Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. Frjálst,óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð í lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Atkvæði greidd í verki Fólk greiðir atkvæði með ýmsum öðrum hætti en í kosningum einum. Það gerir það með því að haga sér á þennan veg frekar en hinn, þegar það á um kosti að velja. Niðurstöður þessara atkvæðagreiðslna fólks úti í bæ eru oft þveröfugar við það, sem stjórnvöld mæla með. Ríkisstjórnin hefur undanfarna mánuði tjáð fólki, að gengi íslenzku krónunnar yrði áfram haldið föstu, enda væri lítið gagn í gengislækkun, sem mundi leiða til auk- innar verðbólgu. Ef fólk hefði tekið mark á þessu, hefði það ekki flýtt sér að kaupa innfluttar vörur. Þeim mun meiri ástæða var fyrir fólk að fara sér að engu óðslega 1 kaupum á gjafavörum og tízkuvörum í desember, að ríkisstjórnin hafði boðað tollalækkun þessara leikfanga peningafólks á kostnað nauðsynja lág- tekjufólks, sem lifir á fiski, grænmeti og ávöxtum. Ennfremur hafa ráðherrar á undanförnum vikum og í áramótaprédikunum tekið undir gagnrýni á háa raun- vexti, sem séu að shga atvinnulífið, húsbyggjendur og þjóðfélagið í heild. Ef fólk hefði trúað þessu, væri það nú að kaupa spariskírteini, meðan vextir eru enn háir. í rauninni flæddu peningar um þjóðfélagið í síðasta mánuði. Kaupæðið fyrir jólin var gífurlegt. Greinilegt var, að margt fólk hafði mikið eyðslufé handa milli. Ennfremur var augljóst, að það lagði ekki peningana fyrir, heldur vildi koma þeim í lóg sem allra fyrst. Ef þetta fólk hefði trúað, að tímabili hárra raunvaxta væri um það bil að ljúka, hefði meira af því keypt sér og sínum ríkisskuldabréf eða aðra pappíra hinna háu vaxta, til dæmis sem jólagjafir. Þannig hefði það varð- veitt hinar háu vaxtatekjur mörg ár fram í tímann. Þetta hefði auðvitað hlaðið upp peningum í stofnun- um, sem taka við fé til útlána. Hið þveröfuga gerðist í desember, að lausafjárstaða banka versnaði svo snögg- lega, að aukning innlána varð í heild minni á síðasta ári en árið áður, þrátt fyrir töluvert góða byrjun. Tiltölulega mild verðbólga var um nokkurra mánaða skeið árið 1986 og fram á 1987. Þetta olli háum raun- vöxtum, sem hefðu gert sitt gagn og lokið ætlunarverki sínu, ef verðbólgan hefði haldizt í skefjum. Um síðir hefði þjóðin farið að spara og ríkið hætt að sóa. Aldrei reyndi á, hvort raunvextirnir næðu þessum árangri og gætu síðan lækkað aftur. Verðbólgan var vaxandi í fyrra og hungur ríkisins í lánsfé var áfram óseðjandi. Hins vegar eru ráðherrarnir, sem eyðilögðu tilraunina, farnir að kvarta um, að vextir séu of háir. Ef raunvextir yrðu nú lækkaðir með handafli, yrði enn minna fé lagt til hliðar og skömmtun lánsfjár yrði enn strangari en nú. Það mundi bæta hag þeirra, sem hafa pólitískan forgang að lánsfé, en spilla stöðu allra hinna, sem ekki teljast til gæludýra kerfisins. Ríkisstjórnin hefur ekki aðeins klúðrað jafnvægi lánamarkaðarins, heldur hefur hún valdið þjóðinni ómælanlegu fjóni með fastgengisstefnu, sem hefur gert innfluttar vörur óeðlilega ódýrar og kallað á óhóflegan innflutning, svo sem við sáum bezt í jólaösinni. Þjóðin trúir ekki ríkisstjórn, sem nú segist ætla að halda genginu fóstu og jafnvel lækka raunvexti. í des- ember notaði fólk ekki sparifé sitt til að ná til langframa í háa raunvexti, heldur til að kaupa útlendar vörur á hagstæðu gengi, meðan það taldi vera enn vera tækifæri. Með þessu er fólk að greiða atkvæði gegn veiklund- aðri ríkisstjórn, sem er farin að kenna ógerðum kjara- samningum um hagtjón, er stjórnin hefur þegar unnið. Jónas Kristjánsson Skaup forsætisráðherra Þaö er gamall og góður siöur að strengja heit um áramót. Margir sverja aö gera þaö sem er hollt og gott: ganga á Hornstrandir, fara í sund, klára prófin, gera upp reikn- inga sína. Aörir vinna dýran eið aö því að hætta að gera þaö sem er vont og óhollt: sumir aö hætta að reykja, aörir aö hætta að drekka, hætta að slá, hætta aö vera í fýlu. Svardagamir eru misjafnlega há- tíðlegir. Menn lofa stundum svo miklu að þeim verður ógjörningur að standa við orð sín. Það eru tals- verö hyggindi að lofa bara nógu litlu sem auðvelt er að efna. Mér fannst til dæmis gott hjá ágætri vinkonu minni að sverja þess dýr- an eið að hafa aldrei framar skoðun á áramótaskaupi. Þetta vinsælasta áhorfsmál sjónvarps allra lands- manna verður jafnan tilefni til karps og stælna fyrstu daga ársins. Menn ýmist fussa og sveia, eða lofa og fagna. Sumir fara út í saman- burð við skaupin í fyrra og hitti- fyrra, jafnvel allt aftur í Flosa. í talfæri Jón Hjartarson Kannski aö ráðherrarnir taki alfarið á sig það ómak að sjá um spaugið fyrir þjóðina um næstu áramót. Þannig geta þetta orðiö hinar lífle- gustu þrætur í tvo þrjá daga. - Og það er altént ágæt regla að vera ekki að argast í smáatriðum og ákveða bara að skaupið hafi veriö nákvæmlega eins og næsta manni finnst það hafa veriö. Stjórnskipað nýársheit Þjóðin fékk raunar, í jóla- og ný- ársgjöf, fyrirheit frá ríkisstjóm sinni. Og stjórnin hefur nú þegar efnt heit sitt. Þetta er loforð um meiri rakspíra, en minni fisk og grænmeti. Ríkisstjórnin hefur sem sagt tekið ómakiö af þjóöinni hvaö heitstrengingar varðar aö þessu sinni. Sem sagt: Þjóðin á að borða minna því það verður dýrt spaug. Hún á aö fara í megrun. Forsætisráðherra kom líka í sjón- varpið á gamlárskvöld eins og skaupið og flutti ávarp, það var ríf- andi létt, skáldlegt og skemmtilegt, eins og slík ávörp eiga aö vera. Hann sagöi meðal annars: „Hlut- verk íslendinga er sannarlega meira en svo að þeir hafi efni á að slíta sundur afl sitt. Nú er stund til þess að draga þær línur í framtíðar- myndinni sem við getum sameinast um,“ sagði hann. Línurnar, sem forsætisráðherra talar þarna um, em náttúrlega mjóu línurnar. Hann vill að þjóðin haldi línunum og ennfremur að menn séu ekki að „slíta sundur afl sitt“, það er: þeir eiga ekki að vera að bítast um bitana heldur una hver við sitt og éta eftir efnum og aðstæöum. - Forsætisráðherra sagöi í þessu samhengi aö menn ættu ekki: „að ala á sundurþykkju, úlfúð, trega og svartsýni“. Þetta er hárrétt hjá ráðherranum, fólk gerir allof mikið að því að ergja sig yfir smámunum. I raun skiptir það heldur ekki svo miklu máli þegar mjög grannt er skoðað hvort menn hafa 10 til 20 þúsund krónur til ráðstöfunar á mánuði ellegar 100 til 200 þúsund. Sennilega er þó öllu betra að hafa minna. Lifum á arfinum Enda er það í raun og veru ekki forsenda þess að „íslendingar em sjálfstæð þjóð“ að hún hafi í sig og á, samkvæmt áramótaboðskap for- sætisráðherra, heldur er þaö gamli þjóðararfurinn sem heldur okkur lifandi sem þjóð. Þarna er ráðherra aö vitna tfl þess sögulega sam- hengis sem allir þekkja, að þjóðin hefur jafnan lifað og dáið fyrir bók- menntaarfmn og jafnvel lagt sér hann til munns. Og þessi arfur er enn í dag okkar dýrasta eign, þótt margnagaður sé og trosnaður, sameign þjóðarinnar, líka kannski það eina sem hún á sameiginlegt. Það er eðlilegt að þessi miklu og frægu verðmæti okkar séu dregin fram í dagsljósið þegar syrtir í ál- inn í þjóðarbúskapnum og hag- vöxtur minnkar. Þannig hefur það alltaf verið. Þetta ættu launamenn og verka- lýðshreyfmgin að hafa hugfast í stað þess að láta eins og vitlausir menn í kröfugerð og annarri ósvífni og tefla með því „þjóðfélagi mannhelgi menningar og velferð- ar“ í tvísýnu. Þeir sem ala á slíkri sundurþykkju, úlfúð, trega og svartsýni ættu að líta á björtu hlið- amar, tfl dæmis þá ánægjulegu staðreynd að túttur og tannburstar lækka í veröi um 40%! Hinu er ráðherra náttúrlega klár á, og við hin líka, að þjóðararfur- inn, fornbókmenntirnar, er nokkuð, sem fólk snertir ekki þegar vel árar. Fólk er ekkert aö káfa á þessu í hillunum hjá sér að óþörfu. Fólk innbyrðir menninguna orðið á allt annan hátt. Almennt má segja að menningar- og manngildishug- sjónir íslendinga hafi fengið nýja vídd við ljósvakabyltinguna og séu að verða miklu líflegri og skemmti- legri en áður var, samanber þjóðkvæðið alkunna: „Mamma beyglar alltaf munninn,“ sem hvert mannsbam kann utan að, betur en faðirvorið. Mótun barnanna okkar Forsætisráðherra ræddi líka um börnin okkar og sagði: „í daglegu starfi og með afstöðu tfl manna og málefna erum við að móta framtíð og starfsvettvang“ þeirra. Þarna á ráðherrann Vitaskuld við þá stefnu íslenskra stjórnvalda að útloka sér- menntaöa áróðurshópa á borð við fóstrur frá uppeldi barna. Það er stefnan að börn eigi ekki að vera á dagheimflum, eða þvílíkum hælum og lastabælum, heldur á raun- verulegum heimilum. Og þótt fáir eða engir hafi efni á því aö vera heima hjá sér yfir börnum sínum, þá er sá möguleiki fyrir hendi að koma þeim í vist á öðrum einka- heimilum, hjá svokölluðum „dag- mömmum". Við vitum náttúrlega að þar sitja þau ekki á stofugólfmu og hlusta á íslendingasögurnar. En, þau horfa þó á „vídeó“ og búa sig undir framtíðina sem við ætlum að skapa þeim. - Og ef grannt er skoðað má raunar segja að Tommi og Jenni séu mjög í anda íslend- ingasagnanna. Að maður tali nú ekki um my little pony. Það má segja að forsætisráðherra hafi tekist vel upp að þessu sinni og alls ekkert síður en spaugurun- um í skaupinu, og í sumum grein- um miklu betur. Kannski að ráðherrarnir taki alfarið á sig það ómak að sjá um spaugiö fyrir þjóð- ina um næstu áramót. En það verður líka eflaust dýrt spaug.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.