Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988. 15 Kekkjóttur ráö- stafanagrautur Þegar barátta stjórnarandstöðunn- ar gegn matarskattinum svokall- aða stóð sem hæst á Alþingi deyfði almennt jólaannríki umræðuna úti í þjóðfélaginu, auk þess sem fólk virtist hreinlega ekki átta sig á af- leiðingum þessarar aðgerðar fyrr en hún teygði hramminn inn fyrir dyr heimilanna að loknu jólahaldi. 25% söluskattur á matvæli virtist í húgum fólks aðeins tala á blaði, sem ekkert snerti raunveruleika daglegs lifs. Enda lofuðu ráðstaf- anakokkarnir í ráðuneytunum að þegar allar þeirra aðgerðir hefðu mallað saman stundarkorn yrði útkoman svo til alveg sú sama og gamli lífskjaragrauturinn. Nú blasir kaldur veruleikinn við bæði kokkum og kostgöngurum, almenningur nær ekki upp í nefiö á sér fyrir vanmáttugri reiði, og kokkarnir eru komnir út í horn í vörninni. Ráð- og rökþrota grípa stuðningsmenn stjórnarinnar til þess helst að svívirða stjómarand- stæðinga, sem reyndu til hins ýtrasta að koma í veg fyrir óhæf- una, og eru nafngiftimar býsna skrautlegar: „Nöldrarar“, „vandlætarar", „útblásnir blöðruselir", „kveink- andi ráðlausir smámunaseggir“ , japlá á sínum matarskatti", „með tár í augum og hor í nefi“, en hér eru valin nokkur dæmi úr Al- þýðublaðinu og Tímanum frá síðustu dögum. Allt á aðra leið En hver eru rökin með og móti hinum alræmda matarskatti? Ráðstafanakokkarnir segja: Þetta er liður í endurskipulagningu tekjuöflunar ríkisins, sem fel$t í því að íækka og samræma toila og vörugjöld og fækka undanþágum frá söluskatti. Markmiðið segja þeir vera öruggari tekjuöflun ríkis- sjóðs, stórbætt skattskil og minni verðbólgu. Um afleiðingarnar af öllum þessum breytingum var svo afdráttarlaust fullyrt að fram- færsluvísitalan mundi ekkert breytast, byggingarvísitalan mundi lækka um 2,3% og láns- kjaravisitalan lækka um 0,8%. Rökin fyrir þeim fullyrðingum Kjallarinn Kristín Halldórsdóttir þingkona Kvennalistans voru máttlítil, enda hefur nú allt farið á aðra leið. Byggingarvísital- an lækkaði aðeins um 0,46%, lánskjaravísitalan hækkaði um 1,38% og framfærsluvísitalan hækkaði um 3,71% frá desember til janúar. Illa unnin mál Breytingar á tollalöggjöflnni voru vissulega nauðsynlegar, en því miður voru þær ekki nægilega vel unnar, sem sést best á því að þrátt fyrir alltof skamma umfjöllun á Alþingi tóku frumvörpin um tolla og vörugjald margvíslegum breyt- ingum og á hveijum einasta nefndarfundi komu fram ný álita- mál sem skoða hefði þurft miklu betur. Heilsufars- og manneldis- sjónarmið voru fyrir borö borin, og fulltrúar launafólks og neytenda komu hvergi nærri undirbúningi málanna, meðan aftur á móti full- trúar atvinnurekenda, innflutn- ings og verslunar voru hafðir með í ráðum. Stjórnarandstaðan er þess viss að með nánari umfjöllun mátti bæta tekjumöguleika ríkissjóðs og jafnframt draga úr þörfinni fyrir aðrar tekjulindir eins og t.d. matar- skattinn. Dæmið um ilmvötnin og fiskinn styðja þá skoðun, en með því að leggja vörugjald á ilmvötn og snyrtivörur fengust 130-140 millj. kr. sem nota á til að greiða niður hluta af neyslufiski. En stjómarþingmenn höfnuðu allri samvinnu við stjómarandstöðuna við endurskoðun mála. „Litla hryllingsbúðin“ Söluskattslögin eru þó sýnu verra og alvarlegra mál, enda bein atlaga að afkomu heimilanna og þeim mun harkalegri sem tekjurn- ar eru lægri þar sem brýnustu nauðsynjar vega hlutfallslega æ þyngra eftir því sem minna er til ráðstöfunar. Hækkun barnabóta og lífeyrisgreiðslna vegur lítið upp í þann útgjaldaauka sem matar- skatturinn veldur, auk þess sem fjöldi manns verður að þola þessa lífskjaraskerðingu bótalaust, svo sem námsmenn, bamlaust fólk og framfærendur barna yfir barna- bótaaldri. Vitanlega má halda því fram að matarskatturinn fullnægi kröfunni um örugga tekjuöflun ríkissjóðs, þar sem verið er að skattleggja það sem enginn lifandi maður getur verið án. Um leið fer ekki hjá því að hinn sísoltni ríkissjóður minni á mannætuplöntuna í „Litlu hryll- ingsbúðinni“, sem margir kannast við. Vandinn annars staðar Annar megintilgangur með mat- arskattinum er sagður vera að fá fram stórbætt skattskil. Það er þó ekkert sem tryggir betri skattskil, þótt nú hafi verið lögfest breikkun söluskattsstofnsins, sem fyrst og fremst tekur til matvæla. Embætt- ismenn hafa samsinnt þeirri skoðun að þessi lög leystu ekki þann vanda nema að mjög litlu leyti. Vandinn vegna lélegra sölu- skattsskila liggur ekki frekast í matvöruverslun eða í verslun yfir- leitt, hann er fyrst og fremst í þjónustu.og sjálfstæðri starfsemi af ýmsu tagi. Á þeim vanda er ekk- ert tekið í þessum nýsettu lögum. Þaö er einnig blekkjandi að láta sem nú hafi verið tekinn upp und- anþágulaus söluskattur, þegar staðreyndin er sú aö undanþágurn- ar skipta enn tugum og sumar margþættar. Auk þess eru heimild- ir til ráðherra aö veita íjölmargar undanþágur, m.a. vegna afruglara, svo að ein nauðþurftin sé nefnd. Flestar eru þessar nauðþurftir reyndar sjálfsagðar og nauðsýnleg- ar, en nauðsynlegust allra var undanþágan vegna matvæla, sem nú hefur verið felld niður. Storkun við launafólk Furðulegust er sú röksemd ráð- stafanakokkanna að matarskattur- inn sé liður í því því að minnka verðbólguna. Bágt er að skilja að nokkur trúi því í fullri alvöru að 25% söluskattur á brýnustu nauö- synjar fólks sé verðbólguletjandi. Þáð er veriö að veikja stöðu þeirra sem ævinlega fá minnstu bitana af nægtaborði þjóðfélagsins. Það er verið að þyngja byrðar þeirra sem eyöa mestum hluta tekna sinna í nauðþurftir, um leiö og þeim betur megandi er með tollabreytingum gert léttara að eignast ýmislegt sem ekki telst til lífsnauðsynja. Þessi ráðstöfun er beinlínis storkun við launafólk og olía á veröbógubálið, eins og þegar er komiö á daginn. Þetta er því ekki aðeins vond ráðstöfun og óréttlát heldur einnig blátt áfram heimsku- leg. Þetta gat hún gert Ríkisstjórnin þurfti ekki að leggja á matarskatt til að fylla upp í fjár- lagagötin. Hún gat lagt harðar að sér viö sparnað og hagræðingu. Hún gat skattlagt hæstu tekjur ein- staklinga umfram aðrar, eins og Kvennalistinn lagði til. Hún gat lagt hærri tekjuskatt á fyrirtæki sem ættu að hafa breiðari bök en almenningur. Hún gat skattlagt stóreignir, hún gat skattlagt vaxta- tekjur, og hún gat unnið betur tolla- og vörugjaldslögin þar sem kunna að leynast matarholur. Sá grautur, sem leiðir af upp- skrift ráðstafanakokkanna í ríkis- stjórn Þorsteins Pálssonar, er kekkjóttur og bragðvondur og ber það með sér aö næringarfræðin er ekki þeirra sterka hlið. Þessi graut- ur stendur nú í ráherrunum og gæti orðið þeirra banabiti. Kristín Halldórsdóttir „Furöuleg er sú röksemd ráðstafana- kokkanna, að matarskatturinn sé liður 1 því að minnka verðbólguna.“ Fyrir 51 ári, 71 ári og 101 ári „Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu voru 1. des. 1987 í Reykjavík 12.200 manns 65 ára og eldri. Auk þeirra eru í hættu fatlaðir (blindir o.fl.) undir 65 ára aldri.“ * Fyrir 51 ári I janúar 1937 kom ég í fyrsta sinn til Oslóar. Ég kom frá Kaupmanna- höfn en þar var ég stúdent og var komin til Noregs til að fá upplýs- ingar í ritgerð. Veðrið í Kaup- mannahöfn var leiðinlegt, rigning og rok. í Ósló var sólskin, logn en 20°C frost. Borgarlæknirinn (heil- brigðisráðherra eftir stríðið), Karl Evang, sýndi mér borgina og ég tók eftir, að á mörgum húsum voru menn uppi á þaki til að ryðja burt snjó og grýlukertum. Evang út- skýrði fyrir mér að ef grýlukerti dytti og slasaði einhvern yrði hús- eigandi að greiða háa sekt og háar skaðabætur. Fyrir 71 ári Sem barn var ég oft í skólafríum hjá afa og ömmu í borg með aðeins 30.000 íbúum í Bæheimi. Borgin var í fjallahéraði, 600 m yfir sjávar- máli. Veturinn var langur, frá október til aprílmánaðar, oft var 40°C frost. Ég sá þá að á hverjum morgni fóru afi og húsvörðurinn út um þakglugga og hreinsuðu snjó og grýlukerti af þakinu. Á eftir hreinsuðu þeir snjó af gangstétt- um. Væri ekki hægt að losna viö spjó að fullu dreifðu þeir ösku eða sandi. KjaUarirm Eiríka A. Friðriksdóttir hagfræðingur Amma sagði að hún heföi dottið fyrir nokkru (þetta var líklega árið 1917) á gangstétt nágrannans, en þar var hálka, og handleggsbrotn- að. Nágranninn varð að greiöa allan kostnað og háar miskabætur. Fyrir101 ári Afi skýrði mér frá að árið 1887, árið sem faðir minn fæddist, hefði verið mjög snjóþungt. Þá varð hann að hreinsa þakið dag eftir dag á meðan amma mín lá á sæng. Regl- an um snjómokstur er enn þá í gildi, skilst mér. Ósló 1985 í byrjun janúarmánaðar var ég stödd í Ósló á Drammensveien, (ekki í miðborginni) og sá að gang- sféttir voru hreinsaðar af húseig- anda og auk þess, þar sem um opinberar byggingar var að ræða, keyrði snjóplógur á gangstéttum og á eftir honum kom sanddreifari og var gangstéttin þá algerlega hættulaus fyrir gangandi. Reykjavík 1988 Skv. upplýsingum í blöðum koma daglega 10-15 manns á slysadeild- ina með handleggsbrot. Þetta fólk hefur dottið á hálku. Hálka var all- an janúarmánuð og ekki er útilok- að að hún haldi áfram. Má því búast viö að frost og hálka verði alls í 50 daga og þvi miður 500-750 slys vegna hálku. Ég reyndi því að fá upplýsingar hjá manni í borgarstjórn. Svar hans var hörmulegt. Hérlendis eru engar reglur um snjómokstur og eyðingu hálku. Aðeins er gert ráð fyrir að ís bráðni þar sem nýlega hafa verið lagðar pípur sem nýta frárennslisvatn frá húsum. Hins vegar eru engar reglur í bygginga- reglugerð, jafnvel frá 1979, um að píþur skuh lagðar undir gangstétt- ir. Endurnýjun vatnslagnakerfis og þar með hálkueyöing mun því taka 20-30 ár á að giska. Hann sagði að ekki væri hægt að hafa sömu reglu- gerö hér eins og í þeim mörgu löndum sem ég athugaði, þ.e.a.s að húseigendur hreinsuðu gangstétt- ir, vegna þess að húseigendur hérlendis væru of gamlir! En það er einmitt gamalt fólk sem dettur oftast og beinbrotnar. Hæstiréttur viðurkennir heldur ekki bóta- skyldu húseigenda. (sbr. mál nr. 27/1983, dómsúrsk. 22.5.1985). Hve margt fólk er þá í hættu í Reykjavík einni? Skv. upplýsingum frá Hagstofu voru l. desember 1987 í Reykjavík 12.200 manns 65 ára og eldri. Auk þeirra eru í hættu fatlaðir (bhndir o.fl.) undir 65 ára aldri. Séu þeir reiknaðir með verður tala þeirra sem eru í sérstakri hættu líklega um 13.000 - og þeir hafa kosningar- rétt! Kosningaraldur er nú 18 ár. 18 ára og eldri voru 1. desember 1987 alls 68.100 manns (erlendir rík- isborgarar búsettir hér meðtaldir). Fólk í hættu vegna hálku var í lok 1987: 12.200 af 68.100 eða 17.9% 13.000 af'68.100 eða 19.1% Þetta fólk gæti krafist af borgar- stjórn að fá reglugerð eða sam- þykkt til að forða þvi frá slysum eins og gert er í öðrum löndum. Erlendis er heldur ekki snjónum mokaö að gangstéttum. Sjálf var ég nærri lent undir strætisvagni þegar ég var að stíga út úr honum vegna þess að ég komst ekki alla leið yfir snjóinn á gangstéttina. Það varð mér til láns að ung stúlka hjálpaði mér. Eiríka A. Friðriksdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.