Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. 13 Reykjavík 5. jan. 1988 Kæri vin Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu. Það var leitt að við gátum ekki hist yfir hátíðarnar - en gam- an að þú hringdir þarna milli jóla og nýárs, kvöldið áður en þú fórst aftur út. En ég skil það ósköp vel að þú slappst ekki við öll þessi fjöl- skylduboð. Leiðinlegt að heyra aö boðið hjá Ebbu frænku leystist upp í skammir og rifrildi. Þið hafið þó verið heppin að allt endaði ekki í slagsmálum eins og sagt er að orðið hafi örlög margra jólaboða aö þessu sinni. Eitthvað var víst um átök í nýársboðum líka og enn takast menn á í þinginu. Þar hafa verið teknir upp þeir siðir að menn stíga í pontu og lesa uppúr gömlum dag- blöðum lon og don ellegar þeir fara í ræðustól og þegja sem fastast í hálftíma eða svo. Fréttir af þessu háttalagi hafa orðið tii þess aö hiö ólíklegasta fólk er farið að velta því fyrir sér hvort það hafi ekki hæfi- leika til þingmennsku. Ég segi fyrir mig að ég treysti mér alveg til að lesa uppúr blöðunum á Alþingi, jafnvel auglýsingasíðurnar líka. En skaupin eru framin víðar en á Al- þingi og auðvitað var sjónvarpið með áramótaskaup að venju. Und- anfarin ár hefur mátt treysta því að sjónvarpsskaupið gæfi lands- mönnum tilefni til að rífast í lesendadálkum dagblaðanna þar sem sumir hafa tætt þaö í sig með- an aðrir hæla því í hástert. Oft hafa þessar deilur staðið langt fram eftir janúar og oftast verið skemmtilegri en skaupið sjálft. En nú var sjónvarpsskaupið svo slétt og fellt að ég óttast að það veröi ekki einu sinni tilefni til ósættis á heimilum eða vinnustöðum, hvaö þá í blöðunum. Aðdáandi Steingríms Ég hafði hægt um mig yfir hátíð- amar en skrapp þó í heimsókn til kunningjahjóna eina kvöldstund. Um leið og þau fögnuöu mér í for- stofunni komst ég ekki hjá því að sjá og finna að þau vora nýkomin úr jólaboði þar sem greinilega hafði verið veitt vel. Mér sló hreinlega fyrir bijóst og er þó ýmsu vanur. Húsbóndinn, mikill framsóknar- maður, leiddi mig reikulum skref- um að sófanum og frúin sló niður fólnaða jólastjörnu um leið og hún færði mér kaffið. Maðurinn byijar strax að útlista fyrir mér ágæti Framsóknarflokksins og þá eink- um formanns hans; segir meðal annars að Steingrímur Hermanns- son sé nú tvímælalaust vinsælasti stjómmálaforingi Vesturlanda og vitnar bæði í Tímann og Helgar- póstinn máli sínu til stuðnings; kveikir sér síðan í risastórum vindli og lítur þá út eins og Albert; stendur uþp og bendir mér að gera hið sama; leggur vinstri handlegg yfir herðar mér en bendir með vindli hægri handar á risastórt málverk uppi á vegg og spyr ákafur og stoltur: - Veistu hver málaöi þetta? Ég rýndi í skiliríið, sem er ábyggi- lega einir tveir metrar á lengd og hálfur á hæð, og þess vegna tók nokkurn tíma að átta sig á þessu. Þó greindi ég fljótt að þarna mátti greina vangasvip manns sem húkti úti í hrauni eða einhveiju álíka landslagi. En mér súrnaði svo í augum af vindlareyknum að ég átti erfitt með að gera mér grein fyrir því hvort þetta væri listaverk eða ekki. Húsbóndanum leiddist að bíða eftir svari frá mér og mælti með alvöruþunga: . - Þetta er eftir Steingrím. Hann Löng hátíð er að baki lék sér að því að mála þetta. Mig minnir að hann hafi málað þetta í fylliríi en nú er hann alveg hættur. Ég var ekki alveg viss hvemig ég ætti að taka þessu. Var rannið af Steingrími eða var hann hættur að mála? Hef raunar aldrei heyrt hann bendlaðan við drykkju eða malerí, enda minnir mig að tómstunda- gaman hans felist í smíðum og skíðum. En ég spyr upp á von og óvon: - Málar hann fyrir flokkinn? - Hann málar fyrir alla flokka, segir húsráðandi, og ég skil hvorki upp né niður. Það hlýtur að hafa verið blandað sterkt í jólaboðinu. Spyr svo hvort Steingrímur hafi haldið sýningu. - Sýningu? Fylgistu ekki með eða Bréftil vinar Sæmundur Guðvinsson vitnið svarar símanum. Dómari byrjar að kvarta undan þvi hve erfitt hafi reynst að ná sambandi og enginn á vinnustað mannsins hefði getað gefið svör um það hve- nær hann kæmi aftur til starfa. Þá svarar vitnið gremjuþranginni röddu: - Nú, maður verður nú að fá tíma til að jafna sig eftir hátíöamar. Nú er það svart Ég var aö glugga í áramótahug- leiðingar „aöila vinnumarkaðar- ins“ sem birtust í dagblöðum. Yfirleitt voru menn fremur svart- sýnir þá þeir litu fram á veginn. Ég er ekki hissa á því og kemur mér ekki á óvart. Yfirleitt era þess- ir svonefndu aðilar ekki mikhr bjartsýnismenn- Kannski ekki ur aldrei reynt að draga kjark úr þjóðinni þótt hún hafi vissulega uppi varnaðarorð þegar það á við. Hún benti á að það væri ekki nóg að tala og skrifa um þær hættur, sem steðja að íslenskri tungu, meö- an lítið væri aðhafst í verki til að vemda og efla tunguna. Þetta vora orö í tíma töluð. En þaö var ekki nóg með að innihald ávarpsins ætti erindi til allrar þjóðarinnar heldur var það svo vel flutt að til eftir- breytni er fyrir ýmsa þá sem hafa af því atvinnu að koma fram fyrir alþjóð. Ég held að það væn ekki vanþörf á aö senda ávarp forseta á spólu til útvarps- og sjónvarps- stöðva og leika það nokkrum sinnum fyrir þá sem þar koma fram en flytja texta meö svo annar- legum framburði að helst mætti hvað? Hann Steingrímur er ábyggi- lega búinn að sýna hátt í hundrað sinnum. Þá skildi ég loks að hann var ekki að tala um Steingrím Her- mannsson. Löng hátíð Það tekur sjálfsagt sinn tíma fyr- ir marga að jafna sig eftir þessa löngu hátíð jóla og nýárs. Þetta er misjafnt hvað hátíðin er löng hjá mönnum. í þessu sambandi dettur mér í hug það sem fram kom í dómsskjölum sem ég las fyrir nokkrum árum. Dómarinn lét sér- staka skýringu fylgja dómsorðun- um þar sem hann greindi frá því hvers vegna dómur gekk svo seint. Ein af ástæðunum var sú aö það gekk ákaflega illa að ná tali af mik- ilvægu vitni í málinu. Hér var um að ræða háttsettan mann í stofnun í Reykjavík. Það var í byijun des- ember sem byijað var aö hringja til viðkomandi en aldrei hittist svo vel á að hann væri á vinnustað þegar hringt var. Þegar farið var að ganga á símastúlkur hvenær helst mætti búast viö að maöurinn væri við störf gáfu þær loðin svör en bentu á að fólk þyrfti að hafa tíma til að undirbúa jólin. Er ekki að orðlengja það að ekki tekst að ná til mannsins fyrir jól en dómari byrjar að reyna aftur um leiö og áramótin eru liðin. Enn fer allt á sama veg og fyrir jól, nema hvað nú eru þau svör gefin að maðurinn hafi bara ekki sést á vinnustað eftir áramótin. Loks fer dómara að leiðast þófið og hringir sjálfur heim til vitnisins að kvöld- lagi þá þrjár vikur voru liðnar af janúar. Bregður þá svo við að sjálft hægt að ætlast til þess því þarna er verið að spá í kaup og kjör. Vita- skuld geta atvinnurekendur ekki sagt að þar sé allt í lukkunnar vel- standi og útlitið með fádæmum gott. Þá rísa bara fulltrúar laun- þega upp og heimta hærri laun í hvelh fyrir sína umbjóðendur. Og auövitað geta verkalýðsrekendur ekki lýst þvi yfir að sitt fólk hafi það gott því þá segja bara vinnu- rekendur að lýðurinn þurfi ekki hærra kaup. Þess vegna er um að gera að vera svartsýnn og þungur í áramótagreinum ef maður er að- ili vinnumarkaðarins. Ávarp forseta Þá þótti mér uppbyggilegra að hlýða á nýársávarp forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur. Hún hef- ætla að þar færu útlendingar sem enn hefðu ekki náð góðum tökum á íslensku eða þá börn sem ekki væru búin að ná tökum á lestri. En auðvitað eru ekki allir undir sömu sök seldir í þessum efnum. Sumir koma sínu vel til skila. Farið að hausta Af veðrinu er það helst að frétta að þáð er loks farið að hausta fyrir norðan og víðar á landinu. Það má því búast við að veturinn sé skammt undan hér á suðvestur- hominu og ekkert við því að gera. Eins og þú veist era elstu menn í flestum byggðarlögum orðnir svo dolfallnir yfir tiðarfarinu að það er ekki einu sinni hægt að hafa eftir þeim að þeir muni ekki annaö eins. Með þessu kveð ég þig að sinni. Sæmundur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.