Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Qupperneq 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreiflng: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988.
Þorsteinn Pálsson:
Stjómin á efb'r
- að uppskera
„Þaö er athyglisverður sá munur
sem er á fylgi stjórnarflokkanna í
heild og fylgi ríkisstjómarinnar,“
sagði Þorsteinn Pálsson.
„Það var alltaf ljóst að ríkisstjórnin
þyrfti að taka fast á í upphafl til þess
að ná tökum á verðbólgunni. Það er
kannski ekki til vinsælda fallið fyrir
ríkisstjórnina en óhjákvæmilegt eigi
að síður. Stjórnin á eftir að uppskera
vegna þessara verka,“ sagði Þor-
steinn Pálsson. -ój
Eiður Guðnason:
Áeftiraðbreytast
„Þessi ríkisstjórn hefur á skömm-
um tíma beitt sér fyrir róttækari
breytingum en nokkur önnur í mjög
langan tíma þar sem um er að ræða
grandvallarbreytingar á tekjuöflun
ríkisins," sagði Eiður Guðnason,
formaður þingflokks Alþýðuflokks-
manna. „Þessar breytingar hafa
margvísleg áhrif og það má kannski
orða það þannig að það sem er óvin-
sælt og ýmsum þyki koma illa við
er komið fram - hitt sem er til bóta,
lækkunar og jöfnunar, er ekki en
komið fram nema aö litlu leyti.
Ég er sannfærður um að þegar DV
gerir svona könnun eftir hálft ár eða
svo þá muni þessar tölur hafa snúist
við. Vegna þess að menn munu sjá
aö til lengdar er verið að vinna þjóð-
þrifaverk sem er ekki komið nema
að litlu leyti í Ijós ennþá."
-SMJ
Bensínverð í ríkisstjóm:
Lækkun til
*■ framkvæmda?
Lækkun á bensínverði verður til
umijöllunar á fundi ríkisstjórnarinn-
ar í dag og samkvæmt upplýsingum
DV eru líkur á að þar verði ákveðið
að verð á bensíni muni lækka um
1,50 til 2 krónur. -ój
LifL^ggingar
■li
ALÞJÓÐA
LÍ FTRYGGINGARFÉLAGIÐ HF.
I.ÁGML'1.15 - RFYkJAVfk
Smi (vSI(41
LOKI
Getur Albert ekki sent Jóhanni
einn vindildrjóla á Kortsnoj?
Einvígi Jóhanns og Kortsnojs:
kært Vlktor Kortsno)
- hann hefur truflað mii
i, segir Jóhann Hjartarson
Sigurdór Sigurdórssan DV, Kanada:
Friðrik Ólafsson stórmeistarí,
sem er talsmaður þeirra Jóhanns
• Hjartarsonar og aðstoðarmanns
hans, Margeirs Péturssonai', kærði
Viktor Kortsnoj í gær fyrir yfir-
dómara einvígjanna, Sveflan
Gligoric, í gær fyrir að trafla Jó-
hann gróflega meðan á 5. og þó
sérstaklega 6. skákinni stóð. Glig-
oric viðurkenndi að það væri.rétt
að framkoma Kortsnojs væri truf-
landi fyrir Jóhann en þó væri það
alveg á mörkunum að hann gæti
gripið inn í málið.
Það sem Kortsnoj gerir og þó al-
veg sérstaklega í 6. skákinni í gær
er að hann æðir um gólf þegar Jó-
hann á leik og hugsar og er alltaf
í sjónmáli Jóhanns. Kortsnoi keðj-
ureykir og kveikir í-með stubbnum
og drepur í sígarettunum fyrir
framan andlitið á Jóhanni, sem
ekki reykir.
„Þetta pirrar migog truflar,“ seg-
ir Jóhann Hjartarson.
Þráinn Guðmundsson, formaður
Skáksambands íslands, sagðist í
samtali viö íslenska fréttamenn,
seint í gærkveldi ekki geta orða
bundist vegna þessa og að hann
myndi fylgja eftir kæru Friðnks
Ólafssonar á hendm' Kortsnoj í
framhaldi einvígisins.
„Það fór ekkert á milli mála hvað
Kortsnoj var að gera og ég mun
ekki líða þetta áfram. GUgoric skal
og verður að grípa þarna inn í,“
sagði Friðrik Ólafsson í samtah við
DV seint í gærkveldi.
Jóhann segir að framkoma
Kortsnojs trafli sig, hann nái ekki
að einbeita sér sem skyldi.
Við sem fylgst höfum með einvígi
þeirra tvímenninga frá byrjun höf-
um tekið eftir því hve framkoma
Kortsnojs hefur breyst gagnvart
Jóhanni í tveimur síðustu skákum
og hversu gróflegá hann truflaði
Jóiiann, einkum í skákinni í gær.
„Svona er Kortsnoj, hann lætur
tilgangmn alltaf helga meðalið.
Hélduð þið að hann væri einhver
engill?“ spurði ónefndur stórmeist-
ari tíðindamann DV í gær. Það er
því ijóst að til tíðinda getur dregið
á miðvikudaginn þegar þeir
Kortsnoj og Jphann heija fram-
haldseinvígið. í dag verður dregið
um Uti í þessu tveggja skákaeinvígi
sem hefst á morgun.
Steingrímur J. Sigfússon:
Fýlgi
stjórnar-
flokkanna
mun hníga
Fyrstog
fremst matar-
skatturinn
„Það er fyrst og fremst matarskatt-
urinn sem veldur þessum viðbrögð-
um fólks," sagði Kristín Einarsdóttir,
þingkona Kvennalistans. „Matar-
skatturinn kemur verst niður á þeim
sem vora verst settir. Og þeim sem
betur er komið fyrir flnnst hann
ósanngjarn. Auðvitað er ýmislegt
fleira sem kemur til, t.d. málflutning-
ur stjórnarliða sem gengur út á að
telja fólki trú um að þetta sé allt sam-
an mjög gott. Það er þvi greinilegt
aö fólk telur sig geta átt von á ein-
hveiju öðru.“ -SMJ
„Það er greinilegt og þaö hefur
komið fram í fleiri könnunum að það
hafa orðið snögg umskipti í afstöðu
fólks til ríkisstjórnarinnar,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins.
„Stuðningur við ríkisstjórnina hef-
ur hrapað um 20 prósentustig á
stuttum tíma og sýnir þessi könnun
svipaða niðurstöðu og aðrar kannan-
ir í því efni. Það er ekki tilviljun að
það hafa fleiri áttað sig á því að það
eru vondir hlutir sem þessi ríkis-
stjórn er að gera. Fylgi stjórnarflokk-
anna mun hníga í framhaldinu og
þó að tveir stjórnarflokkanna haldi
í horfinu ennþá tel ég að á næstunni
muni ábyrgðin á aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar dreifast jafnar yfir
flokkana," sagði Steingrímur J. Sigf-
ússon. -ój
Kristín Einarsdottir:
Veðrið á morgun:
Norð-
austanátt
og hvasst
Á morgun verður norðaustan-
átt og hvasst um allt land, snjó-
koma norðan- og austanlands en
annars úrkomulaust. Frost verð-
ur um allt land, frá 3 til 6 stig.
Alþingi kom saman í gær eftir tveggja vikna hlé. Hér stinga þeir saman nefjum Olafur G. Einarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra. Umræðuefnið hefur sennilega verið
skoðanakannanir frá þvi i gær sem sýndu mjög aukið fylgi Kvennalista. DV-mynd KAE
Fimmtíu og tvær kærur
Alls voru gefnar út 52 kærar í
umferðinni í Reykjavík á síðasta sól-
arhring. Tuttugu og einn árekstur
varð og í einum þeirra slösuðust öku-
maður og farþegi. Var það í tveggja
bíla árekstri á mótum Bíldshöfða og
Breiðhöfða.
Ellefu ökumenn voru kærðir fyrir
of hraðan akstur. Númer voru tekin
af 16 ökutækjum vegna vanrækslu á
aðalskoðun. Níu ökumenn voru
kærðir fyrir að aka á móti rauðu
ljósi.
-sme