Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988. Menning Fleiri sýningar, meiri skúlptúr Myndlistarannáll ársins 1987 Nú er komiö aö uppgjöri myndlist- arársins 1987 en undirritaður hefur árlega haft fyrir siö að taka saman tölur um fjölda og tegundir myndhst- arsýninga og sýningarstaöi á íslandi og bæta við þær tölur eigin mati á myndlistariðkuninni yfirleitt. Eins og fyrri daginn liefur veriö haföur sá háttur á að halda saman upplýsingum um allar sýningar á landinu á tilteknu ári, hvort sem er í Reykjavík eða á Dalatanga, og draga af þeim marktækar ályktanir. Sjálfar tölurnar fara sjaldnast á milli mála en hins vegar má alltaf deila um flokkun sýninga eftir teg- undurfi, sjá töflu 3 hér á eftir. í stórum dráttum má segja að und- ir „máíverk ýmiss konar“ séu flokk- uð tvívíð myndverk, gerð með olíu-, vatns- eða pastellitum á striga, papp- ír eða krossvið. Ekki er heldur allsendis ljóst hvað átt er við með „skúlptúr", þar sem myndlistarmenn fara nú hver yfir á yfirráðasvæði annars í æ ríkara mæli, en ég reyni þó að halda mig við myndverk þar sem þrívídd og massi skipta meira máli en htróf. Liðurinn „sögufegar sýningar" á við yfirlitssýningar ýmiss konar eða sýningar þar sem meiri hluti verka er meira en tíu ára gamall. Hugtakið „nýhst“ hefur nú ekki sömu merkingu og það hafði fyrir tæpum áratug en þó held ég því til streitu fyrir ýmiss konar tilraunir með samsett verk og hugmyndalegar skírskotanir sem eiga einhverjar ættir að rekja til myndlistarstrauma áttunda áratugarins. Minna úti á landi Önnur hugtök í töflu 3 ættu að skýra sig sjálf. Ef við htum fyrst á töflu 1 sjáum við að listsýningar á landinu öllu eru næstum því jafnmargar og á metár- inu 1985. Jafnframt sést að frá árinu 1978 hefur listsýningum á landinu fjölgað um meira en helming. Þessa fjölgun sýninga, eftir fremur rýrt sýningarár árið 1986, má að hluta rekja til fjölgunar sýningar- staða en þeir hafa aldrei veriö fleiri, eða 68 alls. Þar munar mestu um mikla fjölgun sýninga að Kjarvalsstöðum svo og um framlag nýrra sýningarstaða á borð við Gallerí Svart á hvítu og FÍM-salinn, sjá töflu 2. Hins vegar hefur sýningarstöðum úti á landi fækkað stórlega, hafa ekki veriö færri um árabil. Ef til vill eru myndlistarmenn að þreytast á að sýna í óupphituðum og óupplýstum sölum samkomuhúsa víða um land. Ættu yfirvöld á hverjum stað að vinda bráðan bug að því að bæta sýningaraðstöðu hjá sér og gera þannig heimamönnum jafnt sem að- komumönnum kleift að kynna landsbyggðinni alls kyns myndlist. Síðan kemur í ljós að erlendum sýningum hefur fjölgað lítið eitt tölu- lega en ekki hlutfallslega. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson Eins og á fyrri árum var grafíkin uppistaða flestra þessara erlendu sýninga, og þá helst finnsk eða sam- norræn grafík. Oft og af smekkvísi Ef litið er á töflu 2 sést að hvergi hafa sýningar verið fleiri en að Kjarvalsstöðum, 34, en Nýlistasafnið er í öðru sæti með 25 sýningar á ár- inu. Rétt er að minna sérstaklega á frammistöðu Nýlistasafnsins sem nú heldur upp á 10 ára afmæli sitt en sér jafnframt fram á vaxandi rekstr- arerfiðleika. Á þessu ári hefur safnið aðeins úr 300.000 krónum að moöa. Af minni sýningarstöðum er það helst aö frétta að Gallerí Svart á hvítu stóð við flest þau loforö sem gefin voru er það hóf starfsemi, sýndi oft og af smekkvísi. FÍM-salurinn hóf störf seint á árinu en fullnægði þörfum þeirra hsta- manna sem vildu sýna takmarkaðan íjölda myndverka einhvers staðar nálægt miðbænum. Gallerí Gangskör var með stöðugar sýningar á minni myndverkum og Hafnargallerí við Hafnarstræti sinnti nýgræðingum í myndlistinni af kostgæfni. Tveir nýir sýningarstaðir utan Reykjavíkur, Glugginn á Akureyri og Hafnarborg í Hafnarfirði, fóru myndarlega af stað og lofar það góðu um framtíð þeirra. Því miður varð brátt um annan sýningarstað, Hlaðvarpann við Vest- urgötu, sem hafði þó ýmislegt sér til ágætis. Málverkið heldur sínu Þegar litið er yfir tegundir sýninga í töflu 3 sést gjörlaaö málverkið held- ur sínu þótt hlutfahslega hafi málverkasýningum fækkað frá því á árinu 1986. Þessi tafla sannar það sem margan hafði grunað að skúlptúr er í mikilli uppsveiflu á íslandi því að sú list- grein er komin í annað sætið. Á þeirri uppsveiflu hef ég ekki ein- hhta skýringu. Samruni skúlptúrs og málverks hefur mikið verið til umræðu, málarar hafa reynt fyrir sér á skúlptúrsviði og talsvert hefur verið um samkeppni um opinbera skúlptúra. Svona hlutir smita út frá sér, búa beinlínis til jákvætt and- rúmsloft kringum skúlptúrgerð. Hönnun, það er arkitektúr, keramík, glerhst, textíll o.íl., er svo í þriðja sæti en var í öðru. Örhtil aukning hefur orðið á graf- íksýningum en sýningum með ný- hstarlegu sniöi hefur fjölgað svo um munar. Ekki treysti ég mér til að hafa skoðun á þeirri fjölgun en trú- lega er hún einn anginn af ívitnunar- og rannsóknarstefnu póstmódernis- mans. Þá er mál að gera upp á milli sýn- inga. Ekki er hægt að horfa fram hjá yfirlitssýningu á íslenskri afstrakt- hst sem haldin var að Kjarvalsstöð- um því að á Jienni var margt verka sem gaman var að sjá í þessu sam- hengi. Hins vegar leið þessi sýning fyrir allt of skamman undirbúning og óljósar forsendur svo að minna varð úr henni en ætla hefði mátt. Margt í mörgu Hvað aðrar sýningar á íslenskri myndlist varðar þá standa mér fyrir Á árinu uppgötvuðu íslendingar allt í einu ágæta listakonu, Louisu Matthiasdóttur. Sýning Kristjáns Guðmundssonar á nokkrum skúlptúreiningum var án efa meðal markverðustu listviðburða ársins. hugskotssjónum sýningar þeirra hjóna, Jóns Gunnars Amasonar í Norræna húsinu og Rúríar að Kjarvalsstöðum. Af öðrum myndhstaruppákomum vil ég nefna sýningar þeirra Kristins G. Harðarsonar, Sigurðar Guð- mundssonar, Grétars Reynissonar, Jóns Axels, Huldu Hákonardóttur, Helga Þorgils, Sigurðar Örlygssonar og Georgs Guðna, allar í Gallerí Svart á hvítu, sýningu Louisu Matt- híasdóttur í Gallerí Borg, grafíksýn- ingar Ragnheiðar Jónsdóttur (Norræna húsinu) og Eddu Jóns- dóttur (Gallerí Borg), skúlptúrsýn- ingu Kristjáns Guðmundssonar (Ásmundarsal), málverkasýningu Hauks Dór (Kjarvalsstöðum), textíl- sýningu Ingibjargar Styrgerðar (Kjarvalsstöðum), viöhafnarsýningu Tryggva Ólafssonar (Listasafni ASÍ), sýningu Bjargar Örvar (Kjarvals- stöðum) og Margrétar Jónsdóttur (FÍM-salnum). Ef litið er til erlendra sýninga er engum blöðum um það að fletta, að grafíksýningin „Graphica Atlantica" var markverðasti myndhstarvið- burður ársins 1987. Þar mátti hta blóma vestrænnar grafíklistar í nú- tíð. í háum gæðaflokki Margar aðrar erlendrar grafíksýn- ingar voru einnig í háum gæðaflokki, þar á meðal sýning Pieters Holstein (Nýhstasafninu), Jacek Sroka (Gall- erí Hallgerði), Heikko Arpa & Maijettu Nuoreva (Gallerí Gang- skör), Outi Heiskanen (Norræna húsinu), Asgers Jöm (Norræna hús- inu) og á nýrri sænskri grafík (Norræna húsinu). Fjöldi listsýninga Tafla 1. 1978 1979 1980 1985 1986 1987 Listsýningar á landinu alls 125 167 188 272 215 264 Fjöldi sýningarstaða 23 30 45 60 55 68 Sýningar utan Reykjav. 22 24 25 52 48 36 Erlendarsýningar 39 49 53 47 38 44 Helstu sýningarsalir og fjöldi sýninga Tafla 2 ■ 1978 1979 1980 1985 1986 1987 Kjarvalsstaðir 17 23 21 26 22 34 Norræna húsið 21 25 19 24 14 17 Nýlistasafnið 21 24 25 Gallerí Borg 19 15 16 Ásmundarsalur 4 13 15 12 9 Mokka 13 13 7 Listas. ASÍ 12 12 Slunkaríki isaf. 9 4 Gallerí Svartáhvitu 14 Galierí Gangskör 11 FÍM-salur 8 Tegundir sýninga Tafla 3 1978 1979 1980 1985 1986 1987 Málverk ýmiss konar 56 58 76 147 143 131 Hönnun ýmiss konar 10 17 26 28 21 27 Grafík 16 24 18 25 19 21 Sögul. listsýningar 20 6 7 Skúlptúr 18 9 30 Ljósmyndir - 7 10 5 13 8 11 Nýlistir 20 20 20 11 10 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.