Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Side 35
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
35 *"■
Bólu-Hjálmar
Eysteinn Sigurðsson.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur
gefið út ritið Bólu-Hjálmar eftír dr.
Eystein Sigurðsson en það fjallar um
ævi og skáldskap Hjálmars Jónsson-
ar frá Bólu og skiptist 1 tíu megin-
kafla: Uppruni og yngri ár,
Hjónaband og fyrstu búskaparár,
Kveðskapur fram imi 1829, Um form
og stfl, Rímnaskáldiö, Bragarhættir
og stfll rímna, í Blönduhlíð, Ljóða-
gerð fram tfl 1853, Kveðskapur eftír
1853, Að lokum.
Eysteinn gerir svofellda grein fyrir
verki sínu í formála: „Markmið mitt
við vinnuna að þessu verki hefur
verið tvíþætt. í fyrsta lagi hef ég vilj-
að taka saman yfirht um skáldskap
Hjálmars, einkenni hans og stöðu í
bókmenntasögunni, sem gæti komið
bókmenntafræðingum, kennurum
og öðrum sérfræðingum að gagni. í
öðru lagi hef ég sett mér það djarf-
lega markmið að skrifa þetta jafn-
framt sem bók um Hjálmar fyrir alla
almenna lesendur.
Bólu-Hjálmar er 313 blaðsíður að
stærð og er bókin skreytt allmörgum
myndum. Að lokum eru skrár yfir
mannanöfn og kvæði og önnur skáld-
verk. Verð kr. 2.250.
Al Pertins smskfilaði bYrjmHu I wm
Andrís KnstjSnsson islonskaöi
Dagfinnur dýraiæknir og sjó-
ræningjarnir
umskrifuð fyrir byrjendur i lestri
Andrés Kristjánsson íslenskaði.
Öm og Örlygur hafa hleypt af
stokkunum bókaflokki fyrir byijend-
ur í lestri og ber hann samheitið
byrjendabækur. Fyrsta bókin er end-
urútgáfa á hinni sívinsælu bók
Dagfinnur dýralæknir og sjóræn-
ingjamir sem kom út fyrir tíu árum
og var fyrir löngu uppseld og mikið
eftir henni spurt.
Byijendabókunum er ætlað að
höfða beint í hugarheim bamanna,
með tilstyrk efnis og útlits. Glettin
og gáskafull ævintýri með fallegum
boðskap em auðskilin og auðlesin
og hinar litríku teikningar em þann-
ig úr garði gerðar að þær „segja“
jafnvel ólæsum bömum söguna.
Verð kr. 490.
Spaugsami spörfuglinn
Þröstur Sigtryggsson skiphcrra
lýsir lifshlaupi sínu í léttum dúr
Sigurdór Sigurdórsson blaðamað-
ur skráði.
Þröstur Sigtryggsson skipherra
hefur starfað hjá Landhelgisgæsl-
unni í hartnær 40 ár og sem sjómaður
nokkuð lengur. Nú em endurminn-
ingar hans komnar út hjá Emi og
Örlygi, skráðar af Sigurdóri Sigur-
dórssyni blaðamanni.
Þröstur hefur frá mörgu að segja,
allt frá grátbroslegum atvikum í
landlegum til grafalvarlegra atburða'
þegar átökin vora sem hörðust um
landhelgina. Þröstur er virtur skip-
herra og tekur starf sitt alvarlega,
en hann er jafnframt húmoristi og
sögumaður eins og þeir gerast bestir.
Hann er einn þeirra fáu manna sem
alltaf sjá spaugilegu hliðamar á tfl-
verunni. Þröstur Sigtryggsson hefur
þann sjaldgæfa eiginleika íslensks
húmorista að geta einnig gert grín
að sjálfum sér. Þaö gerir hann í þess-
ari minningabók sinni. Hann segir
líka drepfyndnar sögur af skemmti-
legum samferðamönnum sínum tfl
sjós og lands.
Verð er kr. 1.990.
Heiður í húfi
Fijálst framtak hf. hefur gefiö bókina
Heiður í húfi eftir breska rithöfund-
inn Jeffrey Archer. Bókin nefnist á
frummálinu A Matter of Honour og
kom fyrst út í Bretlandi í fyrra.
Höfundur bókarinnar, Jeffrey Arc-
her, er í hópi vinsælustu rithöfunda
í heimi og kvikmyndir og sjónvarps-
myndaflokkar hafa verið gerðir eftir
flestum bóka hans.
Söguþráður Heiður í húfi er í ör-
stuttu máli á þessa leið: Adam Scott
fær í hendur gulnað umslág þegar
erfðaskrá foður hans er lesin upp. í
kjölfar þess gerast ótrúlegir atburðir.
Það hafði alla tíð hvílt skuggi yfir
starfsferli foður hans í hernum en
enginn vissi hver raunveruleg
ástæða þess var. Þegar Adam Scott
kemst á snoðir um leyndarmál föð-
urs síns er eins og sprengju hafi verið
kastað. Bókin er 388 bls. Verð kr.
1.495.
Nýjarbækur
Dýrin á bænum og Tommi
er stór strákur
Bókaútgáfan Björk hefur nýlega sent
frá sér tvær nýjar bamabækur. Þær
em báöar prentaðar í Prentverki w
Akraness h/f og era í fjómm litum.
Dýrin á bænum er nr. 18 í bóka-
flokknum: Skemmtilegu smá-
barnabækurnar. Bókin segir frá
henni Kötu - htlu stúlkunni á sveita-
bænum - og samskiptum hennar viö
dýrin, einkum ungviðið. Stutt lesmál
er á hverri opnu ásamt fallegum ht-
myndum af dýrum sem bömum era
svo hugleikin. Verð kr. 288.
Tommi er stór strákur er nr. 19 í
sama bókaflokki hinna yngstu les-
enda. Hún segir frá Tomma sem vill
verða stór strákur sem ahra fyrst, - *
einnig leikjum hans, störfum og nán-
asta umhverfi. Verð kr. 288.
PHILCO A HORKUGOÐU VERÐI.
Þvottavél fyrir kr. 29.870.-*
og þurrkarinn fyrir kr. 23.600.-
Philco 421 þurrkarinn.
Philco þurrkarinn tekur 5 kg af þurrþvotti
sama magn og þvottavélin. Hann er
einfaldur í notkun; þu velur á milli 3
sjálfvirkra þurrkkerfa sem henta öllum
tegundum þvottar. Þurrktími getur
varað allt að tveimur klst. auk átta
mínútna kælingar í lok þurrkunar.
Philco w 393 þvottavélin.
Ytri belgurinn sem er úr ryðfríu stáli gerir
Philco að enn betri og öruggari
þvottavél en áður. Vélin vindur með
allt.að 1000 snúninga hraða á mínútu.
Hún hefur stóran þvottabelg og tekur
inn á sig bæði heitt og kalt vatn.
Þannig sparast umtálsverð orka.
Hægt er að láta þurrkarann standa ofan á þvottavélinni
- það sparar þér dýrmætt rými og eykur vinnuhagræði.
Á vélunum er öryggisbúnaður sem tryggir þér betri endingu og lægri viðhaldskostnað.
Að síðustu má ekki gleyma að vélarnar heita Philco
og eru frá Heimilistækjum. Þaðtalarsínu máli.Traustnöfn, sanngjarnt verð og örugg þjónusta.
Láttu Philco skila þér þvottinum hreinum og þurrum - engar snúrur, engar áhyggjur.
Við erum sveigjanlegir í samningum.