Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Page 9
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. 9 Mynd sem tekin var af Valgerði Backman fyrir timarit á ítaliu. Sannarlega góð fyrirsæta eins og myndin sýnir. Andrea Brabin er mjög eftir- sótt fyrirsæta enda myndast hún ákaflega vel. Hún hefur náð frama i London, Paris og New York og er nú á leið til Ástralíu. Hún er nitján ára og getur þvi náð langt á næstu árum. i Valgerður Backman, sigurvegari Ford 1986: Draumininn er^að komast til Tokýo Valgerður Backman bar sigur úr býtum í Fordkeppninni 1986. Hún segir að þaö hafi verið vinkona henn- ar sem hvatti hana til að taka þátt í keppninni. „Hún bað mig nokkur ár í röð að taka þátt í þessari keppni en ég neitaði því, taldi mig ekki eiga neina möguleika. Ég lét undan árið 1986 og sendi inn mynd og síðan var haft samband við mig og mér tjáð að ég hefði verið valin fulltrúi íslands. Auk mín var Andrea Brabin valin,“ sagöi Valgerður. „Eftir valið fór ég til New York í boði Ford Models og dvaldi þar í viku, aðallega í mynda- tökum. Ég var að ljúka við stúdents- próf um þetta leyti og hafði því ekki áhuga fyrir frekara starfi fyrr en eft- ir skóla. Ég var í Menntaskólanum í Hamrahlíð og lauk prófi um jóhn 1986. Eftir það fór ég til Brasilíu, að beiðni Ford. Þar sem mér fannst þaö spennandi land sló ég til. Ég var þar í tvo og hálfan mánuð og fékk mikla reynslu eri starfið var ekki mjög spennandi. Þarna var mikil fátækt og allt óskipulagt. Ég var með um- boðsskrifstofu og hún sendi mig á hina ýmsu staði. Ég bjó hjá umboös- manni Ford ásamt fleiri sýrúngar- stúlkum og borðuðum við með fjölskyldunni og vorum þar eins og heima hjá okkur. Ekkert var hægt aö fara út á kvöldin og ég var ein- angruð en gat þó skroppið til Ríó. Þetta var mikil upplifun enda hef ég alltaf haft gaman af ferðalögum," sagðiValgerður. Eftir dvöúna i Brasiúu hélt hún aftur heim og fékk sér vinnu í bak- arn meðan hún var að íhuga hvað hún ætti að taka sér fyrir hendur. „Ég átti upphaflega að fara í aðai- keppnina hjá Ford en þeir báöu síöan Andreu að koma, væntanlega þar sem ég sýndi þessu ekki mikinn áhuga þá. Ég átti kærasta og hafði um margt annað að hugsa. Það var ekki fyrr en seinna að mig langaði til að reyna aftur fyrir mér á þessum vettvangi og þá skrifaði ég til um- boðsskrifstofu í Mílanó og sagðist hafa áhuga á að koma þangaö. Ég hafði áður verið skiptinemi á ítaúu og mér fannst þægilegt að fara á stað þár sem ég gæti talaö og skúið tungu- máúð. Mér var vel tekið í Mílanó og hef verið þar í fjóra mánuði. Það hefur gengið mun betur en ég þorði að vona. Maður er auövitað dálítið rag- ur fyrst. Mílanó er viss áfangi fyrir fyrirsætur og þar er mjög gott að safna myndum og eiga í möppu. Umboðsskrifstofan er lokuð núna en ég bíð eftir að hún hafi samband við mig varðandi áframhaldandi starf. Það var hugsanlegt að ég fengi starf núna í janúar við auglýsingagerð,“ sagði ValgerðurBackman. „Efþaö starf bregst er ég með túboö frá Ham- borg og ætla þá að taka því.“ - Er starfið spennandi? „Mér finnst gaman að ferðast og hitta fólk og þetta er kj örið tækifæri til þess að láta þá drauma rætast. í þessu starfi kynnist maður mörgu skemmtilegu fólki og kynnist um- hverfmu mjög vel.“ - Er þetta vel launaö? „í Mílanó er maður nær eingöngu að safna myndum og það er ekki vel launað. Ef maður kemst í auglýsing- ar þá er það vel launað. Þegar fyrir- sætur eru með myndir frá Múanó og París eiga þær greiðan aðgang að New York og Tokýo en á þeim stöð- um eru peningarnir. ‘ ‘ - Hvererdraumastaðurþinn? „Það er Tokýo og ég vonast tú að komast þangað í sumar. Einnig lang- ar mig að ferðast tú Kína og til Kóreu. Maður sér bara tú hvaö verður,“ sagði Valgerður Backman sem er tvítug að aldri. -ELA Helga Melsted, sigurvegari 1984: „Er núna fyrst að uppgötva þetta starf ‘ Helga Melsted er tvítug í dag en hún var aðeins 16 ára er hún sigraði Ford- keppnina hér heima. Nýorðin 17 ára fór hún til New York tú aö taka þátt í aðalkeppninni, mállaus og með heimþrá. Hún harðneitaði að vinna keppninaþarsemhúntaldisigþá . ekki fá að fara heim til íslands næstu þrjú árin en það fannst henni óbæri- Íeg tilhugsun. En hvað kom til að hún svona ung tók upphaflega þátt í þess- ari keppni hér heima? „Ég var hvött af vinum og vinkon- um og sló tú. Það breyttist aút í lifi mínu við þetta því ég var bara ósköp venjuleg skólastelpa. Þegar ég fór til New York fyrst árið 1984 var ég þar í tvær vikur. Fór ég svo aftur til að vinna í þrjár vikur en mig langaöi ekkert tú að vera í New York og fór því heim og fór að vinna hér. Hér heima var ég í eitt ár. Ég hitti Lacey Ford hér á íslandi ári seinna og ræddi þá við hana um að mig langaði til að prófa aftur en ekki í New York. Ég komst á samning í Þýskalandi hjá umboðsskrifstofu Ford, síðan var ég á Ítalíu og í Hol- landi. Ég hef verið starfandi sam- fleytt frá því ég fór út,“ sagði Helga Melsted. í Hollandi kynntist Helga unnusta sínum sem einnig er módel. „Ég er þokkalega ánægð. Ég hef haft mikið að gera og fæ góð laun. Það koma að vísu dauðir tímar en svo koma aftur tímabil þegar mjög mikið er að gera. Ég hef ekkert hugsað mér aö breyta til á næstunni nema ef ég kæmi heim," sagði Helga. - Myndirþúráðleggjastúlkumaö taka þátt í þessari keppni? „Ef þær eru harðákveðnar í að vilja vera erlendis um lengri tima þá myndi ég gera það. Aðalatriðið er að vilja fara frá íslandi. Ef ég hefði dval- ið áfram í New York á sínum tíma þá hefði mér örugglega gengiö mikið betur því mér buðust guú og grænir skógar en ég hafði ekki áhuga fyrir því að vera þar. Starfið býður upp á mjög margt og það er þroskandi.“ - Fannstþérþúekkiofungþegar þú fórst út í þetta fyrst? „Aút of ung og ég er eiginlega að uppgötva starfið núna á þessu ári. Það tekur langan tíma að laga sig að starfmu og ef ég væri ekki svo hepp- in að eiga góðan kærasta, sem hefur hjálpað mér, væri ég löngu komin heim," sagði Helga Melsted. -ELA neiga Meisted hetur nað langt sem fyrirsæta i Hollandi, Þýskalandi og i Paris.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.