Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Síða 23
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
23
Um afkomu ferðaskrifstofa
- að gefhu tilefni
Á fjórðu síðu DV miðvikudaginn
2. des. sl. er aðalefni grein Olafs
Jóhannssonar blaðamanns hjá DV
um „tæpa stöðu ferðaskrifstofa af
millistærð".
Það er út af fyrir sig áhyggjuefni
hve stærstu ferðaskrifstofumar
virðast eiga greiðan aðgang að
fréttasíðum útbreiddustu daghlað-
anna fyrir sín sjónarmið. Hjá DV
hefur pistillinn venjulega verið
skrifaður af þeim blaðamanni sem
áður var starfsmaður annárrar
stærstu ferðaskrifstofunnar. Það
flokkast svo undir sofandahátt eða
sinnuleysi okkar, sem málið er
skylt, að litlar athugasemdir hafa
. verið gerðar við þau skrif og örugg-
lega enginn greiði við DV. Kanhski
þess vegna skrifa nú fleiri blaða-
menn DV í sama dúr.
Villandi blaðamennska
í áðurnefndri grein ÓJ her allt
að sama brunni:
- það er „slegist um sætin hjá
stærstu ferðaskrifstofunum“
- „smærri ferðaskrifstofur sjá sína
sæng uppreidda og setja sértilboö
á markaðinn"
- „væntanlegir kaupendur sumar-
leyfisferða leita fyrst til stærstu
ferðaskrifstofanna"
- „staða ýmissa ferðaskrifstofa af
millistærð er tæp“
- sem sagt, stærri ferðaskrifstofur
eru traustar, með eftirsótta vöru,
en þær minni „tæpar" með síður
seljanlega vöru. Þá þarf ekki lengur
að fara í grafgötur um hvar best
og öruggast er að versla. Eða hvað.
Ég vil nú samt leyfa mér að meta
þessar fullyrðingar út frá þeirri
ferðaskrifstofu sem ég þekki best
til, þ.e. Polaris:
- heildarsætanýting fullborgandi
farþega í leiguflugi Polaris 1987
var 92,9%. Hvað segja „heimild-
ir“ DV um stærstu ferðaskrif-
stofurnar?
- allar ferðaskrifstofur í leiguflugi
sl. sumar settu um takmarkaðan
tíma sértilboð á markaðinn, Pol-
aris reyndar síðust aUra, enda
bókanir góðar.
- bókanamunstur ferðaskrifstofa
fer að verulegu leyti eftir því
hvernig vara er á boðstólum og
til hvaða þjóðfélagshópa hún
höfðar. Hvað varðar Polaris er
KjáUaiinn
Karl Sigurhjartarson
forstjóri Ferðaskrifstofunnar
Polaris
t.d. verulegur munur á munstr-
inu eftir því hvort um Mallorca
eða Ihiza er að ræða. í reynd varð
svo betri afkoma 1987 á þeim
staðnum sem hægar bókaðist.
Varla telst það þó vísbending um
„tæpa stööu“ stærstu ferðaskrif-
stofanna sé það rétt að þeirra flug
hafi bókast hraðar í upphafi sölu-
tímabils.
Afkoma ferðaskrifstofa
Trúlega er íslensk skilgreining á
„stærstu" og „meðalstórum“ ferða-
skrifstofum einhvem veginn
svona: Stærstu: Samvinnurferðir-
Landsýn og Útsýn. Meðalstórar:
Atlantík, Ferðamiðstöðin, Polaris,
Saga, Terra, Úrval. Þar við bætist
Ferðaskrifstofa ríkisins sem ætti
að skilgreinast stór vegna öflugrar
þjónustu við erlenda ferðamenn en
tekur takmarkaðan þátt í slagnum
á íslenska markaðnum. Aðrar
ferðaskrifstofur skilgreinast litlar.
ÓJ virðist hafa „heimildir“ um
tæpa afkomu meðalstórra skrif-
stofa og þá væntanlega viðunandi
afkomu stærstu skrifstofanna.
Okkur em kunn dapurleg örlög
Terrn. Vonandi líður ekki á löngu
áður en það ágæta fólk, sem þar
starfaði nær að jafna sig. Hins veg-
ar er það ekki einkaréttur meðal-
stórra ferðaskrifstofa að fara á
hausinn, eins og dæmin sanna.
En eitthvaö virðast brenglaðar
„Varla telst það þó vísbending um
„tæpa stöðu“ stærstu ferðaskrifstof-
anna sé það rétt að þeirra flug hafi
bókast hraðar í upphafi sölutímabils.“
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 82., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987 á fasteign-
inni Bröttugötu 2, Borgarnesi, þinglesinnni eign Jóns S. Péturssonar, fer
fram að kröfu Sigurðar I. Halldórssonar hdl. á skrifstofu embættisins þriðju-
daginn 15. des. nk. kl. 10.30.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
BYGGINGALÓÐIR
Reykjavíkurborg hefur í hyggju að selja á næstunni
lóðirnar Klapparstíg 1 (Völundarlóð) og Laugaveg
148 (Timburverslun Árna Jónssonar).
Þeir sem áhuga hafa á kaupum skulu tilkynna það
framkvæmdastjóra lögfræði- og stjórnsýsludeildar,
Austurstræti 16, skriflega fyrir 18. desember nk.
Borgarskipulag, Borgartúni 3, veitir allar upplýsingar
um lóðarstærðir, byggingarmagn o.þ.h.
Reykajvík, 7. desember 1987,
borgarstjórinn í Reykjavik.
heimildir ÓJ um afkomu annarra
ferðaskrifstofa. Þar fékk að vísu
Öm Steinsen, fyrir hönd Sögu,
tækifæri til að tjá sig. Eftir því sem
ég kemst næst stefnir í hagnaö á
árinu 1987 hjá Atíantik, Ferðamið-
stöðinni og Polaris, svo sem
reyndar á síðasta ári. Hjá Úrvali
virðist vera verulega bætt afkoma
miðað við 2 síöustu ár.
Aðaltilefni þessara skrifa eru
reyndar fullyrðingar ÓJ um tap-
rekstur hjá Ferðaskrifstofunni
Polaris. Ábyrgðarlaus blaða-
mennska af þessu tagi getur valdiö
ómældu viðskiptalegu tjóni ef
lausafjárstaða fyrirtækisins er
ekki þeim mun sterkari og varðar
jafnvel við lög. Mér vitandi var
engin tilraun gerö til að leita stað-
festingar á „fréttinni" hjá starfs-
fólki Polaris. Ég setti mig í
samband viö fréttastjóra DV sl.
fimmtudag en fékk engin viðbrögð.
Ég fer því fram á að þetta bréf verði
birt á fjórðu síðu DV við fyrsta
tækifæri og óska jafnframt eftir
vandaðri skrifum um ferðamál á
síðum DV framvegis.
Karl Sigurhjartarson
Eigum ennþá á lager Husqvarna
skápa á „gamla verðinu“.
Stærðir 285 1-380 I og tvískiptir.
Skápar sem standast
gæðakröfur framtíðarinnar
Husqvarna
Vantar þig ísskáp eða frysti?
Verð kr. 1.875,00.
m m.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 Simt 9135200