Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Page 11
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988.
11
Síldin er komin hjá Leikfélagi Reykjavíkur:
„Eldraunin hjá okkur systruma
segir Iðunn Steinsdóttir sem samdi ásamt Kristínu systur sinni
„Þaö er allt gert til aö hafa þessa
sýningu sem glæsilegasta. Þetta er
„sjó“ meö söngvum og dönsum og
öllu sem tilheyrir," segir Iöunn
Steinsdóttir, annar höfundur söng-
leiksins Síldin er komin, sem frum-
sýndur verður hjá Leikfélagi
Reykjavíkur á morgun, sunnudag.
Systir hennar, Kristín, er hinn höf-
undur verksins.
„Þetta er eldraunin hjá okkur
systrum í atvinnuleikhúsi," segir Ið-
unn. „Það ma því rétt ímynda sér
hvort viö erum ekki orðnar spenntar
aö bíöa eftir frumsýningunni."
í Síldin er komin segir frá lífinu í
litlum síldarbæ eina sumarstund á
síldarárunum margfrægu þegar allir
kepptust viö aö safna silfri og lifa
hátt. Þaö er því ætlunin að fanga
sjálfa „síldarstemninguna" í þessu
verki.
Síldarstemning
Þama kemur fyrir þaö fólk sem
einkenndi síldarárin. Fjörið hefst
með því að Gullkoppur NS 10 finnur
síld í mynni Fagrafjarðar og fólk tek-
ur að streyma til fjarðarins. Síldar-
stúlkur hrópa eftir salti á planinu en
drykkjuhrúturinn Lilli skjögrar um
með hjólbörur. Þarna eru ráðsettar
húsmæður úr Grindavík og laus-
gyrtar bæjardömur. Aflaklóin Ponni
á Erlingi KE14 og Konni, stýrimaður
hans, rigsa um á klofstígvélum og
síldarspekúlantinn er ýmist mold-
ríkur eða að fara á hausinn.
Þetta er sýning sem sver sig mjög
í ætt við þá söngleiki sem hafa verið
vinsælir hér á síðustu misseram.
Söngleikirnir hafa verið andsvar
leikhúsanna við þverrandi aðsókn
og tómlæti áhorfenda. Tölur um að-
sókn á flest leikrit benda til að áhugi
almennings á leiklist minnki stöð-
ugt. Söngleikirnir eru þá helsta
undantekningin.
Fyrir tveim árum setti Leikfélag
Reykjavíkur á svið mikinn söngleik
eftir Kjartan Ragnarsson. Þetta var
Land míns fóður sem er í röö vinsæl-
ustu leikverka sem sýnd hafa verið
i Iðnó. Þá þegar var mönnum orðið
ljóst að viðamiklar skrautsýningar,
helst með söngvum, dugðu einar til
að bæta aðsóknina að leikhúsunum.
Söngleikir alls staðar
Nú um jólin hófust sýningar á
Vesalingunum, stórsýningu sem
gerð er eftir klassískri sögu Victors
Hugo. Þessi sýning hefur slegið í
gegn eins og yfirleitt allir söngleikir
sem færðir hafa verið upp. Á Akur-
eyri hefur rykið verið dustað af Pilti
og stúlku, söngleik Emils Thorodd-
sen, og á morgun ætlar Leikfélag
Reykjavíkur að bæta um betur og
sýna endurgerð af söngleiknum Síld-
in er komin eftir þær Iðunni og
Kristínu Steinsdætur og með söngv-
um Valgeirs Guðjónssonar.
Land míns fóður var sýnt í Iönó
sem tæpast rúmaði sýninguna. Leik-
félagið hefur enda hætt við aö reyna
frekar á þanþol gamla bárujárns-
hússins við Tjörnina. Á síðasta vetri
var gert viðamikið leikverk úr sög-
um Einars Kárasonar og það sýnt í
skemmum Bæjarútgerðarinnar vest-
ur á Meistaravöllum. Nýja síldar-
óperan hefur einnig fengiö inni i því
húsnæði. Þar var fyrir fáum árum
unnið í fiski þótt þar hafi síld ekki
verið söltuð.
Frumgerð þessa leikrits var frum-
sýnd á Húsavík fyrir rúmu ári og
síðasta vetur var verkiö sýnt hjá
nokkrum áhugaleikfélögum úti á
landi. Þá var tónlistin þekktir slagar-
ar frá síldarárunum og samdi Iðunn
nýja texta við þá. Hún er reyndar
margreynd í textagerð og samdi m.a.
textann við Jón er kominn heim sem
var mikið sunginn fyrir nokkrum
árum. Nú hefur Stuðmaðurinn Val-
geir Guðjónsson samið 22 ný lög og
texta við þau. Texta sjálfs verksins
hefur einnig verið breyft lítillega.
„Spennandi að sjá nýja út-
gáfu.“
„Það voru þeir hjá Leikfélaginu
sem fengu hugmyndina að þessari
leiksýningu og að semja við hana
nýja söngva,“ segir Iðunn. „Okkur
systrum leist vel á hugmyndina og
þótti spennandi að sjá verkiö í nýrri
útfærslu.
Allir höfundar eru sjálfsagt
íhaldssamir á sín verk. Við erum það
líka þótt við höfum ekkert á móti
þessum breytingum erida er frum-
gerðin annað verk. Ég samdi söng-
textana við lögin í fyrra verkinu og
gat í fyrstu hugsað mér að semja
einnig textana við nýju lögin. En
þetta eru lögin hans Valgeirs og hann
vildi semja textana sjálfur. Ég er
heldur ekki viss um að ég hefði getað
það.
Þrátt fyrir breytingarnar er þetta
ekki nýtt verk,“ segir Iðunn. „Per-
sónurnar eru enn þær sömu og
söguþráðurinn er óbreyttur. Það sem
breyst hefur er að áður var þetta
gamanleikur með söngvum en nú er
þetta söngleikur. Að mínu viti er það
töluverð breyting."
Tónlistin ber þess greinileg merki
að þar hefur Stuömaður um vélt og
í textunum skýtur „Stuðmannahúm-
orinn“ áf og til upp kollinum. „Ég
get ekki dæmt um hvort þetta er betri
eða verri tónlist en slagarar síldarár-
anna,“ segir Iðunn. „Ég geri ráð fyrir
að það verði skiptar skoðanir um það
meðal þeirra sem sáu fyrri gerðina.
Með gömlu tónlistinni rifjaðist um
stemningin sem þeir þekkja sem liföu
„Mig langar til að drepa einhvurn." Síldarballið í hámarki hjá Konna stýri-
manni. Það er Hjálmar Hjálmarsson sem leikur.
Drykkjuhrúturinn Lilli hefur komist í óþrotlegar birgðir af sénever. Það er Eggert Þorleifsson sem leikur Lilla.
DV-myndir GVA
sfldarárin en þessi á vafalaust betur
við unga fólkið.“
Auk söngsins hefur dönsum veriö
bætt við og voru þær Hlíf Svavars-
dóttir og Auður Bjarnadóttir ráðnar
til þess verks. Á sýningunum leikur
hljómsveit undir stjórn Jóhanns G.
Jóhannssonar þannig aö allur um-
búnaðurinn miðast viö stórsýningu.
„Eins og í öllum söngleikjum er
mikið um að vera á sviðinu,“ segir
Iöunn. ,3 sýningunni eru þó ekki
sjálfstæð dansatriöi nema þegar boð-
ið er upp á sfldarball. Það kemur þó
oft fyrir að hreyfmgar leikaranna
eru með dansblæ. T.d. eru hreyfingar
sfldarstfllknanna stílfærðar.“
Frumraunin
Síldin er komin er fyrsta leikritið
sem þær Iðunn og Kristín skrifa fyr-
ir leiksvið. Áður hafa þær samið tvö
útvarpsleikrit. Annað þeirra er verö-
launaíeikritið 19. júní sem flutt var
í útvarpinu á síðasta ári og einnig á
sviöi austur á Hornafirði, þá með
söngtextum.
„Það má segja aö við prufukeyrum
úti á landi áður en lagt er til atlögu
við atvinnuleikhúsin," segir Iðunn.
„Okkur flnnst mjög gaman að vinna
með áhugaleikhópum og fylgjumst
eftir fóngum með vinnunni hjá
þeim.“
Tuttugu og tveir leikarar taka þátt
í sýningunni. Margir þeirra eru af
yngstu kynslóö leikara en þarna eru
einnig margreyndir leikarar á borð
við Jón Sigurbjörnsson, Kjartan
Ragnarsson, Guðrúnu Ásmundsdótt-
ur, Karl Guðmundsson og Jón
Hjartarson. Leikstjóri er Þórunn Sig-
urðardóttir og Sigurjón Jóhannsson
gerði leikmynd og búninga.
-GK
ÆFINGASTÖÐIN ENGIHJALLA8
Upplýsingar og innritun í síma
46900, 46901 og 46902.
í húsi Kaupgarðs.
SÍMAR 46900, 46901 OG 46902.
/ AEROBIC:
4 Ný námskeið hefjast Allar nýjungar í aerobic kennslu hjá okkur. Lítið af hoppi. Innritun er hafin.
1^1 KVENNALEIKFIMI:
W # Hinir vinsælu kvöldtímar byrjaöir aftur.
: § 1 v TÆKJASALUR:
í ^ Bjóðum upp á stærsta og besta tækjasal á landinu. Þrek- þjálfun fyrir fólk á öllum aldri, vaxtarrækt og styrkjandi þjálfun fyrir hvers konar íþróttafólk. Getum tekið á móti stórum hópum.
\ \ KONUR: '*
Sérþjálfun fyrir konur í tækjasal með upphitun og teygjuæf- ingum á mánud., miðvikud. og föstud. kl. 14.00.
(I Höfum fengið sendingu af hinu viðurkennda MULTI KRAFT próteini frá Þýskalandi, ásamt megrunarfæði sem margir hafa beðið eftir.
Im DAGSKRÁ I LEIKFIMISAL:
Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard.
kl. 18 Aerobic 1 kl. 18. Átak í megrun kl. 18 Aerobic 1 kl. 18. Átak i megrun kl. 18 Aerobic 1 kl. 11 Aerobic 1
kl. 19 Kvennal. kl. 19 Kvennal.
kl. 20 Aerobic 2 kl. 20 Aerobic 1 kl. 20 Aerobic 2 kl. 20 Aerobic 1 kl. 20 Aerobic 2
OPNUNARTiMI STODVARINNAR
Mánud. 14-22, þriðjud. 12-22, miðvikud. 14-22, fimmtud. 12-22, föstud. 12-21,
laugard. 11-18 og sunnud. 13-16. Ath.l Afsláttur fyrir hópa og skólafólk.
Hringdu strax og láttu innrita þig.