Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Qupperneq 42
42
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
Merming
••
Orstutt og lystaukandi
Næstsíöustu Háskólatónleikar á
árinu voru í Norræna húsinu í
hádeginu í gær. Kom þar fram til-
tölulega óvenjulegt tríó, þ.e. klarí-
nett, fagott og píanó, og flutti
sjaldheyrða musík eftir Beethoven
og GUnka.
Þetta voru hinir ágætu hljóð-
færaleikarar Anna Guðný Guö-
mundsdóttir píanisti, klarínettist-
inn Sigurður Ingvi Snorrason og
fagottleikarinn Björn Th.,Ámason.
Maður veit sosum ekki hvort þetta
góða fólk æfir saman að staðaldri
en það var verulegur fengur að
heyra þá Sigurð og Bjöm flytja Duo
f. klarínett og fagott eftir Beetho-
ven. Stíll þeirra beggja er hreinn
og beinn og án sérstakrar tilfinn-
ingasemi og naut hann sín ágæt-
lega í þessu annars fremur
ómerkilega verki. En svo kom Tríó
Pathétique eftir Michel Ivanovíts
Glinka, langafa rússneskrar nú-
tímatónlistar og uppáhald Jósefs
sáluga Stalíns. Þetta verk er ekkert
sérlega patetískt, heldur Ijómandi
falleg og elskuleg „serenaða" með
talsverðum ítölskum áhrifum,
enda samið í Mílanó 1832. Og þama
fóm þeir Sigurður og Bjöm á kost-
Tónlist
Leifur Þórarinsson
um, inspíreraðir af skemmtilegum
GUnka og frábærum píanóleik
Önnu Guðnýjar.
Þessir hádegistónleikar í Nor-
ræna húsinu eru næstum orðnir
vikulegur viðburður, á miðviku-
dögum. Þar hefur að vísu margt
misjafnt heyrst í vetur en stundum
eru þetta, eins og í gær, tónleikar
í háum gæðaflokki, örstuttir og
lystaukandi.
LÞ
Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigurður I. Snorrason.
ígærkvöldi
Jón Trausti Leifsson:
Fórnaði Mannslíkamanum
Það fyrsta sem ég melti af dag-
skrá gærkvöldsins yar fréttatími
Ríkissjónvarpsins. Ég tek hann
fram yfir fréttatíma Stöðvar 2 sem
mér finnst heldur leiðigjarn, Rikis-
sjónvarpið er hnitmiðaðra í frétta-
flutningi.
Á Morðgátu reyni ég alltaf að
horfa, það emléttir og skemmtileg-
ir þættir. Vanalega horfi ég á
þáttinn um Mannslíkamann en ég
fómaði honum að þessu sinni fyrir
þáttinn Á tali með Hemma Gunn.
Hemmi Gunn. finnst mér vera frá-
bær útvarpsmaður en mér finnst
hann vera síðri í sjónvarpi. Þáttur
hans í gærkvöldi var þó óvenjugóð-
ur.
Þættimir um Mannslíkamann á
Stöð 2 bæta mjög ímynd hennar og
gera hana aö alvarlegri sjónvarps-
stöð. Ég er mikill áhugamaður um
djass og horfði því á djassþátt
Stöðvar 2, enda hef ég afruglara.
Þátturinn í gær var mjög góður.
Kolkrabbinn í Ríkissjónvarpinu
höfðar ekki til mín frekar en aðrir
framhaldsþættir þannig að ég lét
djassinn verða það síðasta sem ég
sá í sjónvarpi í gær.
Bíómyndina á Stöð 2 með AI Pac-
ino var ég búinn að sjá áður, hún
hafði gengiö lengi á myndbanda-
leigum. Ég nennti því ekki að sjá
hana aftur en hún var mjög góð.
Fyrir svefninn hlustaði ég lítillega
á næturútvarp Bylgjunnar en þá
stöð kýs ég helst af útvarpsrásun-
um. Á Bylgjunni er mjög skemmti-
legur mannskapur.
Fréttir
Kvosarskipulag:
Skipulagsstjórn ítrekar fyrri samþykkt
Tarðarfarir
Mans K. Matthíasson, Orrahóli, er
látinn. Foreldrar hans vom Matthías
Ólafsson og Pálína Dagsdóttir. Hans
giftist Sigríði Halldórsdóttur og eign-
uðust þau saman fimm böm. Útför
Hans verður gerð frá Staðarfelli í dag
kl. 14.
Guðrún Guðnadóttir, frá Eyjum í
Kjós, andaðist í Landspítalanum að-
faranótt 4. desember. Útfor hennar
fer fram frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 14. desember kl. 13.30.
Gunnhildur Sif Gylfadóttir verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni laugar-
daginn 12. desember kl. 14.
Guðmundur Ólafsson, Miðsandi,
Hvalfjarðarströnd, verður jarðsung-
inn frá Hallgrímskirkju í Saurbæ
^augardaginn 12. desember kl. 14.
Gunnhildur Árnadóttir, Bólstaðar-
hlíð 5, Reykjavík, sem andaðist 29.
nóvember, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju föstudaginn 11. des-
ember kl. 15.
Thora Margrethe Kristjónsson,
Hlíðartúni 6, Mosfellsbæ, sem lést 3.
desember, verður jarðsett frá Lága-
fellskirkju laugardaginn 12. desemb-
er kl. 14.
Sigurður Sigurðsson, fyrrverandi
vigtarmaður frá ísafirði, sem andað-
ist 4. desember á Hrafnistu í Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Áskirkju
fostudaginn 11. desember kl. 15.
Tilkyimingar
Sýningu Leós lýkur
á laugardag
Vegna ófyrirsjáanlegra anna í veislu-
höldum á Hótel Borg lýkur málverkasýn-
ingu Leós Antons Amasonar fyrr en
ætlað var eða á laugardag, 12. þ.m., kl.
19. Gífurleg aðsókn hefur verið aö sýn-
ingunni og fjöldi mynda selst.
Dönsk jólastemmning í Óð-
insvéum
Nú er á boðstólum í veitingahúsinu Óð-
insvéum við Óðinstorg hefðbundið
danskt jólahlaðborð „Dansk julefrokost"
er samanstendur af fjölda danskra rétta
sem eru hver öðrum betri og jafnvel for-
vítnilegir sumir.
Lögfræðiaðstoð laganema
Orator, félag laganema, er með ókeypis
lögfræðiaðstoð fyrir almenning á
fimmtudagskvöldum kl. 19.30-22 í síma
11012. Kvöldið í kvöld er það síðasta fyrir
jólafrí. Hefst aftur fimmtudaginn 7. jan-
úar.
Kvennadeild Rangæinga-
félagsins
er með kökusölu og fatamarkað í félags-
heimili Óháða safnaðarins við Háteigs-
veg nk. laugardag kl. 13.30.
Fundir
Fræðslufundur Sörla
verður haldinn í kvöld, fimmtudags-
kvöld, í íþróttahúsinu við Strandgötu í
-fíafnarfirði. Fundurinn hefst kl. 20. Sig-
urbjörn Bárðarson flytur erindi um
fóðrun og vetrarþjálfim hrossa. Sýndar
verða videomyndir um helstu viðburði
sumarsins. Kaffiveitingar.
Alþýðubandalagið:
Vill rann-
sóknarnefnd
um flugstöð
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
hefur ákveðið að flytja tillögu um að
kosin verði sjö manna rannsóknar-
nefnd þingmanna sem kanni bygg-
ingarsögu flugstöðvarinnar á
Keflavíkurflugvelli og sérstaklega
ábyrgð fyrrverandi íjármálaráö-
herra og utanríkisráðherra og hvort
hún sé þess eðlis að þeir geti gegn,t
opinberum störfum, samkvæmt upp-
lýsingum sem DV fékk hjá Ólafi
Ragnari Grímssyni, formanni Al-
þýðubandalagsins.
Ólafur segir ljóst á skýrslu Ríkis-
endurskoðunar að þær ákvarðanir
sem leiddu til hækkunar byggingar-
kostnaðar hafi verið teknar á valda-
tíma fráfarandi utanríkis- og
íjármálaráðherra. -ój
Skipulagsstjórn ríkisins sam-
þykkti í gær svör sín til félagsmála-
ráðherra vegna erindis eins
stjómarmanna, Guðrúnar Jónsdótt-
ur arkitekts, þar sem lagt er til að
ráðherra leggi skipulagið fyrir skipu-
lagsstjórn að nýju. Skipulagsstjórn
í DV miðvikudaginn 9. desember
1987 birtist á bls. 34 klausa sem ber
yfirskriftina „Kvosarskipulag ekki
samþykkt“.
Blaðamaður sá sem ritað hefur
þessa frétt fer í henni með staðlausa
stafi þar sem hann segir m.a. að fé-
lagsmálaráðherra hafi neitað að
staðfesta samþykkt skipulagsstjórn-
ar á tillöguuppdrætti að skipulagi
Kvosarinnr í miðbæ Reykjavíkur og
samþykkti með tveimur atkvæðum
gegn einu að ítreka fyrri samþykkt
um skipulagið. Var hér um að ræða
svör við einstökum efnisatriðum
skipulagsins og svör við athuga-
semdum um málsmeðferð.
Sigurgeir Sigurðsson og Garðar
að ráðherra telji skipulagið ófrágeng-
ið og ábótavant í mörgum veigamikl-
um atriðum og hafi lagt til að máhð
verði tekið upp að nýju í skipulags-
stjórn.
Hið rétta er að félagsmálaráðherra
hefur óskað eftir umsögn skipulags-
stjórnar ríkisins um erindi og grein-
argerð Guðrúnar Jónsdóttur
arkitekts, dags. 14. nóvember sl., og
er þess vænst að hún berist ráðherra
Halldórsson greiddu atkvæði með
samþykktinni, Guðrún Jónsdóttir
greiddi atkvæði á móti en Hermann
Guðjónsson og Helgi Hahgrímsson
sátu hjá.
-JBj
næstu daga.
Það skal sérstaklega tekið fram að
blaðamaður DV, sem samið hefur
umrædda frétt, hefur aldrei haft
samband við félagsmálaráðherra eða
starfsmenn ráðuneytisins um þessi
mál. Heimildir fréttamannsins eru
því fengnar annars staðar frá.
Lára V. Júlíusdóttir
Athugasemd vegna Kvosarskipulags:
Ráðhenra óskaði eftir umsögn
t
ÞAKKARÁVARP
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
fráfall og útförtengdaföður míns,
afa okkarog langafa
JÓNS BJÖRNSSONAR
tónskálds frá Hafsteinsstöðum
Eater H. Skaptadóttir
SkapU Steinbjörnsson
Ragnheiöur Steinbjörnsdóttir
SigriAur Steinbjörnsdóttir
Björn Steinbjörnsson
Jón Steinbjörnsson
Hildur Claessen
Þorsteinn Birgisson
Amnesty Intemational:
Listmunauppboð á Borginni
I tilefni af 10. desember, sem er
alþjóðlegur mannréttindadagur
Sameinuðu þjóðanna, munu samtök-
in Amnesty Intemational gangast
fyrir hátíðardagskrá og hstmuna-
uppboði á Hótel Borg. Dagskráin
hefst kl. 20.30 og veröur sem hér seg-
ir:
★ Formaður íslandsdeildar Am-
nesty International, Ævar Kjart-
ansson, setur dagskrána.
★ Thor Vilhjálmsson, formaður Pen
klúbbsins, flytur ávarp.
★ Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanó-
leikari og Sigurður Bragason
barítonsöngvari ilytja valin lög.
* Gaherí Borg annast hstmunaupp-
boð. Uppboöshaldari verður Úlfar
Þormóðsson.
★ Bubbi Mortens flytur lög af nýju
plötunni sinni, DÓGUN.
Á hstmunauppboðinu veröur aö
finna verk bestu hstamanna þjóðar-
innar sem með framlagi sínu styðja
starfsemi íslandsdehdarinnar af
höfðingsskap. Sama gildir um þá
listamenn sem koma fram. Þá heldur
Gallerí Borg uppboðið samtökunum
að kostnaðarlausu.
Á hðnum árum hefur íslandsdehd
Amnesty International haldið þenn-
an dag hátíðlegan með opinberum
samkomum til þess að minnast þess
að Mannréttindayfirlýsing Samein-
uðu þjóðanna var undirrituð þennan
dag árið 1948 eða fyrir 39 árum. Sam-
tökin vilja minna almenning á efni
þessa sáttmála og vekja athygli á
starfi Amnesty en þaö byggist á þess-
ari yfirlýsingu.
Almenningi er bent á að listaverkin
verða til sýnis í Gaherí Borg 9. og 10.
desember.