Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987.
Spumingin
Fylgist þú með
íþróttum?
Þórður Jónsson: Voða lítið en þó
helst með handbolta.
Hjalti Gíslason: Ég fylgist með fót-
bolta, held mest upp á Liverpool af
erlendum hðum. Hér heima er það
Valur.
Gunnar Sigurðsson: Já, það er golfið.
Ég er í unglingalandsliðinu og ieik
nánast á hverjum degi að sumrinu.
Bjarni Hauksson: Já, ég fylgist með
mörgu, t.d. skíðaíþróttum og er sjálf-
ur mikið á skíðum.
Sigrún Karlsdóttir: Já, ég er hrifin
af fótbolta þótt ég stundi nú ekki þá
íþrótt en ég er í líkamsrækt.
Hörður Jónsson: Já, ég fylgist með
knattspymu og handbolta, stundaði
handbolta hér áður en geri það ekki
lengur.
Lesendur
Eru dagheimili í þágu almennings? spyr bréfritari.
Dagheimili
fyrir öll böm?
Hvílíkt rugl
Jóhannes skrifar:
í leiðara Þjóðviljans sunnudaginn 4.
þ.m. er fjallað um hugmyndafræðilega
endursköpun á fóstrustarfinu, eins og
það er orðað, og nauðsyn þess að ráða-
menn jafnt og allur almenningur taki
þátt í þeirri umræðu.
AUur er þessi leiðari Þjóðviljans eitt
ahsheijar rugl aö mínu mati. Þar er
fimbulfambað um nauðsyn þess að
atvinnurekendur axh ábyrgðina með
almenningi, þ.e. ábyrgðina á að koma
upp dagheimilum á vinnustöðum.
„Það eiga að vera til dagheimih fyrir
öh böm,“ segir í forystugrein Þjóðvilj-
ans. Hvemig getur það verið hagur
„almennings" að dagheimih séu til
fyrir öh böm?
Ahur almenningur á ekki böm á
forskólaaldri. Th dæmis eiga þessi
böm, sem um er rætt, ekki böm sjálf!
Og em þau ekki hluti af almenningi?
Og ekki eiga gamalmenni, segjum frá
60-80 ára, böm á þessum aldri. Th-
heyra þessir aldurshópar ekki al-
menningi eða ahir ógiftir og
einhleypir, á hvaða aldri sem er? Er
þetta ekki aht almenningur?
Sannleikurinn er sá aö það er hin
mesta þjóðarógæfa að byggja upp fleirl
dagheimih en orðið er. - Bíðið bara
við, þið Þjóðvhjamenn, og sjáið hvað
skeður eftir næstu áramót.
Þá mun svo komið hér að „almenn-
ingur“ í hlutverki útivinnandi kvenna,
a.m.k. stór hluti hans, þ.ám. sá hluti
sem vinnur úti sér th „gamans" en
ekki th aö létta undir með heimilinu,
eins og það er káhað, vhl ólmur yfir-
gefa vinnumarkaðinn, þennan sælu-
reit heimtufrekra einstaklinga sem
era í raun útivinnandi th þess eins aö
„nýta menntunina" eins og oftar en
ekki era rökin fyrir útivinnunni.
Staðgreiöslukerfið margumrædda
og þráumbeðna verður th þess að
margir munu sárbiöja um launalaust
leyfi í svo og svo margar vikur eða
mánuði eða jafnvel hætta alveg ahri
útivinnu vegna þess að þá verður í
fyrsta skipti unnt að hætta vinnu hér
á landi án þess að þurfa að buröast
með ógreidda skatta á bakinu.
Með staðgreiðslukerfi skatta hefst
svo nýtt tímabh sem núverandi ríkis-
stjóm stefnir rétthega að og þar með
minnkar þenslan í atvinnuhfinu og
þaö svo um munar.
Það mun því veröa stutt í að dag-
heimili hér á landi verði ekki nýtt að
ráði, hvað þá fuhnýtt.
Staðgreiðslukerfi skatta mun nefni-
lega einnig skapa nýtt viðhorf gagn-
vart vinnumarkaðinum og einkum og
sér í lagi hjá útivinnandi konum.
Reagan og
skyldleikinn
Bjami Bjömsson skrifar:
Það brá svo við eftir að upplýst hafði
verið um hugsanlegan skyldleika Re-
agans Bandaríkjaforseta við okkur
íslendinga að skyndhega hljóðnuðu
Roanald Reagan. Skyldur eða ekki
skyldur okkur?
gagnrýnisraddir í fjölmiðlum á forse-
tann, að mestu.
Ég segi ekki að forsetinn verði látinn
í friði hér eftir og hann verði upphaf-
inn th skýjanna af íslenskum fjölmiðl-
um en hitt mun ég veröa sannspár um
að ekki veröur vegið að þessum merka
valdamanni á jafnóvæginn hátt og
hingað th hefur verið gert og oft að
thefnislausu.
Og hvaöa thgangi þjónar það svo að
hnýta í hinn aldna leiötoga Bandaríkj-
anna? Hann er ekki ábyrgur fyrir
óáran þeirri sem hijáir heimsbyggð-
ina og allra síst þeirri sem mest mæðir
á okkur íslendingum.
Það er ekki örgrannt um að maður
hafi hugboð um að karlinn eigi ein-
hvem eða jafnvel talsverðan þátt í því
hve þó leystist vel úr hvalamálinu sem
um tíma virtist ætla að shta sundur
friöinn mihi þessara tveggja þjóða.
En hvort sem úr þvi fæst skorið í
bráö að Reagan sé í raun af íslenskum
kominn þá má þó ahtaf halda þessu á
lofti þegar mikið er í húfi og sam-
skipti þjóðanna tveggja, íslands og
Bandaríkjanna, ættu a.m.k. ekki að
versna á meðan óvissuástand ríkir í
skyldleikamálunum.
Vangreiddur
skyldusparnaður
4191-7318 skrifar:
Ég er ein þeirra, sem á inni skyldu-
spamað hjá hinu opinbera, þ.e.a.s. ég
hélt að ég ætti hann vísan. En svo
bregðast krosstré sem önnur tré.
Þegar ég kom í Veðdehd Lands-
bankans hér í Reykjavík og ætlaði að
ná í peningana kom í ljós að viðkom-
andi vinnuveitandi hafði ekki skhað
inn greiðslu frá því í janúar sl. og þar
th nú, í lok september í ár.
Þetta er auðvitað vítavert kæruleysi
og finnst mér ekki forsvaranlégt ann-
að en að gera þetta opinbert, ekki síst
vegna þess að hér er ekki um eins-
dæmi að ræða.
Ennfremur ohi þetta mér óþægind-
um þar sem ég kom hingað utan af
landi og ætlaði aö nota þetta fé hér.
Eftir ítrekaðar tilraunir th að fá þetta
leiðrétt frá vinnuveitanda (sem einnig
er staðsettur úti á landi) tókst loks að
fá loforð fyrir innleggi hans og átti að
senda það með flugi hingað suður.
Þetta er þó sýnd veiði en ekki gefin
þar sem nú, þegar þetta er skrifað, er
ekkert flugveður og ahs óvíst hvenær
greiðslan kemst endanlega í höfn þótt
ég voni auðvitað að aht gangi í því efni.
Ég vh, vegna þessarar slæmu
reynslu, vara aðra sem ætla að taka
út skylduspamað sinn. Kannið hvort
greiðslur hafa verið inntar af hendi frá
vinnuveitanda. Og ekki aðeins það,
heldur hvort þær greiðslur era inntar
af hendi reglulega.
Til hvers eru
verkalýðsfélög?
4085-6886 hringdi:
Ég skora á verkalýðsfélögin að
halda fast við þá stefiiu að leyfa ekki
óheftan innflutning á erlendu verka-
fólki th landsins.
Það er reginhneyksh ef skaffa á
erlendu verkafólki húsnæði. Ekki
era útvegaðar íbúðir fyrir venjulegt,
íslenskt launafólk þótt mikið hggi
við.
Hvar era loforö alþingismann-
anna, sem boðuðu skattalækkanir,
en standa nú að skattahækkunum?
Mig langar th að taka dæmi um
þessi íbúðamál. Kona sem var öryrki
bjó í blokk hér í borg. í sömu blokk
vora útlend hjón. Bæði konan og
erlendu hjónin sóttu um íbúð í
verkamannablokk. Hjónin fengu
íbúð, konan ekki. Þó vora þessi hjón
með uppkomin böm.
Svona framgangur viðgengst
hvergi nema á Islandi. Það er eins
og aht sé gert th að aðstoðar útlend-
ingum, jafnvel að halda þeim uppi.
Þetta er óréttlæti og mismunun af
grófara tagi.
Hringið í síma 27022
og
eða skrifið.
Menn eru sér nú meðvitandi um hve ægilegt vopn kjarnorkusprengja er.
Myndin er fró tilraunasprengingu áriö 1952.
KJamorkulaus
Norðiiriönd
Gurrnar Sverrisson hringdi:
Öðra hverju undanfarið hafa fjöl-
miðlar flutt fregnir af umræðum um
áframhaldandi kjamorkulaus Norð-
urlönd eða umræður væra um þaö bh
að hefjast.
Finnst mér þetta talandi tákn þess
hve Norðurlandabúar era vakandi
yfir því að bjóða ekki hættunni heim
og að of seint sé að byrgja brunninn
þegar bamiö er dottiö ofan í.
Eg spái því að það verði aldrei kjam-
orkustríð þar sem svo mikið er í húfi
að halda eðhlegri lífkeðju móður jarð-
ar í jafhvægi og mannlíf aht fái að
þróast og dafna í friði.
Ahir sem vit hafa era sér áreiðan-
lega meðvitandi um hversu ofur
æghegt vopn kjamorkusprengjan er.
Margur er minnugur þess hvemig til
tókst í Hírósíma á sínum tíma.
Þar sem mannfóhtiö er á mörgum
sviðum betur upplýst í dag heldur en
þá held ég að innst inni þori hreinlega
enginn aðih að koma kjamorkustyrj-
öld af stað, að minnsta kosti enginn
með fthlu viti.
í beinu framhaldi af þessu hefur og
frést að leiðtogamir, Reagan og Gor-
batsjov, væra með fundi í bígerð th
að draga úr framleiðslu kjamavopna.
Ég er bjartsýnn á að það takist, ekki
kannski á næstunni en á næstu ára-
tugum. Þaö er staðreynd að á mörgum
sviðum heyrir hnefárétturinn fortíð-
inni th og margt hefur þróast til betri
vegar th dagsins í dag.
Mér finnst rökrétt að álykta að slík
þróun haldi áfram og einmitt á þeim
forsendum sem ég áður nefndi.
Jtir, C - C. * íá