Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Page 25
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988.
25
i> v Sérstæð sakamál
neyslu. Er farið hafði verið yfir
reikningsfærslurnar þótti rannsókn-
armönnunum tilgátan um leigu-
morðingja ólíkleg. Það átti hins vegar
eftir að koma í ljós að Geraldine
kunni við ýmsu ráð.
Býðurfram
verðlaunafé
Er rannsóknin hafði engan árang-
ur borið þann 28. ágúst kom frú
Geraldine Lowen að máli við rann-
sóknarlögreglumennina og kvaðst
ætla að heita þeim fimm þúsund
pundum - jafnvirði um þrjú hundruð
þúsund króna - þeim sem upplýst
gæti hvað orðið hefði um mann
hennar. Hugmynd hennar var í
fyrstu fáléga tekið því rannsóknar-
lögreglumenn hafa slæma reynslu
af slíku. Leiðir það gjarnan til þess
að fólk kemur með lítt áreiðanlegar
ábendingar sem kosta mikið starf en
leiða ekki til árangurs.
Geraldine var þó ákveðin í að
hrinda hugmynd sinni í framkvæmd
og þar kom að rannsóknarlögreglan
féllst á tillögu hennar.
Maðurgefur
sig fram
Ekki hðu nema fáeinir dagar frá
því að tilkynnt var um féð sem frú
Geraldine Lowen var tilbúin að reiða
fram fyrir upplýsingar um örlög
manns síns þar til Miles nokkur Pet-
ley kom að máli við lögregluna. Hann
var fjörutíu og sjö ára og bjó í
Harlow, um fimmtán kílómetra frá
heimili Lowenhjónanna. Miles Pet-
ley hélt því nú fram að Roddie Lowen
væri enn á lífi. Hefði flokkur glæpa-
manna í London hann í haldi og
hygðist neyða hann til að skipuleggja
fyrir þá óheiðarleg viðskipti.
Miles gat ekki gefið upplýsingar
um hvers kyns viðskipti glæpaflokk-
urinn hefði í huga en þó lét hann að
því liggja að um gæti verið að raéða
smygl á eiturlyfjum frá Suður-Afr-
íku.
Tekinn alvarlega
Lögreglan trúði sögu Miles Petley
og bað hann um að reyna að koma
því svo fyrir að hægt væri að bjarga
Roddie Lowen úr höndum glæpa-
mannanna. Það var heldur ekki
ótrúlegt að bófaflokkur hefði séð sér
hag í því að ræna Roddie til þess að
knýja hann til þess að beita þekkingu
sinni á sviði viðskipta við Suður-
Afríku til þess að koma þaðan eitur-
lyflum án þess að nokkum grunaði.
Miles vildi þegar fá féð sem heitið
hafði verið þeim sem upplýst gæti
örlög Roddies Lowen en lögreglan
sagði að hann yrði að renna fleiri
stoðum undir fullyrðingu sína áður
en hann gæti fengið það greitt.
Nýjar upplýsingar
Strax daginn eftir kom Miles Petley
á fund lögreglunnar á nýjan leik.
Kvaðst hann nú vita að Roddie Low-
en v'æri falinn í húsi í Wandsworth
í suðurhluta London.
Lögreglan undraðist hvernig Miles
gæti hafa fengið upplýsingar um
þetta á svo skömmum tíma. Skýring-
in hlyti að vera sú að hann vissi
miklu meira um málið en hann hefði
viljað vera láta. Þótti rannsóknarlög-
reglumönnunum sem þeir fengju
staðfestingu á þeim grun sínum er
Miles kom enn á ný til þeirra nokkr-
um dögum síðar og kvaðst vita að
Lowen væri í húsi við Rosehill Road
í Wandsworth.
Lögreglan trúði Miles en óttaðist
að Lowen væri ekki lengur á lífi.
Lið sent á
vettvang
Nú var í skyndi kallað saman lið
til þess að fara inn í húsið við Rose-
hill Road en þar kynni að koma til
átaka ef glæpamenn væru þar með
Lowen í haldi. Miles Petley var hins
vegar handtekinn um tíma svo hægt
væri aÓ hafa hann „til ráðuneytis"
ef á þyrfti aö halda. Var þá eins og
honum væri brugðið.
í ljós kom að húsið við Rosehill
Road var að falli komið. Og þar
fannst líkið af Roddie Lowen, hálffal-
ið undir múrsteinshrúgu.
Hann hafði verið kyrktur. Réttar-
læknir, sem fékk líkið til athugunar,
komst svo að þeirri niðurstöðu að
hann hafði týnt lífinu tólf til fjórtán
dögum áöur en það þýddi að hann
hefði getað verið á hfi í einn eða tvo
daga eftir hvarfið.
Grunurfellur
á Petley
Er rannsóknarlögreglumennirnir
höfðu borið saman bækur sínar um
hríð komust þeir að þeirri niður-
stöðu að líklegast væri að Miles
Petley væri morðinginn. Hann hefði
vitað hvar líkið af Roddie Lowen
væri að finna. Það þótti hins vegar
mikil bíræfni af honum að reyna að
fá greiddar þrjú hundruð þúsund
krónumar sem frú Geraldine Lowell
hafði heitið... nema því aðeins að
um væri að ræða eitthvert leyni-
makk á milli hans og hennar. Voru
þrjú hundruð þúsund krónurnar ef
til vill dulbúin greiðsla fyrir leigu-
morð?
Harðar
yfirheyrslur
Eftir langar og strangar yfirheyrsl-
ur var rannsóknarlögreglan þó
einskis vísari. Miles neitaði öllu. Þá
skýrðu lögreglumennirnir honum
frá því að Geraldine Lowen hefði lýst
yfir því að hann væri morðingi
manns hennar.
Miles neitar
Er Miles neitaði því að Geraldine
hefði rétt fyrir sér var honum sagt
að hún hefði greint frá því að hann
hefði ætlað að kúga af sér fimm þús-
und pund - jafnvirði þrjú hundruð
þúsund króna - og hefði hún fallist
á að greiða honum féð því hún hefði
vonast til þess að það yrði til þess
að hún fengi mann sinn aftur. Þau
Miles hefðu hins vegar orðið sam-
mála um að féð yrði greitt sem laun
fyrir að vísa á Lowen til þess að eng-
an grunaði fjárkúgun eða mannrán
og lausnargjald.
Miles missir
stjórn á sér
Miles Petley varð ævareiöur er
hann heyröi ásökunina.
„Þetta er hrein lygi!“ æpti hann.
„Það er hún sem skipulagði þetta
allt frá upphafi til enda. Það er hún
sem vildi láta myrða Roddie Lowen.
Og hún kom til mín til þess aö biðja
mig um að vinna skítverkið fyrir
sig.“
Saga Miles
„Hún kom til mín í maí,“ sagði
Miles. „Hún þekkti mig af því að ég
hafði stundum unnið í garðinum hjá
þeim hjónum." Svo sagði Miles frá
því að hann hefði verið í miklum fjár-
hagskröggum og hefði Geraldine
Lowen verið kunnugt um það. Loks
hefði henni svo tekist að fá hann til
þess að fallast á að myrða mann
hennar. Var ákveðið, sagði Miles, að
morðið skyldi framið eftir að Lowen
yrði rænt þann 20. ágúst. Sagöist
hann hafa beðið eftir Lowen er hann
hefði komið af skrifstofu sinni en þá
neytt hann upp í bO sinn með þvi að
þykjast beina að honum skamm-
byssu. Síðan hefði hann svo kyrkt
hann. Síðar hefði hann svo „snúið
sér til lögreglunnar".
Geraldine Lowen
neitar-en játarsvo
Er sagan var sögð ekkju Roddies
Lowen neitaöi hún að eiga nokkurn
þátt í morðinu á manni sínum. Lög-
reglumennirnir sögðu þá við hana
að þá'skýringu eina væri 'hægt að
gefa á því að Miles Petley hefði drep-
ið Roddie Lowen að hann hefði talið
sig vissan um að fá greiðslu fyrir
verknaðinn og sú greiðsla hefði verið
féð sem hún, Geraldine, hefði heitið
þeim sem komiö gæti með upplýsing-
ar um mann hennar.
Játaði hún þá að hafa skipulagt
moröið á manni sínum.
Bíða dóms
Miles Petley hefur nú verið ákærð-
ur fyrir morð að yfirlögðu ráði og
Geraldine Lowen mun sitja viö hlið
hans á sakborningabekknum er
málaferlin hefjast, ákærð fyrir þátt í
að undirbúa morð.
Er hætt við að sú skýring hennar
að maður hennar hafi neitað henni
um skilnað og hún hafi ekki treyst
sér til þess að búa með honum lengur
af því að hjónaband þeirra hafi verið
orðið svo slæmt, þótt leynt færi, dugi
skammt.
Litlar líkur eru því taldar á því að
hún geti nokkru sinni notið auðæf-
anna sem hún ætlaði að eigna sér
þegar hún fékk garðyrkjumann í
fjárkröggum til þess að myrða mann
sinn.
Miles Petley.
Ert þú í hurðalausu?
Við smíðum vandaðar hurðir fyrir fyrirtæki og bíl-
skúra, flekahurðir, rennihurðir eða eftir þínum óskum.
Gerum verðtilboð.
Smiðjan sf., Hellu, Rangárvöllum
sími 99-5996, kvöldsími 99-5965
Neskaupstaður
Umboðsmaður DV í Neskaupstað óskar eftir að ráða
blaðbera í útbænum.
Upplýsingar í síma 71229 (Hlíf).
Útboð
Norðurlandsvegur um
Vatnsskarð 1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk.
Lengd vegarkafla 4,1 km (87.000 m3).
Verki skal lokið 15. október 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Sauðárkróki og I Reykjavík (aðalgjaldkerá)
frá og með 11. janúar nk. Skila skal tilboðum
á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 25. janúar
1988.
Vegamálastjóri
V
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Námsstyrkur við
Minnesota háskóla
Samkvæmt samningi milli Háskóla íslands og
Minnesota háskóla (University of Minnesota) er
veittur styrkur til eins íslensk námsmanns við háskól-
ann í Minnesota á ári hverju. Styrkurinn nemur
skólagjöldum og dvalarkostnaði. Nemendur, sem
lokið hafa prófi frá Háskóla íslands, ganga fyrir en
jafnframt þurfa þeir að hafa fengið inngöngu í Minne-
sota háskóla.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu háskólans og
skal umsóknum skilað þangað fyrir 6. febrúar nk.
Nánari upplýsingar fást hjá námsráðgjöfum háskól-
ans.
Háskóli íslands
Útboð
SVR og Póstur og sími
Borgarsjóður, vegna Strætisvagna Reykjavíkur, og
Póst- og símamálastofnunin óska eftir tilboðum í að
byggja skiptistöð og pósthús að Þönglabakka 4 í
Reykjavík.
- Stærð hússins : 7.540 m3.
- Byggingastig : Jarðvinnu í húsgrunni er lok
ið. Húsið skal vera tilbúið
undir tréverk og frágengið
að utan.
- Skilafrestur verks : 7. nóvember 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar gegn
10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á Verkfræðistofu Stefáns Ólafs-
sonar hf., Borgartúni 20, Reykjavík, þann 28. janúar
1988 kl. 11.00.
VERKFRÆÐISTOFA
STEFANS ÖIAFSSONAR HF. F.R.V.
BORGARTÚNI 20 105 REYKJAVlK SlMI 29940 & 29941