Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Síða 17
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1987. 17 Dómur í meiðyrðamáli „Það þýðir ekkert að fara í meið- yrðamál," segja lögfræðingar gjam- an ef rætt er við þá um ósannar og meiðandi yfirlýsingar fjölmiðla. Útkoman er engin, bætur nær eng- ar, uppreisn næst ekki en sögnin festist bara betur i huga almenn- ings. Þetta hefur orðið til þess að fáir reyna að leita réttar síns, fjöl- miðlar ganga á lagið í trausti þess að ekkert verði að gert og umræðan fer öll á villigötur. íslendingar eru á vissan hátt á vegamótum í fiölmiðlamálum. Fjöl- miðlum hefur íjölgað, útvarpsrásim- ar orðnar margar og sjónvarpsrásir orðnar tvær. Samkeppnin um at- hygli landsmanná eykst, og þar með freistingin til æsifréttamennsku. Fréttamenn þurfa því mjög að gæta sín og dómurinn, sem fjallað er um i þessari grein, er alvarleg aðvömn. Reyndar er frétt Þjóðvilj- ans í þessu tilviki ekki dæmi um hömlulausa samkeppni. Orsakimar að baki fréttar Þjóðviljans era sjálf- sagt allt aðrar. Harður dómur? Dómurinn, sem felldur var í máli Þjóðviljans, er gleðiefiii vegna þess að hann sýnir að fjölmiðlar geta ekki meðhöndlað æm og heiður borgaranna sem skít á götunni. Það er sjálfsagt afstætt að meta hvað er harður dómur. Kostnaður Þjóðvilj- ans vegna þessa dóms er tæp þrjú hundmð þúsund króna og er þá ekki talinn með kostnaður vegna eigin lögfræðings. Þó upphæðin sé ekki há, er hún hærri en oftast hefur verið í meið- yrðamálum, sem sýnir að dómurinn taldi málið alvarlegt. í þessu sambandi er athyglisvert: 1. Fyrir siðanefnd Blaðamannafé- lagsins fékk Þjóðviljinn harðasta dóm, sem felldur hefur verið í sögu siðanefndarinnar. Fréttaflutning- ru Þjóðviljans var talinn alvar- legt brot á siðareglum Blaðamannafélagsins. 2. Fyrir borgardómi em ritstjórar KjáHaiinn Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn Þjóðviljans dæmdir til að greiða bætur að fullu, þ.e.a.s. 100% kröfu stefnanda kr. 100.000. 3. Ritstjórar Þjóðviljans em dæmdir til að greiða kr. 50.000 í sekt til ríkissjóðs sem er óvenjulegt í meiðyrðamáli og sýnir hve alvar- legum augum dómurinn lítur á brot Þjóðviljans. 4. Ritstjóramir em dæmdir til að greiða kostnað af því að kynna niðurstöður dómsins og birtingu hans sem og málskostnað. 5. Ritstjómnum er gert að birta nið- urstöður dómsins á áberandi stað á forsíðu Þjóðviljans. 6. Aðdróttanir Þjóðviljans um aðild Guðmundar G. Þórarinssonar að skattsvikamáli em dæmdar ómerkar. Augljóst var að Þjóðviljinn skrifaði umrædda frétt gegn betri vitund. Það hefur vafalaust þyngt dóminn bæði fyrir siðanefnd Blaðamannafé- lagsins og borgardómi. Það hefur vakið athygli mína hversu lítt Þjóðviljinn hirðir um sannleika og staðreyndir í málflutningi sínum. Oftast nenna menn ekki að elta ólar við mgl blaðsins, en í þessu máli vom aðdróttanir svo alvarlegar að ég sá mér nauðugan einn kost að leita réttar míns fyrir dómstól- um. Niðurstaða dómsins er mér mikið gleðiefni. Hitt er svo annað að það fer nokkuð eftir gildismati manna hvort þeir telja þennan dóm harðan. Nokkrir hafa orðið til að benda á að dómurinn hefði átt að vera miklu harðari. Áhrif—eftirleikur Dómur þessi hefur að vonum vakið mikla athygli. Flestir fjölmiðlar hafa fjallað um hann. Það er ekki á hverj- um degi sem alþingismaður neyðist til að láta dæma ritstjóra dagblaðs í háar fjársektir í nauðvöm. Ég var því reyndar dálítið undr andi að ríkissjónvarpið skyldi í engu geta dómsins. Ekki sist vegna þess að ríkissjónvarpið hóf umræðuna um málefni Þýsk-íslenska og gerði það á þann hátt að verulega orkaði tvímælis. Ég hef enn ekki skilið að forráðamenn fyrirtækisins skyldu ekki óska eftir opinberri rannsókn á þeim fréttaflutningi og stefna ríkis- sjónvarpinu. Þeim mun meira varð ég undrandi að ríkissjónvarpið skyldi ekki sjá ástæðu til að geta niðurstöðunnar í meiðyrðamálinu gegn Þjóðviljanum. Það er oft nær ómögulegt að koma leiðréttingum á framfæri þegar menn eru hafðir fyrir rangri sök. Ábyrgð ríkissjónvarpsins er mikil. Stefnumarkandi dómur, ritstjórar dagblaðs eru dæmdir í fjársektir til alþingismanns og ríkissjóðs vegna meiðyrða. Hærri fjársektir en menn muna að hafi verið gert áður. Ríkis- sjónvarpið með þátt að málinu eins og hann er telur ekki ástæðu til að geta dómsins. Blaðamenn og aðrir fjölmiðlamenn hafa gjaman gert að umræðuefni heiðarleika og ráðvendni stjóm- málamanna. Kröfur um afsagnir koma fram ef hið minnsta ber út af, að þeirra mati. En hvað um siðgæði fjölmiðla- manna sjálfra? Forystumaður blaðamanna og aðaltalsmaður, formaður Blaðamannafélagsins, hef- ur nú leikið aðalhlutverk í máli sem hlotið hefur harðasta dóm siða- nefhdar þeirra sjálfra og harðan dóm fyrir borgardómi Reykjavíkur. En nú heyrist lítið frá fjölmiðla- mönnum. Ætli ekki væm komnar af stað ítarlegar umræður ef stjóm- málamaður ætti í hlut? Hugsið ykkur aðeins um. Er eðlilegt að taka gagmýni fjöl- miðlamanna alvarlega í þessari stöðu? Em menn búnir að gleyma umræð- unni um Albert Guðmundsson og Guðmund J.? Er siðgæðisvitund fjölmiðlamanna önnur þegar komið er að þeim sjálf- um? Tvöfalt siðgæði? Blaðamanna- félagið? Blaðamannastéttin? Fjölmiðlamenn almennt? Þjóðvilj- inn? Hvar er ábyrgðin? Ég sagði einu sinni frá þvi í blaða- grein að ég hefði heyrt þá undarlegu sögu að í stétt blaðamanna hefðu þyrpst menn sem hvergi fengju vinnu annars staðar, ekkert gætu og enginn vildi hafa. Blaðmenn vildu þeir vera vegna þess að til þess þyrfti enga menntun og þar bæm þeir enga ábyrgð á því sem þeir gerðu en gætu vegið úr launsátri að ýmsum mörrnum í þjóðfélaginu. Meðal blaðamanna em margir ábyrgir og hæfir menn, en blaða- menn hljóta að gefa gaum að heiðri stéttar sinnar. Ábyrgð blaðamanna er mikil, ekki síst á tímum skyndi- láta og sundraðra andstæðna. En hver getur til dæmis ætlast til að ég taki mark á Þjóðviljanum? Ég hefi sjálfur orðið að láta dæma hann fyrir óhróður og lygar. Guðmundur G. Þórarinsson „Ríkissjónvarpið með þátt að málinu eins og hann er telur ekki ástæðu til að geta dómsins." „Niðurstaða dómsins er mér mikið gleði- efni. Hitt er svo annað að það fer nokkuð eftir gildismati manna hvort þeir telja þennan dóm harðan.“ Athugasemdir við áætlanir í tilefni skrifa Ólafs Bjömssonar um Hayek „En nasistar stunduðu miðjumoð, nasistaflokkurinn var eins konar airæðisút- gáfa af Framsóknarflokknum enda naut Hitler gífurlegs fyigis meðal bænda.“ Prófessor Ólafúr Bjömsson gerði á dögunum hundruðustu og fimm- tándu tilraun sína á fjömtíu og sex árum til að flytja íslendingum þann fagnaðarboðskap Friediichs von Hayeks að enginn eðlismunur sé á áætlanagerð Sovétmanna og þýsku nasistanna. En margt bendir til þess að Hayek hafi látið óskhvggjuna stjóma sér þegar hann setti jafhað- armerki milli sovéskra og þýskra áætlana. Áætlanagerð nasista var nefhilega aldrei altæk eins og sú sovéska, hún náði aðallega til her- gagnaiðnaðarins og hafði aukin- heldur það markmið að gera Þjóðveija sem minnst háða erlend- um innflutningi og þar með betur hæfa til að heyja stríð. Nasistar gerðu ætlanir sínar í náinni sam- vinnu við stórfyrirtækin og vom tveir af hverjum þremur starfsmönn- um þýska áætlanaversins jafnframt starfsmenn stórfyrirtækisins I.G. Farben. Og þess má geta að Martin Kitehen segir í bók sinni um fasis- mann(„Fascism“) að allrahanda kúvendingar í þýskri áætlanagerð megi rekja til togstreitu milli einka- fyrirtækja sem áttu fulltrúa í áætl- anaverinu. í Sovétríkjunum aftur á móti mega stjómendur fyrirtækja sitja og standa eins og áætlanavald- ið vill, ríkið hefur flesta þræði efnahagslífsins í hendi sér. Framsókn og fasismi En nasistar stunduðu „miðjumoð", nasistaflokkurinn var eins konar alræðisútgáfa af Framsóknarflokkn- um enda naut Hitler gífurlegs fylgis KiaUaiinn Stefán Snævarr rithöfundur/magister í heimspeki meðal bænda. Og það var ekki furða því nasistar höfðu sterka tilhneig- ingu til sveitarómantíkur, þeir vildu láta Þjóðverja yrkja jörðina meðan „óæðri kynþættir" strituðu í verk- smiðjum. Stórborgir vom að þeirra áliti uppfinning andskotans, eða hvernig má það vera að gyðingar búa helst á mölinni? spurðu snilling- amir. Nasistar vom þó aðallega „Já, já, nei, nei“-menn sem skiptu um skoðun eftir hentugleikum. Það fylg- ir svo sögunni að Kristján Danakon- ungur spurði Hriflu-Jónas hvort hann væri ekki Mússólíní íslands! Alræði og þrælahald En snúum okkur aftur að áætlun- um og ríkisafskiptum. Það em áhöld um hvorir vom meiri ríkisafskipta- menn á stríðsárunum, Bretar aða Þjóðverjar. Bretar hófu til dæmis skömmtvm, Þjóðverjar ekki. Hafa ber í huga að stríðsrekstri fylgja aukin umsvif ríkisins á efnahags- sviðinu, t.d. var fúllveldi bandar- ískra fyrirtækja að nokkm skert á dögum síðari heimsstyrjaldar. En Bandaríkjamenn gengu stríðsþjóða skemmst í ríkisafskiptum, Sovét- menn að sjálfsögðu lengst, Bretar, Þjóðverjar, og líklega Japanir, fóm milliveginn. En nú kann einhver að spvrja hvort ekki sé fáránlegt að flokka stríðshagkerfi þýskra nasista og hinna lýðfijálsu Breta saman, en setja Sovétríkin í sér bás, áttu alræð- isríkin, Þýskaland og Sovét, ekki það m.a. sameiginlegt að hneppa fólk í þrælahald? Það er vissulega rétt, t.d. var skipaskurðurinn mikli frá Finnska flóa til Ishafsins grafinn af þrælum sovéska gúlagsins. En gú- lagið var rekið á „félagslegum gmnni“ meðan þýski þrældómurinn laut hinum gömlu, góðu lögmálum viðskiptalífsins. SS leigði stórfyrir- tækjum mansmenn og vom þessi viðskipti ábatasöm fyrir báða aðilja, ef trúa má ágætri bók Rudolfs Grun- bergers um samfélagssögu Þriðja ríkisins(„The Social History of the third Reich.“) Lokaorð Efhahagskerfi nasista og komm- únista em því tæpast greinar af sama meiði. Þvi má ekki gleyma að nasist- ar þjóðnýttu ekkert nema eigur verkalýðsfélaganna, sennilega hefur ríkisgeirinn þýski verið minni en i mörgum lýðræðisríkjum samtímans, þ.á.m. heimalandi Hayeks, Austur- ríki. en þar í landi er um helmingur iðnframleiðslu á hendi ríkisins. Hitt er svo annað að nasistar vom varla handbendi stórauðvaldsins eins og margur dólgamarxistinn heldur. Til dæmis fyrirskipuðu þeir smáfyrirtækjum í stríðstengdum at- vinnugreinum að sameinast sem tæpast hefur glatt stórfyrirtækin þar eð samkeppnisaðstaða þeirra hlýtur að hafa versnað fyrir vikið. Hitler hafði enga ástæðu til að vera vika- drengur auðmagnsins, honum var í lófa lagið að þjóðnýta stórfyrirtæki hefðu þau verið með eitthvert múð- ur. Þegar öllu er á botninn hvolft kemur valdið út úr byssuhlaupum, ekki upp úr peningaveskjum. Ólafur Björnsson segir á einum stað að fáfræðin sé besti bandamað- ur sósíalismans. Ef til vill er hún sameiginlegur bandamaður sósíal- ista og frjálshyggjumanna. Stefán Snævarr „En margt bendir til þess að Hayek hafi látið óskhyggjuna stjórna sér þegar hann setti jafnaðarmerki milli sovéskra og þý- skra áætlana. Áætlanagerð nasista var nefnilega aldrei altæk eins og sú sov- éska“,...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.