Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Síða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988.
Neytendur
Klukkutímavinna á svimandi verði:
Gardínur kostuðu 22.000 krv
með uppsetningu 27.000 kr.
Fyrir jólin síöustu ákvaö heimavinn-
andi húsmóðir í Kópavoginum,
Aðalheiður að nafni, að kaupa nýjar
heimilisgardínur fyrir þrjá glugga af
minni gerðinni og gaflglugga, sam-
tals um 4 fermetra.
Henni leist best á Pílugluggatjöld
sem heita Luxaflex. Kaupmaðurinn
í Pílurúllugluggatjöldum upplýsti
hana um að þeir sæju um uppsetn-
ingu á gardínunum. Sendur yrði
maður til að mæla fyrir gardínunum,
þær síðan framleiddar og svo settar
upp af sama manni.
í ljós kom að verð gardínanna yröi
22.563 kr. Aðalheiður greiddi kaup-
manninum þá upphæð en fékk
jafnframt að vita aö uppsetningar-
gjald ætti hún að greiða þeim sem
mældi út og setti upp. Hann væri
verktaki á vegum fyrirtækisins.
Uppsetningarmaðurinn
kemur
Á Þorláksmessu, þegar íbúð Aðal-
heiðar ilmaði af kæstri skötu og
jólatónlist var spiluð, rann stóra
stundin upp. Uppsetningarmaðurinn
var mættur meö gardínurnar og hús-
móðirin sá fram á að íbúðin yrði með
glæsilegasta móti um jóhn. Uppsetn-
ingarmaðurinn skutlaði gardínun-
um upp á innan viö klukkutíma og
ekki mátti í milli sjá hvort var á-
nægðara. Þá kom reiðarslagið.
Reikningurinn fyrir uppsetningunni
var skrifaður út í hvelh og hljóðaði
upp á 4.800 kr. Húsmóðirin spurði
nú sjálfa sig: Hvað er að gerast, syst-
ir mín fékk sömu þjónustu fyrir 1.500
kr. fyrir sex mánuðum? Uppsetning-
armaðurinn reyndi að útskýra
reikning sinn án þess þó að sættir
næðust. Síöan komu jóhn.
Hann er ekki á okkar vegum
Aðalheiður leitaði aftur eftir jóhn
á náðir þeirra í Pílugluggatjöldum
þar sem henni fannst gardínurnar
hafa hækkaö ótrúlega mikið í verði
eða úr 22.563 kr. í 27.363 kr. Kaup-
maðurinn sagði aö maður þessi væri
ekki á sínum vegum nema að því
Darraðardans hjá uppsetningarmanni/kaupmanni og kaupanda
Svona líta festingar út fyrir Luxafiex giuggatjöld. Fyrir hverri einingu þarf aö bora fjórum sinnum. DV-mynd S
leyti að hann sæi um að setja upp
gardínur fyrir fyrirtæki sitt. Kaup-
maðurinn væri aðeins milhgöngu-
maður vegna þjónustu hans. Hann
bæri því ekki ábyrgð á verði því sem
upp væri sett og gæti því ekkert að-
hafst í þessu máh. Uppsetningarmað-
urinn ákvæði verð á sinni þjónustu
alfarið sjálfur.
Er á trésmiðataxta
Blaðamaður hafði samband við
kaupmanninn og spurði hvað honum
fyndist um verð þessarar þjónustu.
„Ég treysti mér ekki til að dæma um
það, ég veit ekki hve mikil vinna var
innt af hendi í þessu tilviki. Ég veit
bara að þessi maður er mjög ábyggi-
legur og stendur við sitt, þess vegna
hef ég bent á eða fengið hann til þjón-
ustu í okkar þágu í tvö ár.“
Uppsetningarmaöurinn, sem alla-
jafna starfar sem sendibílstjóri,
sagðist hafa komið og mælt fyrir
gardínunum. Fyrir það hafi hann
skrifað á sig hálftíma, auk aksturs. í
seinna skiptið, þegar hann setti gard-
ínurnar upp, hafi hann síðan tekiö
visst áþær 8 einingar sem hann setti
upp. „Eg fer aö mestu leyti eftir taxta
trésmiða og vil bara að fólk gefi sér
örlítinn tíma til að hlusta á útskýr-
ingar varöandi uppgjör á þessari
vinnu.“
Mestmegnis vinna
með borvél
Eftir því sem næst veröur komist
var vinna sú sem maðurinn vann að
bora 30-35 göt, setja tappa í og skrúfa
síöan gardínurnar upp. Þetta tók
hann um eina klst. Geri aðrir betur.
Sjálfsagt hefðu þó flestir ákveðið að
gera þetta allt saman sjálfir heldur
en að borga um 5.000 kr. fyrir aö láta
einhvern annan gera það.
Til þess að svona leiðindi komi
ekki upp er ráðlegast fyrir þá sem
reka verslanir með sambærilegan
vaming að kynna rækilega fyrir við-
skiptavinum sínum hvaö þjónusta
af svipuðuðu tagi muni nokkum veg-
inn kosta.
-ÓTT.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð j)ér orðinn virkur þátttak- |
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar |
ijölskyldu af sömu stœrð og yðar. |
Nafn áskrifanda______________________________________ j
■ i
Heimili______________________________________________ j
Sími________________________________________________ j
i
Fjöldi heimilisfólks_________
/ i
Kostnaður í janúar 1987:
i
Matur og hreinlætisvörur kr. _______________________
Annað kr. ___________________ l
I
Alls kr. ___________________
brauð
brauði, sem þarf nokkuð langan
bökunartíma. Ágætt væri að setja
brauðið inn í ofn síðdegis og taka
síðan út að morgni.
1 kg rúgmjöl
3 litlir bollar sykur
7 tsk. lyftiduft
11 mjólk
Þetta er allt hrært saman í hrærivél
og haft stíft þannig að það þurfi að
hafa fyrir því að taka deigið úr skál-
inni. Að þessu loknu er ílát, t.d.
kökubox, smurt að innan og deiginu
komiö fyrir og lok sett á. Bökunar-
tími rúgbrauðsins er heilir 17 tímar
við 100 gráðu hita.
Döðlubrauð
2 bollar hveiti
Vi bolli sykur
‘A bolli döðlur
1 egg
1 tsk. salt
1 tsk. ger
1 tsk. matarsóti
1 msk. brætt smjörlíki
Gott er að byrja á að brytja döðl-
urnar niður og bleyta þær í heitu
vatni, blanda þessu síðan saman og
setja í smurt form. Bökunartími er
um einn og hálfur tími við 180 gráð-
Bökum meira
Rúgbrauð
Við látum hér fylgja tvær upp-
skriftir að brauðum á þessum síð-
ustu og verstu tímum brauðhækk-
ana.
Fyrst kemur uppskrift að rúg-