Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988.
23
Fréttir
Sjúkrabilar við slökkvistöðina á ísafirði.
DV-mynd BB, ísafirði
ísafjörður:
Færri útköll slökkviliðs
en brunatjón samt mikið
Siguijón J. Sigurðsson, DV, fsafirði:
„Það voru mun færri útköll hjá
Slökkviliði ísaijarðar á síðasta ári en
1986 en brunatjón varð samt mikið.
Þar ber fyrst að nefna brunann í
kirkjunni, síðan í verslunarmiðstöð-
inni Ljóninu," sagði Þorbjörn
Sveinsson slökkviliðsstjóri í samtali
við fréttamann DV.
Slökkviliðið var kallað út 32 sinn-
um í fyrra en 1986 alls 48 sinnum.
Það er athyglisverð fækkun milli
ára. Einnig var fækkun milli áranna
í sjúkraílutningum, aðstoð á sjúkra-
húsum og við elliheimili eða 803 í
fyrra en 926 árið 1986. Samt eru þessi
útköll fleiri en almennt gerist annars
staðar á landinu og gat Þorbjörn þess
til viðmiðunar að í Hafnarfirði voru
105 útköll slökkviliðs á síðasta ári,
29 í Garðabæ og 16 í Bessastaða-
hreppi. Sjúkraílutningar á þessu
svæði, þar sem íbúar eru um 20 þús-
und, voru 1324 á síðasta ári miöað
við 803 fyrir 3500 manna svæði hér
fyrir vestan. Þá gat hann þess að hér
á ísafirði störfuðu þrír við sjúkra-
flutningana og við það sem að þeim
snýr. Hins vegar 23 á svæöinu við
Hafnarfjörð.
„.AJmsvif slökkviliðsins hér fyrir
vestan eru því meiri en flesta grunar.
Svæðið er stórt eða nær vestur til
Þingeyrar og inn allt Djúp í sam-
bandi við sjúkraflutninga.
Örn Björnsson á skrifstofu útibús
Alþýðubankans á Hvammstanga.
DV-mynd Júlíus Guðni Antonsson
Útibú Alþýðu-
bankans
- nú á Hvammstanga
Júfius G. Antonsson, DV, V-Húnavatnssýslu:
Útibú Alþýðubankans á Blönduósi
opnaði afgreiðslu á Hvammstanga
þann 21. janúar. Afgreiðsla hefur
verið að Gauksmýri í Kirkju-
hvammshreppi á síðastliðnu ári. Að
sögn Arnar Björnssonar, útibús-
stjóra á Blönduósi, hafa viðskipti
Vestur-Húnvetninga vaxið jafnt og
þétt við bankann. Örn sagði að fjöl-
margir viðskiptavinir hefðu óskað
eftir því að opnuð yrði afgreiðsla á
Hvammstanga í staö þeirrar á
Gauksmýri. Afgreiðslan, sem er í
skrifstofuhúsnæði á efri hæð Höfða-
brautar 6, verður opin á mánudögum
og fimmtudögum frá kl. 13.30 til 16
en að sögn Arnar er stefnt að því að
opið verði á venjulegum opnunár-
tíma bankans.
Bílvelta í Hörgárdal
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Bílvelta varð við bæinn Ytri-Bæg-
isá í Hörgárdal á fóstudagskvöld.
Ökumaður missti stjóm á bifreiðinni
sem hafnaði utan vegar, en tvennt
sem var í bifreiðinni slapp með
skrámur.
Talsvert var um árekstra á Akur-
eyri um helgina enda mikil hálka á
götunum. Þó voru þeir flestir minni
háttar og ekki slys á fólki. Einn
árekstranna var harður, hann átti
sér stað rétt norðan við bæinn er
ökumaður bifreiðar ætlaði fram úr
annarri en haföi ekki nóg pláss til
þess. Flytja varð báðar bifreiðarnar
burt meö kranabíl.
BÍLA
MARKADUR
...á fullri ferd
Á bílamarkaöi DV á
laugardögum, auglýsa
fjöldi bllasala og
bílaumboöa fjölbreytt
úrval bíla af öllum
gerðum og I öllum
verðflokkum.
Vinningstölurnar 30. janúar 1988.
Heildarvinningsupphæð kr. 5.474.470.
1. vinningur var kr. 2.743.592 og skiptist hann á milli 2ja vinningshafa. kr. 1.371.796 á mann.
2. vinningur var kr. 821.160 og skiptist hann á 360 vinningshafa, kr. 2.281 á mann
3. vinningur var kr. 1.909.718 og skiptist á 9.694 vinningshafa sem fá 197 krónur hver.
Upplýsingasími: 685111.
Hárlos?
Blettaskalli?
Líflaust hár?
Hárrækt meö akupunkt-
aðferö ásamt rafmagns-
nuddi og köldum leiser-
geisla. 890 kr. tíminn.
Laugavegi28 (2.hæð)
Sími 11275
AUGLÝSENDUR
ATHUGIÐ!
Auglýsingar I bllakálf
þurfa aö berast I slöasta
lagi fyrir kl. 17:00
fimmtudaga.
Smáauglýsingar I helgar-
blaö þurfa aö berast fyrir
kl. 17:00 föstudaga.
Slminn er 27022
BLAÐAUKI
ALLA
LAUGARDAGA