Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1988, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 2. MAÍ 1988. Fréttir Versiunamtenn: Fonnanna- raðstefnahjá sáttasemjara „Það hefur verið ákveðið að for- menn eða aðalsamningamenn þeirra verslunarmannafélaga, sem felldu miðlunartillöguna, komi saman til fundar hjá mér í dag til að ræða stöðuna sem upp er komin,“ sagði Guðlaugur Þor- valdsson ríkissáttasemjari í samtali við DV, en þrettán versl- unarmannafélög felldu tiilögu Guölaugs. Hann sagöist ekki sjá hvað hægt væri að gera til Iausnar deil- unni eftir að þessi staða væri komin upp. Máhð væri komið í harðan hnút sem erfitt yrði að leysa. Sá möguleiki er til í stöðunni að hvert félag fyrir sig reyni samninga heima í héraði og sagö- ist Guðlaugur ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að sú aöferð yröi reynd. Fyrir utan Hafnaríjörö og Suð- umes, og þar meö talið milli- -landaflugið, beinist nú verkfall verslunarmanna úti á lands- byggðinni fýrst og fremst að kaupfélögunum. Nær allar einka- verslanir úti á landi em opnar og innanlandsflugið getur haldiö áfram, en kaupfélögin eru lokuð. Þaö mun því meira mæða á Vinnumálasambandinu en Vinnuveitendasambandinu þeg- ar leitað verður lausnar á deil- unni næstu daga. -S.dór Ámesingar lög- htýðniríverkfallinu Regína Thorarenæn, DV. Selfoasi; Að sögn Hansínu Stefánsdóttur, sem er á skrifstofu verkfallsvaröa í Árnessýslu, eru sýslubúar lög- hlýðnir og virða verkfall verslun- armanna. Aðeins tvær manneskjur hafa veriö stöðvað- ar, það er eiginkona og dóttir Óla Kr. Sígurðssonar hjá BP, sem eiga lögheimili í Reykjavík, en þær voru að afgreiöa bensín. Á verkfallsvakt em 30-50 manns til taks ef með þarf, að því er Hansína sagði. Vinnuveitendasambandið undiibýr refsiaðgerðir: Afgreiðslubann á fyrir- tæki sem semja sér Á fundi framkvæmdastjómar Vinnuveitendasambandsins í gær, 1. maí, var samþykkt að fela samn- ingaráði að undirbúa vamarað- gerðir til að verja hagsmuni vinnuveitenda og knýja fram lyktir á yfirstandandi vinnudeilum. Sem upphafsskref slíkra aðgerða sam- þykkti framkvæmdastjómin að fela samningaráði að hefja undir- búning að viðskipta- og afgreiðslu- banni aðildarfélaga Vinnuveiten- dasambandsins gagnvart þeim fyrirtækjum sem gengið hafa til samninga við þau stéttarfélög sem nú heyja verkfaU gagnvart aðildar- félögum Vinnuveitendasambands- ins. „í raun þýðir þetta að við viljum forða veiklunduðum meðbræðrum okkar frá að falla í þá freistni að gera sérsamninga við þau félög sem em í verkfalli. Við ætlum ekki að skilja þá félaga okkar út á landi eftir sem sýnt hafa ábyrgð og festu í verkfailinu. Við ætlum aö koma í veg fyrir að þeir aðilar, sem hugsa bara um stundarhagsmuni og hafa samið undanfarið, geti tekið við- skiptin frá þeim sem sýnt hafa ábyrgð," sagði Þórarinn V. Þórar- insson, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambandsins, í samtali við DV. Hann sagði að þetta viðskipta- og afgreiðslubann kæmi því aðeins til framkvæmda að verkfallið héldi áfram úti á landi. Þær verslanir, sem samið hafa í verkfallinu, eiga því á hættu að fá ekki vöruafgreiðslu hjá fyrirtækj- um í Reykjavík eða öðram stöðum þar sem verkfalli verslunarmanna er lokið sem eru innan Vinnuveit- endasambandsins. -S.dór Atkvæöl félagsmanna i Verslunarmannafélagi Reykjavikur um miðlunartil- lögu sáttasemjara voru talin i Karphúsinu á laugardagskvöldið. DV-mynd GVA Verkfalli verslunarmanna í Reykjavík lokið: Meirihluti var á móti en munurinn of lítill Kjörsókn í allsheijaratkvæöa- greiðslu Verslunarmannafélags Reykjavíkur um miðlunartillögu rík- issáttasemjara var 33,2%. Því taldist tillagan samþykkt þptt 1925 væru á móti henni, 1885 með, auðir selðar væra 24 og 8 ógildir. Kjörsókn þurfti að vera 35% til þess að einfaldur meirihluti réði því hvort tillagan væri felld. Við hvert prósent undir 35% markinu varð munurinn að verða meiri til þess að hægt væri að fella tillöguna. Um leið og úrslit voru kunn í taln- ingunni hjá ríkissáttasemjara á laugardagskvöldið var verkfalli verslunarmanna í Reykjavík aflétt. Verslunarmannafélagið á Hvammstanga samþykkti tillöguna með 14 atkvæðum gegn 13 en önnur verslunarmannafélög, 13 að tölu, felldu hana með miklum mun. Verk- fall verslunarmanna heldur því áfram annars staöar en í Reykjavík og á Hvammstanga. -S.dór Þrettán í verkfalli Bftir að Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Hvammstanga af- lýstu verkfalli á laugardagskvöld eru 13 félög úti á landi eftir í verkfalli. Þetta era: Verslunarmannafélag Hafnaríjarðar, Suðumesja, Akra- ness, Borgamess, Bolungarvíkur, ísafjarðar, Húnvetninga á Blönduósi, Skagfirðinga, Siglufjarðar, Akur- eyrar, Húsavikur, Vestmannaeyja og Ámessýslu. Félögin í Rangárvallasýslu og V- Skaftfellinga, sem og félögin á Austfjörðum og félagið í Búðardal, sömdu strax í fyrstu lotu. -S.dór í dag mælir Dagfari Stormsker sextándi Ennþá einu sinni lentum við í sextánda sæti. Það virðist alveg sama hvað viö geram, hvað viö syngjum og hvað við sendum í Eurovision, allt endar það í sext- ánda sæti. Nú vorum við búin að velja Sverri Stormsker og Sókrates og ekki vantaði meðreiðarsvein- ana. Þar var valinn maður í hveiju rúmi. Hemmi Gunn, Jón Páll og Hrafn Gunnlaugsson vora í fylgd- arliðinu og eftir því sem fréttir hermdu vakti íslenska sendinefnd- in gífurlega athygli hvar sem hún kom og veðbankar spáðu íslenska laginu allt frá fyrsta sæti upp í það þriðja. íslenska þjóðin var svo bjartsýn um árangur að það lá við þjóðarsorg þegar úrslitin birtust á skerminum. Og nú spyija menn- hver annan: Hvað gerðist? Hvemig má það vera að þetta stórkostlega lag nær ekki lengra? Og ekki stend- ur á yfirlýsingunum um að nú eigi íslendingar að draga sig út úr þess- ari keppni, hætta þessari vitleysu. En kæra landar, ekki láta hug- fallast. Lærum af mistökunum. Gerum betur næst. Allir sáu og heyröu að lag Sverris var langsam- lega best. En mistökin vora mörg. Fyrir það fyrsta var það misskiln- ingur hjá Hrafni Gunnlaugssyni að reyna að villa um fyrir aðstandend- um keppninnar og láta þá halda að Sighvatur Björgvinsson væra mættur á staðinn en ekki Sverrir. í öðra lagi voru það mistök að banna Sverri að vera eins og hann er. Sverrir átti að fá leyfi til aö flippa út. Til dæmis er sagt að list- amðurinn hafi þurft aö vera edrú flesta daga fyrir keppnina og hann hafi jafnvel þurft að fara á fætur um hádegisbil. Svona hömlur setja sanna listamenn út af lagmu, enda er Sverrir ekki vanur aö vera edrú svona lengi í einu og hann nær sér engan veginn á strik þegar hann þarf að fara á fætur fyrir allar ald- ir. Þegar kom að flutningi lagsins var Sverri bannað að kúka á sen- una eins og hann var búinn að lofa og honum var bannað að segja eitt- hvaö dónalegt eins og honum er lagiö. I öðra lagi er þetta allt saman klíka. Einn dómnefndarmanna okkar fullyrti strax eftir keppnina að þaö hefði verið vitlaust fólk sem hefði verið vahð í dómnefndir ann- arra þjóöa. Þá á hann líklega við að dómnefndimar hafi ekki vit á músík og svo líka hitt, að þær hafi mátt ráða hvem þær völdu. Eftir að hafa tekið þátt í söngvakeppn- inni þrisvar sinnum í röð ættum viö íslendingar að vera búnir að læra aö maöur fær ekkert stig, nema þá fyrir tilviljun, ef ekki er búið að semja við aðrar þjóðir um atkvæðin fyrirfram. Þaö var til að mynda vítavert kæruleysi hjá Bimi Emilssyni að þiggja ekki kostaboð- iö frá Tyrkjunum um að skiptast á atkvæöum og við hefðum ekki þurft nema að semja við tíu þjóðir til að komast í fimmtánda sæti. Til hvers er verið að senda út úrvalslið á borð við Hemma Gunn og Hrafn Gunnlaugs og Jón Pál ef þessir snilingar eru ekki notaðir til að semja um atkvæðin fyrirfram? í þriðja lagi getum við lært af þessari keppni að það skiptir í rauninni engu máh hvaða lag við veljum. Við höfum sent Gleðiban- kann og Hægt og hljótt og núna sendum við Sókrates, en allt kemur fyrir ekki og alltaf era fimmtán lög fyrir ofan okkur sem era miklu, miklu lakari. Það sem skiptir máh er að vera með. Andi ólympíulei- kanna, þjóð meðal þjóða, land- kynningin og auglýsingin, það skiptir máh, ekki hitt, hvort við sigram eða töpum. Og fyrir mestu er líka það að viö vitum sjálf að við höfum alltaf besta lagið. Það eru bara hinir, einhverjar dómnefndir í útlöndum, sem ekki kunna gott að meta og hafa samið um atkvæð- in fyrirfram og hafa í þokkabót engan húmor fyrir mönnum eins og Sverri Stormsker. Og svo er þetta aht saman píp, nauðaómerki- legar skrautsýningar þar sem sannir listamenn njóta sín iha. ís- lenska sendinefndin komst í frítt ferðalag til írlands, heimsótti merkar krár og auglýsti land og þjóð og var okkur öllum til sóma. Það er fyrir mestu. Auk þess borgar sig ekki að vinna. Sjónvarpið hefur ekki efni á að breyta reiðhölhnni í hljómleika- sal. Og við megum ekki við því að missa Sverri út í heimsfrægðina. Þá er betra að ganga að sextánda sætinu vísu. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.