Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Qupperneq 9
FÖSTUDAOTJR 14. ÁOÚST 1987.
9
Verkfallið breiðist út
I Seoul í Suður-Kóreu urðu í gær átök milli öryggisvarða og mótmælenda sem
kröfðust að fá að hitta forstjóra sem sagður var hafa haft niðrandi orð gegn
verkalýðnum. Simamynd Reuter
Lögð var niður vinna í fleiri fyrirtækj-
um í Suður-Afríku í gær samtímis því
sem óeirðir brututst út í kolahéruðum
landsins.
Þúsundir námumanna æddu um göt-
ur borgarinnar Taebaek í gær og
ógnuðu borgarbúum . Virtust margir
þeirra drukknir að sögn lögreglunnar.
Köstuðu þeir grjóti að heimilum fram-
kvæmdastjóra námanna. Húsgögn á
skrifstofu námufélags voru brotin og
kveikt í þeim og símar eyðilagðir.
Óeirðalögreglan hélt sig fjarri af ótta
við að til blóðugra átaka kæmi.
Áður hafði lögregla beitt táragasi
að hundruðum námumanna sem höfðu
komið sér íyrir á jámbrautarteinum
nálægt Chongson. Að minnsta kosti
fimmtán námur voru lokaðar í gær en
tekist hefur að leysa deilumar í fimmt-
án öðrum undanfama tvo daga.
Að sögn embættismanna nær verk-
fallið til að minnsta kosti tvö hundruð
Haukur L. Bauksson, DV, Kaupmarmahöfn;
Framkvæmdastjóri einn frá Kaup-
mannahöfn hefur skrifað sambandi
hóteleigenda í Danmörku og beðið þá
um að koma ámælum áleiðis til SAS.
Ástæðan er, að sögn framkvæmda-
stjórans, einkennileg notkun eða öllu
heldur misnotkun SAS á einokun
þeirri sem flugfélagið hefur á leiðum
frá Skandinavíu til Bandaríkjanna.
og fimmtíu fyrirtækja með meira eða
minna móti. I sjötíu og þremur hefur
vinna verið tekin upp á ný í vikunni
þar sem lofað hefur verið kauphækk-
unum og bættum vinnuskilyrðum.
Framkvæmdastjórinn var ásamt
framkvæmdastjórum nokkurra hótela
í Kaupmannahöfn á ferð í Bandaríkj-
unum fyrir skömmu.
Þar sagði ferðaskrifstofueigandi
einn að SAS hefði tilkynnt honum að
ef hann pantaði ekki herbergi á SAS
hótelunum í Kaupmannahöfn fyrir
viðskiptavini sína gæti hann gleymt
öllu um sæti í SAS þotu yfir Atlants-
Leiðtogar strætisvagnastjóra hót-
uðu í gær með verkfalli um allt landið
ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra
um verulegar kauphækkanir fyrir lok
mánaðarins.
hafið. Kom tilkynning þessi frá SAS í
Bandaríkjunum.
Segir i bréfi framkvæmdastjórans að
þeir hóteleigendur sem ekki eigi flug-
félag sjái betur en nokkru sinni
hvemig einokun SAS blómstrar. Séu
hóteleigendur hafðir að fíflum af fyrir-
tæki sem að hluta til er í ríkiseigu.
Þeir séu þreyttir á ofríki SAS og óska
eftir frjálsri samkeppni um hótelgest-
ina.
Tap vegna rigninga
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmaimahöfh;
Fyrirtæki og félög, sem þéna fé á
sumarfríi Dana í eigin landi, hafa
farið á mis við sumarleyfispeninga
tvö hundruð þúsund Dana í sumar.
Nýleg skoðanakönnun, þar sem
sumarfrí Dana var undir smásjánni,
leiddi í ljós að sextíu þúsund manns,
er höfðu ætlað að eyða sumarfríinu
í sumarhúsi, á tjaldstæði eða á sum-
arhóteli í eigin landi, frestuðu fríinu
vegna kulda og regns. Fimmtíu og
fimm þúsund eyddu fríinu heima í
stofu af sömu ástæðum. Loks fengu
sjötíu þúsund Danir meira en nóg
af regninu og kuldanum, þustu á
ferðaskrifstofu og flugu í sólina og
hitana í Suður-Evrópu.
Engu að síður eyddu sex hundruð
og fimmtíu þúsund fríinu í sumar-
húsi og þess háttar og átta hundruð
þúsund hjá vinum og vandamönn-
um. Meira en fjórðungur þeirra er
eyddu sumarfríinu í Danmörku ætla
örugglega til sólarlanda næsta sum-
ar til að vera vissir um að fá ein-
hverja sól.
SAS misnotar
einokunaraðstöðu
Botha hótar sendHulltrúum
Til greina kemur að takmarka ferða- anríkismálum þar.
frelsi vestrænna stjómarerindreka í P. W. Botha forseti tilkynnti þetta í
Suður-Afríku ef þeir skipta sér af inn- þingræðu sem hann flutti í gær. Vitn-
Öryggisverðir leita i bíl við vegatálma nálægt gullnámu fyrir utan Jóhannesar-
borg í Suður-Afriku. Mikil gæsla er nú kringum aliar námur þar sem vinna
hefur verið lögð niður. Símamynd Reuter
aði hann í aðgerðir Bandaríkjamanna
gegn sendimönnum og kvað ekki úti-
lokað að stjómin í Suður-Afríku gripi
til svipaðra aðgerða gegn vissum
sendiráðstarfsmönnum.
Samskipti stjómarinnar í Suður-
Afríku við Vesturlönd hafa versnað
jafnt og þétt frá því að blóðug átök
vegna kynþáttaaðskilnaðarstefnunn-
ar hófust 1984. Vesturlönd hafa aukið
efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Suð-
ur-Afríku og sum sendiráð þar i landi
hafa aukið samskipti sín við hópa sem
vilja minnka veldi hvítra.
Víðtækasta verkfallið í sögu Suður-
Afríku breiddist enn meir út í gær að
sögn verkalýðsleiðtoga sem fullyrða
að um þrjú hundmð þúsund námu-
menn af rúmlega fjögur hundmð
þúsund hafi lagt niður vinnu. Tölur
þessar stangast á við upplýsingar yfir-
manna námanna sem segja verkfallið
í rénun.
Lögreglan í Suður-Afríku skaut í
gær gúmmíkúlum og táragasi að
hundmðum verkamanna við gull-
námu fyrir utan Jóhannesarborg. Sjö
særðust og tuttugu og þrír vom hand-
teknir. Annars hefur ekki komið til
stórvægilegra átaka á suður-afrískan
mælikvarða. í fyrri verkföllum hafa
tugir verkamanna látið lífið en enn
sem komið er hefur aðeins einn látið
lífið í þessu verkfalli. Þó nokkrir hafa
særst og tvö hundmð hafa verið fang-
elsaðir.
Útlönd
Frestar ferð vegna þunka
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, hefíir frestað fyrirhugaðri
heimaókn sinni til þriggja Evrópu-
landa vegna þurrka þeirra sem nú
hrjó Indveija, að sögn talsmanns
utanríkisráðuneytis Indlands.
Gandhi ætlaði að heimsækja Vest-
ur-Þýskaland, Ungveijaland og
Júgóslavíu.
Þurrkamir em hinir verstu sera orðið hafa á Indlandi undanfarin ár og
er talið að forsætisráðherrann þurfi að vera heimavið til að hjálpa við að
finna lausnir ó vandamólum sem af þeira stafa.
Kastró fylgjandi frfðaráætluninni
Fidel Kastró, leiðtogi Kúbu, hefur
lýst sig fylgjandi friðaráætiun þeirri
sem forsetar Mið-Ameríkuríkja sam-
þykktu í Guatemalaborg í síðustu
viku. Daniel Ortega, forseti Nic-
aragua, hefur verið á Kúbu til
viðræðna við Kastró undanfama
daga en sneri í gær heimleiðis.
Sameiginleg yfirlýsing var gefin
út að loknum löngum fundi þeirra
Ortega og Kastró.
í yfírlýsingunni er friðaráætlun forsetanna lýst sem mjög jákvæðri og lýsa
kúbumenn því yfir að þeir styðji tilraunir til þess að leita friðar í Mið-
Ameríku á gmndvelli áætlunar forsetanna.
Hjálparstaif vlð hvali
Hiálparstarf við hvali virðist vera með vinsælii athöfnum um þessar mund-
ir. I gær eltu þyrlur frá bandarísku strandgæslunni hval nokkum undan
ströndum Kalifomíu. Hvalurinn hafði flækt sporð ainn í fiskineti og var von
strandpeslumanna sú að þeim tækist að losa hann og bjarga þannig lífi
hans. I yfirlýsingu segir að sextíu og fimm hvalir hafi lent í fiskinetum það
æm af er þessu ári.
Þá er nú áætlað að flytja hvalinn Guðrúnu, sem náðist fyrir um ellefu
árum við Island, frá heimili hennar i Amsterdam til Bandaríkjanna til þess
að lina ástarbríma þann er heltekið hefíir hana. Guðrún er eini hvalurinn
sinnar tegimdar í Amsterdam en vonast er til að í Bandaríkjunum finnist
maki handa henni.
Óeirðir í ísrael
Lögreglan í Jerúsalem handtók í
gær nokkra útlendinga sem efnt
höfðu til mótmæla við ræðismanns-
skrifstofu Bandaríkjanna í austur-
hluta borgarinnar. Útlendingamir
voru að mótmæla hersetu Israels-
manna á vesturbakkanum og á
Gaza-svœðinu. Tveir meiddust í
átökum við lögreglu en sex manns
voru handteknir. Alls tóku um fjöru-
tíu útlendingar þátt í mótmælaað-
gerðunum.
Fimmtíu bíða dauðadóms
Fimmtíu af þeim nær þúsund aðilum, sem handteknir liafa verið vegna
brota á fikniefnalöggjöf í Malaysíu undanfama mánuði, mega búast við því
að hljóta dauðadóm fyrir afbrot sín þegar þeir koma fyrir rétt.
Tuttugu og tveir til viðbótar mega búast við lífstíðarfangelsi eða fimm ára
lágmarksfangelsi og opinberri hýðingu.
Samkvæmt iögum Malaysíu má dæma til dauða hvem þann sem tekinn
er með meira en fimmtán grömm af heróíni eða meira en tvö hundmð grömm
af kannabisefrium.
Á fyretu sex mánuðum þessa áre hafa um fimm þúsund og fimm hundruð
manns verið handteknir vegna brota á fikniefhalöggjöf landsins og þar af
munu nær þrjú hundruð hljóta dauðadóm.
Skutu niður flugvél
Skæruliðar uppreisnarmanna í
Afganistan skutu í gær niður flutn-
ingaflugv’él. Að sögn útvarpsins í
Kabul, liöfuðborg Afganistan, fóriLst
tólf manns með flugvélinni en
skæruliðamir notuðu bandaríska
Stinger-eldflaug til þess að granda
henni.
Meðal þeirra sem fóruat voru fimm áhafhartneðlimir og sjö farþegar, þar
af tvö böm. Ekki var tekið fram hvort einhver hefði komist lífs af.
Atvikið átti sér stað um klukkan hálffimm í fyrrinótt Vélin, sem var so-
vésk og af gerðinni AN-26, var á leið firá Kabul til bæjarins Khost, í
austanverðu landinu.