Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Síða 30
42
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988.
„Stefhum að
því að vinna
sem flesta leiki“
Halldóra Bergþórsdóttir varö á
vegi okkar í íþróttahúsinu við
Strandgötu þar sem hún var að
spila með félögum Sínum í 5.
flokki FH.
„Þetta er fyrsta árið sem ég æfi
handbolta og finnst mér þetta
mjög skemmtílegt. Við áefum
bara einu sinni i viku og finnst
mér það of lítíö. Ég spila ekki
neina sérstaka stööu á vellinum
því við erum svo margar. Viö
höfum engan sérstakan veikleika
eða styrkleika, iiöiö er allt mjög
jafnt. Við stefnum aö því aö vinna
sem flesta leiki en ég á ekki von
á því aö vinna mótið. Ég spái því
aö Grótta vinni því þær eru best*
ar.“
Hvað meö meistaraflokkana,
horfir þú á þá? „Nei, voðalega lít-
iö, ég á heldur engan uppáhalds*
leikmann."
Aö þvi búnu kvöddum við
HaUdóru og óskum við henni og
félögum hennar í FH góðs gengis
vetur.
Jón Steindór Sveinsson.
Handknattleikur unglmga
i>v
1 4. flokkur kvenna hjá Fram sem sigraði á hraðmótinu.
A-lið Fram sigraði örugglega
Milli jóla og nýárs héldu Framarar
hraðmót fyrir 4. flokk kvenna og
tóku þátt í því auk A- og B-liðs Fram
Víkingur og KR. Spiluð var einfóld
umferð þar sem aflir spiluðu inn-
byrðis. A-lið Fram sigraði nokkuð
örugglega í öllum leikjum sínum en
hin þrjú liðin unnu öll einn leik
hvert.
A-lið Fram lék fyrst við 2. deildar-
lið Víkings og vann þann leik nokkuð
örugglega, 8-2. KR sigraði síðan B-lið
Fram, 10-3, en tapaði síðan óvænt
fyrir Víkingi, 4-3, þar sem KR mis-
notaði tvö vítí á síðustu mínútu. KR
tapaði síðan einnig fyrir A-liði Fram,
7-11. Fram B sigraði Víking í jöfnum
og spennandi leik, 4-2, en réð ekki
við Fram A í síðasta leik mótsins sem
endaði með stórsigri A-liðsins, 14-2.
Leikið um helgina í 2. og 4. flokki
Akveðnir hafa veriö leikstaðir
hjá 2. og 4. flokki karla og kvenna
sem fram fer helgina 15.-17. januar
nk.
1. deild í 2. flokki karla verður
spiluö á Selfossi, 2. déild í Hafiiar-
firöi og 3. deild í Vestmannaeyjum.
í 2. flokki kvenna spilar 1. deild
í Reykjavík en 2. deild í Keflavík.
Leikir í 4. flokki karla verða aö
mestu spilaöir í Reykjavik og er
aðeins 2. deild sem verður leikin
útí á landi eða í Njarðvík.
Leikir í 1. og 3. deild í 4. flokki
kvenna verða spilaðir i Reykjavík
en 2. deild í Kópavogi.
Við ætlum að verða íslandmeistarar
- • Rúnar Agustsson, HK, reynir markskot i leiknum gegn Val.
• Agla Marta Stefánsdóttir.
*
„Eg stefiii að því að
komast í landsliðið4
- segir Agla Marta, leikmaður Gróttu
mann úr sigurliði Gróttu í 5. flokki
kvenna að máli. Agla Marta Stefáns-
dóttir, sem hefur spilað sem miðju-
leikmaður frá því að hún byrjaði í
handbolta í haust, var mjög ánægð
að móti loknu enda sigraöi Grótta í
öllum leikjum sínum og Agla hlaut
þarna fyrstu verðlaun sín í hand-
bolta sem örugglega eiga eftir að
verða fleiri ef stúlkurnar í Gróttu
æfa vel því þarna er á ferðinni mjög
öflugt og sterkt liö.
„Ég er að sjálfsögðu mjög ánægð
með sigurinn í mótínu en takmarkið
í vetur er að sigra á íslandmótinu
og leggst það ágætlega í mig. FH
verður helsti andstæðingur okkar.
Við -áefum tvisvar í viku og er ég
mjög ánægð með þjálfarann. Hann
er mjög góður.
Helsti styrkleiki okkar er sóknar-
leikurinn en vörnin mætti vera betri.
Ég stefni að því að komast í lands-
liðiö eins og uppáhaldsleikmaður
minn sem er Kristján Arason."
Ekki gátum viö truflað Öglu lengur
því að hún þurfti að fara að taka á
móti verðlaunum sínum.
Stefei að því að verða
Islandsmeistari
- en HK er með besta liðið“
„Stefnum að því að vinna
sem flesta leiki“
Á áhorfendapöllunum hitti ungl-
ingasíðan Jón Steindór Sveinsson,
leikmann með 6. flokki UBK. Hann
varð góðfúslega við þeirri beiðni að
koma í stutt spjall og ræða um hand-
knattleik og spá í spilin.
„Ég spila sem hægri bakvörður og
er búinn að æfa handbolta í eitt og
hálft ár. Við æfum tvisvar í viku og
spilum svo stundum æfingaleiki þess
á milh. Ég hef aldrei unnið neinn tit-
il í handbolta. Um möguleika okkar
veit ég ekki svo mikið en ég held að
við eigum ekki möguleika á að verða
íslandsmeistarar. Ég held að HK
vinni mótið, þáð er besta liðið. Það
er því markmið okkar í vetur að
vinna sem flesta leiki og sjá svo hvar
við stöndum í lok móts.
Við höfum engan sérstakan styrk-
leika nema við erum með góðan
markmann."
Fylgist þú með 1. deildinni? „Já,
mikið. Uppáhaldsliðið mitt er aö
sjálfsögðu UBK en ég held að Valur
verði íslandsmeistari. Uppáhalds-
leikmaöur minn er Þorgils Óttar
Mathiesen."
Hvaö með framtíðina, áttu þér ein-
hvern draum sem handknattleiks-
maður? „ Já, að komast i landsliðið."
Þetta sagði Jón Steindór Sveinsson
í spjalli við unglingasíðu DV rétt fyr-
ir jólin.
- segir Rúnar Ágústsson, 6. flokki HK
Er unglingasíðan var stödd á jóla-
móti Hauka hittum viö hressan
leikmann að máli, Davíð Örvar Ól-
afsson, en hann er miðjumaður í 6.
flokki karla.
„Ég æfði fyrst handbolta fyrir
tveimur árum en í fyrra æföi ég ekk-
ert. í haust mætti ég aftur og finnst
mjög gaman á æfingum núna. Við
érum með þrjár æfingar á viku og
finnst mér þær ekki nógu langar,
þær mættu afveg vera í tvær klukku-
* stundir hver.
Ég hef ekki unnið til verölauna í
handbolta og takmark okkar í vetur
er því að sigra í okkar riðli á íslands-
mótinu og veröa síðan meistarar. Það
veröur samt mjög erfitt því HK er
meö besta liðið.
Helsti styrkleiki okkar er mark-
varslan og er markmaðurinn mjög
góður. í liðinu eru einnig fleiri góðir
einstaklingar þannig að við ættum
að geta orðið ofarlega í vor.
Uppáhaldsleikmaður minn er
Kristján Arason, en ég held með Val
á íslandmótinu," sagði Davíð að lok-
um.
• Davið Örvar Olafsson.
Stuttu fyrir verðlaunaafhendingu í
jólamótinu hittum við hressan leik-
Rúnar Ágústsson vakti mikla at-
hygli fyrir snjallan leik með 6. flokki
HK og varð hann góðfúslega við
þeirri ósk að svara nokkrum spurn-
ingum.
' „Ég spila á miðjunni sem leik-
stjórnandi. Við erum vel undirbúnir
og æfum þrisvar í viku og spilum svo
líka æfingaléiki. Við stefnum að sjálf-
sögðu að því að verða íslandsmeist-
arar, annað kemur ekki til greina.
Okkar helsti styrkleiki er sóknin og
hraðaupphlaup."
Fylgistu með 1. deildinni? „Já,
uppáhaldsliöið mitt er Fram en ég
held að FH vinni. Uppáhaldsleikmað-
urinn minn er Guðmundur Guð-
mundsson."
Áttu þér einhvern draum sem
handboltamaður? „Að verða íslands-
meistari meö HK.“ Þetta sagði Rúnar
Ágústsson, hinn skemmtilegi leik-
maður með 6. flokki HK, að lokum.