Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988.
9
Útlönd
ísraelskir hermenn á hlaupum til þess að sundra mótmælagöngu Palestínumanna á Vesturbakkanum. Palestinu-
menn höfðu hlaðið grjóti á veginn til að hefta framför hermannanna. Simamynd Reuter
Bandaríkin beita
Mesti snjór í 100 ár
Miklar samgöngutruflanir urðu í
sovésku lýðveldunum Georgia,
Armeníu og Azerbaijan í gær,
vegna gífurlegrar snjókomu þar.
Kyngdi niður meiri snjó á þessu
svæði í gær heldur en gert hefur
nokkum tíma undanfarin eitt
hundrað ár. Meöal annars varð að
stöðva feröir járbrautarlesta yflr
Kákasusfjöll, að sögn sovésku
fréttastofunnar Tass.
Snjóflóö hafa falliö víða á þessu
svæði, vegir em ísi lagðir og víða
lokaðir með öllu og rafinagnslínur
eru mjög hlaönar ísi, hafa sums
staðar slitnað niður vegna hans.
Að sögn Tass féll allt aö þijú
hundruð og tuttugu sentímetra lag
af snjó þar sem verst var.
Snjókoma olli einnig nokkrum
vandkvæðum og umferðartruflun-
um í Tyrkiandií gær, meðai annars
í Istanbul.
Eiturlest af sporinu
neitunawaldi
Bandaríkin beittu í gær neitunar-
valdi er gengið var til atkvæða-
greiðslu um ályktun öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna þar sem skorað
var á ísraelsk yflrvöld að fylgja Gen-
farsáttmálanum varðandi meðferð á
óbreyttum borgurum á stríðstímum.
Var þetta í annað skipti á tveimur
vikum sem Bandaríkin koma í veg
fyrir samþykkt sem gagnrýnir stefnu
ísraels.
Fulltrúi Bandaríkjanna sagði
ályktunina ekki koma að gagni auk
þess sem hún væri ótímabær á með-
an diplómatískar tilraunir færu fram
annars staðar. Kvað hann Bandarík-
in vera í beinu sambandi við deiluað-
ila varðandi lausn málsins.
Þrátt fyrir afstöðu Bandaríkjanna
heitir aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, Perez de Cuellar, að halda
áfram friðartilraunum. Hann hefur
i skýrslu um ástandið á herteknu
svæðunum hvatt til alþjóðlegrar frið-
arráðstefnu um Miðausturlönd.
Vamarmálaráðherra ísraels, Yitz-
hak Rabín, hefur látið þá skoðun í
ljós við ísraelska þingmenn að óeirð-
irnir á herteknu svæðunum, sem
þegar hafa krafist fjörutíu og eins
mannslífs frá þvi í desember, gætu
haldið áfram mánuðum saman. Isra-
elskir hermenn skutu til bana tyo
Palestínumenn í gær og rúmlega
tuttugu Palestinumenn særðust í
átökum á Vesturbakkanum. Menn-
irnir voru skotnir til bana þegar
hundruð ungmenna köstuðu grjóti
að farartækjum hermanna. Skotin,
sem felldu mennina, komu frá venju-
legri bifreið en ekki er vitað hvort
óbreyttir borgarar ferðuðust í henni.
Rauðskinnar sigruðu
Anna Bjamason, DV, Denver:
Bandaríska fótboltaæðinu og
skrautsýningunni í San Diego er lok-
ið með sigri Rauðskinnanna frá
Washington DC. Þeir gersigruðu
Broncoliðið frá Denver með 42 stig-
um gegn 10. Stuðningsmenn Denver-
liðsins brosa gegnum tárin og sumir
köstuðu Broncopeysunum sínum á
arineldana í vonbrigðum sínum.
Úrslitaleikurinn er sá sögulegasti
sem fram hefur farið og sviptingarn-
ar í leiknum meiri en elstu menn
muna. Broncoliðið var talið sigur-
stranglegra. Þegar það skoraði 10
fyrstu stig leiksins gegn engu í fyrstu
lotunni töldu margir að úrslitin væru
ráðin. Svo var þó ekki. Rauðskinn-
arnir breyttu vörn í sókn og kæfðu
allar sóknartilraunir Denverliösins í
fæðingu og tóku leikinn gjörsamlega
í sínar hendur. Rauðskinnarnir skor-
uðu 35 stig í annarri lotu. Eftirleikur-.
inn varð þeim auðveldur og þeir réöu
lögum og lofum til leiksloka. Það var
enginn vafi á því að betra liðið sigr-
aði.
Fagnaðarlæti Washingtonbúa voru
gífurleg. Vonsviknir Denverbúar
heiðruðu eftir sem áður lið sitt með
skrúðgöngu um miðborgina og úti-
hátíð.
Gleiðast brosa þeir sem græddu
ómældar fjárfúlgur á leiknum.
Þeirra á meðal eru minjagripasalar
og einnig ABC-sjónvarpsstöðin sem
keypti einkarétt á sjónvarpi frá
leiknum og seldi síðan 30 sekúndna
auglýsingainnskot á 1,4 milljónir
dollara. Innskot auglýsinga voru
ótrúlega mörg því að leikurinn stóð
í rúmar fjórar klukkustundir þótt
leiktími án tafar sé ekki nema ein
klukkustund.
Útvarpiö i Moskvu skýrði frá því í gær aö tankvagn hefði rifnað og eitur-
efni lekið úr honum þegar lest fór út af spori sínu nálægt borginni
Yaroslavl, um tvö hundruð og fimmtíu kílómetra norð-austur af Moskvu
í gær.
Sagði útvarpið aö hætta væri á loftmengun vegna lekans og að sveitir
þjóðvarðliða ynnu nú aö hreinsunarstörfum á staðnum. íbúar í næsta
nágrenni viö slysstaðinn hafa veriö fluttir á brott.
Utvarpið nefndi ekki hvert eiturefniö sem lak út hefði verið og skýröi
ekki frá því hvort slys hefðu orðið á fólki vegna lekans.
Lestin var á leiöinni norður til borgarinnar Vologda.
Sleginn til riddara
Breska utanríkisráðuneytið til-
kynnti í gær að Elísabet Bretlands-
drottning hygðist slá Caspar
Weinberger, fyrrverandi varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, til
riddara í heiðursskyni. Hlýtur
Weinberger upphefð þessa fyrir
framlag sitt tfl samvinnu Breta og
Bandaríkjamanna í vamarmálum.
Weinberger verður sleginn til
riddara þegar hann heimsækir
Bretland þann 22. febrúar næst-
komandi.
Fyrir úrslitaleikinn lét þessi aðdá-
andi Denverliðsins grísina tákna
sóknarmenn Rauðskinna. Ekki fer
sögum af því hvort grísirnir hafi ver-
ið látnir skipta um félagsbúning eftir
leikinn.
Simamynd Reuter
sérverslun
Miðbæ
Háaleitisbraut
58-60
Reykjavik.
Sími 32347
P0STSENDUM,
Dömu-
hár
toppar
stuttir
síðir
Nýjasta tíska
50 litir
Verð frá kr. 1700-2000
Herra-hártoppar
Algjör nýjung
Stórkostleg
verðlækkun
Verð kr. 4500