Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Page 7
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
7
pv____________________________________________________________________Fréttir
Heilsugæslustoð SeHjamamess:
Hefur staðið ókláruð í fimm ár
„Hæðin, sem heilsugæslustöðin er
á, er um 1.000 fermetrar en þar af eru
um 700 fermetrar í notkun. Það er
eingöngu beðið eftir fjárveitingu frá
ríkinu til að klára verkið," sagði Sig-
urgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á
Seltjarnarnesi, en tæplega þriðjimg-
irn heilsugæslustöðvarinnar á Sel-
tjarnarnesi er enn ónýttur og eru
fimm ár nú liðin síðan lokið var við
aðra hluta stöðvarinnar. Þessi hluti
hefur staöið ónothæfur og vitaskuld
ekki skilað neinu til baka af því fjár-
magni sem þegar hefur verið til hans
varið. Húsnæðið er tilbúið undir
pússningu.
„Núverandi stærð á stöðinni er
vissulega nægileg fyrir okkur Sel-
tirninga en hugmyndin var að
afgangurinn þjónaði hluta Reykja-
víkur,“ sagði Sigurgeir. Hann bætti
því við að óljósar hugmyndir hefðu
verið uppi um hve stóru svæði í
Reykjavík stöðin ætti að þjóna en
rætt hefði verið um að það næði jafn-
vel niður að Suðurgötu.
Það er talið aö um 25 milljónir þurfi
til að koma þessum hluta í notkun
en af þvi á ríkissjóður að greiða 85%.
Við þetta myndi læknum stöðvarinn-
ar fjölga úr fjórum í átta.
„Eftir því sem ég best veit er þessi
stöð í tillögum heilbrigðisráðherra til
fjárlaga en óvíst er um afdrif hennar
þar,“ sagði Sigurgeir.
Ekki búið að skipta fjárveit-
ingu tii heilsugæslustöðva
I heilbrigðisráðuneytinu fengust
þær upplýsingar hjá Ingibjörgu R.
Magnúsdóttur að ekki væri búið að
skipta þeirri fjárveitingu sem til
heilsugæslustöðva á að fara þannig
að ekki væri ljóst hvort Seltjarnar-
nesstöðin fengi eitthvað í sinn hlut.
Það myndi skýrast í byijun næsta
árs. „Það er áhugi á því hjá ráðuneyt-
inu að klára þessa stöð því hún hefur
reynst vel,“ sagði Ingibjörg. Stöðin
þjónar nú 3.780 manns eða íbúum
Seltjarnaness en auk þess á stöðin
að þjóna 3.000 manns pr vesturbæn-
um. Sagði Ingibjörg að þetta fólk
leitaði þegar í miklum mæh til stöðv-
arinnar og væri það réttur fólksins
á meðan hægt er að taka við því.
-SMJ
SAMSUNG ORBYI GJIIOFN
.. -lú veitir ekki af góðri aðstoð
til að létta undir með jólabakstr-
inum og eldamennskunni.
Samsung 553T örbylgjuofninn er
einmitt rétti ofninn fyrir þig,
ekki of lítll, og ekki of stór.
17 lítra, 500 vatta með fimm
mismunandi hitastillingum og
snúningsdiski. Matreiðslunámskeið
fylgir að sjálfsögðu með.
13.900,-stgr.
JAPISS
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SiMI 27133