Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987. Utlönd Nær handalögmál milli frúnna Ólafur Amaison, DV, Washington; Þótt vel virðist fara á með Ronald Reagan og Mikhail Gorbatsjov virðist ekki vera eins gott sam- komulag milli Nancy Reagan og Raisu Gorbatsjovu. Virðast öll samskipti þeirra vera frekar kulda- leg og einkennast af því að hvor ætli sér að slá hina út. Raisa hefur verið svo andstyggileg að spyrja of náið út í ýmis listaverk í Hvíta húsinu, þannig að Nancy hefur ekki haft svör á reiðum höndum. Nancy hefur á móti hins vegar ve- rið iðin við að koma í veg fyrir að Raisa geti svarað spurningum fréttamanna án sjáanlegs árang- urs. Aðallætin urðu í gærmorgun er Raisa kom í kafíiboð til Nancy. Nancy reyndi þó að hindra það að Raisa gæti svarað spurningum fréttamanna fyrir utan Hvíta hú- sið. Raisa lét sig hins vegar ekki og streittist á móti Nancy. arinnar. Var hann reyndar svo vingjarnlegur að setja upp sér- stakan leikþátt fyrir DV. Leikar- arnir voru fréttamenn sem Donaldson dró afsíðis til að skýra atburðarásina sem best. Að sögn Donaldson var það svo, er Raisa sté út úr bifreið sinni við Hvíta húsið, að fréttamenn vildu spyija hana spurninga. Nancy var ekki á því og hélt í Raisu. Raisa rykkti á móti og gekk í átt að frétta- mönnunum. Ekki var Nancy ánægð með það og togaði þess vegna á móti. Að sögn Donaldson virtist það vera hin mesta mildi að ekki hlutust af alvarleg handalög- mál. Inni í Hvíta húsinu endurtók svo atburðarásin sig. Þær segja þó báðar að þær séu hinar bestu vin- konur. Frúrnar sátu síðan svo lengi að kafíidrykkju að Ronald Reagan og Mikhail Gorbatsjov urðu að bíða eftir þeim í tíu mínútur eftir að fundi karlanna lauk. DV fékk góða lýsingu, nokkuð frúnna frá Sam Donaldson, frétta- ýkta þó, á þessum samskiptum manni ABC-sjónvarpsfréttastöðv- Raisa spurði Nancy of náið um listaverkin í Hvíta húsinu og hafði Nancy ekki svör á reiðum höndum. Nancy togaði aftur á móti i Raisu og reyndi að koma í veg fyrir að hún svaraði spurningum fréttamanna. Simamynd Reuter Fréttaaðvænta af Afganist- anmáiinu Ólafur Amarson, DV, Washington: Félagamir Marlin Fitzwater og Gennady Gerasimov héldu aðeins einn blaðamannafund í gær. Enginn blaðamannafundur var í gærkvöldi vegna þess að leiðtogarnir hittust ekki efttr hádegi. Blaðamannafundurinn í gær hófst rúmri klukkustund á eftir áættun. Marlin Fitzwater sggöi að leiðtogam- ir hefðu á fundi sínum um morgun- inn rætt um afmarkaðri mál en daginn áður, meðal annars Afganist- an og Persaflóastríðið. Einnig voru rædd afvopnunarmál, sérstaklega langdrægar kjarnaflaugar. Á fundinum var tilkynnt um nokkra minni háttar samninga sem utanríkisráðherrar landanna undir- rituðu í gær. Gerasimov sagði að rætt hefði verið um Afganistan og að menn heföu færst nær lausn í því máli. Sagði hann að í dag væri frétta aö vænta af því máli. Fitzwater og Gerasimov körpuðu síðan í gríni um það hvorum þeirra Reagan forseti hefði veifað á leið sinni út af fundinum með Gorbatsjov á skrifstofu forsetans um morgun- inn. Gaf í skyn nýjar tillögur Ólafur Amarson, DV, Washington: Gennady Gerasimov, talsmaður Sovétstjórnarinnar, er einn ásóttasti maður í heimi þessa dagana. DV tókst að króa hann af í stutt spjall. Gerasimov sagði aö það væri runn- ið undan rifjum Bandaríkjamanna að blaðafulltrúar stórveldanna skyldu ekki veita nein einkaviðtöl heldur einungis koma fram á blaöa- mannafundum. Hann sagði að Sovétmenn vildu gjarnan vera í góðu sambandi við blaðamenn og það sæist ef til vill best á þvi að hann veitti nú DV einkaviðtal, eins og hann orðaði það. Gerasimov bætti því við að Sovétmenn bæru mjög hlýjar tilfinningar til íslands, ekki síst í kjölfar leiðtogafundarins í Reykjavík. Það gekk reyndar ekki þrautalaust fyrir blaðamann DV að fá viðtal við Gerasimov. Aðstoðarmenn hans vernduðu hann mjög. DV þurfti að elta Gerasimov út á götu og hálf- partinn inn í bifreið, sem sótti hann að fjölmiölamiðstöðinni, áður en Gerasimov ákvað að svara spurning- um DV. Þegar blaöamaður spurði Gera- simov hvort Gorbatsjov hefði í fórum sínum einhveijar nýjar tillögur á sviði hefðbundinna vopna og efna- vopna brosti hann kankvíslega og sagði svo: „Þú veist nú að það er eig- inlega of snemmt fyrir mig að tjá mig um það mál. Leiðtogafundurinn er ennþá í fullum gangi og ég get í rauninni ekki tekið fram fyrir hend- urnar á leiðtogunum." Síðan leit hann á blaðamann og blikkaði auga. Þetta má skilja sem svo að sennilega muni Gorbatsjov kynna nýjar tillög- ur í dag. Varðandi Afganistan sagði Gera- simov að Sovétmenn hefðu þegar lýst því yfir aö þeir vildu geta horfíð það- an meö herafla sinn. „ Þetta er hins vegar svo erfítt mál. Það eru aðrir að skipta sér af innanríkismálum í Afganistan," sagði Gerasimov og átti greinilega við aðstoð Bandaríkjanna við frelsissveitirnar í Afganistan. Gerasimov sagði að glasnost-stefn- an væri raunverulega í framkvæmd í Sovétríkjunum. Sagði hann að Sov- étmenn tækju mannréttindamál mjög alvarlega og bætti við: „Sjáðu bara til.“ Lengra gat viðtalið ekki orðið því að japanska smábifreiðin, sem flutti Gerasimov á brott frá ijölmiðlamið- stöðinni, rauk af stað í sömu andrá. Erum við hin útvalda þjóð Drottins? Þessi bók afhendist ÓKEYPIS Meðan takmarkað upplag endist Fyllið út meðfylgjandi úrklippu sem afhendist við vitjun bókarinnar. Loftur Jónsson c/o skrifstofa 4. hæð JL-húsinu — Hringbraut 121 (kl. 10-12 næstu virka daga) Vinsamlega afhendið auglýsta bók í D.V. án kostnaðar 1 | : i Nafn: -;l # Sími: 1 ■ l ; 1 1 Heimilisfang: Póstnr. staður: mm l Ath. Tilboð þetta miðast við takmarkað upplag: Eftir fund Gorbatsjovs með forystumönnum bandariska þingsins hafa iikurn- ar aukist á að þingmenn samþykki afvopnunarsamkomulagið. Símamynd Reuter Heilluðust af Gorbatsjov Ólafur Amarson, DV, Washington: Gorbatsjov átti snemma í gær- morgun fund með forystumönnum bandaríska þingsins í sovéska sendi- ráðinu. Á fundinum voru ýmis mál rædd af hreinskilni. Eftir fundinn virtist sem flestír þingmennirnir hefðu heillast af Sovétleiðtoganum og létu margir orð falla í þá veru. Menn telja að eftir þennan fund hafi líkumar á því að bandaríska þingið samþykki afvopnunarsamn- inginn um meðaldrægar- og skamm- drægar kjarnaflaugar aukist til muna. Robert Dole, leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, sem hingað til hef- ur ekki fengist til að lýsa opinberlega yfir stuðningi við samkomulagið, mun hafa lýst því yfir á fundinum í gær með Gorbatsjov að samningur- inn myndi sennilega renna nokkuð andspyrnulaus í gegnum þingið. Enn vitnað í málshátt Ólafor Amarson, DV, Washington: í gærkvöldi sátu forsetahjón Bandaríkjanna kvöldveröarboö sem Gorbatsjov-hjónin héldu þeim í so- véska sendiráðinu í Washington. Ekki fara sögur af því hvort jafn- mikið fjör var í þessu boði og í boðinu í Hvíta húsinu kvöldinu áður. Reagan hélt stutt ávarp þar sem hann lýsti þeim árangri sem náðst hefur í bættum samskiptum risa- veldanna að undanfornu. Vitnaði hann þar í málsháttinn „Hver er sinnar gæfu smiður" og lagöi áherslu á að meö nægum vilja væri hægt að búa til betri veröld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.