Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGÚR 10. DESEMBER 1987. Sviðsljós DV Ólyginn sagði... V leikarinn frægi hefur lengi átt í erfiðleikum með að hætta að reykja. Nú hefur hann fundið lausn sem dugar hon- um oftast, en hún er heldur kostnaðarsöm. Jack var mjög gjarn á að fá sér sígarettu þegar hann talaði í símann en nú hefur hann tekið upp þann sið að rífa fimm og tíu dollara seðla í tætlur yfir sam- ræðum í símanum. Jack segist fá einhverja fróun út úr því sem nægi oftast til þess að halda honum frá sígarettunum. Þetta er bara heldur kostnaðarsöm aðgerð. Jack Nicholson Gitte Nielsen sem kom fram á nektarsíðum Playboy um daginn er síður en svo skilin að skiptum við það létta klámrit. Hún verður nefnilega á forsíðu jólaheftis- ins hjá Playboy og treður auk þess upp á miðsíðum blaðs- ins. Samtals mun það verða á um fimmtán síðum sem les- endur Playboy fá að berja hana augum. Hún er greini- lega ekki feimin við að sýna á sér skrokkinn enda er hún víst frekar montin af honum. Boy George gengur ekki allt í haginn um þessar mundir. Eins og Sviðs- Ijós hafði áður sagt frá eru hljómleikar hans í Evrópu mjög illa sóttir og hefur þurft að aflýsa nokkrum tónleikum. Einn stærsti plötumarkaður hans, Japan, hefur nú lokast fyrir honum því yfirvöld þar , ákváðu að banna plötur hans eftir að hann fékk dóm fyrir eitgrlyfjanotkun. Japans- markaðurinn var víst svipaður að stærð og Bretlandsmark- aðurinn svo strákurinn missir aldeilis spón úr aski sínum þar. trm* : ' ' , ‘ if'" ''; ££ .. > Svo er að sjá sem konur hafi verið í meirihluta þeirra sem fengu bók sína áritaða hjá Höllu Linker í Kringlunni DV-mynd GVA Viðburðaríkt líf Halla Linker, sem þekkt er hér á íslandi fyrir aö vera gift kvikmynda- gerðar- og ævintýramanninum Hal Linker, hefur nú gefið út endurminn- ingar sínar á bók og ber hún heitið „Uppgjör konu“. Þar rifjar hún upp líf sitt með eigin- manni sínum, sem hún missti fyrir nokkrum árum, og má segja að líf hennar með eiginmanninum hafi ítalski fatahönnuðurinn Litrico heldur á einni hugmynd sinni að breyttum leiðtoga. Símamynd Reuter Mikhail í módelfötum Raisa Gorbatsjov er þekkt fyrir að klæða sig á glæsilegan máta. Minna hefur borið á því að Mikail Gorbatsjov, leitoginn sjálfur, hafi lagt áherslu á að skarta sínu fegursta. Úr þessu vill ítalski tískuhönnuðurinn Franco Litrico bæta og hefur því sent sovéska leiðtoganum nokkrar hugmyndir sínar um klæðaburð sem hæfir honum. AUs eru þetta sjö hugmyndir um alklæðnaði sem Litrico sendir, hver öðrum glæsilegri. Raisa mun eflaust ýta þessum myndum að manni sínum til þess að hann slái Reagan út á þessu sviði en sumir vilja meina að það sé létt verk. verið ansi fjölbreytilegt. Hún hefur í Kringlunni og áritaði bók sína fyrir til dæmis komið til 147 landa á ferð- kaupendur og brá ljósmyndari DV um sínum með honum og er því sér þangað. líklegast ein víðfórlasta kona heims. Halla Linker var um síðustu helgi Sýnt víða um E vrópu Um síðustu helgi var tuttugu ára afmæli Kópavogskirkju haldið hátíðlegt. Kópavogskirkja þjónar tveimur prestaköhum, Kársnessöfnuði, sem séra Árni Pálsson þjónar, og Digranessöfnuði, sem séra Þorbergur Kristjánsson þjónar. Barnakór Kársnesskóla söng í kirkjunni á afmælisdaginn undir stjórn Þórunnar Bjömsdóttur. Söngur kórsins vakti það mikla athygh að hann var tekinn upp og mun verða sýndur á íslandi og víða um Evrópu á aðfangadags- kvöld á vegum Eurovision. Fimmtán fyrirtæki í Kópavogi færðu Kópavogskirkju höfðinglega gjöf í til- efni dagsins, konsertpíanó af gerðinni Dösendorfer frá Austurríki. Ekkert fyrirtæki í heiminum kvað framleiða betri konsertpíanó en þetta fyrirtæki. Söngur kórs Kársnesskóla vakti mikla athygli og voru tónleikarnir teknir upp fyrir sjónvarpsþátt sem stendur til að sýna á aðfangadagskvöld viða í Evrópu. DV-mynd GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.