Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987.
7
Fréttir
Neytendasamtökin:
Kvartað yffir óeðli-
legum verðhækkunum
- álagning hækkuð jafhframt sóluskattsbreytingunni
Nokkur brögð virðast hafa verið
að því að kaupmenn hafi notað tæki-
færið til að hækka álagningu sína
þegar söluskattur lagðist á matvæli.
Þessa hafa efhahagssériræðingar
meðal annars orðið varir við athug-
un á efnahagsástandinu.
„Já, það hefur borist töluvert af
kvörtunum til okkar vegna þessa,“
sagði Elísabet Þorgeirsdóttir hjá
kvörtunarþjónustu Neytendasam-
takanna í samtali við DV í gær. „Við
höfum skoðað þetta og vitum dæmi
þess að kaupmenn hafi gripið tæki-
færið og hækkað álagningu um leið
og söluskattsbreytingin var fram-
kvæmd."
„Auðvitað koma verðhækkanag-
usur á tilteknum vörum og þjónustu.
Hins vegar er ég ekki tilbúinn að
slá því fóstu að almennt sé um þetta
að ræða,“ sagði Bjöm Bjömsson,
hagfræðingur ASf, en hann á sæti í
Kauplagsnefndinni sem ákveður
hækkanir á framfærsluvísitölunni.
Hjá Verðlagsstofnun fengust þau
svör að ekki væri tímabært að reyna
að slá þvi föstu hvort mikið hefði
verið um hækkanir á álagningu þeg-
ar kaupmenn verðmerktu á ný vegna
söluskattshækkunarinnar. Verð-
lagsstofnun telur að lengri timi sé
nauðsynlegur áður en hægt er að
meta þetta.
Nokkur bið verður þvi greinilega
þangað til endanlega fæst úr því
skorið hvort almennar hækkanir á
álagningu hafi fylgt söluskatts-
hækkuninni.
-ES
Ingi R. Helgason og Ólafur B. Thors virða fyrir einn af 5500 bílum sem gert
er ráð fyrir að verði fyrir tjóni á árinu 1987.
Almennar og BÍ opna tjónaskoðunarstoð fyrir bíla:
Geigvænleg aukning
tjóna í unvferðinni
Við opnun nýrrar Tjónaskoðunar-
stöðvar, að Smiðjuvegi 1 Kópavogi
kom fram að tjón á bílum í umferðinni
iukust geysilega fyrrihluta þessa árs,
Ólafur B. Thors, forstjóri Álmennra
Trygginga, sagði að í krónum talið
væri aukningin 66%, sem væri langt
umfram verðbólgu.
Ingi R. Helgason, forstjóri Bruna-
bótafélagsins, sagði að tilkoma tjóna-
skoðunarstöðvarinnar væri eitt þeirra
atriða sem þessi tvö tryggingafélög
hefðu gripið til í þvi skyni að auka
hagkvæmni í rekstri og halda uppi
fyrirbyggjandi starfi gegn slysum, en
samtals tryggja þessi tvö félög u.þ.b.
40% af bílaflota landsmanna.
Kristján G. Tryggvason, forstöðu-
maður stöðvarinnar, sagði að hún
væri byggð að erlendri fyrirmynd.
Þama starfa revndir bílvirkjar og bíla-
smiðir sem skoða bíla og meta viðgerð-
arkostnað nýrra bíla, annast útboð á
viðgerðum bílum sem verða á hverjum
mánudegi, skoðun vörubíla og eftir-
leiðis verður enginn bíll kaskótrvggð-
ur hjá þessum tryggingafélögum. án
undangenginnar skoðunar. Skoðunar-
menn utan af landi verða þjálfaðir í
stöðinni og munu þeir sjá um skoðan-
ir út um land. Gert er ráð fyrir því að
á þessu ári muni starfsmenn þessarra
tveggja félaga skoða 5500 skemmda
bíla, þar af 4500 af höfuðborgarsvæð-
inu.
Skuldir Hótel Atkar:
„Ekki famir
að óttast“
Lögmaður Gunnars Ásgeirsson-
ar h/f hefur gert flárnám í Hótel
Örk. Fjámámið er fyrir skuld sem
nemur 950 þúsund krónum án
kostnaðar. Ingvar Ásgeirsson, fjár-
málastjóri Gunnars Ásgeirssonar,
segir að fyrirtæki sitt sé ekki farið
að óttast um að skuldin verði ekki
greidd.
„Því miður er svo að vanskil em
alltaf að aukast. Fyrir fáum árum
heyrði það til undantekninga ef
um vanskil var að ræða. Þeir sem
versla við okkur geta alltaf orðið
fyrir óhöppum og venjan er sú að
skuldimar em greiddar áður en til
uppboðs kemur. Á þeim pappírum
sem sriúa að Hótel Örk em Qeiri
ábjTgðaraðilar en hótelið svo að
við sjáum ekki ástæöu til að kvíða
því að við féum ekki greitt,“ sagði
Ingvar Ásgeirsson.
Ingvar sagði einnig að nú væm
bankar fyrri til en áður að skuld-
færa gjaldfallna vixla á seljendur
víxlanna. „Bankamir kaupa fljótt
viðskiptavíxla af þeim fyrirtækjum
sem em með stöðugt flæmi af við-
skiptavíxlum en þeir em líka flj ótir
að skuldfæra á okkur þá víxla sem
falla á gjalddaga.'1 -sme
Aftur fiskað
Regina Thorarensen, DV, Gjögri
Sjómenn em ánægðir með að kom-
ast á sjóinn á ný eftir tíu daga stopp
en jafriframt em þeir óánægðir með
að hafa þurft að vera í landi þennan
tíma samkvæmt ákvörðun ríkisstjóm-
arinnar.
Gott veður var og spegilsléttur sjór
þennan tíma. Finnst mönnum það ein-
kennilegt að 1-1 'A tonns trillum skuli
vera bannað að veiða í tíu daga sam-
fleytt og em þeir reiðir út í nýju
ríkisstjómina.
Siggu Viggur
hjá Útnesi
Ján G. Hauksson, DV, Akureyir
Á Kópaskeri er það af sem var
í vetur. Þar er nú botnlaus vinna.
Allir hafa nóg að gera. „Við vinn-
um hér alla daga nema sunnudaga
í saltfiskinum," sögðu stúlkumar
hjá Útnesi, glænýju salfiskverkun-
arhúsi á Kópaskeri.
Þær tóku því vel þegar þær vom
kallaðar Siggu Viggur í höfuðið á
þjóðkunnri teiknimyndafígúm.
Saltfiskurinn, sem þær verka, fer
rakleitt til Spánar þar sem hann
flatmagar á diskum sælkera.
Peningamir til Borgaraflokksins:
Milljónin af
fjárveitingu
næsta árs
- segir Jón Baldvin Hannibalsson fjármalaradherra
Nýlega fékk Borgaraflokkurinn
eina milljón króna frá ríkinu af fé þvi
sem þingflokkamir fá til starfsemi
sinnar. Þetta telja þeir borgaraflokks-
menn ekki nóg. þeir segjast eiga að fá
3 milljónir króna ef þeir eigi að sitja
við sama borð og aðrir þingflokkar.
Jón Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra var spurður að því hvers
vegna hann væri svo naumur við
Borgaraflokkinn.
„Fjámpphæð sú, sem stjómmála-
flokkamir fá fi'á ríkinu til starfsemi
sinnar. er ákveðin á fjárlögum ár
hvert. Það er sérstök nefnd á vegum
flokkanna sem setur reglur um skipt-
ingu á þessu fé. Nefndin hittist í byijun
árs og skiptir því fé sem flokkarnir fá
á Qárlögum. Þannig hefur þetta verið
frá því farið var að veita flokkunum
fjárstuðning. Það mætti spyrja hver
vegna nefridin úthlutaði öllu þessu f
um síðustu áramót aðeins nokkrur.
mánuðum fyrir kosningar.
Nefndin segir að þetta hafi allta
verið gert með þessum hætti. Nefri
er dæmi frá 1983 þegar tveir nýdr þing
flokkar komu inn. líka í apríl. Það á
var fénu skipt á gmndvelli þingflokka
skipunar f>TÍr kosningar. Ég vísaf
þessu máli til ríkislögmanns og han
álit er að ekki sé hægt að finna neit
að þessum reglum vegna fordæmis.
Ákvörðun mín að veita Borgara
flokknum eina milljón króna er bygg
á því að ég veit að fjárhagsstaða flok
kanna er slæm og ég lít á þetta ser
fyrirframgreiðslu upp í skiptingi
næsta árs.” sagði Jón Baldvin Hannib
alsson fjíinnálaráðherra. -S.dó
GJald á erlendar lántökur:
Ótrúlegt að
Flugleiðir
fái undanþágu
segir Jón Baldvin Hannibalsson
Að sögn Jóns Baldvins Hannibals-
sonar fjánnálaráðhen-a hafa fjöl-
margir aðilar sótt um undanþágu frá
gjaldi þvf sem fyrirhugað er setja á
erlendar lántökur. Meðal þeirra em
Flugleiðir hf. sem sent hafa Þorsteini
Pálssyni forsætisráðherra beiðni um
undanþágu frá gjaldinu, en Flugleið-
ir hf. fyrirhuga nú endumýjun á
flugvélaflotasínum. Sigurður Helga-
son, forstjóri Flugleiða hf., hefur
sagt að gjaldtakan muni kosta fyrir-
tækið 100 milljónir króna.
Jón Baldvin var inntur eftir því
hvort Flugleiðir mundu fá undan-
þágu frá gjaldinu.
„Það þykir mér ótrúlegt," sag*'
fjármálaráðherra.
Hann var þá spurður hvort ein-
hverjir hefðu fengið undanþágu og
sagði hann svo ekki vera. Reglugerð-
in varðandi gjaldtökuna væri nú á
lokastigi í vinnslu og undanþágur
yrðu ekki skoðaðar fy-rr en reglu-
gerðin hefði litið dagsins ljóa
-S.dór