Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 41
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987. 41 dv Fólk í fréttum Friðrik Sophusson Friörik Sophusson iðnaðarráð- herra hefur verið í fréttum DV vegna umræðna um orkufrekan iðnað. Friðrik er fæddur 18. októb- er 1943 í Reykjavík og lauk lög- fræðiprófi frá Háskóla íslands 1972. Hann var framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands 1972-1978 og hefur verið alþingismaður frá 1978. Friðrik hefur verið varafor- maður Sjálfstæðisflokksins frá 1981 og iðnaðarráðherra frá 1987. Sonur Friðriks er Stefán Baldvin, f. 31. október 1963, viðskiptafræðinemi Móðir hans er Guðbjörg Kristins- dóttir, f. 19. apríl 1943, lyfjafræðing- yr. Foreldrar hennar eru Kristinn Stefánsson prófessor og kona hans, Oddgerður Geirsdóttir. Kona Frið- riks var Helga Jóakimsdóttir, f. 13. desember 1940, hárgreiðslumeist- ari. Foreldrar hennar eru Jóakim Pálsson, útvegsmaður í Hnífsdal, og kona hans, Gabríela Jóhanns- dóttir. Börn Friðriks og Helgu eru: ÁslaugMaría, f. 20. júlí 1969, Gabrí- ela Kristín, f. 3. júh 1971, og Helga Guðrún, f. 15. desember 1981. Fóst- ursonur Friðriks er Jóakim Hlynur Reynisson, f. 5. ágúst 1961, raf- magnsverkfræðingur. Systkini Friðriks eru Guðmundur, f. 15. ágúst 1947, dómarafulltrúi, giftur Elínu Guðmundsdóttur kennara; María, f. 25. apríl 1950, kennari, gift Sigurjóni Mýrdal, við doktors- nám í Bandaríkjunum; Kristín Auður, f. 22. mars 1952, hjúkrunar- kona, gift Sigþóri Sigurjónssyni, aðstoðarframkvæmdastjóra Gildis. Foreldrar Friöriks eru Sophus Guðmundsson, skrifstofustjóri í Rvík, og kona hans, Áslaug María Friðriksdóttir skólastjóri. Faðir Sophusar er Guðmundur, b. á Auð- unnarstöðum í Víðidal, Jóhannes- sonar, b. á Auðunnarstöðu'm, Guðmundssonar. Móðir Jóhannes- ar var var Dýrunn Þórarinsdóttir, systir Þuríðar, langömmu Halldórs E. Sigurðssonar, fv. ráðherra. Móð- ir Guðmundar var Ingibjörg, systir Björns í Grímstungu, afa Björns Pálssonar, fv. alþingismanns á Löngumýri, og langafa Páls Péturs- sonar, alþingismanns á Höllustöð- um, og Ástu, móður Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. Móðir Sophusar var Kristín Gunnars- dóttir, b. í Valdarási í Víðidal, Kristóferssonar. Móðir Kristínar var Kristín, systir Pálínu, ömmu Bernharðs, blaðafulltrúa Þjóð- kirkjunnar, og Kristjáns bæjar- stjóra, Guðmundssona. Kristín var dóttir Guðmundar, b. á Neðri-Fitj- um, Guðmundssonar. Móðir Guðmundar var Unnur Jónsdóttir. Móðir Unnar var Sigurlaug Jóels- dóttir, systir Jóels, langafa Sigurð- ar, afa Salóme Þorkelsdóttur alþingismanns. Jóel var einng langafi Gunnlaugs, afa Guðmundar Árna Stefánssonar bæjarstjóra. Móðir Kristínar Guðmundsdóttur var Kristín, systir Ragnheiðar, ömmu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Kristín var dóttir Bjarna, b. á Bjargi í Miðfirði, Bjarnasonar, prests á Mælifelli, Jónssonar, föður Guðrúnar, langömmu Jónasar, afa Guðlaugs Tryggva Karlssonar hag- fræðings. Guðrún var einnig langamma Ólafs, föður Ólafs land- læknis og langamma Ingibjargar, ömmu Ingibjargar Rafnar, konu Þorsteins Pálssonar. Áslaug er dóttir Friðriks, kenn- ara í Hafnarflrði, Klemenssonar, b. á Vatnsleysu í Skagafirði, Frið- rikssonar, b. á Ljótshólum í Svínadal, Björnssonar, b. í Hvammi í Langadal, Magnússonar, b. á Breiðavaði, bróður Sigríðar, langömmu Hermanns Jónassonar forsætisráðherra, fóður Steingríms utanríkisráðherra. Móðir Friðriks var Guðrún Kráksdóttir, b. á Stafni í Svartárdal, bróður Páls, fóður Sveins læknis. Krákur var sonur Sveins, prests í Goðdölum, Páls- sonar. Móðir Friðriks var Áslaug Ásgrímsdóttir, b. í Hofsstaðaseli, Árnasonar, prests á Tjörn, Snorra- sonar. Móðir Ásgríms var Guðrún Ásgrímsdóttir, af Ásgeirsbrekku- ættinni, systir Gísla, langafa Sigurbjarnar prests, föður Gísla, forstjóra Grundar. Móðir Áslaugar var María kennari, systir Hall- gríms skólastjóra og Stefáns, föður Ólafs búnaðarráðunautar. María Friðrik Sophusson. var dóttir Jóns, b. á Krossárbakka í Strandasýslu, Jónssonar og konu hans, Jensínu ljósmóður Pálsdótt- ur, b. í Þrúðardal, Einarssonar. Móðir Jensínu var Ingveldur Magnúsdóttir Hrútfjörð, fræði- manns og b. í Steinadal, Magnús- sonar, bróður Guðbjargar, ömmu Stefáns frá Hvitadal og Guðbjargar, ömmu Nínu Bjarkar Árnadóttur rithöfundar. Þórhallur Sigurjónsson Þórhallur Sigurjónsson heildsali, Hrauntungu 43, Kópavogi, er sex- tugur í dag. Þórhallur fæddist í Hvolsstaðagerði í Suður-Múlasýslu og ólst þar upp hjá foreldrum sín- um til fimmtán ára aldurs. Hann fór þá til Egilsstaða og starfaði þar hjá Agli Jónssyni, b. á Egilsstöðum. Þá gerðist Þórhallur sölumaður hjá Ásbirni Ólafssyni en 1958 stofnaði Þórhallur eigið heildsölufyrtæki, Heildverslun Þórhalls Sigurjóns- sonar hf. sem hann starfrækti til 1986. Kona Þórhalls er Sigríður, f. í Hafnardal í Djúpi 25.1. 1939, dóttir Péturs, b. í Hafnardal, sem nú er látinn, Pálssonar og konu hans, Sigríðar frá Skálanesi í Gufudals- sveit, Jónsdóttur, Einarssonar. Pétur var sonur Páls, prófasts og alþingismanns í Vatnsfirði, en hann var sonur Ólafs, prests og alþingismanns á Mel, Pálssonar, og Guðrúnar Ólafsdóttur Stephens- en, dóttur Ólafs í Viðey, Magnús- sonar konferensráðs. Þórhallur og Sigríður eiga þrjár dætur: Ragna, húsmóðir í Reykja- vík og hjúkrunarfræðingur, f. 23.4. 1959, er sambýliskona Þorsteins Ingvarssonar verslunarmanns; Guðlaug Sigríður, húsmóðir í Reykjavík og bankastarfsmaður, f. 12.9. 1964, er sambýliskona Vals Júlíussonar bílasmiðs; Lilja Ólöf, húsmóðir í Reykjavík og nemi í hjúkrunarfræði, f. 11.5.1966, á einn son, Aron Þór, f. 23.3.1985, en hún er sambýliskona Ámunda Guð- mundssonar bílasmiðs. Þórhallur á ijórar systur: Auður, húsmóðir á Selfossi, gift Bergi Þór- mundssyni mjólkurfræðingi frá Bæ í Borgarfirði; Guðbjörg, hús- móðir í Reykjadal, gift Sigurði Jakobssyni frá Reykjadal í Mos- fellssveit, starfsmanni á Reykja- lundi; Gróa, húsmóðir í Kópavogi, ekkja eftir Ásgeir Ásgeirsson frá Krossanesi, kaupmann í Ásgeirs- búð í Kópavogi; Margrét, húsmóðir í Reykjavík, ekkja eftir Birgi Ás- geirsson lögfræðing. Fóreldrar Þórhalls eru bæði látin en þau voru Sigurjón Guðjónsson Vifill Oddsson Vífill Oddsson verkfræðingur, Norðurbrún 36, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Vífill fæddist í Reykjavík. Hann lauk stúdents- prófi frá MA 1957, fyrri hluta prófi í verkfræði frá HÍ 1960 og prófi í byggingaverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1963. Vífill var verkfræðingur á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen sf. frá 1963-66. Hann stofnaði svo Teikni- stofuna Óðinstorgi sf. ásamt Helga Hjálmarssyni og Vilhjálmi Hjálm- arssyni 1966 og hefur starfað viö hana síðan. Vífill hefur verið í stjórn Stéttarfélags verkfræðinga og Félags ráðgjafarverkfræðinga en hann var formaður þess síðar- nefnda 1973-79. Kona Vífils er Katrín, f. í Reykja- vík 2.10.1938, en þau giftu sig 27.8. 80 ára___________________________ Anna Stefánsdóttir, Ránargötu 3, Ak- ureyri, er áttræð í dag. Sigurður Loftsson, Hamratúni 6, Mos- fellsbæ, er áttræður í dag. Hann verður að heiman á afmælisdaginn. 75 ára__________________________ Helga Stefánsdóttir, Hvammsgerði 4, Reykjavík, er sjötiu og fimm ára í dag. 70 ára___________________________ Unnur Þorsteinsdóttir, Tjarnarbóli 14, Seltjamarnesi, er sjötug í dag. Hún verður ekki heima á afmælisdaginn. 1960. Foreldrar hennar: Gústaf, for- stjóri í Reykjavík, Þórðarson og kona hans, Helga Ragnheiður Snæ- björnsdóttir. Vífill og Katrín eiga þrjú börn: Oddur Vigfús bifvélavirki, f. 4.1. 1962; Gústaf, verkfræðinemi í Kópavogi, f. 23.11. 1963, er giftur Ragnheiði Rósarsdóttur efnafræð- ingi; Halldóra menntaskólanemi, f. 6.7. 1968, er unnusta Þórs Sigfús- sonar, viðskiptafræðinema og fv. formanns Heimdallar. Vífill á fimm systkini: Ketill fiug- virki; Þengill, læknir á Reykja- lundi; Ólafur, læknir á Akureyri; Steinunn meinatæknir; og Jóhann- es, verktaki í Reykjavík. Foreldrar Vífils: Oddur Vigfús Gíslason, yfirlæknir að Reykja- lundi og alþingismaður, f. 26.4. 60 ára______________________ Sigtryggur Valdimarsson, Lerkilundi 12, Akureyri, er sextugur í dag. Elísabet G. Jósefsdóttir, Bröttuhlíð 10, Seyðisfirði, er sextug í dag. 50 ára____________________________ Marta Elín Jóhannsdóttir, Ránargötu 16, Akureyri, er fimmtug í dag. Jóhanna Þórarinsdóttir, Kjaransstöð- um, Innri-Akraneshreppi, er fimmtug í dag. Gunnþórunn Jónsdóttir, Hólma- tungu, Hlíðarhreppi, er fimmtug í dag. Þórhallur Sigurjónsson. og kona hans Guðlaug Þorsteins- dóttir. Föðurforeldrar Þórhalls voru Guðjón, b. á Eyvindará, Víg- lundsson, af Langanesi, og Guð- björg Sigurðardóttir. Guðbjörg var dóttir Sigurðar, b. á Sleðbrjót, og systir Björns, langafa Önnu, móður Þórhalls Tryggvasonar banka- stjóra. Þórhallur tekur á móti gestum á heimili sínu laugardaginn 12.12. milli klukkan 17 og 20.00. Vifill Oddsson. 1909, Ólafsson, hreppstjóra að Kal- manstjörn, Höfnum, Ketilssonar og kona Ödds, Ragnheiður f. 26.9.1911, Jóhannesdóttir, Lárusar Lynge, prests að Kvennabrekku í Dölum, Jóhannssonar. Hafsteinn Ólafsson múrarameistari, Norðurfelli 9, Reykjavík, er fimmtugur í dag. 40 ára Valgerður Jóhannesdóttir, Knarrar- bergi 8, Ölfushreppi, er fertug í dag. Ingibjörg Friðriksdóttir, Dalbraut 18, Suðurfjarðalireppi er fertug í dag. Margrét Sigfúsdóttir, Barmahlíð 26, Reykjavík, er fertug í 'dag. Kristín Kristjánsdóttir, Bjargartanga 11, Mosfellsbæ, er fertug í dag. Kristin Einarsdóttir, Brekkutúni 3, Kópavogi, er fertug í dag. Afmæli Sigríður Sigursteinsdóttir Sigríður Sigursteinsdóttir, Lönguhlíð ÍB, Akureyri, er sjötíu og fimm ára í dag. Sigríður fæddist að Auðnum í Öxnadal en ólst upp hjá foreldrum sínum að Neðri- Vindheimum á Þelamörk. Sigríður starfaði í skógerðinni Iðunni á Ak- ureyri í tuttugu og fjögur ár. Maður Sigríðar var Friðrik, f. 28.9.1914, d. 1972, sonur Jóhannes- ar, b. á Glerá, Bjarnasonar og Bergrósar Jóhannesdóttur. Sigríður og Friðrik eignuðust einn son, Steinþór, sem er vöru- flutningabílstjóri, búsettur á Akureyri, f. 2.11.1947. Fósturdóttir Sigríðar eru Sigríður Hanna Sig- urðardóttir, húsmóðir á Ákureyri, f. 30.1.1947, gift Óla Sæmundssyni sjómanni en þau eiga þrjú börn. Sigríður á einn bróður en systir hennar er látin. Systkini hennar: Steingrímur, leigubílstjóri á Akur- eyri, f. 1914; og Þorbjörg, húsmóðir á Akureyri, f. 1919, d. 1986. Foreldrar Sigríðar: Sigursteinn, b. og síðar verkamaður á Akur- eyri, Steinþórsson, og kona hans, Hjörtína Friðriksdóttir, en þau eru bæði ættuð úr Hörgárdalnum. Föð- urforeldrar Sigríðar voru Steinþór, b. á Hömrum, Þorsteinsson, og fyrri kona hans, Sigríður Guð- mundsdóttir. Móðurforeldrar Sigríðar voru Friðfinnur, b. í Há- túni í Hörgárdal, Gíslason og Þorbjörg Magnúsdóttir. •v Jarþrúður Þoriáksdóttir Jarþrúður Þorláksdóttir, Grænuhlíð 4, Reykjavik, er níræð í dag. Jarþrúður fæddist í Hafnar- firði og ólst þar upp. Fyrri maður hennar var Kjartan Jónsson í Hafnarfirði en hann er látinn. Jarþrúður og Kjartan eignuðust fjögur börn: Jón, bifvélavirki og bifreiðaeftirlitsmaður á Selfossi, en hann er látinn; Una, húsmóðir í Reykjavík; Elínborg, húsmóðir á Selfossi; og Dóra, húsmóðir og verkakona í Reykjavík. Seinni maður Jarþrúðar var Helgi Kristjánsson, en hann lést 1974. Jarþrúður og Helgi eignuðust þrjú börn en þau eru: Sólrún skrif- stofumaður; Sigurður, sjómaður í Reykjavík; Þorlákur, matsveinn í Svíþjóð. Foreldrar Jarþrúðar voru Þor- lákur Guðmundsson og Anna Jarþrúður Þorlaksdóttir. Sigríður Davíösdóttir. Jarþrúður tekur á móti gestum á afmælisdaginn eftir klukkan 19.00 að heimili sínu. Grænuhlíð 4, Reykjavík. Andlát Jórunn Jónsdóttir, Hlíðarenda, Grettisgötu 63, lést í öldrunardeild Borgarspítalans þriðjudaginn 8. desember. Guðbergur S. Guðjónsson frá Ás- garði, Grímsnesi, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 7. desember. Guðjón Ó. Guðmundsson hús- gagnasmíðameistari, Óöinsgötu 11, Reykjavík, andaðist á Borgarspítal- anum þann 7. desember. Elí Olsen lést í Fj órðungssj úkra- húsinu á Akureyri 7. desember. Karlotta Karlsdóttir, Hvassaleiti 56, (áður Nökkvavogi 54), andaðist í Landspítalanum 8. desember. Valgerður Pétursdóttir Bordenick, frá Stuðlum í Reyðarfirði, lést þann 7. desember í Greensburg, Pennsyl- vania, U.S.A. Óskar Jónsson, Sólhlíð 6, lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 8. des- ember. Sérverslun með blóm og skreytingar. pvaBlóm w(5skrcylirgar Laugavcgi 53, simi 20266 Sendum um land allL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.