Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Side 30
42
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1987.
Jarðaifarir
Þorgerður Einarsdóttir, Faxa-
braut 12, Keflavík, andaðist 5. ágúst
á Garðvangi. Jarðsungið verður frá
Keflavíkurkirkju fímmtudaginn 13.
ágúst kl. 14.
■Ingveldur Pétursdóttir lést á
Hrafnistu þann 4. ágúst. Útförin fer
fram frá Fossvogskapellu þriðjudag-
inn 11. ágúst kl. 13.30.
Helga Steinunn Hansen Guð-
mundsdóttir, írabakka 14. verður
jarðsungin í dag, 10. ágúst. kl. 13.30
frá Árbæjarkirkju.
Útför Péturs Daníelssonar, Sval-
barði 4. Hafnarfirði. verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
11. ágúst kl. 15.
Árni Árnason frá Kópaskeri verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 11. ágúst kl. 15.
Guðlaug Ragnhildur Úlfarsdóttir,
Seljabraut 38. Reykjavík. sem lést 4.
ágúst. verður jarðsungin frá Foss-
vogskapellu þriðjudaginn 11. ágúst
k!. 10.30.
Tímarit
t'iv- ■
Gestgjafinn.
26. töiublað frá bvriun Gestpjafans. tíma-
-Srits um mat. var að koma út. Að þessu
sinni er að fmna í blaðinu ^rein um kast-
ala. hallir og: veitineastaði í Champaæne
héraði og Loiredal í Frakklandi. grein um
kampjivín op samnorræna framleiðslu- og
matreiðslukeppni nema. L’ppskriftir eru
marsar að veniu eða hvorki færri eða
fleíri en 67 að þessu sinni. Tveir mat-
reiðslumeistarar eru kynntir og uppskrift-
ir eru eftir fræga franska matreiðslumeist-
ara. Gestpjafmn er prentaður á dýran og
vandaðan pappír. heftur í kiölinn svo hann
detti ekki í sundur þrátt fyrir rhikla ílettun
og er 64 síður að þessu sinni. Eigendur
og útgefendur Gestgjafans. tímarits um
mat. eru hiónin Elín Káradóttir sem sér
um útlit blaðsins og Hilmar B. Jónsson
matreiðslumeistari sem ábyrgur er fyrir
flestum uppskriftunum og tekur jafnframt
allar mvndir í blaðinu.
Ferðlög
Afkomendur
Orms Ormssonar og
Helgu Kristmundardóttur
Útilega verður um næstu helgi. 14. 16.
ágúst. við sumarhús Iðnaðarmannafélags
Borgarness á Kolási (rétt á móti Munaðar-
nesi) í Stafholtstungum í Borgarfirði.
Þarna er mjög góð aðstaða til að tjalda
auk þess sem við höfum afnot af sumar-
húsinu. Gert er ráð fyrir að hver sé með
sitt nesti sjálfur. Mætum öll með góða
skapið og grillin! SjáFskipaða nefndin.
Útivistarferðir
Sumarleyfisferðir
1. TröIIaskagi, 9.-15. ágúst. Ný skemmti-
leg ferð. Barkárdalur Tungnahrvggur
Hólar (3 d.) og Siglufjörður Héðinsfjörð-
ur Ólafsfjörður (3 d.) Bæði bakpokaferð
og dvöl á sama stað. Hús og tjöld.
2. Ingjaldssandur, 18.-23. ágúst. Kvnnist
áhugaverðum stöðum á Vestfjörðum, á
skaganum milli Önundafjarðar og Dýra-
fjarðar. Létt ferð. enginn burður. Berja-
land. Gist í húsi.
3. Berjaferð í ísafjarðardjúp 20.-23.
ágúst. Skoðunar- og berjaferð. Æðey
Kaldalón Snæfjallaströnd Króksfjörð-
ur.
4. Núpsstaðarskógar, 27.-30. ágúst. 4
dagar. Tjöld. Uppl. og farm. á skrifst..
Grófmni 1. símar 14606 og 23732. Sjáumst.
Útivist.
Ferðafélag íslands
Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins:
9.-16. ágúst (8 dagar): Hrafnsfjörður -
Norðurfjörður.
Gengið :neð viðleguútbúnað um Skorar-
heiði í Furufjörð og áfram suður til
Norðurfjarðar þar sem ferðinni lýkur og
áætlunarbíll tekur hópinn til Reykjavíkur.
11. -16. ágúst (6dagar); Þingeyjarsýsiur.
Á fjórum dögum verða skoðaðir markverð-
ir staðir í Þingeyjarsýslum. Gist í svefn-
pokaplássi.
12. -16. ágúst (5 dagar): Þórsmörk -
Landmannalaugar.
Ekið til Þórsmerkur að morgni miðviku-
dags og samdægurs gengið í Emstrur.
síðan áfram milli gönguhúsa uns komið
er til Landmannalauga á laugardegi.
14.-19. ágúst (6 dagar); Landmannalaug-
ar - Þórsmörk.
Gist í sæluhúsum.
19.-23. ágúst (5 dagar): Landmannalaug-
ar - Þórsmörk. AUKAFERÐ.
Þessari ferð er bætt við áður skipulagða
ferðaáætlun vegna mikillar aðsóknar.
21.-26. ágúst (6 dagar); Landmannalaug-
ar - Þórsmörk.
ATH: Síðasta skipulagða gönguferðin í
sumar frá Landmannalaugum til Þórs-
merkur.
Miðvikudagur 12. ágúst:
1) Kl. 08 - Þórsmörk - dagsferð. Verð
kr. 1000.
2) Kl. 20 Bláfjallahellar.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í
fylgd fullorðinna.
Ferðafélag íslands.
Bækur
Þrjár nýjar bækur
Islenski kiljuklúbburinn sendi fyrir
skömmu frá sér þrjár nýjar bækur. Þær
eru Saga af sæháki eftir Gabríel García
Marquez. Ekki kvenmannsverk eftir P.D.
James og Gulleyjan eftir Einar Kárason.
Sagsa af sæháki heitir reyndar fullu
nafni Saga af sæháki sem rak í tíu daga
á fleka án matar og drykkjar, var lýstur
þjóðarhetja, kysstur af fegurðardísum,
auglýsingamennskan auðgaði hann, en
svo var hann fyrirlitinn af stjórnvöldum
og gleymdist um aldur og eillfð. Marquez
skrifaði þessa bók upphaflega þegar hann
var ungur blaðamaður í Kólumbíu eftir
"frásögn sjómanns sem varð skipreka.
Þetta er saga um ótrúlegar mannraunir
og um leið vísar hún til þess samfélags sem
hún er sprottin af. Guðbergur Bergsson
þýddi söguna á íslensku og er hér um frum-
útgáfu að ræða. Saga af sæháki er 128
blaðsíður að stærð og prentuð hjá Prent-
stofu G. Benediktssonar. Kápu hannaði
Robert Guillemette.
Ekki kvenmannsverk eftir P.I). James
kemur út í kjölfar sögunnar Vitni deyr sem
kiljuklúbburinn sendi frá sér í fyrra. Báð-
ar eru spennusögur, enda er höfundurinn
héimskunnur fyrir slíkar bækur. í þessari
sögu er söguhetjan ung kona sem rekur
leynilögreglustofu og kemst í hann krapp-
an við lausn morðgátu. í sögulok bregður
Dalgliesh lögregluforingja fyrir sem marg-
ir kannast við úr öðrum bókum P.D. James
og úr sjónvarpsþáttum sem hér hafa verið
sýndir. Álíheiður Kjartansdóttir þýddi
bókina sem er 279 blaðsíður að stærð og
prentuð hjá Nörhaven á -Jótlandi. Teikn
hannaði kápu.
Gulleyjan eftir Einar Kárason kom fyrst
út hjá Máli og menningu árið 1985 og er
því endurútgáfa. I fyrra sendi kiljuklúb-
burinn áskrifendum sínum sögu Einars,
Þar sem djöflaeyjan rís, en Gulleyjan er
sjálfstætt framhald hennar. Sagan fjallar
um hina litríku fjölskyldu í Gamla húsinu.
Þessar tvær bækur Einars Kárasonar hafa
komið út f stórum upplögum og var sýning
byggð á þeim sýnd hjá Leikfélagi Reykja-
víkur í vetur við góðar undirtektir.
Gulleyjan er 215 blaðsíður að stærð og
prentuð hjá Nörhaven á Jótlandi. Guðjón
Ketilsson hannaði kápuna.
Efnt var til grillveislu fyrir ibúa Mosfellsbæjar við Hlégarðí gærkvöldi og var þar margt um manninn.
DV-mynd: JAK
Mosfellshreppur orðinn Mosfellsbær:
Samheldni og
vitund fólks eykst
sagði Páll Guðjónsson, bæjarstjóri
„Þetta hefur gengið alveg stórkost-
lega. Það hefur verið mikið fjölmenni
og mikil og góð stemmning hér í
dag,“ sagði Páll Guðjónsson, nýorðinn
bæjarstjóri Mosfellsbæjar, þar sem
hreppurinn er orðinn að tíunda
stærsta bænum á landinu og jafhframt
sveitarstjórinn að bæjarstjóra.
í gærkvöldi var haldin mikil og fjöl-
menn grillveisla þar sem grillaðir voru
heilu lambsskrokkamir til handa öll-
um bæjarbúum. Páll var í hátíðarskapi
og kvað það að grilla lambið hjálpa
til bæði við útsvarið og skattinn.
DV innti bæjarstjórann eftir hverju
þessi tímamót breyttu fyrir bæjarbúa.
„Það breytir ýmsu,“ sagði Páll.
„Okkur gefst kostur á að koma á fót
sérstöku sjúkrasamlagi og auka lög-
gæslu, auk þess sem okkur gefst færi
á að opna áfengisútsölu ef vilji er fyr-
ir hendi.“
Hann kvað ennfremur það stóran
þátt að ímynd hrepps væri öðruvísi
en ímynd bæjarfélags og að við breyt-
ingu í bæjarfélag ykist samheldni og
vitund fólks. -GKr
TOkyimingar
Afmæli Ólafsvíkur:
Utvarp Olafsvík
I tilefni af 300 ára afniæli Ófafsvíkur
sem löggilts verslunarstaðar verður
starfrækt útvarpsstöð í Ólafsvik dag-
ana 14. til 23. ágúst. Útvarpið næst á
FM 103,5. Formleg útsending hefst að
kvöldi 14. ágúst og stendur óslitið til
miðnættis 16. ágúst. Dagana 17. til 20.
ágúst hefst útsending seinni part dags
og stendur til miðnættis alla dagana.
Hefgina 21. til 23. ágúst verður útvarp-
að allan sólarhringinn.
Eyjólfur Harðarson, Ævar Guð-
mundsson og Ámi E. Albertsson munu
sjá um rekstur stöðvarinnar í sam-
vinnu við Villa-Videó. Þeir hafa
auglýst eftir fólki til að sjá um dag-
skrárliði og hafa margir sýnt þvi
áhuga. „Umsóknimar em afar fjöl-
breyttar þannig að það stefnir í
margþætta og skemmtilega dagskrá,"
sagði Eyjólfur Harðarson.
Fram að formlegri dagskrá mun
Útvarp Ólafsvík heyrast af og til þar
sem verið er að prófa þau tæki og tól
sem til þarf.
Ráðuneytið hefur gefið út reglu-
gerð um bann við togveiðum út af
Austfjörðum. Samkvæmt reglugerð
þessari eru allar togveiðar bannaðar
á svæði sem markast af línum milli
eftirgreindra punkta:
1. 64°46’99 N - 12”43’66 V
2. 64°45’11 N - 12°15’03 V
3. 64°22’75 N - 12°39’25 V
4. 64°21’05 N - 12°49’30" V
5. 64°16’51 N - 13°14’17 V
Reglugerð þessi kemur í stað
tveggja reglugerða, sem gefnar voru
út um miðjan maí sl. og opnast með
henni suðurhluti bannsvæðisins.
Breytingin tók gildi frá 18. júlí sl.
Fyrirlestur um enska lands-
lagsmálara í Norræna húsinu
Mánudagskvöld 10. ágúst kl. 20.30
hefdur breski listfræðingurinn Jul-
ian Freeman fyrirlestur í Norræna
húsinu og nefnir: „A sense of place
in English landscape 1910-1980“. í
fyrirlestrinum fjallar hann um ensku
listmálarana Nash, Nicholson, Piper,
Sutherland og fleiri. Julian Freeman
veitir forstöðu myndlistarsýningum
„Brighton Polytechnic Gallery“ í
Brighton, en hann er staddur hér á
landi ásamt Michael Tucker sem er
aðalfyrirlesarinn um norræna mynd-
list við „Department of Art and
Design History" i Brighton.
Þeir munu kynna sér ísfenska
myndlist meðan á dvöl þeirra stendur
með það fyrir augum m.a. að efnt
verði til reglubundinna sýninga á
íslenskum myndlistarverkum í
Brighton og fleiri breskum borgum.
Myndlistasýning í Eden.
Vikurnar 11. 18 og 18-25. ágúst sýna fél-
agar úr myndlistaklúbbi Hvassaleitis í
Eden í Hveragerði. Fyrri vikuna sýna:
Aðalbjörg Jónsdóttir, Asgeir Valdemars-
son, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Jón
Jónsson, Ólafur Páll Betúelsson, Ólöf Sig-
urðardóttir, Sigurbjörg Ólafsdóttir, Sigur-
björg Sigurjónsdóttir og Þórunn
Sveinbjarnardóttir.
Norræn leiklistar-
miðstöðáhugafólks
Norræna áhugaleikhúsráðið - NAR hélt
sinn 20. aðalfund í Lýðháskólanum í
Rómaríki í Noregi fyrir skömmu. Þar var
samþykkt menningarstefnuskrá fyrir
NAR, sú fyrsta í sögu ráðsins. 1 stefnu-
skránni er lögð áhersla á að varðveita og
þróa áhugaleikhúsið sem kraftmikla
hreyfmgu, þar sem allir geti verið með,
óháð kyni, aldri, stöðu, uppruna og stjórn-
málaskoðunum. Áhugaleikhúsið skipar
núorðið þann sess í menningarlífi á Norð-
urlöndum og í norrænni samvinnu að
NAR mun í framtíðinni leggja meginá-
herslu á að koma á fót norrænni leiklistar-
miðstöð. 1 slíkri miðstöð kæmu allir þættir
áhugaleikhússins saman en menntun og
upþlýsingamiðlun sætu þar í fyrirrúmi.
Bandalag íslenskra leikfélaga hefur frá
1970 tekið virkan þátt í NAIl og íslenskt
áhugaleikhús hefur eflst mjög af því sam-
starfi. Aðalfund NAR í Rómaríki, leik-
smiðju og námskeið í tengslum við hann
sóttu 23 Islendingar frá leikfélögum alls
staðar af landinu. Formaður NAR er Ella
Royseng frá Noregi en varaformaður Ein-
ar Njálsson, Húsavík.
Tapað - Fundið
Peningaveski tapaðist í Kaup-
stað
Peningaveski tapaðist í versluninni Kaup-
stað í Mjóddinni eða á bílastæðinu fyrir
utan. í veskinu var ökuskírteini og fleira.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma 51561.
Eldur í sæng
og rúmdýnu
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri
Eldur kviknaði í sæng og rúmdýnu
í húsi við Stórholt á Akureyri uni tiu-
leytið á laugardagsmorgun. Tveir
bræður voru sofandi í herberginu þeg-
ar eldurinn kom upp en þeir vöknuðu
báðir og tókst að slökkva eldinn áður
en slökkvifiðið kom á vettvang. Bræð-
umir sluppu báðir ómeiddir. Talið er
að kviknað hafi í út frá sígarettu.
Rannsóknariögregla ríkisins:
Leltar eiganda
myndavélar
Hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins er
35 mm myndavél ásamt aukalinsum
og fleiri fylgihlutum í óskilum. Rann-
sóknarlögreglan vill benda þeim, sem
tapað hefur myndavél sem lýsingin á
við, að hafa samband við tæknideild
Rannsóknarlögreglunnar í síma
4-40-00.