Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu ' þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Á. skrifft - Dreiffing: Sjmi 27022 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987. Einkaflug 25% dýrara Einkaflug á íslandi verður fjórð- ungi dýrara eftir áramót verði ^pákvæði þess efnis í söluskattsfrum- varpi rfldsstjómarinnar samþykkt á Alþingi. Söluskattur, 25%, mun leggjast á einkaflugvélar og einnig eldsneyti fyrir þær. Söluskattur mun hins veg- ar ekki leggjast á flugvélar sem reknar eru í atvinnuskyni eða elds- neyti fyrir þær. Sportbátar fá einnig á sig 25% sölu- skatt. Bátar, sem gerðir eru út í atvinnuskyni, sleppa við skattinn. -KMU Sprengjuhót- nn á Hótel Esju Hringt var í Hótel Esju um klukkan hálftíu í gærkvöld og því hótað aö hótelið myndj innan tíðar verða sprengt í loft upp. Starfsmönnum Pósts og síma tókst að rekja símtalið. Þeir sem að sprengjuhótuninni stóðu voru handteknir skömmu síðar. Reyndust það vera unghngar og höfðu þeir gert þetta í fíflaskap sem reyndist bæði óþægilegur og dýr. Hótelið var ekki rutt né gripið til [imnarra ráðstafana vegna hótunar- innar. -sme Svefneyjamálið: Yfirtieyrslur að hefjast Guðmundur L. Jóhannesson, dóm- ari í Sakadómi Hafnaríjarðar, áætlar að yfirheyrslur í Svefneyjamálinu hefjist í næstu viku. Réttarhlé hefst 18. desember og stendur til 6. janúar. Guðmundur sagðist hefja yfir- heyrslur yfir aðilum í næstu viku »«komi ekkert sérstakt upp á. Meðferð' málsins hefur meðal annars tafist vegna fjarvista lögmanna ákærðu. Ekki er hægt aö segja til um hvenær Sakadómur Reykjavíkur mun ljúka meðferð málsins. -sme LITLA GLASGOW LAUGAVEGI 91 SÍMI20320. LEIKEÖNG City91 LOKI Missa ráðherrar ekki laun í verkföllum? Verkamannasambandið skorar á óll „Eg er viss um að ef verkalýðs- son, formaður Verkamannasam- félögin á Vestfjörðura ná samning- bandsins, í samtali við DV. um mun það flýta fyrir því að Guðmundursagðiaöbæðifélögin önnur félög fái samninga líka. Þó í Vestmannaeyjum hefðu átt við- efast ég um að hópbónusinn einn ræður við sína viösemjendur og dugi til að fiskvinnslufólk sam- einsfélagiðáHöfhíHomafirðisem þykki samninga, allavega ekki alls og nokkm' önnur félög. Því miður staöar. En nú éru nokkur verka- hefði frekar lítið komið út úr þess- lýðsfélög úti á landi byijuð viöræð- mn viðræöum enn sem komið er, ur í héraði og við skorum á öll félög en þó hefði eitthvað mjakast í atrið- innan Verkamannasambandsins um sem væru staðbundin á hverj- að leita eftir slfkum viðræðum," um staö fyiir sig. sagði Guðmundur J. Guðmunds- Aö sögn Guömundar hefur fram- færsluvísitafan hækkað um nær „Það er þvi deginum ijósara að 7% síðan verkafólk fékk laimabæ- um næstu áramót hefur fram- tumar 1. október. Því væri fjóst að fáersluvísitalan hækkað um i þaö kaupmáttm: lægstu launa hefði minnsta 10 stig síðan 1. október og lækkað um 5% síðan 1. október. fyrir það fást engar launabætur. Hann benti á að enn væru ýmsar Það þarf því verulega kauphækk- hækkanir ókomnar inn í mælingu, un, bara til þess að halda sama svo sem matarskattur ríkisstjóm- kaupmætti og var í haust og mun arinnar, sem kemur um næstu það ekki auðvelda komandi kjara- áramót, og fyrirsjáanleg hækkun á samninga," sagöi Guðmundur J. ýmissi opinberri þjónustu og síðast Guðmundsson. en ekki síst rafmagnshækkunin 1. -S.dór desember. Geymsluhúsið er tallð nánast ónýtt eftir brunann DV-mynd S 11 1 Geymsluhús skemmdist mikið af eldi Klukkan nítján í gær var slökkviliðið í Reykjavík kvatt út vegna mikiis elds í gömlu húsi við Faxaskjól. Þegar að var komið var mikill eldur í húsinu. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins en húsið, sem er gamalt geymslu- hús, er mikið skemmt ef ekki ónýtt. Slökkvfliðið var kvatt að menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi um klukkan 18.30. Nokkur reykur var þá í kjallara hússins. Kveikt hafði verið í blómaskreytingu. Grunur leikur á að unglingar hafi kveikt eldinn. -sme Veðrið á morgun: Þokumóða suðvest- anlands Á morgun verður hæg breytileg átt og skýjað á landinu. Sunnan- og vestanlands verður þokumóða og 4 til 6 stiga hiti en hitastigið verður á bilinu -3 til 3 stig á Norð- ur- og Austurlandi með dálitlum slydduéljum á annesjum norð- austanlands. Verkamannasambandið: Hyggst draga sig út úr kjara- rannsókna- nefhd Á formannafundi Verkamanna- sambandsins, sem haldinn verður í byijun næsta mánaðar, mun verða lögð fram tillaga þess efnis aö sam- bandið hætti þátttöku í kjararann- sóknanefnd. Mikil óánægja er innan sambandsins með það hvemig fyrir- tæki í landinu, ríkið og Reykjavíkur- borg, hunsa nefhdina og neita að gefa upplýsingar. „Það má segja að einungis laun verkafólks og afgreiðslufólks í versl- unum séu gefin upp og oft á tíðum eru upplýsingar þær sem starfsmenn kjararannsóknanefndar fá rangar. Síðan, ef það telst hagstætt, eru bæði ráðherrar og vinnuveitendur vitn- andi í niðurstöður kjararannsókna- nefndar sem ekkert er að marka. Þessu vill Verkamannasambandið ekki una og því mun tillaga um að hætta þátttöku koma fram á for- mannafundinum," sagði Guðmund- ur J. Guðmundsson í morgun . Guðmundur tók fram að ekki væri verið að gagnrýna starfsmenn kjara- rannsóknanefndar. Þeir væru vonbiðlar í fyrirtækjunum um upp- lýsingar og ættu hér enga sök. Það væru fyrirtækin, ríkið og Reykjavík- urborg sem ættu alla sökina. -S.dór Gjafabíllinn lagabrot? Samkvæmt upplýsingum Verð- lagsstofnunar í morgun sendi hún í gær bréf til Stöðvar 2 þar sem for- ráðamönnum stöðvarinnar er bent á að auglýsingaherferðin, þar sem áskrifendum er heitiö bíl og fleiri vinningum, geti verið lagabrot. For- ráðamönnum stöðvarinnar er gefinn kostur á að koma með ahugasemdir til stofnunarinnar til og með næsta mánudags.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.