Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Blaðsíða 26
38
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1987.
Dægradvöl
Sumarmót Norræna sumarhá-
skólans var nýlega haldið í
Bændaskólanum að Hvanneyri í
Borgarfirði. Mót þessi eru haldin
árlega, til skiptis á Norðurlöndun-
um, en á íslandi eru þau þó ekki
haldin nema í annarri hverri um-
ferð eða 9. hvert ár.
Skólinn var stofnaður af Norður-
landaráði árið 1951, dregur hann
nafri sitt af sumarmótunum en er
í raun starfandi allt árið og í dag
eru um 150 hópar starfandi vítt og
breytt um Norðurlöndin. Skólinn
er frábrugðinn öðrum háskólum
vegna þess að hann er opinn öllum.
í starfi hans tekur þátt fólk sem
starfar við rannsóknir, nám eða
er úti á vinnumarkaðnum.
Markmið skólans er m.a. að
skapa tengsl milli Norðurlandabúa
og að bæði komi til verkunnátta
og reynsla úr daglega lífinu og
fræðimennska.
Fyrir eru tekin hin ýmsu málefni
á hverju ári og er stefnt að því að
hverju verkefni sé sinnt í að meðal-
tali 3 ár. Nú eru 11 hópar starfandi.
Af þeim efnum sem þeir eru að
vinna í má nefna sálfræðileg og
heimspekileg viðfangsefni, þróun-
arleiðir í þriðja heiminum, hag-
fræði, stjómmál og framtíð
Evrópu.
Af þessari upptalningu má sjá
að í skólanum er hægt að finna sér
viðfangsefni við hæfi og áhugamál
hvers og eins. Fá allir eitthvað við
Norræni sumarháskólinn á Hvanneyri
Háskóli sem er öllum opinn
sitt hæfi en hvað er það sem fær
fólk til að eyða tíma og peningum
í það að sækja skóla sem ekki gef-
ur nein próf eða gráður.
Þegar komið var í Borgarfjörð-
inn var veðrið eins gott og það
getur orðið á Islandi, sól, hiti og
stillilogn. Nemendur sátu i hópum
á lóð Bændaskólans og er það ekki
oft sem skólakennsla fer fram und-
ir berum himni hér á norðurhj ara.
Gerir Noröurlöndin minni
. Núverandi formaður NSU, Norr-
æna sumarháskólans Gerd-Inger
Voje, er frá Þrándheimi í Noregi
og starfar sem sálfræðingur á
sjúkrahúsi þar. Hún sagði að form-
aður væri kjörinn til eins árs i
senn og hefði hún tekið við um
síðustu áramót. Upplýsti hún að á
móti væru milli 150 og 160 þátttak-
endur, starfsfólk, leiðbeinendur og
nemendur. Ekki hafði Gerd-Inger
komið til Islands áður og sagði hún
að fæstir þeirra sem komu frá hin-
um Norðurlöndunum hefðu komið
áður til íslands og þar sem það
væri talsvert dýrt að koma hingað
ætluðu þó nokkrir úr hópnum að
dvelja hér áfram og sjá meira af
landinu. Þó sagði hún að Norður-
landaráð hefði veitt ferðastyrki
vegna mótsins hér.
Aðspurð um skólann sjálfan
sagði hún að reynsla sín af honum
hefði bæði orðið sér til gagns og
gamans. Hún hefði kynnst fólki
sem starfaði við það sama og hún
og þætti sér gott að geta leitað til
annarra í stéttinni sem hún hefði
kynnst í gegnum sumarháskólann.
Gerd-Inger sagði að þau hefðu
verið einstaklega heppin með veð-
ur og hefði það verið miklu betra
en þau hafa átt að venjast i sumar
i Noregi. Á miðvikudaginn var far-
ið í ferðir um Snæfellsnes og gekk
hluti þess hóps upp að Snæfells-
jökli á meðan annar hópur fór um
Borgarfjörð og þaðan yfir á Þing-
völl. „Það er dásamlegt að upplifa
íslenskt landslag á þennan hátt og
kynnast fólkinu hér. Einnig að fá
að kynnast menningu ykkar.“
Sveinbjöm Beinteinsson allsherj-
argoði hafði komið á sérstakt
íslenskt menningarkvöld og Bubbi
Morthens var væntanlegur. „Það
er okkur mikils virði, sem komum
hingað, að fá að kynnast á þennan
hátt andstæðunum í menningu
ykkar, Sveinbimi og frægum rokk-
söngvara.
En það sem er kannski mest um
vert er að kynnast hvert öðru og
eftir kynni mín af starfi skólans
finnst mér Norðurlöndin minni,“
sagði Gerd-Inger að lokum.
Gerd-lnger Voje, formaður NSU.
Anna M. Magnúsdóttir tónlistarkennari.
Guðrún Bjarnadóttir, formaður undir-
búningsnefndar.
kennslu lýkur á kvöldin tekur við
óformlegt spjall á kvöldin þar sem
fólk kynnist og miðlar hvert öðru
af reynslusinni."
Þarf að segja sama brand-
arann 5 sinnum
Guðrún Bjamadóttir, talkennari
frá Hafharfirði, er formaður undir-
búnings þessa móts á Hvanneyri.
Hún hefur tekið þátt í starfi skól-
ans í nokkur ár og er þetta 4.
námskeiðið hennar. Guðrún
stundaði nám í Osló og hefur búið
í Kaupmannahöfn þannig að hún
hefur þó nokkra reynslu af öðrum
Norðurlöndum og Norður-
landabúum.
Guðrún sagði að það hefði verið
auglýsing í blaði sem hefði vakið
athygli sína á starfsemi skólans.
Sagði hún að þátttakendur frá ís-
landi væm 4 eða 5 en auk þeirra
em nokkrir sem starfa við skól-
ann. Þegar mótin em haldin á
hinum Norðurlöndunum em það
yfirleitt 12-15 sem taka þátt í þeim
frá íslandi.
Svo má bæta því við að hún hrós-
aði mikið íslenskum mat.
Hressandi að kynnast nýju
fólki
Anna M. Magnúsdóttir, tónlist-
arkennari við Tónlistarskólann í
Reykjavík og Tónskóla Sigur-
sveins, sagðist hafa verið beðin um
að vera hópstjóri yfir músíkfag-
fræði. Anna sagði að þessi beiðni
hefði orðið til þess að hún fór á
þetta mót. Hefði hún notað þetta
tækifæri til þess að hlýða á hina
ýmsu fyrirlestra. „Þetta er mitt
fyrsta skipti í sumarháskólanum
og ég hef haft mjög gaman af þvi
að vera hér og hlýða á fyrirlestra,
hitta fólk og heyra misjöfn sjónar-
mið. Ég get ekki sagt að ég sé
neinn sérstakur áhugamaður um
Norræna samvinnu en eftir að
hafa verið við nám í Bandaríkjun-
um í sex ár er hressandi að kynnast
nýju fólki og nýjum viðhorfum.
það sem gefur þessu kannski mest
gildi er að eftir að hinni formlegu
Ragnheiður Ragnarsdóttir, arkitekt.