Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987. Fréttir_______________________________________________________________________________dv Skattaálögur hækka um 420 milljónir króna að jafnaði í hverri viku: Nýir skattar á þjóðina nálgast tíu milljarða Ríkisstjóm Þorsteins Pálssonar er á þeim 22 vikum, sem hún hefur se- tiö að völdum, farin að nálgast að hafa lagt nýja skatta á landsmenn upp á 10 milljarða króna á næsta ári. Frá 8. júlí í sumar, þegar ríkis- stjómin tók við, hafa skattaálögur hækkað að jafnaði um 420 milljónir í hverri viku eða um 60 milljónir á degi hverjum. Fyrsta verk ríkisstjórnarinnar í sumar var að gefa út bráðabirgðalög um nýja skatta, sem gefa 3,7 miUj- arða í kassann á næsta ári. Um það var samið í stjómarmyndunarvið- ræðunum. í haust, þegar Alþingi var að koma saman í ný, sömdu stjómarflokkam- ir enn um skattahækkanir, upp á 2 milljarða króna. Fj árlagafrumvarpið var rifið upp. Nýju skattamir vom komnir upp í 5,7 milljarða króna, samkvæmt því sem fram kom í íjár- lagaræðu íjármálaráðherra. Sú fjárhæð skiptist þannig að breytingar á söluskatti, tollum og vömgjaldi áttu að skila til viðbótar úr vösum almennings 3.200 milljón- um, bílaskattar 950 milljónum, skattar á atvinnurekstur 600 milljón- um og ýmsir aðrir skattar 950 millj- ónum. Fyrir þremur vikum var ákveðið að hækka útsvar sveitarfélaga í stað- greiðslukerfi skatta um tæplega hálft prósent. Með því fjúka 550 milljónir króna úr vösum skattborgara á næsta ári og skattahækkunin fer upp í 6,2 milljarða króna. Fyrir helgi komu svo enn ný tíð- indi frá ríkisstjóminni. Hún hafði hætt við að hafa söluskattinn 22% en ákveðið að hafa hann áfram 25%. Þar bættust við 4,9 milljarðar króna. Tollar og vörugjöld vom hins vegar lækkuð um 2,8 milljarða króna en eftir sat ný skattahækkun upp á 2,1 milljarð króna. Heildarviðbótin var því rokin upp í 8,3 milljarða króna. Ennfremur skýrði ríkisstjórnin frá því aö'fyrri skattahækkanir hefðu verið vanreiknaðar um 600 milljónir króna og frá skattsvikurum myndu nást 400 milljónir króna vegna betra kerfis. Ríkisstjórnin var því samtals búin að bæta 9,3 milljörðum króna á skattþegna landsins. Um leiö var skýrt frá millifærslum; hækkun niðurgreiðslna til land- búnaðar um 1.250 milljónir, hækkun bama- og tryggingabóta um 600 millj- ónir og endurgreiðslu fóðurskatts um 200 milljónir. Loks má nefna mikla hækkun fast- eignamats umfram byggingarvísi- tölu, sem fært getur sveitarfélögum 300-600 milljónir króna í hærri fast- eignasköttum. Viðbótarskattbyrðin á næsta ári er því farin að nálgast 10 milljarða króna. -KMU Bokalisti DV1987: „Alltaf gam an að vera hæstur“ „Voðalega var það.gaman, það er aUtaf gaman að vera hæstur," vom fyrstu viðbrögð Höllu Linker þegar henni vom færð þau tíðindi að bók hennar, Uppgjör konu, væri í 1. sæti DV bókalistans fyrir síðustu viku. Halla sagði að henni hefði verið sagt að hún mætti búast við góðri sölu á bók sinni en á þessu heiði hún þó ekki átt von. En skyldi hún hafa fengið einhver viðbrögð við bók sinni? „Jú, jú, ég hef fundið viðbrögð fólks við bókinni. Aðallega hef ég fundið að fólki finnst ég hafa verið opinská í bókinni en ég segi nú bara að það þýði lítið að skrifa bók ef maður segir ekki neitt. Annars er ég ánægðust með að sonur minn hefur lýst yfir að hann sé sáttur við bókina.“ Halla sagði að sú hugmynd að skrifa bókina hefði fyrst vaknað með henni eftir að vinnufélagi hennar og vinur hefði bent henni á að hún hefði frá mörgu að segja. En hvað skyldi nú vera framundan hjá Höllu. „Ég er að þýða hluta bókarinnar yfir á ensku en ég ætla að fara með hana þegar ég fer út til Bandaríkj- anna í janúar og sjá hvort einhver fæst til þess að gefa hana út þar. Ég á von á því að gott gengi bókar- innar hér heima gefi mér betri möguleika á að fá bókina útgefna þar.“ Bók Höllu skýst nú upp í fyrsta sæti DV-bókalistans en í síðustu Halla Linker er að vonum ánægð með viðtökur við bók hennar. Nú vinnur hún aö þýðingu bókarinnar yfir á ensku. DV-mynd KAE viku var hún í 3. sæti. í 2. sæti er bók Alistair MacLean, Hryðju- verkamennirnir, en bók Gor- batsjovs er nú í 3. sæti. Það kom fram hjá bóksölum að jólabókasalan væri heldur farin að taka við sér og vildu sumir þakka það hinu nýja kerfi með kretitkort- in en sem kunnugt er geyma bóksalar kvittanir nú fram yfir 18. desember. -SMJ Listi DV yffir 10 söluhæstu bækumar síðustu viku 1. Uppgjör konu 2. Helsprengjan 3. Ný hugsun, ný von 4. Sænginni yfir minni 5. Ásta grasalæknir Halla Linker Alistair MacLean Mikhail Gorbatsjov Guðrún Helgadóttir Atli Magnússon 6. Á besta aldri Jóhanna Sveinsdóttir og Þuriður Pálsdóttir 7. Pottþéttur vinur Eðvarð Ingólfsson 8. Pollyanna Elanor H. Porter 9. Skuldaskil Hammond Innes 10. Minningar bamalæknis Matthías Viðar Sæmundsson skráði Fjölmargar vömr áfram undanþegnar söluskatti Fjölmargir flokkar vöru og þjón- ustu verða áfram undanþegnir söluskatti. í söluskattsfrumvarpi ríkissfjómarinnar, sem lagt var fram á Alþingi í gær, er að finna hsta yfir 22 vöruflokka og 22 þjónustuliði, sem undanþegnir verða söluskatti. Einnig er þar listi yfir 20 liöi sem fjármálaráðherra er heimilt að fella niður eða endurgreiða söluskatt af. Vörur sem sleppa við skattinn Þær vörur og verðmæti, sem und- anþegin verða söluskatti, em meðal annars: Vörur sem seldar em úr landi. Fullunnar umbúðir um söluvörur. Veiðarfæri, þó ekki til sportveiöi. Salt, annað en í smásöluumbúðum. Beita, ætluð til veiða í atvinnu- skyni. Tilbúinn áburður, annar en í smá- söluumbúðum. Grasfræ og tijáfræ, fóðurmjöl og hey. Fasteignir, skip og flugvélar, þó ekki sportbáfar og einkaflugvélar. Svartolía og gasolía. Rekaviður. Kvikmyndir sem keyptar em eða leigðar til sýninga í kvikmyndahús- um eða sjónvarpsstöðvum. Vélar og tæki til notkunar í fisk- vinnslu. Vélar og tæki til notkunar í land- búnaði, þar á meðal mjaltavélar, íjárklippur, sláttuvélar aðrar en garðsláttuvélar, heybindivélar, múgavélar, heyblásarar, plógar, herfi, mykjudreifarar og kartöflunið- ursetningarvélar. Heimilisnotkun bónda á eigin framleiðsluvörum. Innlend dagblöö og hliðstæð blöð svo og tímarit, sem ekki em gefin út í ágóðaskyni. Auglýsingar í dagblöðum, bókum tímaritum og ritlingum. Starfsemi án söluskatts Á lista yfir þá þjónustu og starf- semi, sem undanþegin verður sölu- skatti, era meðal annars: Vinna manna við húsbyggingar og aðra mannvirkjagerð á byggingar- staö. Vöra- og fólksflutningar. Húsaleiga, þar með talin leiga gist- herbergja, önnur en leiga veitinga- og samkomuhúsnæðis. Prestsþjónusta og útfararþjónusta. Rekstur sjúkrastofnana, heilsu- hæla, elliheimila og bamaheimila. Lækningar og önnur störf heil- brigðisstétta. Sala fasteigna, skipa og flugvéla svo og verðbréfa og hlutabréfa. Sala listamanna á eigin verkum. Sala á vatni frá vatns- og hitaveit- um. Þjónusta banka og sparisjóða. Aðgangseyrir að íþróttamótum, sundstöðum, skíðalyftum, leiksýn- ingum og tónleikum. Fæðissala mötuneyta skólafólks. Prentun blaða og tímarita. Vinnsla á rekavið sem eigandi stundar. Heimildir ráðherra Fjármálaráðherra verður heimilt aö fella niður söluskatt af ýmsum liðum, svo sem: Kostnaði sveitarfélaga við snjó- mokstur. Efni, vélum og tækjum í raforku- ver, hitaveitur og vatnsveitur. Sjúkrabifreiðum, slökkvibifreiöum og björgunarbifreiðum svo og íjar- skiptatækjum og björgunarbúnaði leitar- og björgunarsveita og björg- unarbúnaði fyrir skip og hafnir. Hljóð- og sjónvarpstökubúnaði, filmum, myndböndum og hljóðbönd- um sjónvarps- og útvarpsstöðva, svo og búnaði sem nauösynlegur er til móttöku á truflaðri útsendingu. Dráttarvélum, sem bændur kaupa til notkunar viö búrekstur. Skíðalyftum og snjótroðuram. Orgelum til notkunar í kirkjum. Fjárfestingarvöram til nota við loð- dýrarækt og fiskeldi. -KMU Svalbarðseyrarmálið: Iðnaðarbankinn neit- ar um veðheimild Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: Iðnaðarbankinn hefur neitað Tryggva Stefánssyni, bónda á Hall- gilsstöðum í Hálshreppi, um veð- heimild en Tryggvi er einn fimm bænda sem gengust í ábyrgö á skuldabréfum fyrir Kaupfélag Sval- barðseyrar gagnvart bankanum á sínum tíma. „Ég hef sagt útibússtjóra Iðnaðar- bankans á Akureyri að ef bankinn endurskoði ekki þessa afstöðu sína, ef svo á aö taka mig út úr og nánast hengja mig núna fyrir jólin þá sé komin upp sú staða að ég hafi engu að tapa og ég kunni þá að eiga eitt og annað í pokahominu sem gæti komið sér Ula fyrir suma aðila,“ sagöi Tryggvi. hann, ásamt fjórum öðrum bænd- um, gekkst í ábyrgð fyrir hönd KSÞ á þrem skuldabréfum samtals að upphæð rúmlega 18 milljónir króna og mun hlutur Tryggva vera tæpar 3 milljónir. Skuldabréf þessi, sem KSÞ gat ekki greitt á sínum tíma, eru í eigu Iðnaðarbankans og í sumar var gert fjárnám í eignum Tryggva og einum öðrum fimmmenninganna vegna þeira. Tveir synir Tryggva og tengdadótt- ir, sem einnig búa á Hallgilsstöðum, hafa verið að reisa þar loðdýrabú og fengu fyrri hluta láns frá Stofnlána- deild landbúnaðarins greitt í haust. Nú á síðari hlutinn að koma til greiðslu en Iðnaðarbankinn neitar um veöheimild. Stofnlánadeildin krefst fyrsta veðréttar skv. lögum sem stofnunin starfar eftir. Loðdýrabú sonar Tryggva er þegar risið og starfsemi hafin þar. Tryggvi segir hins vegar að synir hans muni ekki ráða við þessar fjárfestingar ef þeir fái ekki síðari hluta lánsins frá stofnlánadeildinru. „Þeir fóru út í þetta í þeim vissu að þeir gætu feng- ið þessi lán en nú er höggvið að þeim og þeir koma ekki til með að ráöa við þetta,“ segir Tryggvi. Hann segist ekki vera búinn að gefast upp eða segja sitt síöasta orö í þessu máli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.