Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988.
5
Fréttir
Hagvangur kannar fylgi sijómmálaflokkanna:
Samhljóða
DV könnun
Kvennalistinn eykur fylgi sitt
mest frá síðustu kosningum og
hlýtur 21,3% fylgi yrði kosið nú,
samkvæmt niðurstöðum könnunar
sem Hagvangur gerði í síðustu viku
og kynnt var i gær. Er niöurstaða
könnunar Hagvangs nánast eins í
öUum atriðum og niðurstaöa könn-
unar DV á fylgi stjórnmálaflokk-
anna sem birt var i gær og er
munurinn alls staöar innan
skekkjumarka.
Samkvæmt Hagvangskönnun-
inni fær Alþýðubandalagið 8,4%
fylgi, Alþýðuflokkurinn 9,2%,
Framsóknarflokkurinn 24,1%,
Sjálfstæðisflokkurinn 29,8% og
Borgaraflokkurinn 5,6% fylgi.
Fylgi Þjóðarflokks og flokks
mannsins mælist 0,8%, en sérfram-
boð Stefáns Valgeirssonar kemst
ekki á blað. í könnun DV kemur
fram að Alþýðubandalag fær
10,8%, Alþýðuflokkur 10,5%,
Framsóknarflokkur 22,9%, Sjálf-
stæðisflokkur 29,7%, Kvennalisti
21% og Borgaraflokkur 4,2%.
Flokkur mannsins fær í DV könn-
uninni 0,3% og Þjóðarflokkur 0,6%,
en BJ og Stefán Valgeirsson kom-
ast ekki á blaö. í ölium þeim tölum,
sem að framan eru taldar, er miðað
viö þá sem afstöðu tóku í könnun-
unum.
Hagvangur kannaði einnig af-
stöðu til ríkisstjórnarinnar og þar
kemur fram að andstaða við ríkis-
stjórnina fer vaxandi og eru
andstæðingar hennar nú fleirl en í-
síðustu könnun. Nú styðja ríkis-
stjórnina 47,9% aðspurðra en iiö-
lega helmingur er á móti henni. í
sambærilegri Hagvangskönnun í
október hafði rikisstjórnin stuðn-
ing um 60% aðspuröra.
-ój
Bensín-
hækkun
mótmælt
Menningarverðlaun
DV í áratug
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
hefur nú sent frá sér mótmæb vegna
hækkunar á bensíni í því skyni aö
standa undir endurgreiðslum á upp-
söfnuðum söluskatti.
TCT 36, 14" litsjónvarp,
staðgreitt kr. 17.846.
í frétt frá félaginu er sagt að með
þessu vilji ríkið taka til sín verölækk-
un á bifreiðabensíni erlendis í því
skyni að greiða skuld sína við til-
tekna atvinnugrein. Lækkunin muni
því ekki skila sér til neytenda sem
skyldi og telur félagið þetta furðulega
ráðstöfun í ljósi þeirrar álagaöldu
sem nú ríður yfir.
Ennfremur segir í fréttinni: „Félag
íslenskra bifreiðaeigenda telur þessa
hugmynd um dulbúna skattlagningu
yfirgengilega ósvífni og ekki sam-
rýmast gildandi lögum og mótmælir
henni því harðlega.“
-PLP.
TCT 5213,20" fjarstýrt litsjónvarp,
staðgreitt kr. 27.413.
TCT 365,14" fjarstýrt litsjónvarp,
staðgreitt kr. 21.623.
STONVARPSMIÐSTÖÐIN
Síðumúla 2, símar 689090 - 689091
Væntanleg bensínhækkun:
Yfírgengileg ósvrfni
Eins og fram hefur komið í fréttum
stóð til að lækka bensínlítrann um
1,50-1,70 krónur vegna erlendra
verðlækkana. Verðlagsráð tók málið
fyrir á fundi í síðustu viku en
ákvörðun var frestað.
Nú hafa þær fregnir borist að til
standi að taka þessa lækkun upp í
endurgreiðslur á uppsöfnuðum sölu-
skatti.
DV hafði samband við Jónas
Bjarnason hjá FÍB vegna þessa máls.
„Við lásum fyrst um þetta mál í
Morgunblaðinu á laugardaginn var.
Siðan heyrðum við að til þess að rík-
isstjómin gæti gert þetta þyrfti að
koma til breyting á lögum. Okkur
skilst að þegar sé búið að semja frum-
varp þess efnis og að til standi að
leggja það fram nú á næstu dögum.
Slíkar aðgerðir era náttúrlega ekk-
ert annað en stuldur. Það er yfir-
gengileg ósvífni ef lækkun þessi á
ekki að renna til neytenda. Ef þetta
fjármagn er á annað borð fært til þá
á að minnsta kosti að verja því í vega-
kerfi landsins en ekki til að greiöa
skuld ríkisins við tiltekinn atvinnu-
veg.“ -PLP
.......................
HER ER
LÆKKUN
SEM
UM MUNAR
Þann 25. þessa mánaðar verða
Menningarverðlaun DV afhent í
tíunda sinn og hafa dómnefndir
þegar hafist handa. Eins og venju-
lega verða viðurkenningar veittar
fyrir afrek í sex listgreinum á árinu
1987, það er fyrir bókmenntir, leik-
list, tónlist, myndlist, byggingarlist
og kvikmyndagerð, en í tilefni af
tíu ára afmæh verðlaunanna hefur
stjórn DV ákveðiö aö stofna til sjö-
undu verðlaunanna og verða þau
framvegis veitt fyrir íslenska list-
hönnun.
Dómnefndir eru skipaðar list-
gagnrýnendum DV, fulltrúum
listamanna og sérfræðingum utan
úr bæ og taka nefndimar breyting-
um frá ári til árs til að tryggja
nauösynlega endurnýjun.
Verðlaunin sjálf eru i formi sér-
hannaðra listmuna eða skúlptúra
sem þekktir íslenskir listamenn fá
að gera eftir eigin höfði.
í þetta sinn er gerð verðlauna-
gripanna í höndum Margrétar
Jónsdóttur, keramíkhönnuðar á
Akureyri, en hún hefur vakið at-
nygh fyrir keramíkskúlptúra sína
sem að hluta til eru gerðir með
ævafornri japanskri brennslu-
tækni.
Afhending menningarverðlaun-
anna fer fi^un við sérstakan
TCT 52, 20" litsjónvarp,
staðgreitt kr. 23.914.
Thor Vilhjálmsson rithöfundur og Ellert B. Schram, ritstjóri DV, við af-
hendingu Menningarverðlauna DV i fyrra, en þá hlaut Thor bókmennta-
verðlaun blaðsins fyrir skáldsögu sina, Grámosinn glóir, sem nú hefur
einnig bætt við sig Norðurlandaráðsverðlaunum.
málsverð í Þingholti, Hótel Holti,
og er málsveröurinn sömuleiðis
sérstaklega „hannaður" fyrir þetta
tækifæri.
Á næstu vikum mun DV segja
nánar frá undirbúningi menning-
arverðlaunanna, dómnefndum,
gerð verðlaunagripanna og þeirri
matarlist sem venjulega er framin
við afhendinguna, auk þess sem
skyggnst verður til baka í tilefni
af tíu ára afmælinu. -ai