Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. DV leitar að fyrirsætum fyrir Ford Models: Fjórar íslenskar stúlkur hafa náð frama eftir þátttöku í Fordkeppninni ur enn verið ákveðinn dagur eða staður. Sigurlaunin eru 250 þúsund dalir en það samsvarar næstum tíu milljónum íslenskra króna. Það þykja aldeilis ekki neinir smáaurar. Einnig fær sigurvegarinn ýmsar gjafir, svo sem demantshálsmen og pels. Þá er auðvitað tryggður þriggja ára samningur við Ford Models. Frægustu fyrirsætur í heimi voru uppgötvaðar af Eileen Ford og má þar nefna Jeryl Hall, unnustu Mick Jaggers, auk margra annarra. Tvær af þekktustu fyrirsætum íslands störfuöu fyrir Ford Models, þær María Guðmundsdóttir og Guðrún Bjamadóttir. Það er því til mikils að vinna að komast á samning hjá Ford Models. Þær stúlkur, sem hafa lagt fyrir sig fyrirsætustörf án hjálpar, hafa oft þurft að ganga lengi á milh ljósmynd- ara og eyða stórfé í aö láta mynda sig því að mappa með góðum ljós- myndum er helsta von tii að komast áfram. Með því að taka þátt í Ford- keppninni er hægt að spara sér þá fyrirhöfn því að Eileen Ford sér um þær stúlkur sem hún tekur á samn- ing. Fjórar íslenskar stúlkur, sem tekiö hafa þátt í Fordkeppninni hér heima, eru nú starfandi fyrirsætur. Sú fimmta, Lilja Pálmadóttir, var einnig starfandi um nokkurt skeið í Banda- ríkjunum. Við hittum þrjár þessara stúlkna milli jóla og nýárs og spjöll- uðum við þær. Það eru Helga Melsted, Valgerður Backman og Andrea Brabin. Þær voru þá allar heima í jólafríi. Inga Bryndís Jóns- dóttir, sem vann fyrstu keppnina hér á landi, var því miður ekki með en hún er einnig starfandi fyrirsæta. Sendið myndina ásamt upplýsing- ar um nafn, heimilisfang, símanúm- er og aldur í umslagi merktu: Fordkeppnin, Helgarblað DV, Þver- holti 11, Pósthólf5380,125 Reykjavík. -ELA Fyrirsætustörf á erlendum vettvangi hafa löngum þótt eftirsóknarverð en erfitt getur reynst að nálgast þau. Ein þekktasta umboðsskrifstofa í heimi á því sviði er Ford Models í New York. Frá því 1980 hefur Ford Models haldið mikla keppni fyrir fyr- irsætur í New York, keppni sem miUjónir manna fylgjast með í beinni útsendingu sjónvarpsstöðva í Banda- ríkjunum. Nokkrar íslenskar stúlk- ur hafa verið svo heppnar að eiga kost á því að taka þátt í þeirri keppni og fjórar hafa náð starfssamningum. Ein þeirra, Helga Melsted, átti að vera sigurvegari keppninnar en neit- aði alfarið þar sem hún taldi sig þá vera skylduga til að starfa í Banda- ríkjunum í þrjú ár. Helga, sem þá var aöeins sautján ára, vildi heldur fara aftur heim til íslands. Nú er hún vel þekkt sýningarstúlka í Hollandi og Þýskalandi og vegnar mjög vel. Fulltrúar í Fordkepþnina eru vald- ir í 25-30 londum. Hér er ekki um eiginlega fegurðarsamkeppni að ræða því að meginmáli skiptir að stúlkurnar myndist vel og í húfi eru atvinnutUboð, hvort sem er í New York, Ástralíu eða Evrópu. Undanfarin ár hefur Vikan séð um að leita eftir fulltrúum fyrir íslands hönd og komið þeim á framfæri við Eileen Ford, upphafsmanns Ford Models, og dóttur hennar, Lacey Ford, sem nokkrum sinnum hefur komið til íslands. Nú hefur DV tekið við af Vikunni aö kynna og sjá um Fordkeppnina og er henni hér með komiðafstað. Þær stúlkur, sem áhuga hafa á að gerast fyrirsætur erlendis, ættu að notfæra sér þetta tækifæri og senda okkur mynd af sér fyrir 9. febrúar nk. Myndirnar verða síðan sendar út til umboðsskrifstofu Ford Models og þar munu þær mæðgur, Eileen og Lacey, velja fimm tU sex stúlkur sem keppa munu til úrslita hér heima. Við það tækifæri kemur hing- að til lands fulltrúi frá Ford Models og velur sigurvegara. Síðast urðu tvær stúlkur sigurvegarar, þær Val- gerður Backman og Andrea Brabin. Aðalkeppnin fer fram á Ítalíu eða í Bandaríkjunum í sumar. Ekki hef- Valgerður Backman, Helga Melsted og Andrea Brabin starfa allar sem fyrirsætur erlendis og gengur mjög vel. Þær hafa allar verið sigurvegarar í Ford- keppninni. DV-myndir Kristján Ari. Andrea Brabin, sigurvegari 1986: „Heppnin er með mér“ - Andrea hefur náð langt í London, París og New York Andrea Brabin fékk starfssamning við Ford Models eftir að hún var kjörin sem annar sigurvegari keppn- innar hér á landi 1986. Einnig tók hún þátt í aðalkeppmnni sem fulltrúi ís- lands. Hún tók þátt í Fordkeppninni hér heima að tilhlutan Unnar Arn- grímsdóttur en Andrea var í Módel- sámtökunum. „Ég fór fyrst út til New York eftir úrslitin hér heima, ásamt Valgerði, í myndatökur. Kom síðan aftur heim í stuttan tíma en var þá send út til Englands. Þar var ég í starfi í átta mánuði en hélt þá til Paiásar. í London vann ég bæði sem sýningardama á tískusýningum og sem fyrirsæta og gat því safnað myndum sem ég átti ekki. Strax þeg- ar ég kom til Parísar fékk ég nóg að gera og komst bæði í Vouge og Elle. Þar var ég fram að aðalkeppninni í New York og eftir keppnina fór ég aftur til Parísar til að ljúka verkefni. Það tók aðeins tvær vikur og síðan flaug ég aftur til Bandaríkjanna. Ég hef verið heppin, hef það mjög gott, með eigin íbúð, góð laun og nóg að gera,“ sagði Andrea. Andrea er nú aftur komin til New York en núna í janúar fer hún yfir til Ástralíu til að vinna. „Þar verð ég í tvo mánuöi. Mér finnst starfið mjög skemmtilegt, sérstaklega að hitta allt þetta fólk.“ Andrea er 19 ára og segir að hún hafi verið 16 ára þegar hún fékk fyrst áhuga á sýningar- og fyrir- sætustörfum. - Myndiröu ráðleggja öðrum stúlkum að taka þátt í þessari keppni? „ Já, ég myndi gera það. Maður verður fyrst og fremst að vilja það sjálfur. Starfið krefst þess að maður sé mikið í burtu frá ættingjum og þaö er mjög kröfuhart og erfitt. Maöur verður að vera sterkur. Maður sér spillinguna í kringum sig og síðan fer það eftirpersónum hvað þær eru sterkar. I New York er vinnan ákveð- in og miklir peningar eru í boði. Maöur hittir margt frægt fólk þar sem maður fer og starfið er ákaflega fjölbreytt," sagöi Andrea enn frem- ur. Hún sagði að nánast væri vonlaust aö fara til New York í leit að starfi ef ekki væri einhver hjálp. „Þegar ég kom út var tekið á móti mér og ég fékk að búa hjá Eileen Ford í fríu húsnæöi og fæði og allt var gert fyrir mig. New York er eins og hún er og það er gott að hafa öruggt skjól á meðan maður er aö læra að þekkja umhverfið," sagði Andrea Brabin sem að öllum líkihdum á mikið eftir að láta að sér kveða á þessum vett- vangiánæstuárum. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.