Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Síða 15
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1987.
15
Lesendur
Að mati bréfritara er það hneykslanlegt að ungmennasamtök skuli skipuleggja unglingafyllirí eins og slík sem
fram fara um verslunarmannahelgina.
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Pantanasími 13010 k ^
Litakynning.
Permanettkynning.
Strípukynning.
Rakarastofan Klapparstíg
Pantanasími 12725
RÍKISSPÍTALAR
LAUSAR STÖÐUR
DAGHEIMILIÐ OG SKÓLADAGHEIMILIÐ
SUNNUHLÍÐ VIÐ KLEPP
„Stoppið þessar fyllirí-
issamkomur"
Helga skrifar:
Ég get bara ekki lengur orða
bundist í sambandi við þessar fylliríis-
samkomur um verlsunarmannahelg-
ina, mér blöskra svo þessar samkomur.
Það er hreint ótrúlegt að svona nokk-
uð skuli viðgangast, að ungmenna-
hreyfingar um land allt og fullorðið
fólk skuli standa í því að skipuleggja
og halda mót fyrir unglinga þar sem
vitað er að brennivínið veður uppi og
krakkamir kútveltast dauðadrukknir
hver um annan þveran. Það er örugg-
lega á heimsmælikvarða að fylliríið
sé skipulagt fyrir unglingana, og það
af ungmennasamtökum sem stóðu nú
fyrir heilbrigðu lífemi í mínu ung-
dæmi.
Græðgin skín í gegnum þessi mót.
Það eina sem hugsað er um er að
hafa sem mesta peninga út úr krakka-
greyjunum, blindfullum, og gefa sem
minnst í staðinn.
Hreinlætisaðstaða er oft á tíðum
ömurleg eins og sýndi sig t.d. á Húsa-
fellsmótinu um síðustu verslunar-
mannahelgi þar sem þrír litlir skúrar
áttu að þjóna sem salemi fyrir 8 eða
10 þúsund manns. Það hlýtur að vera
kominn tími til að gera eitthvað í
þessu ófremdarástandi og bæta þetta.
Einhver verður að taka í taumana því
þetta er gjörsamlega óviðunandi.
Fóstrur óskast til starfa nú þegar eða eftir samkomu-
lagi.
Starfsmenn óskast nú þegar og frá 1. septemþer nk.
Vaktavinna. Upplýsingar veitir forstöðumaður, sími
38560.
ÖLDRUNARLÆKNINGADEILD
Hjúkrunardeildarstjóri óskast á öldrunarlækningadeild
1 nú þegar.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast til starfa á
sömu deild. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, sími 29000-582.
Reykjavík, 10. ágúst 1987.
Máltækið „heimskt er heimaaiið barn“ mun sannast á Islendingum að mati bréfritara ef stjórnvöld halda fast við
þá stefnu sina I lánamálum að lána ekki til náms erlendis ef hægt er að læra greinina hér á landi.
Lánamál námsmanna:
Stjórnvöld bæti upplýsingastreymi
Námsmaður skrifar:
Nú er nýverið búið að birta stefnu
Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir
næsta tímabil. Það var ekki fyrr en
eftir dúk og disk sem þetta var gert
og mikla bið og eftirvæntingu náms-
manna. Niðurstaðan? Óbreytt ástand
að mestu og meiri bið og þrenging-
ar fyrir þá sem hyggja á nám erlend-
is.
Það er nú gjörsamlega búið að taka
fyrir nám í öðrum greinum en þeim
sem ekki er hægt að læra hér heima.
Og þrátt fyrir stór orð virðist vera
sama þó að námið í háskólanum hér
sé ekki fyllilega sambærilegt því sem
viðkomandi ætlaði að læra úti. Aðeins
'ef eitthvað í þá áttina er kennt hér á
landi þá er stóllinn settur fyrir dymar
og svarið er: „Nei, góði, ekkert lán,
ekkert nám.“ Það sjá það allir sem
vilja að slík stefna slær aftan að lands-
mönnum þó síðar verði og á hún eftir
að koma illilega niður á menntun og
þankagangi landans. Að meina íslend-
ingum að læra annars staðar en á
íslandi og á Norðurlöndunum er nátt-
úrlega alveg út í hött.
íslendingar hafa ætíð verið taldir
frekar víðsýn þjóð og vel upplýst en
ef stjómvöld ætla í raun að standa við
þessa stefhu í lánamálum þá held ég
að máltækið gamla „heimskt er
heimaalið bam“ komi til með að sann-
ast.
Annars er það skylda stjórnvalda
að láta námsmenn vita hvað er á döf-
inni í þessum málum. Það er alveg
forkastanlegt að láta fólk bíða og vona ar verði á. Bætt upplýsingastreymi
fram eftir öllu að einhverjar breyting- kæmi öllum vel.
PMivtal
ARIfíANDI TTT.KYNNING
OFNKO í Kópavogi hefur yfirtekið
einkaumboð fyrir PMIVtal á íslandi.
Verslið þar sem gæðin gilda.
PMIVtal eút&accméoðci ••
Smárahvammi, Kópavogi. Símar 40922 og 44210.