilegt að hlusta á góða tónlist, eins og bandaríska tónlist frá síðara hluta sjöunda áratugarins og byijun þess áttunda. Þessa dagana er ég að búa mig und- ir starfið og setja mig inn í málin utan frá. Verkefnið finnst mér spennandi, það verður eflaust mjög yfirgripsmikið í byrjun og ómótað enda í fyrsta skipti sem ráðið er í þessa stöðu. Það gerir starfið ekki síst áhugavert." Fréttir Reglur um undanþágur frá söluskatti valda heilabrotum: Kæfa í plasti og kaefa í dós íslenskir kaupmenn streitast nú við að átta sig á nýju söluskatts- réglunum, enda virðist ekki heigl- um hent að rata framhjá öllum markatilvikunum sem reglumar bjóða upp á. í mörgum tilvikum eru skilgrein- ingarnar á því hvort vörur skuli bera tíu prósent söluskatt eða ekki dálítið óljósar og virðast stundum fara meira eftir umbúðunum en vörunni sjálfri hvort söluskattur er lagður á hana. Hér koma nokkur dæmi: Nýtt grænmeti enginn söluskattur, fro- sið grænmeti tíu prósent söluskatt- ur. Ný epli og aðrir innfluttir ávextir enginn söluskattur, niður- soðnir ávextir tíu prósent. Kæfa í plastí enginn söluskattur, kæfa i dós tíu prósent. Hrátt kjöt enginn söluskattur, roast beef tíu prósent. Nýr fiskur, frosinn fiskur og salt- fiskur enginn söluskattur, harð- fiskur tíu prósent. Frosinn kjúklingur enginn söluskattur, grillaður kjúklingur tíu prósent. Síld í bakka enginn söluskattur, hcitti<mÍ4íö HERRAD E ILD Austurstræti 14, sími 12345. síld í krukku tíu prósent. Svið í Það er ekki furða þótt þessar plasti enginn söluskattur, svið í dós reglur vefjist fyrir mönnum. tfu prósent. ATA Tíu prósent söluskattur er lagður á vörurnar vinstra megin á myndinni en af samsvarandi vörum hægra megin þarf ekki að borga sötuskatt. DV-mynd GVA -BTH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.