Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. Blaðamennirnir Anna Bjarnason og Atli Steinarsson heilsa nýju ári í nýjum heimkynnum. Þau fluttu búferlum til Bandaríkjanna um áramótin og ætla aö setjast aö í Denver í Colorado. Anna hefur ve- riö potturinn og pannan á neyt- endasíöu DV um árabil, óþreytandi við að gera ýmiss konar verðkann- anir og láta lesendum í té góðar uppskriftir. Anna hefði hugsanlega getað Bjarnadóttir og Þorsteinn Thorar- ensen skutu okkur ref fyrir rass. Við vorum mánuði of sein, ef svo má að orði komast. Brúðkaups- dagurinn var engu að síður mjög merkilegur dagur. Þann dag var almyrkvi á sólu, í eina skiptiö á allri öldinni held ég megi segja. Pabbi og Atli fóru ásamt fleirum fyrir Moggann austur í Landeyjar um morguninn og það varð að fresta brúðkaupinu til klukkan fyrirmyndar þar frekar en annars staðar. En „the American way of life“ finnst mér vera mjög skemmtilegur lífsmáti. Ég er líka orðin dálítið þreytt á öllu hér heima, sérílagi neikvæð- um fréttum. Það virðist allt vera ómögulegt hjá öllum eða svona næstum því. Þessi þreyta held ég að stafi af því að í blaðamennskunni hér er maður bókstaflega inni á gafli alls Anna Bjarnason: „Ég er ábyggilega voAalega gamaldags og íhaldssöm." starfað á allt öðru sviði. „Ég ætlaði mér tvennt þegar ég var lítil; að verða blaðamaður eða leikkona. Ég reyndi fyrir mér á sviði en fannst leikhússtússið ekki eiga við mig þegar allt kom til alls. Svo ég skellti mér í blaöamennskuna eftir 4. bekk í Verslunarskólanum og byrjaði aö vinna á Mogganum 1951, þá sautján ára. Og það var einmitt þar sem við Atli kynntumst. Við ætluðum okkur upphaflega að verða fyrstu hjónin í blaða- mannastéttinni. En Sigurlaug fimm um daginn, þannig að öruggt væri að þeir kæmust til baka í tæka tíð.“ Ameríkuveikin - Hver er ástæðan fyrir því að þú flyst vestur um haf? „Það er nú kannski af því að mig hefur alltaf langað til að dveljast í Ameríku og þá ekki bara sem ferðamaður. Ég hef verið haldin eiginlegri „Ameríkuveiki" allt frá barnæsku. Auðvitað er ekki allt til staðar, á kafi í alls konar málurn, nokkuð sem tæpast þekkist í stærri samfélögum." A tímamótum „Ég verð mjög meðvituö um þessa nálægð þegar ég kem heim eftir að hafa eytt einhverjum tíma erlendis. Ekki hefur maður fyrr kveikt á útvarpi eða sjónvarpi el- legar lesið blöðin en það hellist yfir mann atvinnuleysi, verkfóll, skort- ur á barnaheimilum, fóstrum og guö veit hvað. Enginn virðist hafa nægilega góð laun en samt geta flestir leyft sér allt. Og svo er ríkinu gert að bjarga öllu saman. En maður sér náttúrlega að þetta er ekki rétt. Fólk hefur þaö mjög gott hér. Ég satt best að segja skil þetta ekki og er orðin þreytt á þess- um sífelldu kvörtunum, alveg dauðþreytt." - Ætlar þú þá að láta þig hverfa í mannhafið í Bandaríkjunum, hreinlega týnast? „Nei, auðvitað ætla ég mér ekki að gera það. Það er í eðli mínu að berjast áfram eins og hinir. Ég er í sjálfu sér á ákveðnum tímamót- um. Ég hef unnið á neytendasíð- unni með hléum í ein tíu ár. Á sínum tíma byggði ég þetta upp með aðstoð Jónasar Kristjánsson- ar. Þá var þetta nýmæli; við skrif- uðum hreint út úr pokanum og sögðum nákvæmlega það sem okk- ur fannst. En síðan hafa margir fetað í fótspor okkar og þá finnst mér einhvern veginn ekkert spenn- andi aö fást við þetta lengur. Mér finnst gaman að takast á við eitt- hvað nýtt. Það skiptir líka nokkru máli í sambandi við þennan brottflutning að dóttir okkar býr þama úti. Okk- ur langar að vera nærri henni og kynnast fjölskyldu hennar betur. Nú og yngri sonur okkar hefur auk þess verið viö nám í Bandaríkun- um og hann hefur mikinn hug á að setjast þar að.“ Fréttir úr mannlífinu - En hvaö ætlar þú að taka þér fyrir hendur ytra, helga þig barna- börnunum eingöngu? „Nei, ekki algerlega. Ég ætla að halda áfram að skrifa fyrir DV sem fréttaritari. Svo förum við Atli hugsanlega að þýða, jafnvel semja eitthvað sjálf. Við erum með eitt og annað í pokahorninu, án þess að ég vilji útlista það nokkuð frek- ar.“ - Þú munt þá væntanlega þefa uppi skemmtilegar og jákvæðar fréttir úr mannlífinu vestra? „Einmitt og alls ekki póhtískar fréttir. Ég ætla að senda efni sem mér sjálfri þætti gaman'að lesa. Jafnvel segja frá því hvernig fólk hefur það í Bandaríkjunum; ekki bara hvað þjóðin sé vond viö svert- ingja og slíkt, heldur útskýra fyrir fólki ýmislegt sem mig sjálfa hefur lengi langað til að vita. Hvemig daglega lífið gengur fyrir sig og bera það saman við hvemig hlut- irnir eru hér heima. Þá kannski HANDKNATTLEIKSLANDSLIÐ I HEIMSKLASSA! Á ólympíuleikunum 1984 og heimsmeistarakeppninni 1986 átti ÍSLAND 6. besta landslið heims. ÞINN stuðningur getur gert gæfumuninn á ólympíuleikunum í Seoul 1988. AFRAM ISLAND 14. desember 1987 var dregiö um 15 bíla. 5 SUZUKI FOX komu upp á eftirtalin númer: 9401 13709 70457 75462 98385 10 SUZUKI SWIFT komu upp á eftirtalin númer: 42457 44260 53685 63614 65235 68125 85377 85568 89571 104540

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.