Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1987, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987.
Fréttir
___________________________________________________________DV
Sláturhúsin á íslandi í notkun 19 daga á ári að meðaltali:
Kostar milljarð að koma
undanþáguhúsunumí lag
Slátrun i fullum gangi i sláturhúsinu í Grindavik i gær.
DV-mynd: BG
Hólmanesið fékk gott verð í Bremerhaven:
Batamerki á Þýska-
landsmarkaðinum
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
Hólmanes SU frá Eskifirði seldi 146
tonn af ísfiski í Bremerhaven fyrir
níu milljónir níu hundruö fimmtíu
og fimm þúsund krónur. Meðal-
verð á kíló var 68,13 krónur sem
er afar gott og með því allra besta
sem fengist hefur á árinu. Uppi-
staða aflans var karfi og ufsi.
Fyrir karfann fengust tæpar 72
krónur á kílóið en ufsinn fór á 60
krónur kílóið. Skipstjóri á Hólma-
nesinu var Sigurður Magnússon.
Báðir skuttogarar Eskfirðinga
hafa því selt í Þýskalandi í þessari
viku og fengið þrumandi gott verð.
Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá LÍÚ
sagði í samtali við DV að þetta góða
verð mætti rekja beint til lítils
framboðs á Þýskalandsmarkaði í
þessari viku.
„Það er ljóst að markaðurinn er
mjög ótryggur og varasamur og
engan veginn búinn að ná fyrri
styrk eftir hrunið sem varð í kjölfar
sjónvarpsþáttar 28. júlí síðasthðinn
sem fjallaði um orma í fiski. Marg-
ir óttast því að verð lækki mjög
verulega í næstu viku en þá selja
tveir íslenskir togarar í Þýska-
landi. Eigi að síður eru hér á
ferðinni ákveðin batamerki," sagði
Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Átak JC um helgina:
Tökum slysin úr umferð
JC-félagar um allt land dreifa nú
um helgina gögnum um aukiö öryggi
í umferðinni. Yfirskriftin er: Tökum
slysin úr umferð. JC hefur haft sam-
starf við Fararheill ’87 og Umferðar-
ráð vegna þessa átaks í umferðar-
málum.
JC-félög um allt land verða með
ýmis verkefni í heimabyggðum sín-
um um helgina sem snerta aukið
öryggi í umferðinni. Þá verður lím-
miðum, barmmerkjum og plakötum
dreift til fólks.
Þá hefur JC látið gera myndband
með lagi og texta, tileinkað umferð-
armálum. Lagið verður spilað á
útvarpsstöðvunum um helgina en
myndbandið verður sýnt í kvöld í
sjónvarpinu.
Samkvæmt skýrslu sláturhúsa-
nefndar, sem kom út í sumar, er
afkastageta allra starfræktra slátur-
húsa í landinu 43.450 fjár á dag og
ef miðað er við þann fjölda fjár sem
slátraö var í fyrra jafngildir það 19
daga notkun að meðaltali á ári. Samt
var slátrun þá mun meiri en áður
vegna fækkunar sauðfjár. í skýrsl-
unni ségir að þessi mikla afkastageta
sláturhúsanna, samfara fækkun
sauðfjár í landinu, auki á óhag-
kvæmni og muni leiða til ófremdar-
ástands verði ekkert að gert.
Sláturhúsanefnd fullyrðir að hægt
sé að anna allri sauðfjárslátrun á
landinu í þeim húsum sem hafa nú
þegar löggildingu. Eini landsfjórð-
ungurinn þar sem lagfæringa er þörf
er Austurland.
Eins og skýrt var frá í DV í gær
eru 33 sláturhús af 50 í landinu með
undanþágu. Ef gera ætti þessi hús
þannig úr garði að samræmdist nú-
tíma meðferð á mannamat myndi
það kosta um einn milljarð króna.
Þá er átt við aö gera við þau og búa
tækjum sem nauðsynleg eru til þess
að hægt sé að löggfida þau. Ef þetta
yrði gert þyrfti sláturkostnaður að
Flateyri:
hækka um 22,50 krónur á kíló eða
um 32,8%. Nefndin leggur til að slát-
urhúsum veröi fækkað mjög frá því
sem nú er. Hún leggur til að eftirfar-
andi hús verði starfrækt áfram:
Sláturhúsið á Kirkjubæjarklaustri,
Hvolsvelli, Selfossi, Þykkvabæ,
Borgamesi, Búðardal, Patreksfirði,
Þingeyri, Norðurfirði, Hólmavík,
Hvammstanga, Blönduósi, Sauðár-
króki, Húsavik, Kópaskeri, Egils-
stöðum og Höfn í Hornafirði. Þetta
eru 17 hús en nú eru húsin 50, þar
af 33 á undanþágu sem fyrr segir.
-S.dór
Húsnæði fimm fjöl-
skyldna boðið upp
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Fimm af sex fjölskyldum á Hjalla-
vegi 14-20 á Flateyri eru fluttar úr
íbúðum sínum og hafa ákveðið að
láta bjóða upp húsnæði sitt frekar
en að halda áfram að greiða af áhvíl-
andi skuldum.
Ástæðan fyrir þessum aðgerðum
íbúanna er sú að þegar fólkið flutti
í íbúðimar 1982 lánaði Byggingasjóð-
ur verkamanna 80% en kaupendum-
ir lögðu fram 20%. í dag er staðan
hins vegar sú að vegna misgengis
lánskjara- og byggingavísitölu er lán
Byggingasjóðsins orðið nánast sama
upphæð og brunabótamat íbúðanna
en endursöluverð íbúða á Flateyri
er um 70% af brunabótamati.
Rúnar Garðarsson er einn þeirra
sem lentu í þessum hremmingum.
Að hans sögn þyrfti hann að borga
um það bil eina milljón króna með
íbúðinni ef hann seldi núna. Rúnar
kvað árangurslausar tilraunir hafa
verið gerðar til að leysa þessi mál í
samráöi við Húsnæðismálastofnun.
Rúnar sagði að beint tap sitt á þess-
um viðskiptum væri um 600 þúsund
krónur fyrir utan þann skaða að
lenda á skrá yfir vanskilamenn.
Kristján Jóhannesson sveitarstjóri
sagði að sveitarfélagið hefði hafnað
forkaupsrétti á íbúðunum enda væri
það sveitarfélaginu fjárhagslega
ókleift að kaupa allar þessar íbúðir.
Kristján..sagði að óskað hefði verið
eftir því við Húsnæðisstofnun að lán-
in yrðu reiknuð niður til samræmis
við verð á íbúðum á Flateyri en þvi
var hafnað.
Þannig standa máhn í dag að búið
er að bjóða upp eina íbúð af sex, fjór-
ar verða boðnar upp 17. nóvember
en ein fjölskylda ætlar að þrauka og
borga af sínu okurláni.
Fimm fjölskyldur standa uppi
eignalausar eftir fimm ára puð og
•fyrirvinnumar á vanskilalista.
Hjallavegur 14-20, Flateyri. Fimm fjölskyldur af sex sem þar búa hafa ákveöið aö láta bjóöa ibúðir sínar upp.
DV-mynd Róbert Reynisson
Ólafsvík:
Afborganir aukast um 100%
Bæjarstjóm Ólafsvíkur hefur 10 milljónum í 20. Veltufjárstöðu ingamir væm í mörgu líkir reikn-
loks fiShgiö ársreikninga bæjar- hefur hrakaö verulega og er hún ingum ársins 1985.
sjóðs fýrir árið 1986 í hendur. neikvæð um rúmar 15 milljónir Nú er að hefjast í Ólafsvik upp-
Reikningamir em um margt svip- króna. gjör vegna fyrstu níu mánaða þessa
aðir ársreikningura 1985 nema Eigiö fé bæjarsjóðs er rúmar 70 árs. Því á aö vera lokið elgi siðar
hvaö veltufjárhlutfall hefur versn- milljónir króna. Eignir bæjarsjóðs en 2. nóvember næstkomandi.
að nokkuð. era um 160 milljónir, en skuldir em Fram að þeim tima em taldar litiar
Helstu breytingar em þær; að ura 90 milljónir króna. Hagnaður líkur á að myndaður verði nýr
innheimtuhlutfall lagaðist vem- af rekstri bæjarsjóðs á árinu var bæjarstjórnarmeiríhluti í Óiafsvík.
lega á milli áranna, fór úr 50% í um 3. milljómr króna. Menn vilja sjá hver staöa bæjar-
81%. Áætlaðar afborganir á yfir- Þeir, sem DV ræddi við i gær, sjóðs er áöur en þeir taka viö að
standandi ári aukast um 100%, úr voru á einu raáli um að ársreikn- mynda meirihluta. -sme