Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Síða 34
34
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
FRANSKA VINNUKONAN
Hin fræga VATNSKNÚNA uppþvottavél var hönnuð handa ykkur
sem hafið lítið eldhús, skrifstofu eða hjólhýsi og sumarbústaði.
Það er kostur við gegnsætt lokið að þar má fylgjast með hvað
þvottinum líður.
CAROCELLE þvær rækilega diska eftir 6 manns á 10 mln., þvott-
ur og skolun meðtalin, tengist beint I krana I eldhúsvaski. Hún
þarf ekki nema nokkra dropa af fljótandi sápu. Til að þurrka þarf
ekki nema lyfta lokinu. Á hverri CAROCELLE þvottavél er tengi-
stykki fyrir kranann og slanga sem auðvelt er að tengja við.
SMÁSÖLUSTAÐIR
Þorsteinn Bergmann, Skólavörðustíg 36, Hraunbæ 102,
og flest kaupfélög.
Heildsölubirgðir
Þingholtsbraut 44 - símar 43969, 40354
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 82., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987 á fasteign-
inni Þorsteinsgötu 4, Borgarnesi, þinglesinni eign Guðbrands Geirssonar,
fer fram að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Sigurðar I. Halldórsson-
ar hdl. og Ólafs Axelssonar hrl. á skrifstofu embættisins þriðjudaginn 15.
des. nk. kl. 11.00.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Sandkorn
Upphefð að
utan
Verslunarráð íslands er
gagnmerk stofnun sem af
mörgum er talin eitt af höfuð-
vigjum Sjálfstæðisflokksins.
Annan desember sendi ráðið
út fundarboð þar sem 1307.
fundur stjórnar ráðsms var
boðaður. Dagskrá fundarins
var spennandi eins og gengur
með slíka fundi, fundargerð
síðasta fundar var lögð fram,
störf skrifstofu Verslunar-
ráðsins og verkefni framund-
an rædd, önnur mál og næsti
fundur ræddur. En það sem
vakti athygli í fundarboðinu
var kynning á gesti fundar-
ins. Hann átti að ræða um
stöðu ríkisfj ármála og horfur
framundan. Og ræðumaður-
bm: Jón Baldvin Hannibals-
son forsætisráðherra! Ekki
þar fyrir að margn töldu Jón
Baldvin renna hýru auga til
forsætisráðherraembættis-
ins fyrir kosningar og að
þama væri Verslunarráðið
aðeins að beita þýsku kurt-
eisisvenjunni að hækka
menn aðeins í tign í ávarpi.
Öðrum finnst þó sem Þor-
steinn Pálsson, forsætisráð-
herra og formaður Sjálfstæð-
isflokksins, hafl ekki verið
mjög ofarlega í hugum
manna þarna í höfuðvígi
flokksins, Verslunarráði ís-
lands, þegar fundarboðið var
samið.
Hver erhver
og hvur er
hvurs og hvur
á hvað?
En upphefð Jóns Baldvins
er ekkert einsdæmi því frétta-
og blaðamenn jafnt sem al-
menningur eru sífellt að
Steíngrímur Hermannsson, utanrík-
is-, forsætis-, viöskipta- hvaö?
rugla ráðherraembættunum
saman. Nýlega var Þorsteinn
forsætisráðherra títiaður
fjármálaráðherra í sjón-
varpsfréttum en þau mistök
voru leiðrétt skömmu síðar.
Alsiða er að kalla Steingrím
Hermannsson forsætísráð-
herra, enda gegndi hann því
embætti áður en núverandi
ríkisstjóm tók við auk þess
sem maðurinn er feikn vin-
sæll svo mönnum er nokkur
vorkunn. Þó tók steininn úr
þegar málgagn utanríkisráð-
herrans, Tíminn, fjallaði um
þetta vandamál í leiðara í
sunnudagsblaði 15. nóvemb-
er. Leiðarinn hefst á þessum
orðum: „Ekki leikurminnstí
vafiáaðekkiaðeinsfram- .
sóknarmenn em hrifnir af
Steingrími Hermannssyni.
Ótvírætt hefur komið fram
að þorri almennings í landinu
er sama sinnis. Enda kemur
ekki svo ósjaldan (!) fyrir að
menn gleyma að hann er ekki
forsætísráðherra heldur við-
skiptaráðherra!" Ekki að
furða þó framsóknarmenn
hafi átalið Jón Sigurðsson
fyrir að fara inn á verksvið
Steingríms þegar hann heim-
ilaði sex fiskvinnslufyrir-
tækjum að selja framleiðslu ~
sína á Bandaríkjamarkaði.
Okkar maður
ástaðnum
Útvarpsstöðin Stjaman
leggur áherslu á „öðmvísi“
fréttir eins og þeir kalla það.
Oft em fréttirnar í gaman-
sömum dúr, stundum snúið
út úr fréttum og málefnum
sem ekki þykja sérstakt
fréttaefni á blöðum og öðrum
fréttastofum er slegið upp
sem aðalfrétt. Nú er mál mál-
anna að sjálfsögðu leiðtoga-
fundurinn í Washington og
undirskrift afvopnunar-
samninga risaveldanna.
íslenskir fjölmiölar hafa vit-
anlega fylgst vandlega með
þessum málum og hafa DV,
sjónvarpið, útvarpið, Stöð 2
og Bylgjan sent menn til Was-
hington til að fylgjast með
gangi mála og heyrst hefur
að Mogginn hafi sent þangað
3-4 fréttamenn. Stjarnan vill
að sjáifsögðu ekki vera minni
fréttamiðill en aðrir og í
fréttatímum undanfarna
daga hafa hlustendur Stjöm-
unnar fengið að heyra
fréttapistía frá Úlfari Hró-
bjartssyni sem grannt hefur
fylgst með gangi mála í Was-
hington. Þarna er engu til
lpgið og hvergi prettað því
Úlfar mun hafa fylgst með
fréttum frá Washington í
gegnum Ríkisútvarpið og
Bylgjuna, sjónvarpið og Stöð
2 fyrir utan það að hann hef-
ur kannski fengið aðgang að
Reuterskeytum. Úlfar er
nefnilega staddur í Reykjavík
og hefur ekki yfirgefið klak-
ann til að skoða Reagan og
Gorbatsjov.
Átakanlegar
lýsingar með
kímnum und-
irtóni
Samkeppnin á jólabóka-
markaðnum er ákafleg hörð
og stundum óvægin. Þó for-
leggjarar séu yfirleitt mæt-
ustu vinir dags daglega þá
minna j ólin þá á að enginn
er annars vinur í leik og við-
skiptum. Menn berast nánast
á banaspjótum fyrir jólin í
áróðursstarfsemi og auglýs-
ingum eins og vera ber í
frjálsri samkeppni og reynir
hver forleggjarinn að slá
þann næsta flatan með
mergjuðum og safaríkum lýs-
ingum. Glæstastar verða
lýsingarnar á bókakápum og
í auglýsingum. Fyrir örfáum
árum kom upp ný lína í kápu-
textum og voru þar notaðar
meitlaðar og magnaðar lýs-
ingar á efni bókanna. Sumt
átti við en annað ekki. Nú er
svo komið að öll forlögin nota
nánast sömu lýsingarorðin á
öllum bókarkápum en breyta
kannski um röð á lýsingar-
orðunum eftir því sem þeim
finnst við eiga eða hvað þeir
hafa notað á fyrri bókum. Það
er dálítíð skondið að allar
bækumar eru ritaðar á eink-
ar læsilegan (kíminn,
næman, hressfiegan) hátt,
sagan lýsir á alvöruþrunginn
(kíminn, spennandi, hressi-
legan, vandaðan) máta
skemmtilegum (kímnum, *
spennandi, blendnum, al-
vöruþrungnum) atburðum
en samt er undirtónninn
kíminn (alvöruþrunginn,
ljúfur, mannlegur, bein-
skeyttur, spennandi, trega-
blandinn, magnaður) og víst
er að sagan heldur lesandan-
um hugfóngnum (spenntum).
Þennan kjörgrip sem fólk á
öllumaldrilessértil
skemmtunar og fróðleiks á
áleitinn og áhrifamikinn hátt
má ekki vanta inn á neitt
heimili landsins fyrir þessi
jól (páska, sumarfrí, hvíta-
sunnu, brúðkaup, afmæh,
mæðradag).
Umsjón:
Axel Ammendrup
8*^53
Jólagetraun DV - 3. hluti:
Hvar er jólasveinninn?
Nú er jólasveinninn orðinn kolruglaður. Hann þeytist milli staða
og útbýtir gjöfum en veit sjaldnast hvar hann er staddur. Svo er einn-
ig að þessu sinni. Og enn er hann hundóánægður með farartækið.
Nú þarfhann nefnilega að þvælast um á skringilegum báti, sem kallað-
ur er kanó, en hann nota innfæddir til ferðalaga. Það er ekki laust
við að jólasveinninn sé sjóveikur en hann verður bara að harka af sér.
Þið merkið við rétt svar á seðlinum, khppið hann út og geymið þar
til allir tíu hlutar getraunarinnar hafa birst. Þá eru þeir sendir í einu
umslagi til DV, Þverholti 11,105 Reykjavík, merkt „Jólagetraun“.
Og það eru sextán glæsilegir vinningar sem bíða þess að verða dregn-
ir út. Heildarverðmæti þeirra er rúmar 130.000 krónur.
En spurningin að þessu sinni er: Hvar var jólasveinninn staddur?
■
: V '■ ■ -. V
■:
Þessi glæsilegi ferðageislaspilari er einn vinninganna í Jólagetraun
DV. Það fer ekki mikið fyrir honum en hljómgæðin eru ótrúleg. Og
verðiö er 27.720 krónur.
Amason NAFN: Lagarfljóti Volgu
HEIMILISFANG:
SÍMI:
*li|-Í4á-iÍ4 é éá- J