Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
13
Neytendur
Hvemig á að
steikja rjúpur?
Hvar fæst kanínukjöt?
Kona nokkur frá Hornafiröi hringdi og vildi fá aö vita hvar hægt væri
að fá keypt bæði kanínu- og hreindýrakjöt. Okkur fannst ástæða til að
koma þessari fyrirspum á framfæri þar sem hreindýrakjöt er vinsæll
jólamatur og kanínukjöt þykir mörgum hið mesta lostæti.
Ef einhver veit hvar kaupa má þessar afurðir þá væri það vel þegið að
hann slægi á þráðinn til Neytendasíðu og munum við þá birta upplýsing-
arnar hér í blaðinu.
-PLP
Steiktar rjúpur era jólamatur hjá
fjölmörgum fjölskyldum. Hæíilegt
er að reikna með einni rjúpu á
mann en fæstir borða meira heldur
en eina og margir ekki nema hálfa
eða apnað brjóstið. Læri eru vana-
lega ekki borin fram heldur aðeins
notuð í nart eða smakk.
Ýmsar aðferðir eru við mat-
reiðslu á rjúpum. Fyrir norðan og
austan er algengt aö reyta þær og
svíða. Þannig matreiddar eru ijúp-
ur sérlega góðar. Algengara er þó
að rjúpumar séu hamflettar. Það
var raunar sýnt á neytendasíðunni
fyrr í vetur. Ef rjúpur eru steiktar
á hefðbundinn hátt er gott að gera
það þannig:
Rjúpurnar eru þerraðar vel eftir
að hafa verið hamflettar. Best er
að kfippa færin frá búknum áður
en fuglamir era brúnaðir vef á ölf-
um hhðum í smjöri (eða jurta-
smjörlíki) á pönnu. Lærin em
einnig brúnuð og sömuleiðis
hjörtu, fifur, fóhorn og háls. Saltið
vel og látið vatn í pott. Rjúpurnar
eru nú soðnar í um það bil 1 klt.
eða þar til þær em orðnar meyrar.
Þá er soðið síað og búin til sósa úr
því.
Rjúpnasósa á að vera frekar þykk
og ljós á ht. Margir hræra hveiti-
jafning út í sósuna en aðrir baka
hana upp eins og það er kallað. Það
er hins vegar miklu óhollari mat-
reiðsluaðferð en kannski fyrirgef-
Það er víst nóg framboö af rjúpum í ár. Þær kosta 300 kr. meö ham og
320 kr. hamflettar.
anleg svona einu sinni á ári.
Þá er smjörlíki (eða smjör) látið
í pott og látiö bráðna. Álíka miklu
af hveiti hrært út í smjörlíkið óg
síðan hrært upp með heitu soðinu.
Þegar sósan er orðin hæfilega þykk
er hún bragðbætt með salti og
ijóma. Rétt áður en hún er borin
fram er gott að láta svohtið rifs-
beijahlaup út í sósuna.
Rjúpnasósa er mjög sérstök á
bragðið og ekki heppilegt að nota
annað krydd en salt þegar ijúpur
em matreiddar til þess að þetta
bragð fái að njóta sín sem best.
Með steiktum ijúpum er gjarnan
haft rauðkál og sykurbrúnaðar
kartöflur. Þá er best og fallegast
að nota litlar kartöflur, nánast það
sem kartöfluframleiðendur kalla
smælki.
Og ekki má gleyma rifsbeija-
hlaupinu. Það er ómissandi þegar
ijúpur eru annars vegar.
-A.Bj.
Sitfurskeifan fær andlitslyftingu
Smjörhkið Silfurskeifan, eitt elsta
bökunarsmjörlíki landsins, hefur nú
skipt heldur betur um útlit, er komið
í nýjar, silfurhtar umbúðir. Að sögn
framleiðandans hefur innihaldið
einnig verið endurbætt.
í fréttatilkynningu segir m.a. að
hlutfah jurtafeiti og fjölómettaðrar
fitusýru hafi verið aukið til helm-
ingja í hinu nýja smjörlíki. Þannig
er Silfurskeifan fyrr tilbúin til notk-
unar beint úr kæhskáp en sú eldri.
DV-mynd KAE/A.Bj.
Samstarf sem skilar þér
frábæm kaffi.
mmmmmwMaffi
sem ekki gengu út
síðasta laugardag, leggjast við
1. vinninginn núna.