Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988. Viðskipti i ! í í England er í sigtinu hjá steinullarverksmiðjunni - veruleg viðskipti við Færeyinga Steinullarverksmiðjan á Sauðár- króki seldi á síðasta ári 350 til 360 tonn til Færeyja og er fyrirtækið nú með um helminginn af færeyska markaðnum. En það sem meira er, verksmiðjan er byrjuö að selja steinull tU Englands og telur Þórð- ur Hilmarsson, framkvæmdastjóri verksmiðjunnar, að verulegar iík- ur séu á að þar geti orðið markaður upp á um eitt til tvö þúsund tonn á ári. „Við stöndum í viðræðum við enskt fyrirtæki sem myndi dreifa steinullinni í Englandi. Ég er bjart- sýnn á að England geti orðið verulegur markaður hjá okkur,“ segir Þórður. Hann ségist einnig horfa til Grænlands sem framtíðarmarkað- ar en flutningsvandamál þangað, sem stöfuðu af fáum skipaferðum, stæðu í vegi fyrir umtalsverðri sölu þangað. Um afkomuna á þessu ári segir Þórður að útlit sé fyrir að hún hafi verið betri en menn þorðu að vona þegar fyrirtækið var endurskipu- lagt. Framleiðslugeta verksmiðj- unnar er um 6500 tonn af steinull á ári en sala hennar innanlands er um 4 þúsund tonn á ári. -JGH Vmnumarkaðurinn: Svona er skiptingin Vinnumarkaðurinn á íslandi sam- anstendur af um 150 þúsund manns, samkvæmt upplýsingum úr frétta- bréfi Verslunarráðs íslands. Fram kemur að um 15 prósent vinna í sjáv- arútvegi og fiskvinnslu, um 16 prósent í framleiðsluiðnaði, um 15 prósent í verslun, um 10 prósent í byggingariðnaði, um 7 prósent í sam- göngum, um 7 prósent í landbúnaði og 30 prósent í þjónustu. _jgh Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggö Sparisjóðsbækurób. 22 Allir Sparireikningar 3ja mán.uppsögn 22 25 Ab.Sb 6mán. uppsögn 23-27 Ab.Sb 12mán.uppsögn 24 30.5 Úb 18mán. uppsögn 34 Ib Tékkareikningar, alm. 10-12 Sp.lb. Vb.Ab, Sb Sértékkareikningar 12-24 Vb Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb. Lb.Vb Innlán með sérkjörum 20-34 Sb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 6 7,25 Ab Sterlingspund 7.5 8 Ab.Vb Vestur-þýskmörk 2 3,25 Ab Danskarkrónur 7,50-9 Vb.Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 34 35 Ib.Lb, Úb.Bb, Viðskiptavíxlar(forv.) (1) 36 eða kaupgengi Almenn skuldabréf 36 37 Lb.Bb, Ib Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(vfirdr) 36 39 Lb.lb, Utlan verðtryggð Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb Útlántilframleiðslu Isl. krónur 33 36 Bb.Lb, SDR 8-8,5 Lb.Bb, Sb Bandaríkjadalir 9-10 Lb.Bb. Sb.Sp Sterlingspund 10,5-11,25 Úb Vestur-þýskmork 5 5.75 Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 51,6 4.3 á mán. MEÐALVEXTIR Óverðtr.jan.88 36,2 Verðtr. jan. 88 9,5 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitalajan. 1913 stig Byggingavísitalajan. 345,1 stig Byggingavísitalajan. 107.9stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1 . jan. VERÐBRÉFASJÓOIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávöxtunarbréf 1,3927 Einingabréf 1 2,550 Eíningabréf 2 • 1,489 Einingabréf 3 1,588 Fjölþjóðabréf 1,268 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,572 Lifeyrisbréf 1.282 Markbréf 1,322 Sjóðsbréf 1 1,253 Sjóðsbréf 2 1,173 Tekjubréf 1,311 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 130 kr. Eimskip 365 kr. Flugleiðir 252 kr. Hampiðjan 136 kr. Hlutabr.sjóðurinn 141 kr. Iðnaðarbankinn 154 kr. Skagstrendingurhf. 186 kr. Verslunarbankinn 133 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbánk- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Þráinn kominn út í sjáKstæðan rekstur Þráinn Þorvafdsson vinnur nú að ráðgjafarverkefnum varðandi útflutning Þráinn Þorvaldsson er hættur sem framkvæmdastjóri Útflutningsráðs íslands. Hann er nú kominn með sinn eigin rekstur á sviði ráðgjafar í útflutningi og almennri stjórnun fyr- irtaskja. „Ég kvaddi hjá Útflutningsráði á fóstudaginn þannig að í dag er ég í fríi og tek það rólega," sagði Þráinn við DV í gær. Að sögn Þráins vantar tilfmnan- lega þekkingu á útflutningsmálun- um innan fyrirtækja og því gætir mikillar eftirspurnar eftir ráðgjöf á því sviði. Þráinn er 43 ára. Hann var í níu ár framkvæmdastjóri Hildu hf. í fe- brúar 1985 hóf hann störf hjá Útflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins sem síðan var breytt í Útflutningsráð íslands. fyrirtækja og almenna stjórnun. -JGH Um 300 hættir að vinna hjá iðnaðinum Um 300 störf hafa horfið í íslensk- um iðnaði á síðustu mánuðum vegna þess að fyrirtæki hafa lokað eða dregið saman rekstur, segir í nýlegri fréttatilkynningu frá Félagi ís- lenskra iðnrekenda. Ennfremur kemur fram að frá upp- hafi árs 1986 til loka ársins 1987 hækkaði launakostnaður um 73 pró- sent hjá iðnaðinum. -JGH Þrír millj- arðar í spari- skírteinum innleysan- legir fram í lok apríl Spariskírteini ríkissjóðs fyrir um 3 milljarða króna eru ínnleys- anleg á tímabilinu janúar til apríl, samkvæmt upplýsingum úr Verðbréfamarkaðnum, mán- aðarriti Fjárfestingafélagsins. Um er að ræða 14 flokka spari- skirteina ríkissjóðs. Raunvextir flestra flokkanna eru mun lægri en þeir vextir sem nú bjóðast á nýjum spariskírtein- um en þeir eru á bilinu 7,2 til 8,5 prósent. Önnur verðbréf á fjár- magnsmarkaðnum bera enn hærri raunvexti eða frá 9 til 15 prósent. -JGH Könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Verslunarráðið: Skoðun tímaríta í réttu Ijósi í nýlegri könnun sem Félagsvís- indastofnun Háskólans stóð fyrir, að tilstuðlan Verslunarráðs Islands, kemur fram að 40% landsmanna sjá tímaritið Mannlíf oft eða reglulega. Fast á hæla Mannlífs fylgja svo Sjón- varpsvísir Stöðvar 2 með 37%, Hús og híbýli með 34%, og Nýtt líf með 29%. Þau tímarit sem menn sjá minnst, eða 9%, eru Áfangar, Bónd- inn, Frjáls verslun, Viðskipta- og tölvublaðið og Víkingur. í könnuninni, sem Verslunarráð lét gera, leynast upplýsingar, sem áður var talið, vegna misskilnings milli DV og Verslunarráðs, að væru þar ekki. Með því að leggja saman tölur í íjórum dálkum einnar töfl- unnar má finna hve mikill hluti hinna spurðu sá viðkomandi tímarit oft eða reglulega. Þær tölur eiga að vera tiltölulega sambærilegar við töl- ur úr eldri icönnunum um lestur tímarita og nýlegri könnun um lestur dagblaða. Þann fyrirvara verður að hafa á notkun þessara talna að þær sýna ástand sem kom í kjölfar óvenjulega umfangsmikillar og harðskeyttrar útbreiðsluherferðar fyrir tímarit Frjálsrar verslunar. Búast má því við að tölur um blöðin Áfanga, Bílinn, Fiskifréttir, Frjálsa verslun, Iðnað- arblaðið, Mannlif, Nýtt líf og Sjávar- fréttir séu því hærri en verið hefði í eðlilegu ástandi. Með þessum fyrirvara hefur DV nú unnið úr könnun Félagsvísinda- stofnunar og lagfært hinar birtu tölur Verslunarráðs, þannig að þær ná yfir mikla skoðun viðkomandi fjölmiðils, svo sem venja hefur verið í slíkum könnunum hér á landi. Ef tekið er tillit til áðurnefndrar her- ferðar, má búast við að Sjónvarpsvís- ir og Hús og híbýh séu í raun meira skoðuð en Mannlíf. Samband íslenskra auglýsinga- stofa stóð fyrir- könnun á lestri tímarita í nóvember og desember 1982. Þessar tvær kannanir eru ekki að öllu leyti sambærilegar þar sem ekki var eins spurt. En til fróðleiks látum við nokkrar tölur úr þeirri könnun fylgja með. Hús og híbýli var með 40,3% lestur og tískublaðið Lif fylgdi fast á etir með 36,8%. Samúel náði 30,8 prósentum og Vikuna lásu 28,1 prósent. Þess ber að geta að þess- ar tölur eru vegið meðaltal hlutfalls- legrar dreifingar. Til hliðsjónar má geta þess að í fyrrnefndri könnun á lestri dag- blaða, sem gerð var í sumar, sáu 75% Morgunblaðið daglega eða oft en 67% sáu DV. Lestur tveggja stærstu dag- blaðanna er því miklu víðtækari en lestur stærstu tímaritanna, séu rétt- ar tölur notaðar til viðmiðunar. - StB Morgunblaðið og DV bera höfuð og herðar yfir önnur dagblöð, eins og sést á þessu súluriti. Sjötíu og fimm prósent sjá Morgunblaðið daglega eða oft og sextiu og sjö prósent sjá DV daglega eða oft. 80- 70- 60- 50- 40- 30- 20- 10- o-- Til muna færri sjá mest lesnu tímaritin en mest lesnu dagblöðin. Athugið þó, að tölur um Mannlíf og önnur herferðarblöð eru ýktar í könnuninni vegna herferðar á undan henni. tfraorayenem

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.