Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 10
10 FIMMTUÐAGUR 10. DESEMBER 1987. Útlönd Gizur Helgaaon, DV, ÞýskaJandi; breskum hluthöftun í British Cale* donian tU þess aö reyna að ná Það litur út íyrir að einhveijir hnútar hafi komið á samningavið- ræður SAS og breska flugfélagsins British Caledonian. Sendineftidin frá SAS hefur aflýst mjög þýðing- armiklum fundi sem fyrirhugaður var með breskum yfirvöldum. Átti fundurmn að leiöa í Ijós hvort tilboð SAS-manna kom á móti kröftun Breta um að British Caledonian yrði áfram undir breskri stjóm. Undanfama daga hafa SAS-menn reynt aö heíja samvinnu með jafiivægi á milh hugsanlegs eignar- hluta SAS og núverandi hluthafa. Skandinavíska flugfélagið virðist nú smám saman draga saman segl- in varðandi kaup i British Caledon- ian því ráðageröin hefur mætt mun meiri stjómmálaiegri andstöðu í London en gert var ráð fyrir. Síðasta tillaga SAS-manna lá á boröi British Caledonian í fyrradag þar sem SAS var reíðubúið til að takmarka ákvaröanarétt sinn í British Caledonian í tuttugu og fimm prósent Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahöfn: Ríkisstjóm Pouls Schliiter náði á þriðjudag samkomulagi um fjárlaga- frumvarpið annars vegar og aðgerðir á vinnumarkaðinum hins vegar. Eru það Jafnaðarmannaflokkurinn og Róttæki vinstri flokkurinn sem tryggt hafa samkomulagið um fjár- lögin sem þýðir að nettóhalli á íjár- lögunum næsta ár hækkar úr 1,1 milljarði danskra króna í 2,7 millj- arða. Samkomulagið milh vinnuveit- endasambandsins, DA, og alþýðu- sambandsins, LO, og ríkisstjórnar- innar mun bæta samkeppnisstöðu Dana á erlendum mörkuðum og tryggja aUt að sjötíu þúsund manns vinnu. Þetta samkomulag tryggir fast gengi krónunnar burtséð frá smálagfæringum miöað við gjald- miðla Evrópubandalagslandanna. Fyrir samkomulagið voru efna- hagssérfræðingar famir að tala irni gengisfellingu til að bæta samkeppn- isaðstöðuna og fá efnahagslífið almennilega í gang. Þetta þvíþætta samkomulag ríkis- stjómarinnar tryggir póhtíska ró í náinni framtíð og þaggar þannig nið- ur í kosningaröddum sem töluöu um 16. janúar næstkomandi. Jafnaðar- menn voru með í samningunum um fjárlögin í fyrsta skipti í sex ár. Hin nýju fjárlög þýða meðal annars að eftirlaun og elhlífeyrir hækka frá og með júlí á næsta ári. Lægstu greiðslur atvinnuleysisdagpeninga, sem hingaö til hafa numið 55 og 70 prósentum af eðlilegum taxta, eru úr sögunni en jafnaðarmenn hafa lengi deht um þetta atriði. Ellihfeyrir hækkar um 6.400 danskar krónur á ári fyrir hjón og 2.400 fyrir einstakl- inga. Samkomulag ríkisstjórnarinnar viö aðha vinnumarkaðarins gengur i höfuðdráttum út á bætta sam- keppnisstöðu Dana erlendis gegnum lægri framleiðslukostnað og aðhald í launamálum. Losna atvinnurek- endur við að greiða 14,5 mhljarða í ríkiskassann næsta ár en þaö eru hin svokölluðu atvinnurekendagjöld sem numið hafa um 6 prósentum af launasummunni og fara meðal ann- ars í sjúkradagpeningasjóði, endur- menntunarsjóði og þess háttar. í framtíðinni munu þessi gjöld nema 2,5 prósentum á grundvelh söluskatts og sér ríkið um aö greiða afganginn tU þessara mála. Miðast atvinnurekendagjöldin því við veltu fyrirtækjanna en ekki fjölda starfs- manna eins og áður. Loks verður sjóðum launþegasamtaka heimUt að eiga allt að 49 prósent í fyrirtækjum án þess þó að hafa úrslitaáhrif á reksturinn. Almenn ánægja er með samkomu- lagið í þinginu og á vinnumarkaðin- um. Þrátt fyrir samningana telja launþegasamtökin sig ekki múl- bundin af þeim. Eru það helst vinstrimenn sem sýna óánægju. Telja þeir margumtal- aðar skattalækkanir enn flær en áður og eru óánægðir með samstarfið við jafnaðarmenn sem þeir telja að eyðUeggi að vissu marki upphaflegt takmark ríkisstjómarinnar í efna- hagsmálum sem meðal annars er að koma í veg fyrir halla á fjárlögunum. Framfaraflokksmenn eru og óá- nægðir þar sem þeir telja að gengið hafi verið fram hjá borgaralegum meirihluta sem í raun finnist á þingi en Poul Schluter forsætisráðherra getur ekki gengið að niðurskurð- arkröfum þeirra sem honum finnst óábyrgar og stofna hinni póhtísku ró og Ufi stjórnarinnar í hættu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.